Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HÖFUM VIÐ EFNI Á SJÁLFSTÆÐI? Umræður manna á meðal umstöðu efnahagsmála, vandabankanna og styrkleika eða veikleika krónunnar leiða fram margvísleg sjónarmið. Þar á meðal, að við Íslendingar höfum ekki lengur efni á því að vera sjálfstæðir og búa við sjálfstæðan gjaldmiðil heldur verðum við að leita inn á stærra efna- hagssvæði og öflugra myntsvæði og þá ekki endilega inn á evrusvæðið. Rökin sem færð eru fyrir því sjón- armiði, að við höfum ekki lengur efni á sjálfstæði okkar, eru m.a. þau að bankarnir séu orðnir svo snar þáttur í atvinnulífi okkar að taka verði lyk- ilákvarðanir um þróun þjóðarbú- skapar okkar í ljósi hagsmuna þeirra. Verði það ekki gert muni þjóðin dragast aftur úr öðrum þjóðum efna- hagslega og lífskjörin versna. Það er óneitanlega fróðlegt að heyra að eldgömul röksemd um að þessi litla þjóð geti ekki lifað sjálf- stæðu lífi á Íslandi skuli skjóta upp kollinum á nýjan leik. Úrtölumenn höfðu uppi þessa röksemd snemma á 20. öldinni, þegar síðasti kapítuli sjálfstæðisbaráttu okkar var að hefj- ast. Þegnar annarra þjóða hafa hvað eftir annað haldið því fram, að þjóð- arbúskapur okkar væri of lítil eining til þess að geta lifað sjálfstæðu lífi. Rúmlega hálfri öld eftir að við stofn- uðum lýðveldi og þremur áratugum eftir að við náðum endanlegum yf- irráðum yfir auðlindinni í hafinu í kringum landið koma fram raddir á nýjan leik, sem segja að við getum ekki lifað sjálfstæðu lífi vegna þess að hagsmunir íslenzkra fjármálafyr- irtækja kalli á aðild að stærri ein- ingu. Ætli íslenzka þjóðin sé höll undir slík sjónarmið? Er hugsanlegt að til- finningin fyrir sögu okkar og menn- ingarlegri arfleifð sé orðin svo dofin, að sjái fólk von í örlítið betri fjár- hagslegri afkomu sé meirihluti þjóð- arinnar tilbúin til að fórna því sem áunnizt hefur eftir glæsilega sjálf- stæðisbaráttu 20. aldarinnar? Því er erfitt að trúa en ekki hægt að útiloka að svo geti verið. Veruleikinn er hins vegar sá, að jafnvel þótt við værum orðin hluti af stærri einingu væri ekkert hlustað á kröfur okkar og hagsmuni. Við erum svo örsmá eining á mælikvarða t.d. Evrópusambandsins, að það er alveg ljóst, að hvorki Seðlabanki Evrópu né skriffinnskuveldið í Brussel mundi eitt andartak velta fyrir sér einhverjum aðgerðum til þess að ráða bót á vanda þessa fámenna hóps fólks á eyju í Norður-Atlantshafi. Þegar af þeirri ástæðu værum við ekki betur komin innan Evrópusam- bandsins en utan. En þar að auki megum við ekki gleyma því að bankastarfsemi er háð sveiflum ekkert síður en þorskur og ál. Síðustu mánuði höfum við kynnzt því. Við fórnum ekki sjálfstæði okkar vegna stundarhagsmuna fjármála- fyrirtækja. SIÐLAUS UMHVERFISVERND? Lífrænt eldsneyti er ein af þeimleiðum, sem nú er verið að rann- saka og prófa til að draga úr út- blæstri gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið. Tilraunir með etanól, sem meðal annars er unnið úr sykri og maís, eru ekki nýjar af nálinni, en eftir að Bandaríkjamenn ákváðu að leggja aukna áherslu á framleiðslu etanóls hafa skuggalegar hliðarverk- anir komið ljós. Verð á maís hefur hækkað vegna aukinnar eftirspurnar. Víða í þriðja heiminum er maís grundvallarfæðutegund og hækkun getur valdið því að þeir, sem minnst hafa á milli handanna hafa ekki efni á mat handa sér og fjölskyldum sínum. Evo Morales, forseti Bólivíu, ávarpaði fund Sameinuðu þjóðanna um áhrif hnattrænnar hlýnunar á þjóðflokka. Morales sagði að þróun og notkun lífræns eldsneytis myndi aðeins ýta undir fátækt og hungur í heiminum og skoraði á þjóðir heims að leggja frekar áherslu á hreina orkugjafa. „Lífrænt eldsneyti er mjög