Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Það er ótrúlegt en satt að bók-in hefur sennilega aldreistaðið sterkar en einmitt nú, rúmlega 550 árum eftir að sú fyrsta var prentuð. Enginn miðill býr yfir annarri eins seiglu. Það eru fleiri bækur prentaðar en nokkru sinni í heiminum, að sögn Kristjáns B. Jónassonar, framkvæmdastjóra Fé- lags íslenskra bókaútgefenda. „Á síðustu árum hefur bókamarkaður- inn í austurlöndum fjær, Kína, Taí- landi og Suður-Kóreu, tekið mikl- um breytingum. Sennilega er Suður-Kórea einhver magnaðasti bókamarkaður heims um þessar mundir. Þar er gríðarlegur upp- gangur í útgáfu almennra upplýs- ingarita, fólk vill fræðast um við- skipti, heimspeki, sjálfshjálp og jafnvel verkfræði. Allt selst.“    Hér á landi náði fjöldi útgefinnatitla hámarki árið 2000. Síðan hefur útgefnum titlum fækkað en prentuðum eintökum hefur fjölgað, að sögn Kristjáns. „Það er algeng- ara en áður að bækur séu prent- aðar í 5.000 til 10.000 eintökum.“ Ástæðan fyrir því að titlum fækkar er að öllum líkindum sú, segir Kristján, að opinberar stofnanir gefa ekki lengur út skýrslur sínar á bók heldur á rafrænu formi. „Þeim bókum sem ætlað er á almennan markað hefur hins vegar fjölgað stöðugt síðustu ár, við sjáum það glögglega á skráningum í Bókatíð- indin sem koma út á haustin, þar hafa aldrei verið jafn margar bæk- ur og á síðasta ári.“    Af þessu má sjá að íslenskurbókamarkaður stendur með miklum blóma. Hið sama má segja um bókmenntirnar sem gefnar eru út. Þær hafa sjaldan verið fjöl- breyttari. Bókmenntategundum hefur til dæmis fjölgað hérlendis á síðustu árum. Íslensku krimmarnir ruddu brautina og nú á síðustu misserum hefur orðið talsverð aukning á útgáfu afþreying- arbókmennta, frumsaminna og þýddra, ekki aðeins krimmum held- ur og svokölluðum „bestsellerum“ eða metsölubókum. Það eru skáld- sögur skrifaðar í raunsæjum frá- sagnarstíl, oftast um efni sem teng- ist daglegu lífi lesenda. Hér á landi eru rannsóknir á þessari tegund bóka komnar stutt á veg en erlendis hefur ekki einungis verið skoðað hvernig bókmenntir þetta eru held- ur einnig hvernig sé best að búa þær til. „The Making of a Bestsell- er: Success Stories from Authors and the Editors, Agents, and Book- sellers Behind Them“ heitir nýleg handbók um útgáfu slíkra bóka.    Og ekki má gleyma mikilligrósku í útgáfu barnabóka sem er mikilvæg breyting á íslensk- um bókamarkaði. Sennilega veltur framtíð bókaútgáfunnar á því að henni takist að vekja áhuga sem flestra barna á þessum miðli. Kann- anir sýna að börn og unglingar lesa æ minna. Unglingsstrákar lesa minnst allra. Það er íhugunarefni á degi bókarinnar. Spurningin er hvort hægt sé að vekja áhuga þessa lesendahóps með einhverjum hætti. Vantar hugs- anlega bækur við hans hæfi? Aldrei fleiri bækur prentaðar AF LISTUM Þröstur Helgason » Íslensku krimmarnirruddu brautina og nú á síðustu misserum hef- ur orðið talsverð aukn- ing á útgáfu erlendra af- þreyingarbókmennta í íslenskum þýðingum. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Kiljur Allt bendir til að íslenskur bókamarkaður standi í miklum blóma. throstur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.