Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 25 MINNINGAR ✝ Karl KristinnValdimarsson fv. vörubílstjóri og ökukennari fæddist í Reykjavík 1. októ- ber 1918. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 13. apríl síðastliðinn. Hann var fyrsta barn hjónanna Valdi- mars Þorvalds- sonar, f. í Heið- arkoti á Stokkseyri 22. júní 1898 , d. 8. júní 1983 og El- ísabetar Jónsdóttur, f. 30. októ- ber 1898, d. 17. febrúar 1977. Karl átti fimm systkini, þau eru Engilbert Ragnar, f. 14. október 1919, d. 25. ágúst 2003, Júníus Halldór, f. 4. nóvember 1920, d. 7. apríl 1987, Gyða, f. 31. októ- ber 1922, d. 15. janúar 1998, Valdís María, f. 26. apríl 1924, og Sólveig Steina, f. 28. júní 1925. Karl kvæntist 31. maí 1941 Hjördísi Árnadóttur, f. 14. nóv- ember 1919, d. 10. febrúar 2002. Foreldrar hennar vou hjónin María Elísabet Bergsdóttir, f. 26. október 1884, d. 27. júlí 1970 og Árni Guðmundsson, f. 14. júlí 1885, d. 22. janúar 1972. Börn Karls og Hjördísar eru: 1) María, f. 16. maí 1942, maki Þórhallur Guð- mundsson. Börn þeirra eru Hjördís, gift og á tvö börn, Anna Soffía, gift og á 3 börn, Karl Kristinn, kvæntur og á 2 börn og 1 fósturbarn, og Elísabet María, sem á 1 barn 2) Valdimar, f. 21. desember 1943, maki Björg Björgvinsdóttir. Börn þeirra eru Kristinn Benedikt, kvæntur og á 2 börn og Ásta Björg, í sambúð og á 1 barn. 3) Kolbrún, f. 8. jan- úar 1954, maki Ásgeir Norðdahl Ólafsson. Börn þeirra eru Hjör- dís Áróra, í sambúð og á 2 börn og Ásgeir Freyr, í sambúð. Útför Karls Kristins fer fram frá Háteigskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Í dag kveðjum við langafa sem var okkur alltaf svo góður Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni vekja hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Sofðu rótt, elsku afi, þínir Atli og Adam. Elsku afi, það er svo sárt að þú sért farinn. Það eru margar góðar minningar sem koma upp þegar ég hugsa um þig, þú varst mér svo kær. Þú hélst á mér þegar ég var skírður á afmælisdegi þínum. Þú hefur verið með okkur öll aðfanga- dagskvöld frá því að ég fæddist, það verður erfitt að hafa þig ekki hjá okkur en gott að vita af þér á góðum stað hjá ömmu. Ég minnist góðra stunda hjá þér og ömmu á Brekku- stígnum, það var alltaf svo gott að vera hjá ykkur. Ég fékk að rúnta með þér á vöru- bílnum og hitta mikið af fólki sem þú þekktir. Þú varst alltaf vinamargur. Hjá þér kom ekki annað til greina en að kenna mér að keyra enda þekktur ökukennari. Það var mikill metnaður að ég myndi standa mig vel. Þú vild- ir að ég yrði almennilegur bílstjóri og kenndir mér að bera virðingu fyr- ir umferðinni. Það var svo gaman að sjá þig með Atla Má og Adam systursonum mín- um og hvað þeir voru hrifnir af þér. Þú varst svo barngóður. Þeir nutu þeirrar gæfu að búa með þér ásamt Sigga og Áróru systur á Brekku- stígnum. Þegar ég flutti inn í íbúðina mína þá komstu í heimsókn fyrsta daginn minn í íbúðinni. Þú varst svo áhugasamur og vildir alltaf sjá hvort að allt gengi nú vel fyrir sig og að ég hefði það gott. Fyrir einu og hálfu ári fluttir þú á Hrafnistu í Reykja- vík. Þér