Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Jón Skúli Run-ólfsson fæddist í Reykjavík 7. janúar 1947. Hann andaðist á hjartadeild Land- spítalans í Reykja- vík 15. apríl síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Runólfur Jónsson, frá Á á Síðu í Vestur- Skaftafellssýslu, f. 13.3. 1913, d. 22.12. 1999, og Arnþóra Sigfúsdóttir, frá Múla í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu, f. 25.8. 1906, d. 5.10. 1993. Systur Jóns Skúla eru Bjarney, búsett í Reykjavík, maki Bragi Agn- arsson, þau eiga tvö börn og tvö barnabörn og Ragnheiður, búsett á Seljalandi í Vestur-Skaftafells- sýslu, maki Snorri Björnsson, þau eiga þrjú börn og níu barnabörn. Jón Skúli ólst upp í Reykjavík, gekk í Laugarnesskóla og Vogaskóla og lauk prófi frá Samvinnu- skólanum á Bifröst 1968. Hann vann ýmis störf bæði til sjós og lands á með- an heilsan leyfði og var virkur í hinum ýmsum fé- lagasamtökum, m.a. var hann meðlimur í SÁÁ frá stofnun samtakanna 1977. Hann var í Alþýðubandalaginu frá stofnun þess og síðan Sam- fylkingunni til dauðadags. Jón Skúli var kaþólskur og sótti kirkju og atburði hjá kaþólsku kirkjunni sl. tuttugu ár. Jóni Skúla verður sungin sálu- messa í Kristskirkju í Landakoti í dag og hefst hún klukkan 13. Ég lifi einföldu lífi og þarf ekki mikla peninga, sagði Jón Skúli við mig fyrir mörgum árum og sýndi mér myndir af litlu telpunum sem hann styrkti úti í heimi, af örorkubótunum. Auðvaldið mergsýgur verkalýðinn. Það þarf að gera byltingu. Síðan bauð hann mér kaffi og rettu. Yfir kaffinu rifjaði hann upp söguna af gömlu kúnni Surtlu sem við byggð- um búið okkar á þegar við vorum þriggja ára. Við hlógum líka að því þegar hún týndist og við fórum að leita eins og Sigurður í Búkollusögu. Þetta uppátæki var víst ekki vel liðið á bæn- um því við tókum bróður minn tveggja ára með í leitina. Hann rifjaði líka upp þegar við fórum í kríuvarpið 11 ára og hann var svo hræddur við kríurnar að hann henti sér niður við hverja loft- árás eins og hermaður í bíó. Eins hló hann að því hvað hann var skotinn í systrum mínum sem þá voru orðnar dömur. Þannig var Skúli. Hann hló að sjálf- um sér og mistökum sínum. Margar skemmtilegar sögur sagði hann mér af sjónum þegar hann var messagutti og síðar kokkur. Hann grobbaði sig líka dálítið af skólaárunum, af ein- kunnunum sem alltaf voru góðar, en ekki síður af djamminu sem oft var skrautlegt og bætti við: Ég vildi ég væri enn þá úti í Hamborg. Þá var maður ungur og kunni að skemmta sér og alltaf nóg af kvenfólki. Skúli var svo óheppinn að missa heilsuna á besta aldri, vann ekki fulla vinnu eftir það og mátti ekki smakka vín. Þá skipti hann algerlega um lífs- stíl. Hann flutti til Akureyrar og gekk í kaþólsku kirkjuna sem varð hans annað heimili. Hann las biblíuna dag- lega og vitnaði spaklega í hana. Á Ak- ureyri eignaðist hann marga trausta vini. Hann lagði metnað sinn í að vera sjálfstæður og þurfa ekki hjálp frá neinum. Hann var nægjusamur, þakklátur fyrir lítið og vildi öllum gott gera. Takk, Jón Skúli, fyrir margar góðar stundir gegnum árin og fyrir þínar frumlegu predikanir og óvenjulegu sýn á lífið. Mér finnst hæfa þér, Skúli, að