Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 44
STARFSMENN Reykjavíkurborgar eru um þess- ar mundir í óða önn við að þrífa borgina, sem þykir hafa komið illa undan vetri. Víða leynist ruslið og þurfti þessi starfsmaður að vaða út í litlu tjörnina við Ráðhúsið miðja til að ná ýmsu smálegu sem þangað hefur verið hent. Hreinsað til í bak- garðinum Morgunblaðið/Frikki MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 114. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Efla samskiptin  Sérstakur sendifulltrúi í mál- efnum Palestínumanna hefur verið skipaður hér á landi. Þórður Ægir Óskarsson sendiherra mun sinna starfinu og fara reglulega í heim- sókn til svæðisins, en hafa aðsetur á Íslandi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði þá að til greina kæmi að bjóða palestínskum þingmönnum og ísraelskum hingað til lands til viðræðna. »Forsíða Skuldir aukast  Skuldir heimilanna í bankakerfinu jukust um 47 milljarða króna í síð- asta mánuði. Þar af jukust skuldir heimilanna í erlendum gjaldmiðlum um 39 milljarða. Erlendar skuldir jukust um 23,8% í mars en aukn- ingin skýrist fyrst og fremst af gengisfalli krónunnar. »2 Vill sátt um REI  Kjartan Magnússon, stjórnar- formaður Orkuveitunnar og REI, segist telja nægilegt að tillaga meiri- hluta stjórnar OR, sem borin var upp á síðasta stjórnarfundi, verði samþykkt á stjórnarfundi en ekki eigendafundi. »4 Rannsóknir vekja athygli  Íslenskur skurðlæknir í sérnámi í Bandaríkjunum, Elsa Björk Vals- dóttir, hefur vakið athygli fyrir rannsóknir sínar á aðgerðum gegn krabbameini í ristli. »2 SKOÐANIR» Staksteinar: M. Abbas og Ísland Forystugreinar: Höfum við efni á sjálfstæði? | Siðlaus umhverfisvernd? Ljósvaki: Enginn hundur í gufunni UMRÆÐAN» Óánægja atvinnubílstjóra Hvað segja sjálfstæðismenn nú? Kjartan á villigötum Gefum bók í sumargjöf  3 3 3 3 3 4   +5%& . #%* #+ 6 #" ##"%%$% 1 %  3 3 3 3 3 3  3 - 7 1 &  3 3 3 3 3 3 89::;<= &>?<:=@6&AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@&7%7<D@; @9<&7%7<D@; &E@&7%7<D@; &2=&&@$%F<;@7= G;A;@&7>%G?@ &8< ?2<; 6?@6=&2*&=>;:; Heitast 10 °C | Kaldast 5 °C  Austan 8-13 m/s við s-ströndina, hægara annars staðar. Skýjað m/köflum n-lands, fer að rigna s-lands síðdegis. » 10 Íslenskur bóka- markaður stendur með miklum blóma og hið sama má segja um bókmennt- irnar. »40 AF LISTUM» Bókamark- aður í blóma KVIKMYNDIR» Forgetting Sarah Mars- hall fær 3½ stjörnu. »38 David „Kubu“ Bengu er um 140 kg, mikill nautnaseggur í mat og drykk og óperuunnandi með meiru. »39 BÆKUR» Flóðhestur í Bótsvana TÓNLIST» Fedde Le Grand þeytir skífum í Broadway. »38 KVIKMYNDIR» Fjórar kvikmyndir verða frumsýndar í dag. »43 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Tók bílinn af syninum 2. Missti stjórn á skapi sínu 3. Bílstjórar fóru með friði 4. Óánægja m/lokun umdeilds bloggs  Íslenska krónan styrktist um 0,1% KARL Ágúst Úlfsson, forsprakki Spaugstofunnar, segir allar líkur á því að næsti vetur verði seinasti vetur Spaugstofunnar í Sjónvarp- inu. Næsta vor verða 20 ár liðin frá því þeir Karl, Sigurður Sigurjóns- son, Örn Árnason, Pálmi Gestsson og Randver Þorláksson hleyptu Spaugstofunni