Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 31 Atvinnuauglýsingar Potturinn og Pannan Blönduósi óskar eftir matreiðslumanni eða vanri mann- eskju í eldhús.  Góð laun í boði  Húsnæði í boði Upplýsingar eru veittar í síma 898 4685 eða bjorn@potturinn.is Raðauglýsingar 569 1100 Tilkynningar Tilkynningar Byr sparisjóður, kt: 610269-2229, hefur gefið út flokk af peningamarkaðsvíxlum. Heildarnafnverð útgefins flokks ræðst af markaðsaðstæðum. Stærð flokksins verður að hámarki 2.000.000.000 kr að nafnvirði og verða víxlarnir seldir í 5.000.000 kr einingum. Byr sparisjóður hefur birt lýsingu vegna töku eftirfarandi flokks til viðskipta: BYR 08 1008. Lýsingin verður aðgengileg almenningi frá og með 23. apríl 2008. Eftirfarandi víxlaflokkur er tekinn til viðskipta hjá OMX Nordic Exchange Iceland hf. þann 23. apríl 2008: BYR 08 1008 Þann 8. apríl síðastliðinn var gefinn út víxlaflokkurinn BYR 08 1008. Heiti flokksins vísar til auðkenni hans í OMX Nordic Exchange Iceland hf. Hámark fjárhæðar flokksins er 2.000.000.000 kr. Víxlar að fjárhæð 1.500.000.000 kr. hafa þegar verið gefnir út og verða teknir til viðskipta. Víxlarnir eru vaxtalaus eingreiðslubréf og er gjalddagi þeirra 8. október 2008. Lýsingar og önnur gögn varðandi ofangreindan peningamarkaðsvíxil liggja frammi hjá Byr sparisjóði, Borgartúni 18, 105 Reykjavík, sími: 575-4000, myndsendir: 575-4011 eða á heimasíðu Byrs sparisjóðs www.byr.is. Lýsingin verður aðgengileg til gjalddaga flokksins, þ.e. 8. október 2008. Reykjavík 23. apríl 2008 Auglýsing um deiliskipulag Vatnaskógar Hvalfjarðarsveit Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 25 gr. Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipu- lagi frístundasvæðis KFUM í Vatnaskógi, Hvalfjarðarsveit. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við aðal- skipulag Hvalfjarðarstrandahrepps 2002-2014 og gerir ráð fyrir að það verði áfram frístunda- land fyrir ungmenni. Lögð verði áhersla á skógrækt og uppbyggingu íþróttasvæðis og einnig er gert ráð fyrir nokkrum byggingar- reitum fyrir skógarkofa til notkunar við starfið. Byggingarreitir við íþróttahús og svefnskála eru rýmkaðir vegna fyrirhugaðra viðbygginga og nánar skilgreindir. Tillagan ásamt skipulags- og byggingarskil- málum liggur frammi á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Miðgarði, frá 25. apríl 2008 til 25. maí 2008 á venjulegum skrifstofutíma. Athugasemdum skal skila á skrifstofu skipu- lags- og byggingarfulltrúa, Miðgarði, fyrir 10. júní 2008 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemd innan til- greinds frests teljast samþykkir tillögunni. Skipulags- og byggingar- fulltrúi Hvalfjarðarsveitar. Auglýsing um deiliskipu- lag íbúðarhúsalóðar í landi Víkur Hvalfjarðarsveit. Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 25 gr. Skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipu- lagi íbúðarhúsalóðar, í landi Víkur, Hvalfjarðar- sveit. Deiliskipulagstillagan er í samræmi við aðal- skipulag Innri- Akraneshrepps 2002-2014 og gerir ráð fyrir einni íbúðarhúsalóð að stærð 2.000 m². Tillagan ásamt skipulags- og byggingarskil- málum liggur frammi á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Miðgarði, frá 25. apríl 2008 til 25. maí 2008 á venjulegum skrifstofutíma. Athugasemdum skal skila á skrifstofu skipu- lags- og byggingarfulltrúa, Miðgarði, fyrir 10. júní 2008 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds frests teljast samþykkir tillögunni. Skipulags- og byggingar- fulltrúi Hvalfjarðarsveitar. Veiði Veiði Tilboð óskast í veiði á vatnasvæði Heiðadeildar Veiðifélags Blöndu og Svartár. Vatnasvæðið tekur til Blöndulóns, sem er ofan Blöndustíflu og Kolkustíflu, ásamt þeim þverám sem í lónið og Blöndu falla. Árnar eru m.a: Galtará, Hauga- kvísl, Herjólfslækur, Kúlukvísl og Seyðisá. Veiðitími er frá 20. júní til 30. september. Til- boðum skal skilað til Jóhanns Guðmundsson- ar, Holti, 541 Blönduós, fyrir 1. júní nk. Nánari upplýsingar í síma 861 5592. Stjórnin. Félagslíf I.O.O.F. 9  18842381/2 I.O.O.F. 7.  18842371/2  Fl. I.O.O.F. 18  1883238  Kk. Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. GLITNIR 6008042319 I Vorfundur Vakningarsamkomur með Curtis Hinds, trúboða og pastor frá Torontokirkjunni, verða haldnar í Safnaðarheimili Grensáskirkju mið. 23. apríl og fim. 24. apríl kl. 20.00. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri. Allir eru hjartanlega velkomnir. Tilboð/Útboð Útboð á hönnun og ráðgjöf Fasteignafélag Hafnarfjarðar óskar hér með eftir tilboðum í alla hönnun og alla ráðgjöf verkefnisins "Hönnun og ráðgjöf fyrir 6 deilda leikskóla að Liljuvöllum 2". Leikskólinn er 6 deilda og um 1.100 m² að stærð brúttó og lóðarhönnun nær til um 7.300 m². Útboðsgögn fást keypt á kr. 10.000 frá og með miðvikudeginum 23. apríl nk., hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, að Strandgötu 6 - 8. Útboð verksins skal auglýst eigi síðar en 24. ágúst 2008. Tilboðum skal skila til Fasteignafélags Hafnar- fjarðar, Strandgötu 11 (3. hæð), 220 Hafnarfirði, fyrir kl. 11:00, þriðjudaginn 6. maí 2008 og verða þau þá opnuð þar, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess kunna að óska. Fasteignafélag Hafnarfjarðar. Nauðungarsala Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Borgar- braut 2, Stykkishólmi, sem hér segir á eftirfarandi eign- um: Ennisbraut 10, fnr. 210-3551, Snæfellsbæ, þingl. eig. Bylgja Dröfn Jónsdóttir og Davíð Þorvaldur Magnússon, gerðarbeiðendur Borgun hf. og Glitnir banki hf., miðvikudaginn 30. apríl 2008 kl. 10:00. Grundargata 45, fnr. 211-5083, Grundarfirði, þingl. eig. Emil Sigurðs- son, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Kaupþing banki hf., miðvikudaginn 30. apríl 2008 kl. 10:00. Hábrekka 15, fnr. 210-3667, Snæfellsbæ, þingl. eig. Stefán Ingvar Guðmundsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 30. apríl 2008 kl. 10:00. Tjarnarhólmi 2, fnr. 211-6315, hluti, Stykkishólmi, þingl. eig. Guðþór Sverrisson, gerðarbeiðandi Innheimtumaður ríkissjóðs, miðvikudaginn 30. apríl 2008 kl. 10:00. Ægisgata 6, fnr. 211-6376, Stykkishólmi, þingl. eig. Jóhannes Ólafur Jónsson og Malgorzata Teresa Wladecka, gerðarbeiðandi Ríkisútvarpið ohf., miðvikudaginn 30. apríl 2008 kl. 10:00. Sýslumaður Snæfellinga, 22. apríl 2008.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.