enda þessi orð á lokaerindinu í ljóði Steins Steinars um verkamanninn sem þú hafðir svo miklar mætur á. Hann var eins og hver annar verkamaður í vinnufötum og slitnum skóm. Hann var aldrei hryggur og aldrei glaður og átti ekki til nokkurn helgidóm. Engin frægðarsól né sigurbogi er saman tengdur við minningu hans en þeir segja að rauðir logar logi á leiði hins fátæka verkamanns. Hólmfríður Bjartmarsdóttir. Jón Skúli Runólfsson vinur minn er allur. Ég mun sakna hans sárlega. Jón Skúli er eitt mesta góðmenni sem ég hef um ævina kynnst. Hann tók á móti mér með útbreiddan faðminn og benti mér á leiðina þegar ég var að fikra mig aftur til lífsins eftir langan og erf- iðan slag við Bakkus: „Fyrst ég gat það, þá getur þú það,“ sagði hann. Svo fórum við að ræða tónlist og stjórn- mál. Á þeirri stundu vissi ég að ég var í góðum höndum, hafði eignast vin í raun. Þannig var Jón Skúli, hann tók á móti nýliðum sem voru að stíga sín fyrstu skref án vímuefna, hvatti til dáða, umvafði með kærleika og ráð- lagði af þekkingu. Á annan áratug höfum við Jón Skúli verið samferða, hist nær vikulega til að efla andann og því betur sem ég kynntist honum því vænna þótti mér um hann. Jón Skúli þurfti oft að taka á honum stóra sín- um, því að viðbættum illvígum alkó- hólismanum þurfti hann að kljást við erfiðan geðsjúkdóm. Oft leið honum illa en aldrei heyrði ég hann kvarta yfir hlutskipti sínu. Þess á milli fór hann á kostum, afburðagreindur og vel lesinn einstaklingur sem elskaði fagurbókmenntir og góða tónlist. Þegar alheimsstjórnmál bar á góma var öllum ljóst hvar hann stóð, hann fyrirleit ójöfnuð, hvers konar brot á mannréttindum og stríðsbrölt. Mér fannst eitthvað dregið af hon- um vini mínum síðustu mánuðina, en alltaf var stutt í brosið og uppörvun. Síðast þegar við hittumst kom hann til mín til þess eins að segja mér hvað honum fyndist ég flottur. Þannig var Jón Skúli. Með ljóði eftir borgarskáldið Tóm- as Guðmundsson, sem Jón Skúli hélt mikið upp á, kveð ég góðan dreng. Um vorkvöldin síðla ég sigli einn um sundin blá Til hvíldar er heimurinn genginn og hljómarnir þysmiklu fallnir í dá Um sofanda varir fer viðkvæmt bros meðan vornóttin gengur hjá. Hve fley mitt svífur við svalan blæinn um sundin blá Í kvöldmóðu fjöll eru falin og fölnandi gylling slær vötnin á Og draumljóð í kyrrðinni dulrænt berst djúpinu sofandi frá. Ó, hvaðan ber sönginn, er svífur í nótt yfir sundin blá? Hver leggur í leik sinna strengja svo ljúfsáran trega og djúpa þrá? Það er sem heyri ég hjarta mitt í hörpunnar ómum slá. Á burtu með söngvunum sál mín líður um sundin blá Í líðandi niði vorblárra vatna vaggaðu, húmnótt, sorg minni og þrá Lát hægan drjúpa af dularhönd þinni draumveig á syrgjandans brá. Pálmi Gunnarsson. Genginn er á vit feðra sinna Jón Skúli Runólfsson. Ég átti þeirri gæfu að fagna að kynnast Jóni Skúla fyrir hartnær 20 árum, og þá strax áttaði ég mig á því að þarna var á ferðinni öðlingur. Ég minnist hans sem góðs drengs, húm- orista og réttsýns heimsborgara. Jón Skúli var vinur vina sinna og mátti ekkert aumt sjá hjá alþýðufólki þessa lands en auðvaldið átti ekki upp á pallborðið hjá honum. Jón Skúli hafði skoðanir