skaðlegt, sérstaklega fyrir fá- tækt fólk í heiminum,“ sagði hann síðar við blaðamenn. Alan Garcia, forseti Perú, sagði að framleiðsla líf- ræns eldsneytis græfi undan fram- leiðslu matar, meðal annars með því að taka ræktunarland, sem annars yrði notað til að rækta matvæli. Mikillar tregðu hefur gætt í þróun og rannsóknum á öðrum kostum en jarðefnaeldsneyti í helstu iðnríkjum heims. Hin stóru og valdamiklu olíu- félög hafa notað áhrif sín til að treysta stöðu sína og stjórnmála- menn hafa látið hagsmuni þeirra ganga fyrir. Þrýstingurinn á breyt- ingar hefur þó farið vaxandi og nú er hafin ný samningalota um að tak- marka útblástur gróðurhúsaloftteg- unda. Evrópusambandið hefur sett markmið um að árið 2020 verði 10% ökutækja í ríkjum þess knúin lífrænu eldsneyti. Misskipting auðs í heiminum er viðvarandi vandamál. Allt of margir jarðarbúar búa við viðvarandi skort á meðan aðrir lifa í vellystingum. Það er því öfugsnúið að helstu iðnríki heims ætli nú að leysa umhverfis- vandann, sem þau eiga á meginsök, á kostnað þeirra, sem minnst mega sín. Það er ekki auðvelt að finna hag- kvæmar leiðir til að leysa jarðefna- eldsneytið af hólmi. Svo virðist til dæmis sem þróun vetnisbíla muni taka lengri tíma en talið var. Raf- magnsbílum fylgir sá galli að þar sem rafmagn er framleitt með kolum eða gasi er eftir sem áður um að ræða los- un gróðurhúsalofttegunda. Þær koma bara ekki úr púströrum öku- tækja. Hvað sem því líður er ekki hægt að verja það að byggja lausnina á losun gróðurhúsalofttegunda á leið, sem eykur eymd í heiminum og getur kostað mannslíf. Það er siðlaus um- hverfisvernd. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Mahmoud Abbas, forsetiPalestínu, fagnar þvíað Íslendingar skuliauka samskiptin við stjórn sína og leggja friðarferlinu lið. „Okkur þykir afar gott að vera í þessu landi friðarins,“ sagði Abbas á blaðamannafundi með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á Bessastöðum í gær. „Þessi heimsókn gæti verið góður fyrirboði um friðarferlið með Ísr- aelum af því að það var í Reykja- vík sem haldinn var leiðtogafundur sem stuðlaði að lokum kalda stríðs- ins,“ sagði Abbas og vísaði þar til fundar Reagans og Gorbatsjofs 1986. „Leiðtogafundurinn í Reykjavík sýndi að sérhver þjóð sem vill vel getur leikið ákaflega stórt hlutverk í friðarferlinu, án tillits til stærðar hennar eða afls. Ísland getur lagt fram skerf. Þið eruð lítil þjóð og ógnið engum og viljið í einlægni beita ykkur fyrir því að við náum árangri í viðræðunum við Ísraela sem vonandi lýkur fyrir áramót.“ Forseti Íslands sagði Íslendinga dást að því hve vongóður og bjart- sýnn Abbas væri. „Þetta er í fyrsta skipti sem leiðtogar Palest- ínumanna heimsækja landið okkar og við fáum nú tækifæri til að eiga við þá gagnlegar viðræður um hver merki um mikilvægar ingar á stefnu Hamas. „Við erum ekki á móti fr artilraunum Jimmy Carte heimsókn hans til svæðisin aði Abbas. „Carter gaf þei ráð. Hann hvatti Hamas ti samþykkja tveggja ríkja la og viðurkenna fyrri samni Palestínumenn hafa gert v ástandið í Miðausturlöndum og einkum samningaviðræðurnar sem, nú fara fram,“ sagði Ólafur Ragnar. Á leið til fundar með Bush Palestínuforseti kom við hér á landi ásamt fylgdarliði sínu snemma í gærmorgun og hélt áfram ferð sinni til Bandaríkjanna í gærkvöldi. Þar hyggjast Palest- ínumennirnir ræða við George W. Bush forseta um friðarviðræð- urnar sem fram hafa farið við Ísr- aela í kjölfar viðræðufundanna í Annapolis. Eftir að hafa snætt hádegisverð með forseta Íslands átti Abbas fund með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra í Ráðherrabústaðnum í Reykjavík en þau hittust á sínum tíma er ut- anríkisráðherra