fannst erfitt að flytja af Brekkustígnum. En þú varst fljótur að aðlagast og eignast vini enda mjög félagslyndur. Þú varst kominn á rúntinn með góðum vinum og komst iðulega í heimsókn í vinnuna til okkar í kaffi og spjall, það voru góðir tímar. Þegar ég fékk nýja bíl- inn minn síðastliðinn nóvember fór- um við í bíltúr saman og þú keyrðir. Það er svo gott að hugsa til þess hvað þú varst heilsuhraustur og keyrðir nánast fram á síðasta dag. Ég veit hvað það hefur verið þér mikils virði. Þú hafðir mikinn áhuga á þjóðmálum og pólitík og áttum við mörg góð samtöl um þau mál og þrátt fyrir að vera kannski ekki allt- af sammála þá var það aukaatriði, þetta voru góðar stundir og minn- ingarnar góðar. Elsku afi, nú er komið að kveðju- stund, þú ert kominn til ömmu. Minning þín lifir. Ásgeir Freyr. Við fráfall Karls Valdimarssonar eða Kalla Vald eins og við í fjölskyld- unni kölluðum hann, koma í hugann margar góðar minningar. Hann var kvæntur Hjördísi móðursystur minni og voru ávallt mikil og góð tengsl milli þeirra systra. Börnin okkar fengu að kynnast þeim hjón- um umfram marga aðra í fjölskyld- unni. Þegar litið var inn til foreldr- anna, ömmu og afa í Karfavoginn, hittum við oft Kalla og Hjördísi. Oft voru þau þátttakendur á merkum dögum í lífi okkar og barnanna. Þeg- ar fréttir bárust af andláti Kalla komu fram hjá öllum börnum okkar, þeim Bryndísi, Jóhanni og Baldvin Má, hlý og falleg orð um hann og hve áhugasamur hann var um hagi þeirra og nám eða störf. „Hvað er að frétta, hvað ert þú að gera núna,“ var oft viðkvæðið. Hann sagði þeim og okkur sögur af vörubílunum sín- um, en akstur var hans ævistarf. Hann kenndi eldri börnum okkar á bíl á sínum tíma og eiga þau skemmtilegar minningar um öku- tímana. Bryndís minnist allra æfing- anna við að bakka, og bakka, og seg- ir hún að þær æfingar hafi skilað sér vel í raun. Ég naut þess einnig að fá ökukennslu og síðar meirapróf með aðstoð Kalla. Það var sérlega gott og þægilegt að hafa hann sér við hlið með pípuna sína. Vinátta og tryggð Kalla við fjölskyldu mína og foreldra var sönn og hlý, á hann mátti treysta. Eftir fráfall Hjördísar var hann duglegur að bjarga sér og hitta vini sína. Hann keyrði alveg fram á fyrrihluta þessa árs og var þá nýlega búinn að kaupa sér nýjan bíl. Við og börnin okkar sendum allri fjölskyld- unni, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning hans. Baldvin og Sigríður. Karl Kristinn Valdimarsson✝ Einar S. Guð-mundsson hús- gagnasmíðameistari fæddist í Reykjavík 28. ágúst 1915. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 16. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans voru Valgerður Víglunds- dóttir, f. 13. sept- ember 1883, d. 9. apríl 1954, og Guð- mundur Magnússon, f. 22. nóvember 1876, d. 18. ágúst 1959. Systkini Einars eru öll látin. Þau sem upp komust voru: Sig- urður Víglundur, f. 18. apríl 1910, d. 6. október 1985; Ólafur, f. 8. október 1912, d. 1. febrúar 1995; Ástrós Guðmundína, f. 29. mars 1914, d. 14. júní 1992; Magnús Kristberg, f. 17. ágúst 1917, d. 21. janúar 2007; Sigríður Jónína, f. 