á öllum málum og lausn á allflestum málum annarra sem minna máttu sín. Jón Skúli var rauðliði allt frá fyrstu tíð og allt var gott sem úr austrinu kom, þó sagði hann að það væru góðir verkamenn í Ameríku. Alltaf sagði Jón Skúli að AA sam- tökin væru það besta sem fundið hefði verið upp í Bandaríkjahreppi. Jón Skúli hafði einstaklega góða frásagnarhæfileika og sagði hann mér margar góðar og skemmtilegar sögur. Einnig sagði hann mér frá al- vöru lífsins og reyndi oft að koma vit- inu fyrir frænda sinn. Jón Skúli átti við vanheilsu að stríða og það var ekki allra að skilja Jón Skúli Runólfsson Kæri Einar bróðir, þakka þér fyrir góðu árin með þér. Þú munt ávallt vera í hjartanu mínu. Þín elskandi systir Anna. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku Sigrún, Laufey, Ronni og fjölskylda, við vott- um ykkur okkar innilegustu samúð, megi Guð styrkja ykkur og varðveita. Ykkar, Sigríður, Rósa, Elfa, Anna, Kristín, Petrea og fjölskyldur. Elsku afi minn. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Ég elska þig. Þinn afasonur, Jón Einar. HINSTA KVEÐJA ✝ Einar Þorgeirs-son skrúðgarð- yrkjumeistari fædd- ist í Reykjavík 20. september 1947. Hann lést af slysför- um föstudaginn 11. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Snjólaug Petra Stef- anía Magnúsdóttir, f. á Þverhamri í Breiðdalshreppi í S- Múlasýslu 29. októ- ber 1926, og Þorgeir Jón Einarsson bíla- málari, f. í Reykjavík 5. júlí 1921. Þau eru bæði látin. Einar var elst- ur fjögurra systkina. Hin eru Magnús Ingvar, f. 8. nóvember 1949, Ingigerður, f. 8. ágúst 1951, og Anna, f. 3. mars 1958. Einar kvæntist 7. október 1967 Sigrúnu Edvardsdóttur, f. á Akra- nesi 9. desember 1946. Foreldrar hennar eru Edvard Friðjónsson, f. á Akranesi 15. september 1922, d. 15. september 1982, og Laufey Karítas Runólfsdóttir, f. á Ferju- bakka 11. desember 1926. Börn Einars og Sigrúnar eru: 1) Run- ólfur garðyrkjumaður, f. 27. febr- úar 1973, unnusta Þórunn Halla Unnsteinsdóttir. Börn hans eru Jón Einar, Helga Karítas og Sigrún Petra. 2) Laufey Karítas viðskipta- fræðingur, f. 20.12. 1982, unnusti Jónas Haukur Ein- arsson og börn þeirra eru Silvana Ósk Jón- asdóttir og Camilla Rún Jónasdóttir. Einar lauk námi frá Garðyrkjuskóla rík- isins árið 1965 og fékk hann meistararéttindi nokkrum árum seinna. Verknámi lauk hann hjá Þórarni Inga Jónssyni. Lengst af starfaði hann sem sjálfstæður atvinnu- rekandi og sem verk- taki. Frá árinu 1984 tók hann við gróðrarstöðinni Birkihlíð og rak hana ásamt verktakastarfsemi. Birkihlíð hafði á árunum 1988-1992 á leigu gróðrarstöðina Alaska í Breiðholti, og var með sölu þar og ræktun. Árið 1997 var gróðr- arstöðin Lundur við Vesturlands- veg einnig á leigu undir ræktun. Birkihlíð flutti frá Birkigrund árið 1993 á Dalveg 32 og þaðan flutti gróðrarstöðin, árið 2006, austur í Reykholt í Bláskógabyggð. Meðal fjölmargra verkefna Einars eru lóð Seðlabankans, leikskólans Grænu- borgar og Hjallakirkju í Kópavogi ásamt lóðinni í kringum Bernhöft- storfu. Einar verður jarðsunginn frá Digraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Vorið er komið og grundirnar gróa. Þessi orð úr kvæðinu góða koma upp