Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 18
|miðvikudagur|23. 4. 2008| mbl.is daglegtlíf H ár er höfuðprýði og væntanlega átta fæstir sig á því hve mikil- vægur heilbrigður haddur er sjálfsímyndinni fyrr en á reynir. Demir Ilter getur státað af þéttu og miklu hári, en hann er sér engu að síður vel meðvitandi um þá angist sem hármissi getur fylgt. Enda var það óánægja eins kollega hans með eigin hárígræðslu sem varð kveikjan að því að hann skipti enn á ný um starfsvettvang. „Það var árið 2000 að við Ásdís buðum einum starfsfélaga mínum við Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi í mat. Hann óskaði eftir að ræða við mig einslega eftir matinn og í ljós kom að hann hafði farið í hárígræðslu sem hann var ósáttur við. Þar sem ég hafði starfað sem lýtalæknir vonaðist hann til að ég gæti aðstoðað sig. Sjálfur hafði ég ekki tekið eftir að hann hefði farið í slíka aðgerð fyrr en hann sýndi mér árangurinn og ég afði að auki enga þekkingu á hárígræðslu. Er ég hafði skoðað hann og séð hve gisið hárið var, sem stóð beint upp í loftið eins og dúkku- hár,lofaði ég að kynna mér málin,“ segir Demir. Sú rannsóknarvinna átti síðan eftir að skila sér í framhaldsnámi hjá dr. Robert Jones í Toronto í Kanada, nýjum starfsvettvangi og stofnun stofu, Ilter Clinic sem þau hjónin reka saman, þar sem Demir hefur nú framkvæmt rúmlega 700 ígræðslur. Ásdís skipti nefnilega einnig um stefnu, hætti við að gerast flugmaður og snér sér að hárígræðslu sem hún virðist ekki minna áhugasöm um en eiginmaðurinn. Hársekk fyrir hársekk „Ég sá fljótt að eitthvað þyrfti að gera því það virtist lítið um sérþekkingu á þessu sviði. Frammámenn í viðskiptalífinu sóttu samt í að fá lækna með aðrar sérgreinar til að framkvæma hárflutning. Lækna sem höfðu jafnvel lítinn áhuga á aðgerðinni. Þessu fannst mér þurfa að breyta og sýna fram á að þetta væri raunveru- leg sérgrein,“ útskýrir Demir. „Ég byrjaði því á því að komast að því hvaða þætti hárígræðsl- unnar menn væru ósáttir við. Það sýndi sig að þeir sem höfðu farið í aðgerð voru ekki alls kost- ar ánægðir með tæknina því henni fylgdu ýmsar áhættur, t.d. hætta á sýkingu, öramyndun og blæðingu. Auk þess sem árangurinn var oft ófullnægjandi og útlitið óeðlilegt.“ Hárflutningstækni sem fyrst leit dagsins ljós í Japan á fjórða áratug síðustu aldar lofaði hins vegar góðu að hans mati. Sú tækni er þekkt sem FUE (e. Follicular Unit Extraction) í dag. FUE tæknin er t.d. ólík Strip-tækninni að því leyti að hún byggir á því að hárið er fært til á höfðinu hársekk fyrir hársekk en ekki fjarlægð heil húð- ræma úr hársverðinum. Hársekkirnir eru þann- ig fluttir einn af öðrum frá gróskumiklu gjafa- svæði aftan á hnakkanum yfir á ígræðslusvæð- ið, t.d. kollvikin. Um mikla nákvæmnisvinnu er að ræða sem framkvæmd er undir staðdeyf- ingu. Byrjað er á að draga hársekkina út og þegar búið er að draga út það magn sem á að flytja er ákveðið í samvinnu við þann sem hár- ígræðsluna fær hvar nýja hárinu er komið fyrir. Algengt er að um 1.500 hársekkjaeiningar, sem jafngilda um 3.000 hárstráum, séu flutt til í einni aðgerð, þó að magnið fari raunar upp í 3.000 hársekkjaeiningar. Nýja svæðið er svo gatað á hárréttum stað með réttu horni og hársekknum komið fyrir. Miklu skiptir að gatið