af stokkunum og hafa þættirnir notið gríðarlegra vinsælda allar götur síðan. Karl segir í samtali við Morgun- blaðið í dag að þeir félagar vilji loka „þessum 20 ára hring“ á næsta ári og snúa sér síðan að einhverju öðru. Þá telur hann ekki ósennilegt að þeir Spaugstofumenn hafi sett heimsmet með því að vera í svo mörg ár með gamanþátt í sjónvarpi skipaðan sömu leikurum og höf- undum allan tímann, þó að Randver sé ekki lengur í hópnum. | 36 Seinasti vetur Spaugstofu? Morgunblaðið/RAX Vitnisburður Karl, Randver og Örn gera grín að Baugsmálinu í fyrra. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is REFUR hefur verið á kreiki í Heið- mörk á liðnum árum og átt sinn þátt í að fækka grágæs í nágrenni við vatnsverndarsvæði Reykjavíkur. Talið er að um þrjú greni séu á svæð- inu milli Heiðmerkur og Bláfjalla og hafa refir tekið gæsaegg og grafið í jörðu hér og þar. Egg hafa komið sums staðar í ljós ef jarðvegur hefur fokið ofan af þeim. Einnig hefur ref- urinn veitt gæsaunga og jafnvel kan- ínur að sögn heimildarmanns. Ekki nóg með það heldur munu refir hafa sótt í grillmatarafganga sem fólk hefur skilið eftir í ruslafötum. Nokkuð fór að verða vart við refi á svæðinu eftir 1990 og hefur mein- dýraeyðir Reykjavíkurborgar fengið fáein útköll vegna refa á liðnum ár- um. Voru fimm refir skotnir á Heið- merkursvæðinu síðasta vetur en ef allt starfssvæði meindýraeyðis, þ.e. Reykjavík, Kjós og upp að Mos- fellsbæ, er tekið með í reikninginn voru um 20 dýr drepin. Engin hætta á bæjarinnreið „Þeir sáust yst í Grafarholti þegar hverfið var í byggingu en það eru tvö eða þrjú ár síðan,“ bendir Guð- mundur Björnsson, meindýraeyðir Reykjavíkurborgar, á. Hann bætir við að refir hafi einnig sést rétt fyrir ofan Reykjavík nýlega. „En ég tel enga hættu á því að þeir komi inn í bæinn og fari að gera sér greni í húsum eins og gerst hefur í erlendum borgum. Því síður stendur fólki á göngu um Heiðmörk ógn af refnum því hann hræðist fólk og flýr um leið og hann sér það. En refurinn er skæður í eggja- og ungaáti og hefur það ljómandi gott.“ Guðmundur segir að vanalega sé brugðist við öllum ábendingum um refi og í þeim tilvikum sem tekst að skjóta refinn gerist það á tiltölulega skömmum tíma. En sumir refir sleppa hins vegar. Segir Guðmundur það ekki vanann að liggja á grenjum í Heiðmörk heldur sé farið af stað með skotvopn og refurinn skotinn á færi. Refir í Heiðmörkinni Fara um og taka egg og unga og jafnvel kanínur og sækja auk þess í grillmat sem fólk hefur skilið eftir í ruslatunnum Í HNOTSKURN »Fólk með börn á ferð umHeiðmörk þarf ekki að óttast að refir ráðist á það þar sem þeir hræðast fólk og flýja um leið og færi gefst. »Refurinn hefur hins vegargert sér að góðu grillmatar- afganga sem skildir hafa verið eftir í ruslafötum. Aðallega étur refurinn þó egg og unga og telst skæður á því sviði. »Talið er að tvö eða þrjú greniséu upp af Heiðmörk. »Auk fugls, sem er aðalfæðarefa, lifa refir nálægt sjó á dauðum sjófugli, fiski og krækl- ingi. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Rándýr Rebbi er fallegt dýr en er líka skæður í umhverfinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.