í hugann þegar við setjumst niður og skrifum þessar hugleiðingar um þig, kæri mágur og svili. Eftir erfiðan vet- ur vegna veikinda, stóra hjartaaðgerð og endurhæfingu á Reykjalundi var vorið komið hjá þér í orðsins fyllstu merkingu. Þú varst farinn að huga að plöntum þínum og trjám eins og þú hafðir gert alla þína starfsævi. Með söknuði kveðjum við þig eftir áralöng góð kynni. Þú varst skrúð- garðyrkjumeistari og svo mikill lista- maður í þínu fagi, að eftir var tekið þegar þú skilaðir tilbúnu verki. Þegar við eignuðumst hús með stórum garði sögðum við þér að við ætluðum að malbika lóðina og mála hana græna. Þér fannst þetta nú ekki svara vert en svipurinn sagði sitt og þú bentir okk- ur á hvaða möguleika garðurinn hefði upp á að bjóða. Eftir nokkra umhugs- un ákváðum við að fara að ráðum þín- um. Þú komst til okkar, horfðir yfir garðinn og sagðir; þið gerið svona og svona og þetta og hitt. Við vorum al- gjörir græningjar á þessu sviði og skildum hvorki upp né niður í því um hvað þú varst að tala. Í minningunni sjáum við okkur gangandi á eftir þér um garðinn með skrifblokk og penna í hönd að reyna að ná því sem þú varst að segja. Seinna þegar þú komst í heimsókn pössuðum við okkur á að skrifa niður allt sem þú sagðir um gróðurinn því þú hafðir alltaf góð ráð að gefa okkur. Eftir stendur fallegur garður sem við erum mjög stolt af. Í hvert sinn sem við förum út í garð eða horfum út um glugga og dáumst að gróðrinum verður okkur hugsað til þín, kæri Einar, við eigum minnis- varða um þig og þína smekkvísi fyrir utan heimili okkar. Allt sem við vitum um garða og gróður eigum við þér að þakka. Þegar Gunnar sonur okkar vann hjá þér eitt sumar lærði hann mikið og býr enn að þeirri þekkingu. Þú reyndist honum afar vel og er hann þér mjög þakklátur fyrir. Að koma til þín í Birkihlíð var alltaf sérstök upplifun hvort sem við vorum að kaupa sumarbóm eða jólatré, alltaf miðlaðir þú af þekkingu þinni um gróður og garðrækt. Þar varst þú á heimavelli á stað sem þú hafðir byggt frá grunni eftir þínum hugmyndum og þar leið þér vel. Alltaf gafst þú þér tíma til að spjalla við okkur þó mikið væri að gera. Vinnudagurinn var oft langur en Sigrún og börnin áttu í þínum huga allt það besta skilið. Heimili ykkar ber vott um mikla smekkvísi og snyrtimennsku, þar fundum við ávallt sérstaka hlýju og gestrisni. Þegar barnabörnin bættust í hóp- inn hafðir þú yndi af að hafa þau hjá þér og var það þinn besti tími. Engin veit sína ævi fyrr en öll er og eitt er víst að þú varst kallaður frá þessu lífi áður en þú náðir að klára þau verk sem þú vildir ljúka við, til að búa ykkur Sigrúnu áhyggjulaust ævi- kvöld. Elsku Sigrún, Ronni, Laufey, tengdabörn og barnabörn, fjölskylda okkar biður allar góðar vættir að styrkja ykkur og hugga í ykkar miklu sorg. Helga Björk og Guðjón. „Já, getur það verið, til hamingju með daginn,“ heyrðist í tengdapabba þegar við löbbuðum inn um dyrnar í Heimalindinni og svo hlupu stelpurn- ar mínar upp í fangið á afa sínum og knúsuðu hann. En hann var í miklu uppáhaldi hjá þeim enda alveg ein- staklega þolinmóður að leika við þær. Þeim fannst fátt skemmtilegra en að príla upp í fangið á afa