liggi rétt svo hárið vaxi eðlilega á nýja staðnum. Í sumum til- fellum þarf einungis eina aðgerð, en vilji fólk t.d. ekki raka af sér allt hárið sem er nauðsynlegt fyrir umfangsmikla aðgerð er hægt að taka fyr- ir smærri svæði í einu og hafa aðgerðirnar fleiri. Á ekki að vera sýnilegt „Svona hárígræðsla á að endast alla ævi,“ segir Demir. „Því þó að hársekkirnir sem fyrir eru á ígræðslusvæðinu séu viðkvæmari fyrir hárlosi eru hársekkirnir af gjafarsvæðinu eftir sem áður sterkari. Þeir eru af erfðafræðilegum ástæðum ekki viðkvæmir fyrir þeim áhrifum sem valda hárlosi og halda sínum eiginleikum þrátt fyrir flutninginn.“ Gjafarsvæðið er yfir- leitt um fjóra daga að jafna sig eftir aðgerð en ígræðslusvæðið grær á um 7-10 dögum. Hárið vex síðan á nýja staðnum í 2-3 vikur áður en það dettur af og hársekkurinn fer í hvíldarfasa sem varir í 4-6 mánuði. Eftir það fer hárið að taka við sér á nýjan leik og ætti þá að vaxa eðlilega. „Í 99% tilfella er ekki hægt að sjá að viðkomandi hafi farið í hárígræðslu,“ segir Demir sem hefur þróað enn nákvæmari útgáfu FUE-tækninnar, sem hann nefnir eftir sjálfum sér FUE Ilter. „Er ég var að vinna með dr. Jones sáum við í fyrstu aðgerðunum að þó að þessi tækni gæfist mun betur en Strip-aðferðin mátti enn gera bet- ur. Þéttleikinn var ekki nægjanlegur og ör á gjafasvæðinu í stundum áberandi. Ég stakk því upp á að við notuðum minni tæki og færðum til minni einingar svo ígræðslan yrði ennþá minna áberandi. Flestir nota tæki sem eru með 1 mm vinnslufleti, en ég hef verið að nota tæki með 0,5-0,75 mm vinnsluflöt. Það er ef til vill ekki mikill munur á 0,5 og 0,75 mm fletinum, en ég sé töluverðan mun á hárígræðslusvæði sem hefur verið unnið með 0,75 mm tæki og stærri.“ Hann bætir við að græða megi hár í bæði augabrúnir og skeggstæði og fylla þannig upp í ör sem myndast hafa eftir slys, bruna eða lýtaaðgerð. Viðkvæmur vandi Karlar eru um 90% þeirra sem hafa samband við Ilter Clinic vegna hárígræðslu, en þangað leitar þó líka fjöldi kvenna. „Það var erfiðara að hjálpa konum með Strip-tækninni, líklega var ekki hægt að aðstoða nema um 25% þeirra. Með FUE-tækninni má hjálpa um 60-70% þeirra kvenna sem hárlos hrjáir. Fjölmargar konur vita hins vegar ekki að þær geta fengið hjálp, nokkuð sem karlar virðast öllu meðvitaðri um.“ Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvort lýtalæknar vísi mikið á hann, en Demir segir flesta finna sig á eigin spýtur. „Hárleysi er nokkuð sem fólk er viðkvæmt fyrir. Það ræðir vandann jafnvel ekki við sína nánustu, enda finnst því það sjaldnast fá stuðning frá fólkinu í kringum sig. Venjulega er það því þannig að fólk sest við tölvuna að vinnudegi loknum og leitar sér upplýsinga á netinu. Og það er á net- inu sem flestir finna okkur. Þess vegna opnuð- um við m.a. upplýsingasíðu á íslensku.“ Fyrirspurnirnar berast líka víðsvegar að. „Um 50% viðskiptavina okkar koma utan Sví- þjóðar,“ segir Demir og nefnir Asíu, Evrópu og Bandaríkin sem dæmi. Þónokkrir Íslendingar eru í þessum hópi og kjósa þá oft að Ásdís sé þeirra tengiliður. Árangur þessara einstaklinga ári eftir aðgerð er svo, að mati þeirra Demirs og Ásdísar, það sem gefur starfinu gildi. „Þá hafa margir sem áður leið illa umbreyst yfir í einstaklinga sem eru fullir sjálfstrausts og sáttir við sjálfa sig,“ segir hún og Demir bætir við: „Þegar ég var í hjartaskurðlækningunum snerist starf mitt að miklu leyti um að lina þjáningar fólks sem var komið vel á aldur. Nú bæti ég hins vegar lífs- gæði fullfrískra einstaklinga sem fyrir vikið geta beint atorku sinni að því að lifa lífinu til fulls og það er virkilega gefandi.