Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 17 SUÐURNES Eftir Birki Fanndal Mývatnssveit | Þótt ís sé á stærstum hluta Mývatns og heiðalönd sem einn jökull yfir að líta er mikið komið af önd- um, gæsum og fleiri fuglum. Ekki minnast menn þess að annar eins fjöldi heiðagæsa hafi sést hér fyrr og veldur því trúlega að hálendið er allt undir fönn. Grágæs er einnig með almesta móti, þær frændsyst- ur eru mest uppteknar við að rann- saka tún bændanna með álftinni, en einnig eru flotar á vatninu þar sem íslaust er við jarðhitasvæðin. Fuglaskoðari benti fréttaritara á að flórgoði er með almesta móti og sagðist sá ekki hafa fyrr séð 60 flór- góða saman í hópi. Mikið er komið af skúfönd og jafnvel sést duggönd og grafönd, auk húsandarinnar sem helst yfirgefur ekki sveitina. Hettumáfurinn er kominn og stak- ur fýll sást í dag og er afar sjald- séður. Þeir sjófuglarnir eru lítið fagnaðarefni á þessum slóðum. Snjótittlingur er horfinn til fjalla en skógarþröstur hefur tekið við hlut- verki hans í görðum og skóglendum sveitarinnar. Blíðviðrið að undanförnu er fagnaðarefni fyrir alla sem unna vorinu. Flórgoðapar Stungið saman nefjum á Mývatni. Fjöltóna sinfónía fyllir loftið að vori Morgunblaðið/BFH LANDIÐ Eftir Svanhildi Eiríksdóttur Reykjanesbær | „Það er endalaust hægt að viða að sér þekkingu og það má segja að ég hafi drukknaði í henni. Ég hef lesið mikið og fylgst vel með öðru sundfólki og þetta lærist þegar maður sekkur sér í þetta. Ég flokka efn- ið og hef þróað með mér ákveðna tæki. Það sem hefur nýst mér vel hef ég notað og ég skipti ekki um takt rétt fyrir mót þegar tæknin gefur góða raun,“ sagði Steindór Gunnarsson, yfirþjálfari hjá Íþróttabandalagi Reykjanes- bæjar (ÍRB), í samtali við Morgunblaðið. Steindór hefur náð feikigóðum árangri með sundiðkendur innan ÍRB. Nærtækast er að nefna afrek Erlu Daggar Haraldsdóttur á ný- afstöðnu Íslandsmeistaramóti. Á því móti unnu sundiðkendur ÍRB 18 titla af 38 mögu- legum og síðasta Aldursflokkameistaramót Ís- lands vann ÍRB fjórða árið í röð, 400 stigum á undan næsta liði. Stefnan hefur verið sett á 5. sigurinn í röð. Þær eru ófáar stundirnar sem Steindór hef- ur varið í stöður á sundlaugarbakkanum. Hann byrjaði að þjálfa hjá UMFN í upphafi 10 áratugarins. Þegar sunddeildir UMFN og Keflavíkur fóru að keppa sameiginlega undir merkjum Íþróttabandalags Reykjanesbæjar (ÍRB) árið 2001 varð Steindór yfirþjálfari og hefur verið það síðan. Um tíma var hann einn- ig landsliðsþjálfari Sundsambands Íslands en það reyndist of mikið. „Þessi vinna mín hefur bitnað nokkuð á fjöl- skyldunni sem mótmælir stundum. Þau eru mörg boðin sem ég þarf að afþakka og kemst í fáar ferðir með fjölskyldunni. Ég er yfirleitt upptekinn við æfingar eða keppni um helgar,“ sagði Steindór í samtali við blaðamann. Að minnsta kosti þrisvar í viku er Steindór rokinn á fætur fyrr en flestir aðrir og kominn niður í sundlaug til þess að þjálfa elstu sundiðkend- urna, en sá hópur æfir 9 sinnum í viku. Á lokahófi eftir Íslandsmeistaramótið árið 2007 var Steindór valinn þjálfari ársins en hann hefur ásamt Eðvarði Þór Eðvarðssyni unnið að uppgangi sundíþróttarinnar í Reykja- nesbæ og þeir í sameiningu hafa náð að byggja upp sterkt lið. Snýst um fjölbreytt æfingaálag Hópur Steindórs telur 30 manns á aldrinum 14 til 22 ára. Steindór sagði að í hópnum væri góð stemning, gleði og góður andi enda brott- fall lítið. Hann á sjálfur mikinn þátt í því, en vill lítið út á það gefa. Þeir foreldrar sem blaðamaður hefur rætt við hafa hins vegar hælt honum í hástert og eru mjög ánægðir með hans starf. „Þessir krakkar eru orðnir eins og hluti af fjölskyldunni. Mórallinn í hópnum er góður og við hittumst alltaf reglulega utan sundlaug- arinnar og gerum eitthvað skemmtilegt sam- an, það skiptir svo miklu máli. Ég hef byggt móralinn þannig upp að það teljist jákvætt að vera duglegur og mæta vel á æfingar. Sund- þjálfun gengur auk þess út á náin samskipti og pælingar með hvern og einn einstakling.