sótti Miðaust- urlönd heim. Eftir fundinn í Ráð- herrabústaðnum fékk utanríkismálanefnd Alþingis tæki- færi til að hitta Palestínumennina en í fylgdarliði Abbas eru margir af nánustu samstarfsmönnum hans. Morgunblaðið minnti á fundium á Bessastöðum á nýlegar frið- artilraunir Jimmy Carters, fyrr- verandi Bandaríkjaforseta og spurði Abbas hvort hann sæi ein- „Ísland getur Mahmoud Abbas Palestínuforseti rifjaði upp leiðtogafundinn í Reykjavík 1986 sem hann taldi sýna að stærð eða afl þjóðar væri ekki forsenda þess að geta lagt friðinum lið. Kristján Jónsson var á blaðamannafundum forsetans og ræddi við nána samstarfsmenn hans. Ráðamenn hittast Mahm blaðamannafundinum í rá YASSER Abed Rabbo er 64 ára gamall, hann hefur áratugum sam- an verið í forystusveit Palest- ínumanna og var framan af mjög herskár en hefur frá því á níunda áratugnum verið talinn í hópi frið- ardúfnanna. Rabbo var meðal æðstu manna í sendinefnd Frels- ishreyfingar Palestínu, PLO, þeg- ar fyrstu beinu friðarviðræður Ísr- aela og Palestínumanna fóru fram í Madrid 1991. Hann er nú náinn ráðgjafi Mahmouds Abbas Palestínuforseta en gegndi áður ýmsum ráðherra- embættum. Rabbo er spurður hvort hann sé nú jafn bjartsýnn á friðarferlið og þegar það hófst 1991 „Í hreinskilni sagt er ég ekki mjög bjartsýnn,“ svarar Rabbo. „Framferði Ísraela á hernumdu svæðunum hvetur mig ekki til að segja að við getum vænst mikils árangurs í friðarviðræðunum. En við munum gera okkar besta til loka þessa árs til að ná samn- ingum, binda enda á hernámið og gera kleift að stofna sjálfstætt Pal- estínuríki. En samtímis því sem Ísraelar tala við okkur og semja við okkur eru þeir að reisa nýjar byggðir landtökumanna á svæðum okkar, taka eignarnámi æ meira af landi okkar. Og þeir efla enn tök sín á Jerúsalem. Höfum varað við Við höfum varað ísraelsk og bandarísk stjórnvöld við þessu, alla við því að ef raunverulegt frið- arferli misheppnast og ekki tekst að ná samningum um stofnun Pal- estínuríkis fyrir áramót og binda enda á hernámið muni það aðeins efla harðlínuöfl ofsatrúarmanna á friðarsamninga í dóm þjóð ef þeir nást. Samþykki me inn þá er ljóst að við í stjór estínu erum ekki veikburð – Hamas-menn segjast s ætla að una niðurstöðunni um að þeir muni ekki gera „Þeir eru með leikarask eru að reyna að vinna tím stöðugt með einhver bellib Þeir léku á Carter í liðinn Þeir sögðu honum ýmisleg við tjöldin en neituðu svo a ast við því opinberlega. Of ismennirnir vilja fá tíma t loka, vona að friðarferlið og þá ætla þeir að skella a skuldinni á okkur og Ísrae telja þeir að almenningur styðja þá af meira afli. En um efna til þjóðaratkvæði sem þeim líkar vel eða illa aratkvæðis án nokkurra f Við verðum ekki gíslar Ha svæðinu. Óvinir friðarins í Ísrael, Palestínu og arabaheiminum myndu græða á því. Öfl hófsemdar og veraldlega sinnaðra stjórnmálamanna myndu tapa í Mið-Austurlöndum. Það er fyrir hendi eins konar undarlegt bandalag milli þeirra sem vilja áfram hernám og ofstækismann- anna.“ Hann segist ekki samþykkja að stjórn Ehuds Olmerts í Ísrael sé of veik til að geta gripið til nauðsyn- legra aðgerða. En leiðtogar þurfi að vera hugrakkir. Er Olmert þá ekki nógu djarfur? „Ég tel að hann ætti að sýna meira hugrekki en ég ætla ekki að dæma hann. Ísraelskur almenn- ingur, sem í skoðanakönnunum styður alltaf friðarsamninga, mun gera það ef hann tekur ekki af skarið á næstu mánuðum. Við erum staðráðin í að leggja Vilja ekki verða gíslar Hamas-samtakanna Morgunbla Ráðgjafi Palestínumaðurinn Yasser Abed Rabbo er 64 ára og re baráttujaxl: „Í hreinskilni sagt er ég ekki mjög bjartsýnn.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.