Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 43                                                           !  "        #$ % &  '       ($    ) % &        *    +  ($    ( &   )$,   ($          -   ! " "#$ %& '() * + , * -" .$ / 012 334 4 FJÓRAR kvikmyndir verða frum- sýndar í dag, seinasta vetrardag, í íslenskum kvikmyndahúsum. Má þar finna sitt lítið af hverju, gríni, hasar og dramatík. Drillbit Taylor Miðskólanemarnir Ryan, Wade, og Emmit auglýsa í dagblaði eftir líf- verði til að vernda þá fyrir hrekkju- svíni skólans, Filkins. Drillbit Tayl- or (Owen Wilson) kemur til hjálpar og reynist allskrautlegur lífvörður, og tekur drengina í sjálfsvarnar- þjálfun, bæði líkamlega og andlega. Með önnur hlutverk fara m.a. Nate Hartley og Troy Gentile. IMDb: 6,1/10 Metacritic: 41/100 Over Her Dead Body Henry (Paul Rudd) missir unnustu sína, Kate (Eva Longoria Parker) á brúðkaupsdaginn. Hann leitar til miðilsins Ashley (Lake Bell) sem er hugguleg, ung kona, í von um að ná sambandi við hina látnu en verður þess í stað ástfanginn af miðlinum. Draugurinn Kate er ekki sáttur við það og fer að ásækja miðilinn. IMDb: 4,3/10 Metacritic: 30 /100 Street Kings Keanu Reeves fer með aðalhlut- verkið í þessum glæpatrylli, leikur uppgjafarannsóknarlögreglumann í Los Angeles, Tom Ludlow, sem leitar morðingja félaga síns úr lög- reglunni. Forest Whitaker leikur lögreglustjóra sem reynir hvað hann getur til að hafa hemil á Lud- low og láta hann fylgja siðareglum lögreglunnar. Með önnur helstu hlutverk fara Hugh Laurie og Chris Evans. IMDb: 7,4/10 Metacritic: 55 /100 In the Valley of Elah Í myndinni segir af hjónunum Hank (Tommy Lee Jones) og Joan (Susan Sarandon) sem hefja leit að syni sínum eftir að hann hverfur sporlaust frá herstöð í Nýju- Mexíkó. Sonurinn er hermaður og nýkominn frá í Írak. Áhugaleysi rannsóknarlögreglu og hersins verður til þess að Hank fer sjálfur að rannsaka málið og reynist það hið dularfyllsta. Með önnur hlut- verk fara Chalize Theron og Jason Patric. IMDb: 7,6/10 Metacritic: 65 /100 Grín og glæpir í lok vetrar Konungar strætis Keanu Reeves mundar skotvopn í kvikmyndinni Street Kings en hann er alvanur hasarmyndaleik eins og aðdáendur hans vita. FRUMSÝNINGAR» JÆJA, þá er það endanlega komið á hreint, Beyonce Knowles og Jay-Z eru hjón. Þetta fékkst stað- fest hjá borgaryfirvöldum í New York, nánar tiltekið ónefndri skrif- stofublók sem fékk hjónavígsluvott- orð stjörnuhjónanna í hendur í gær. Fjölmiðlar vestanhafs og víðar hafa velt því mikið fyrir sér hvort þau Knowles og Jay-Z hafi gift sig eða ekki. Brúðkaupsveislan fór s.s. fram á Manhattan þann 4. apríl sl. og mun hafa verið íburðarmikil, eins og menn geta kannski ímyndað sér miðað við ríkidæmi þeirra hjóna. Knowles er 26 ára og geysivinsæl söng- og leikkona. Jay-Z, réttu nafni Shawn Carter, er 38 ára tón- listarmaður. Þau skötuhjú hafa ver- ið saman í ein sex ár. Reuters Hugguleg hjón Beyonce Knowles og Jay-Z á tískusýningu í janúar sl. Hjónaband- ið staðfest GÍTARLEIKARI Bon Jovi, Richie Sambora, var kærður í gær fyrir ölvunarakstur en hann var hand- tekinn í mars sl. fyrir að keyra drukkinn. Sambora var stöðvaður á Laguna Beach í Kaliforníu þar sem hann keyrði Hummer-bifreið sína milli akreina og skapaði með því hættu. Hann gæti fengið allt að sex mán- aða fangelsisdóm fyrir brotið en ku síðustu fréttir herma að hann þurfi aðeins að greiða sekt. 10 ára dóttir hans var farþegi í bílnum. Reuters Fullur Mynd tekin á lögreglustöð af Richie Sambora gítarleikara. Tekinn fyrir ölvunarakstur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.