“ Steindór sagði ennfremur að ekki mætti vanmeta starf foreldra, íþróttastarf stæði og félli með foreldrum. „Það eru þau sem verða að hafa stjórn á æfingum og styðja þau á allan hátt. Þó að foreldrar haldi ef til vill að ungling- arnir þurfi minna á þeim að halda en áður er staðreyndin sú að þau þurfa jafn mikið klapp á bakið og stuðning og þau vilja það. Mörgum finnst með ólíkindum að Steindór hafi geta náð eins miklu út úr sundiðkend- unum og raunin er og eiga ekki fortíð í sundinu sjálfur, líkt og Eðvarð Þór. „Það er endalaust hægt að viða að sér þekkingu og ég hef gert það,“ sagði Steindór þegar málin voru rædd. Hann sagðist kunna að synda en kysi heldur að fara út að skokka. „Þessi góði árangur hefur fyrst og fremst náðst með mjög fjölbreyttu æfingaálagi og það skýrir líka hvers vegna svona margir í ÍRB eru góðir í fjórsundi. Ég met hvern og einn, enda misjafnt hvað hentar hverjum og þegar kemur að mótum snýst þetta um að hitta á rétta strengi þannig að þau nái sínu besta fram. Þau setja sér síðan markmið, t.d. að verða aldursflokksmeistari eða við vinnum út frá ákveðnu mottói, eins og að fylla gullkistu af gulli.“ Kartöflupokaburður fyrsta þjálfunin Þó að bakgrunnur Steindórs liggi ekki í sundinu hefur hann lengi verið íþróttamaður og er menntaður íþróttakennari. Ásamt sund- þjálfuninni stýrir hann sérkennslu í Njarðvík- urskóla, sem einnig snýst um nána ein- staklingskennslu og hann segir þetta tvennt vinna mjög vel saman. Hann geti nýtt reynsl- una úr hvoru tveggja á víxl. „Ég er alinn upp í sveit í Þykkvabænum og mín íþróttaiðkun snerist í fyrstu um að bera kartöflupoka. Síðan fór ég bæði í frjálsar íþróttir og fótbolta. Eftir grunnskóla fór ég í Menntaskólann að Laugarvatni, en þar er mik- il íþróttahefð og síðan í Íþróttakennaraskól- ann.“ Eftir að hafa þjálfað bæði í frjálsum íþróttum og fótbolta og verið grunnskólakenn- ari á Hólmavík lá leiðin hingað suður og frá 1991 hefur Steindór verið grunnskólakennari við Njarðvíkurskóla. „Það var af rælni sem ég fór að þjálfa sund. Ingibjörg Þorsteinsdóttir, sem þá var formað- ur sunddeildar UMFN, plataði mig til að koma og þjálfa hjá deildinni og eftir það varð ekki aftur snúið. Mér líkaði þetta strax mjög vel og hóf að viða að mér mikilli þekkingu. Það sem hentar mér svo vel er einstaklingskennslan. Í sundinu ber hver ábyrgð á sínu og það eina sem þarf er sundlaug. “ Það var á þessum fyrstu árum sem Steindór sá hvaða sundmann Erla Dögg hafði að geyma og hvatti hana til að æfa sund. Blaðamaður spyr Steindór að því að lokum hvort það sé betri efniviður hér en annars staðar á landinu ef tekið sé mið af árangri sundiðkenda hér á landsmótum. „Nei, ég held að það sé ekki ástæðan. Í Reykjanesbæ er mikill íþróttaandi og hefð fyrir ákveðnum íþróttum eins og körfubolta og sundi. Árangr- inum er haldið við með góðu starfi og bæj- arfélagið hefur skapað frábæra aðstöðu.“ Fjölbreytt æfingaálag er lykillinn Morgunblaðið/Svanhildur Sundþjálfari Steindór Gunnarsson hefur náð góðum árangri með sundfólk ÍRB. Í HNOTSKURN »Steindór Gunnarsson hefur verið yf-irþjálfari hjá ÍRB í 7 ár og náð ein- staklega góðum árangri. »Steindór segir að góð aðstaða hafi ver-ið sköpuð í Reykjanesbæ fyrir sund- iðkun og nefndi að góðum árangri væri haldið við með góðu starfi. »Sundmenn innan ÍRB hafa sett stefn-una á að vinna Aldursflokksmeist- aramót Íslands fimmta árið í röð í sumar. Steindór Gunnarsson, yfirþjálfari hjá ÍRB, á ekki fortíð í sundinu Dalir | Opið hús verður í hjúkrunar- heimilinu á Fellsenda í Dölum á sumardaginn fyrsta, kl. 13.30 til 16.30, í tilefni þess að fjörutíu ár eru síðan starfsemi hófst í gamla húsinu á Fellsenda. Sagt verður frá upphafi reksturs heimilisins og stjórn afhent handrit af sögu Finns Ólafssonar, fjölskyldu hans og hjúkrunarheimilisins á Fellsenda. Öllum er síðan boðið að skoða heimilið og kynna sér starf- semina. Veitingar verða í boði heim- ilisins. Margt annað verður boðið upp á, segir í frétt frá stjórn heimilisins, svo sem tónlist frá Nikkólínu. Fyrir börnin og aðra unga í anda verður hoppkastali með rennibraut. Skátafélagið Stígandi verður með skrúðgöngu frá bílastæðinu neðan vegar frá kl. 13.30 og fánahyllingu. Opið hús á Fellsenda í tilefni afmælis heimilisins Rýmingarsala! Verslunin flytur í nýtt og enn glæsilegra húsnæði 25-40% afsláttur af öllum vörum Allt á að seljast Arctic Spas Faxafeni 9 (ATH: aðkoma í kjallara bakhús) Sími 554 7755 www.arcticspas.is & www.heitirpottar.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.