17. nóvember 1918, d. 19. janúar 2000; Þorvaldur Guðmundsson, f. 1. febr- úar 1920, d. 11. mars 1997; Sigríður Emma, f. 22. september 1921, d. 26. nóvember 2005. Einar giftist árið 1948 Sybillu Malenu, f. í Færeyjum 24. desember 1909, d. 8. janúar 1993. Þau eignuðust eina dótt- ur, Valgerði, f. 28. febrúar 1949, gift Hallgrími G. Jóns- syni. Var áður gift Jó- hannesi Þorsteinssyni og áttu þau tvo syni; Einar Hauk, f. 29. nóv. 1976, og Gísla, f. 22. júlí 1979. Ungur spilaði Ein- ar fótbolta og æfði frjálsar með KR. Hann vann marga sigra í hlaupum í millivegalengdum á árunum fyrir stríð. Hann var heitur KR-ingur alla tíð. Að loknu námi úr Iðnskólanum sem húsgagnasmiður hélt Einar til Danmerkur til náms í hús- gagnahönnun en stríðið batt enda á námið og komst hann ekki heim fyrr en í lok stríðs. Hann vann við hús- gagnasmíðar og húsasmíðar langt fram á efri ár. Undanfarin ár dvald- ist hann á Hrafnistu í góðu yfirlæti. Útför Einars verður gerð frá Nes- kirkju í dag og hefst athöfnin klukk- an 11. Ég vil með nokkrum orðum minn- ast tengdaföður míns Einars S. Guð- mundssonar, en hann lést 16. apríl sl. á 93. aldursári. Kynni mín af Einari ná aðeins yfir tíu ár af hans löngu ævi. Þá var starfsþrekið þrotið og heilsuleysi hrjáði þreyttan líkama. Þrátt fyrir það var lærdómsríkt að kynnast Einari, sjá hvernig viðhorf hans voru til lífsins og tilverunnar. Það sem einkenndi Einar fyrst og fremst var glaðværð og góðvild. Hann laðaði fólk að sér með sinni góðu lund og hressilegu framkomu. Það leiddist engum að eiga viðræður við hann og ekki sakaði að hann var söngmaður góður. Söngur var ríkur þáttur í til- veru Einars og systkina hans. Mér er minnisstætt að á ættarmóti fyrir þrem árum hófu hann og Magnús bróðir hans upp raust sína og sungu tvísöng, viðstöddum til mikillar ánægju. Það vantað heldur ekki æfinguna. Allt fram á níræðisaldur var Einar í kór- um. Í Einari leyndist ævintýramaður. Hann ferðaðist víða og upplifði margt. Hans fyrsta ferð var námsferð til Kaupmannahafnar, en þar hugðist hann nema húsgagnahönnun. Hann hafði þá lokið sveinsprófi í húsgagna- smíði. Því miður gerði heimsstyrjöldin þær fyrirætlanir að engu og þurfti Einar að sækja vinnu til að sjá sér far- borða. Hann starfaði síðan allt til stríðsloka í Danmörku svo og í Þýska- landi. Síðustu utanlandsferðina fór Einar ásamt dóttursyni sínum og nafna til Færeyja, 86 ára að aldri. Ferðin var lítt undirbúin en tókst þó í alla staði vel, enda átti Einar þar mörgum vinum að mæta. Hann var ódeigur að framkvæma hugdettur sín- ar. Einar starfaði lengi við iðn sína, en þegar halla tók undan fæti í húsgagna- framleiðslu hér á landi hóf hann störf við húsasmíðar. Hann var ákaflega vel látinn, vandvirkur og góður smiður. Hann var með afbrigðum greiðvikinn, sanngjarn og lítið fór fyrir gjaldkröf- um. Hann safnaði því ekki miklum veraldlegum sjóðum, en vinaþel sam- ferðamanna var honum miklu meira virði. Einar kvæntist árið 1948 Sybillu Malenu húsmæðrakennara, sem fædd var í Færeyjum, en henni hafði hann kynnst í Kaupmannahöfn á stríðsár- unum. Þau bjuggu lengst af í Reykja- vík