sínum og nota síðan lappirnar á honum sem renni- braut. Það gat oft gengið í langan tíma og Einar sagði aldrei neitt við þær sama hversu þreyttur hann var. Ég mun alltaf minnast Einars sem al- veg einstaklega góðs afa. Ég hefði heldur ekki getað hugsað mér betri tengdapabba en Einar. Hann var allt- af reiðubúinn að hjálpa mér við hvað sem var, nema kannski að skipta um stöð á sjónvarpinu. Þegar ég var eitt- hvað að framkvæma heima eða vinna í garðyrkju þá var hann alltaf kominn til að hjálpa mér. Enda hef ég aldrei kynnst vinnusamari manni. Við Einar gátum einnig oft spjallað mikið saman og þá oftast bara um daginn og veg- inn. Einar þekkti margt fólk og má segja að hann kannaðist við alla. Mér fannst oft gaman að því þegar einhver einstaklingur kom upp í umræðuna og ég vissi ekki hver það var. Þá þuldi hann upp ættarsögu þessa einstak- lings fyrir mann til að reyna að láta mann vita hver þetta væri. Hann skildi síðan ekkert í því ef maður átt- aði sig ekki á því um hvern var verið að ræða. Einar var alveg rosalega skemmti- legur karakter hann gat verið stríðinn og það var mikill húmor í honum, en hann mátti samt aldrei neitt aumt sjá þá fékk það á hann. Honum fannst rosalega gaman að sjá og skoða allt sem var fallegt. Hann var mikill fag- urkeri og smekkmaður á allt. Hann vissi alltaf hvað honum fannst smekk- legt og hvað ósmekklegt og oftast fór hann ekkert leynt með þá skoðun. sína Ég tel mig vera heppinn að hafa fengið að kynnast Einari og hafa hann í lífi mínu í þennan tíma og ég á eftir að sakna glottsins hans sárt. En nú getið þið afarnir og nafnarnir fylgst með okkur saman frá þeim stað sem þið eruð á núna. Ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og segðu pabba frá því hvað afastelpurn- ar ykkar eru yndislegar og skemmti- legar. Þinn tengdasonur, Jónas Haukur Einarsson. Það er okkur þungbært að þurfa að kveðja allt of snemma Einar frænda sem svo snögglega, og án þess að nokkur geti skilið ástæðuna, var færð- ur úr okkar mannlega heimi. Eftir standa minningar, tilfinningar og sögur um góðan mann. Einar var oft mjög orðheppinn og með sinn sér- staka húmor. Heilsaði oft með frös- unum „Til hamingju með bolludag- inn“ eða „Getur það verið?“ Þegar hann var á staðnum var hann oftast miðpunkturinn, kunni margar sögur og stutt í húmorinn. Föðurlegur tón- inn var heldur ekki langt undan þegar frændfólk var annars vegar. Hjá hon- um störfuðum við flestir bræðurnir á sumrin og meðfram skóla á unglings- árum, lærðum til verka og lærðum að „vinna“. Sá skóli hefur nýst vel og ber að þakka fyrir. Einar var einstaklega góður fag- maður og fær á sínu sviði. Hann hafði mjög næmt auga fyrir hönnun og ein- stakan náttúrulegan stíl. Eftir hann standa margir glæsilegir garðar sem munu verða honum minnisvarði. Einar var mjög frændrækinn og kom maður aldrei að tómum kofunum hjá honum hvað varðaði ættfræði fjöl- skyldunnar, tengsl manna á milli og hver líktist hverjum. Við eigum góðar minningar frá jólaboðum sem þau hjón héldu og voru einskonar ættar- mót því þar hittust öll börn, barna- börn og makar þeirra systkina og áttu Einar Þorgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.