“ Hjón og samstarfsmenn Til þeirra Demir Ilters og Ásdísar Arnbjörns- dóttur leitar fólk víðsvegar að úr heiminum. Fyrir aðgerð Gisin kollvik geta vald- ið angist hjá konum sem körlum. Nákvæmnisvinna Hárið er flutt hársekk fyrir hársekk. Gefandi að bæta lífsgæði fólks Hann er úr stórri læknafjölskyldu og hóf fyrst störf sem lýtalæknir. Síðar sérhæfði hann sig í hjartaskurðlækningum og fyrir einum sex árum söðlaði hann enn um og sneri sér nú að hárígræðslu. Anna Sigríður Einarsdóttir ræddi við Demir Ilter, einn helsta starfandi hár- ígræðslusérfræðinginn, og konu hans, Ásdísi Arnbjörnsdóttur, sem rekur með honum stofuna Ilter Clinic í Stokkhólmi. Hárið vaxið á ný Þéttari kollvik um ári eftir aðgerð. Það þýddi eiginlega ekkert að fara í fel-ur með þetta þar sem að ég gerði þettafyrir framan sjónvarpsvélarnar,“ seg- ir Þór Jónsson, fyrrverandi sjónvarps- fréttamaður, en hann hefur í tvígang farið í hárígræðslu hjá Ilter Clinic. Fyrst haustið 2004 er kollvikin voru löguð og síðan árið 2006 er hár var grætt í hvirfilinn. „Í fyrra skiptið ætluðum við á Stöð 2 að gera frétt um hárflutning en sá sem við ætluðum að fylgjast með hætti á síðustu stundu við og kunni ekki við að sýna sig. Þess vegna fór ég fréttamað- urinn í stólinn og þá var fært sem nemur 500 hársekkjum í kollvikin.“ Þór segir að upp úr tvítugu hafi kollvikin á honum hækkað nokkuð. „Mér leiddist það óskaplega og nýtt lyf, Regaine, sem var á markaðnum þá hafði engin áhrif. Svo vandist maður þessu og til allrar hamingju dró úr hármissinum.“ Nokkru eftir að Þór fórnaði sér fyrir fréttina tók hann hins vegar að missa hárið uppi á hvirflinum. „Ég verð að viðurkenna að það leiddist mér og hugsaði með mér að ef ég hefði misst tönn hefði ég fengið mér falska,“ segir Þór sem ákvað í framhaldi að setja sig aftur í samband við þau Demir Ilter og Ásdísis Arnbjörnsdóttur. „Það hár sem vex á höfðinu á mér núna er auðvitað allt saman mitt hár, ég hef bara raðað því upp öðru vísi en almættið ætlaði.“ Þór segir sér hafa komið á óvart hversu sársaukalaus ígræðslan var og árangurinn segir hann svo góðan að hárskerar og læknar sjá varla að aðgerð hafi verið framkvæmd. Þeir eru líka ófáir íslensku mennirnir sem til hans hafa leitað til að fræðast um hárflutn- inginn. „Ég veit að mörgum líður verr en mér leið og þar sem ég gerði þetta í sjónvarpinu hefur mér fundist eðlilegt og sjálfsagt að skýra frá minni reynslu.“ En er þetta ekki hégómi? „Kannski má saka mig um það að einhverju leyti, en ekki ýmsa þá sem ég hef hitt og spjallað við eftir að þeir sáu mig í aðgerðinni í sjónvarpinu og raunverulega þjást út af hár- losi.“ Morgunblaðið/RAX Hárprúður Þór Jónsson segir hárskera og lækna varla nema að hann hafi farið í aðgerð. Fyrir Hárið hafði þynnst á hvirflinum. Eftir Hvirfillinn er gróskumeiri ásýndar. Hefði fengið sér falska tönn ef tönnin hefði farið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.