og eignuðust eina dóttur, Valgerði. Dóttursynirnir eru tveir, þeir Einar Haukur Jóhannesson og Gísli Jóhann- esson. Árið 1970 veiktist Sybilla alvarlega og var upp frá því að mestu rúmföst. Einar sinnti konu sinni af mikilli ástúð í veikindum hennar, en hún lést í jan- úar árið 1993. Einar bjó síðustu æviárin á Hrafn- istu í Reykjavík. Þar leið honum vel og fékk góða umönnun frábærs starfs- fólks. Fjölskyldan vill færa öllum sem önnuðust hann þakkir fyrir kærleiks- ríkt viðmót. Að leiðarlokum vil ég þakka Einari vináttu sem var mikils virði. Góður maður og gegn hefur kvatt en minn- ingin lifir. Hallgrímur G. Jónsson. Glaðlegt viðmótið og gjallandi hlát- ur er það sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa til stundanna með Einari Guðmundssyni, (fyrrverandi) tengdaföður mínum og afa sonanna minna tveggja. Það var eins og alltaf væri eitthvað skemmtilegt að gerast, eitthvað til að gleðjast yfir. Þetta voru ekkert stórir hlutir sem hann gladdist yfir og eflaust hefði mörgum sést yfir þá. Góður matur, skemmtilegur maður sem hann hafði hitt eftir að hafa ekki séð lengi eða bara góð ferð í Sundlaug Vesturbæj- ar. Þessir litlu hlutir sem auðga lífið en mörgum sést yfir í daglegu lífi. Og söngurinn kemur upp í hugann líka. Hvort sem hann var sjálfur að syngja eða að hlusta á meistarana á plötu. Beniamino Gigli á fóninum og innlifunin var algjör. Eða að hlusta á Rússasöng í stofunni hjá foreldrum mínum. Gleðin og ánægjan með lífið einkenndi hann. Einar var einnig hjálpsamur með afbrigðum og alltaf boðinn að taka til hendinni þegar á þurfti að halda. Hann var afar snjall húsgagnasmiður og það mátti sjá handaverk hans sem snjalls húsgagnasmiðs víða hjá vinum og fjölskyldu. Það var helst að mér fannst erfitt að fá hann til að dæma aðra. Það var nefnilega stundum að mér fannst einn eða annar, einkum stjórnmálamenn, eiga skammir skildar og vildi fá hann til að samsinna mér. Á endanum sam- sinnti hann mér kannski og sagði: „Já, er það bara ekki?“ en einhvern veginn vorum við von bráðar farnir að tala um það sem skemmtilegt var. Það var nefnilega gersamlega von- laust að halda athygli Einars heitins við það sem leiðinlegt var. Ég yngdist upp í návist hans og hætti að velta mér upp úr vanda- málum daglegs lífs. Á seinni árum urðu samskiptin strjálli enda ég fluttur úr landi og hann ekki fær um langferðir. Það breytti þó því ekki að alltaf var jafn- gaman að hitta hann og sjá hlýlegt brosið færast yfir andlitið. Aldrei sorg eða sút í hjarta þótt hann væri þrotinn að líkamlegum kröftum. Ég votta Valgerði, dóttur hans, og sonum okkar samúð mína við brottfall Einars heitins en veit það að minning- arnar um góðar stundir á langri ævi eiga eftir að ylja þeim eins og öðrum sem hann hitti á göngu sinni. Blessuð sé minning hans. Jóhannes Þorsteinsson. Ég sakna þín, afi. Það tók mig smátíma að gera mér grein fyrir því en núna skil ég að ég mun aldrei geta hitt þig aftur. Þar er stórt ljós farið úr lífi mínu en ég var mjög heppinn að fá að upplifa lífið með þér og mun ylja mér við minn- ingarnar. Þú varst einn besti vinur