Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Settu þetta bara hérna undir stólinn hjá mér þar sem fyrri undirskriftalistinn þeirra er geymdur, Marshall minn. Án nokkurs vafa hafa orð Mahm-oud Abbas, forseta palestínsku stjórnarinnar, í gær, hljómað sem sannkallað eyrnakonfekt í eyrum þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar forseta og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra.     Hér er vísað tilþeirra orða Abbas, sem hann lét falla er hann ávarpaði blaða- og fréttamenn eftir hádegisverð með forsetanum á Bessastöðum, í þá veru að lítil ríki á borð við Ísland gætu haft miklu hlutverki að gegna í friðarferlinu fyrir botni Miðjarð- arhafs.     Auðvitað eru orð sem þessi merk-ingarlítil og látin til þess eins falla að gleðja gestgjafana. Áhrif Ís- lands og ráðamanna þess á hina deil- una fyrir botni Miðjarðarhafs hafa aldrei verið nein, þau eru engin og þau munu engin verða í framtíðinni.     Því fyrr sem við Íslendingar sætt-um okkur við að örríki í Norður- Atlantshafi hefur engu hlutverki að gegna við háborð heimsátakanna, þeim mun betra. Því þannig getum við farið að einbeita okkur að því verkefni að koma að gagni á al- þjóðavettvangi.     Þar bíða okkar ýmis verkefni, semvið getum leyst af hendi með sóma. Við getum lagt okkar af mörkum við að hjálpa öðrum til þess að hjálpa sér sjálfir. Það gerum við með því að stuðla m.a. að því að íbú- ar þróunarlanda hafi aðgang að vatni, menntun og heilbrigðisþjón- ustu, m.a. í Palestínu.     En slíkt hjálpar- og þróunarstarfer unnið fjarri glys og glamúr hanastélsboða stórþjóðanna og sviðsljósi fjölmiðla og því kannski ekki nógu spennandi. Eða hvað?! STAKSTEINAR Mahmoud Abbas Mahmoud Abbas og Ísland                      ! " #$    %&'  (  )                 *(!  + ,- .  & / 0    + -       12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                         !        "##"   :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?    $  $          $$                        *$BC %%%%                    !    !      " #" $  % *! $$ B *! &'  ( %  %' % !   ) <2 <! <2 <! <2 &! ( #" %* #+ ,%-"#.  CD $                  *   !   &   '  " (    )!  !  !)    /    #!   * +  !'   &  ,    !  -)  ! !   &     !  <    87  # &!       ,    !  #" $  % /0"" %%11  #" %%2  %* #+ Árni Rúnar Þorvaldsson | 22. apríl Fjölskyldumálin Í kosningabaráttunni fyrir sveitarstjórn- arkosningarnar lagði Samfylkingin á Horna- firði mikla áherslu á fjöl- skyldumálin. Þau eru hverju samfélagi mik- ilvæg. Til þess að við getum verið samkeppnishæf er mikilvægt að við getum boðið upp á eftirsóknarverðar aðstæður fyrir fjölskyldufólk. Þess vegna lögðum við áherslu á þessi mál í okkar kosningabaráttu. En það er ekki síður mikilvægur … Meira: arnith2.blog.is Salvör | 22. apríl Mín stafræna bókahilla Í tilefni af viku bók- arinnar kom ég mér upp bókahillu á shelfari. Slóðin á mína hillu er shelfari.com/salvor Það er auðvelt að skrá sig og setja bækur í bókahillur, það er feiknaöflug leit, það þarf aðeins og slá inn nafn höf- undar eða titil bókar eða IBSN-númer og hægt er að merkja bækurnar í hill- unni eftir því hvort það eru bækur sem maður er búinn að … Meira: salvor.blog.is Dofri Hermannsson | 22. apríl Fróðlegur fundur Hann var afar fróðlegur þessi fundur í Hvera- gerði í gær sem haldinn var að frumkvæði bæj- arstjórnar Hveragerðis. Brátt er að vænta nið- urstöðu Skipulagsstofn- unar um matsskýrslu OR en eins og margir muna var sett Íslandsmet í fjölda athugasemda við matsskýrslu. Orkuveitan segist ætla að reyna að skola brennisteininn úr hveragufunni og vonar að það muni takast vel. Það þykir Hvergerðingum ekki nóg. … Meira: dofri.blog.is Kolbrún Baldursdóttir | 21. apríl Ég nenni ekki að vera að halda hári á meðan verið er að æla Þetta voru orð ungrar stúlku sem sagðist vera búin að gefast upp á að skemmta sér með sumum skólasystrum sínum. Þau tilvik hafi ítrekað átt sér stað að einhver úr hópnum fór yfir strikið, varð ofurölvi og þurfti að æla. Eins var ekki óalgengt að undir áhrifum áfengis átti dramatíkin það til að ná hæstu hæðum. Þar sem stúlkan not- aði ekki áfengi sjálf tók hún það að sér að hjálpa öðrum stúlkum sem drukkið höfðu meira en þær réðu við. Hjálpin fólst í að styðja, hugga þær sem grétu og halda hári frá andliti þeirra ef þær þurftu að æla. Þessi stúlka er ein af þeim ungling- um sem hefur tekið ákvörðun að neyta ekki áfengis hvorki nú né síðar á ævinni. Í umræðu um málefni ung- linga og forvarnir er ekki nógu oft minnst á þá krakka sem hafa ákveðið með sjálfum sér að neyta ekki áfeng- is, hvorki í náinni framtíð né þegar þeir verða sjálfráða eða enn síðar þegar þeir verða löggildir áfengis- kaupendur. Ákvörðunin felst í því að áfengi verði ekki hluti af þeirra lífsstíl. Huga þarf að þessum krökkum því margir eiga í heilmikilli baráttu við sjálfa sig og umhverfið. Annars vegar eru þeir að reyna að halda sínu striki þrátt fyrir félagaþrýsting en á sama tíma vilja þeir eðlilega vera hluti af hópnum. Mikilvægt er að samfélagið styðji við bakið á þeim, t.d. með því að minnast oftar á þau í almennri um- ræðu, hvetja þau til að halda ótrauð sínu striki og einnig að hvetja aðra unglinga til að taka þau sér til fyr- irmyndar. Það er mikið álag að vera í sporum þessarar stúlku í þeim aðstæðum sem hún lýsti. Henni fannst hún verða að taka ábyrgð og fara í hlut- verk aðstoðarkonu væri hún á annað borð á staðnum. Nú var hins vegar svo komið að hana langaði ekki leng- ur að vera viðstödd ef átti að hafa áfengi um hönd. Með þeirri ákvörðun fannst henni jafnframt sem félagsleg staða hennar kynni að vera í upp- námi. Hún óttaðist að einangrast og velti fyrir sér hvar hún gæti fundið fé- lagsskap sem hún teldi sig passa betur inn í. Meira: kolbrunb.blog.is VEÐUR SIGMUND Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ BLOG.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.