minn og besta manneskja sem ég hef kynnst á ævinni. Ég man ekki eftir einu augna- bliki þar sem þú varst reiður eða von- svikinn eða óánægður að nokkru leyti. Hvar sem þú fórst fannstu ánægjuna og gafst hana frá þér, það skipti þig engu máli hvort það var til vina eða ókunnugra. Þú elskaðir alla því þú lifðir ekki í augum annarra heldur í hjarta þínu og þar var alltaf nóg pláss. Mér finnst ég hafa brugðist þér á þessum síðustu árum, ég kom alltof sjaldan í heimsókn til þín. Þegar ég lít til baka sé ég ekki hvað kom í veg fyr- ir að ég gæti hafa fengið að njóta lífs- ins með þér. Ég veit að þú ert löngu búinn að fyrirgefa mér, ég á bara erf- itt með að gera það sjálfur. Það getur oft verið erfitt að finna fegurðina í þessum heimi en þú kenndir mér að ég þarf bara að leita betur. Þú gerðir heiminn minn miklu betri bara með því að vera til. Gísli Jóhannesson. Þú lifðir lífinu eins og þú keyrðir, án nokkurs tillits til hefða. Þú sýndir mér að það er ekki nauðsynlegt að traðka fótspor annarra heldur er nóg að hafa léttleikann að leiðarljósi og stefna á vit hins óþekkta, það endar alltaf vel. Að vera með þér var alltaf ævintýri. Þú hafðir svo grípandi nær- veru að það fór aldrei á milli mála þegar þú varst nálægt. Hvort sem þú þekktir fólk eða ekki, meira að segja þegar fólkið talaði framandi tungum og við skildum ekki orð, þá fundu allir fyrir sterkri vináttu. Þegar við stukk- um saman til Færeyja fyrir nokkrum árum tók ég sérstaklega eftir því hvað þú áttir auðvelt með að kynnast fólki alls staðar þar sem við stopp- uðum. Það er visst myrkur sem fellur yfir okkur sem erum eftir en þakka þér fyrir léttleikann og grínið, ég mun reyna að halda ljósinu þínu skínandi. Einar H. Jóhannesson. Einar S. Guðmundsson Nú er komið að kveðjustund, elsku afi og nafni. Ég á eftir að sakna þín mikið og alls sem þú kenndir mér og við höfum brallað saman. Það byrjaði á Sogaveg- inum, ég kom oft að hjálpa þér að vinna í garðinum, reyta arfa, laga hellur og margt fleira. Þú gafst aldrei upp. Svo seldum við líka kartöflur, við unnum alltaf eins og einn maður elsku afi. Svo eru allar Víkurferðirnar ógleymanlegar, t.d. þegar við fórum í Jón Guðlaugsson ✝ Jón Guð-laugsson fædd- ist í Vík í Mýrdal 28. september 1919. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Skjóli 4. mars síðastliðinn og var útför hans gerð frá Áskirkju 13. mars. fýlinn. Ég var nýkominn með bílprófið og vildi fara Krísuvíkurleiðina til baka. Þú sagðir: „Eigum við nokkuð að vera að því?“ En ég vildi fara: „Þá för- um við hana nafni minn.“ Þetta var mjög leiðinlegur vegur og afi ætlaði aldrei að hætta að hlæja að mér. Ég gæti skrifað endalaust um þig nafni minn. En síð- asta ferðin sem við fórum saman var að hitta Odd á afmælinu hans uppi í Barrholti, þú ætlaðir að fara þangað og ég fór með þér. Í öllum þínum veik- indum sagðir þú: „Ég næ mér upp úr þessu nafni minn, ég skal og get,“ og þú stóðst við það. En nú ert þú farinn í þína hinstu ferð og kveð ég þig. Minning þín lifir í hjarta mínu. Þinn nafni Jón Guðlaugsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.