Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Í TILEFNI sumardagsins fyrsta gefur Íþróttabandalag Reykjavíkur öllum grunnskólanemendum í Reykjavík sumargjafir í þeim til- gangi að gleðja börnin og hvetja þau á jákvæðan hátt til að hreyfa sig og fara út að leika sér með til- vísun í íþróttir almennt. Boltar og sippubönd Fyrir tíu árum hóf ÍBR þróun- arverkefni í nokkrum grunnskólum þar sem yngstu nemendunum var boðið í íþróttaskóla. Nú er svo kom- ið að öllum sex ára börnum í Reykjavík er boðið endurgjalds- laust að sækja íþróttaskóla íþrótta- félaga borgarinnar tvisvar sinnum í viku. Svava Oddný Ásgeirsdóttir, verk- efnisstjóri hjá ÍBR, segir að þetta framtak hafi tekist vel og í kjölfarið hafi verið ákveðið að stuðla að auk- inni hreyfingu og leik hjá eldri börnum. Árið 2005 hafi börn í 2. bekk fengið sippuband í sumargjöf frá ÍBR og síðan hafi einum ár- gangi verið bætt við árlega. Að þessu sinni fái sex ára börnin íþróttaskólann frían sem fyrr, sjö ára börn fái sippuband og bækling með æfingum og leikjum, átta ára börn fái bolta og bækling með æf- ingum og leikjum, níu ára börnum sé boðið á skauta í Skautahöllina í Laugardal eða í Egilshöllina í Graf- arvogi og fyrsta sumargjöf tíu ára barna sé boð um að taka þátt í skemmtiskokki Reykjavíkurmara- þons 23. ágúst í sumar. Samfara boðinu fái nemendur í 10. bekk bækling um hlaupaþjálfun og séu þeir hvattir til að æfa sig fram að þeim tíma. Krakkarnir séu síðan beðnir um að skrá sig í skemmti- skokkið hjá ÍBR í júní til að hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir í tíma. Hafi krakkarnir fylgt æfinga- áætlun verði það líka tilvalinn tími fyrir þá, sem ekki séu í skipulögð- um íþróttum, að huga að þátttöku í einhverri íþróttagrein. Átakinu vel tekið Um 1.400 nemendur eru í hverj- um árgangi grunnskólanna í Reykjavík og fá þeir gjafirnar frá ÍBR á skólatíma í skólunum. Svava Oddný segir að átakinu hafi verið mjög vel tekið og sérstaklega sé skemmtilegt að sjá hvað eitt lítið sippuband eða lítill bolti gleðji börn- in, sem oft megi ætla að eigi allt. Gömlu góðu leikirnir falli líka vel í kramið og nokkrir þeirra séu út- skýrðir í bæklingunum. Svava Oddný segir að viðbrögð nemendanna hafi verið framar von- um. Auðvitað kynnist þeir ýmsum leikjum í skólastarfinu en gjafirnar séu hugsaðar til að minna á hvað gaman sé að leika sér og hreyfa sig og ýti vonandi við þeim en skemmt- unin sé fyrir öllu. Í boltabæklingnum eru krakkarn- ir hvattir til að spyrja foreldra sína, afa og ömmur og aðra fullorðna um kunnáttu í boltaleikjum. Svava Oddný segir að þetta sé gert til að virkja foreldrana og aðra og fá þá með í átakið en það geri þeir best með því að hvetja börnin til að leika sér og taka þátt í því sem í boði sé. Snú snú og hollý hú ÍBR hvetur krakkana til að leika sér og æfa sig helst á hverjum degi. Í bæklingnum með sippubandinu eru sýndar nokkrar skýringar- myndir og bent á hópleiki eins og snú snú, þyrlu og skottarán. Í bæklingnum með boltanum eru rifjaðir upp nokkrir gamlir bolta- leikir eins og til dæmis hollý hú, að verpa eggjum, yfir, brennibolti og sto. Auk þess eru ýmsar æfingar með bolta útskýrðar í máli og myndum. Ýtt undir gömlu góðu leikina Morgunblaðið/Frikki Boltaleikir Nemendur í Laugarnesskóla í Reykjavík fengu gjafir frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur í gær og ekki leið á löngu þar til í ljós kom að krökkunum er margt til lista lagt þegar bolti er annars vegar. Sippuband Í bæklingi ÍBR er bent á að það að sippa sé góð íþrótt til að þjálfa líkamann og svo sé hún líka skemmtileg. Gjafir ÍBR hvatn- ing til hreyfingar Í HNOTSKURN » Brennibolti er dæmigerðurboltaleikur sem flestir geta tekið þátt í. Minnst fjóra þarf í leikinn sem fer fram á t.d. hand- boltavelli, körfuboltavelli, tenn- isvelli eða badmintonvelli og hef- ur hefur notið vinsælda hjá kynslóð eftir kynslóð frá síðustu öld.  Kirkjukór Laugalandsprestakalls heldur söngskemmtun í Laugarborg í kvöld, síðasta vetrardag, kl. 21.00. Á efnisskránni er fjölbreytt tónlist efitr ýmsa höfunda. Stjórnandi og undirleikari er Daníel Þorsteinsson.  Tvöföld kveðjustund verður á Græna hattinum í kvöld. Leik- ararnir Hallgrímur Ólafsson og Guðjón Davíð Karlsson; Halli og Gói, kveðja veturinn og Akureyr- inga í leiðinni því báðir eru á leið til starfa í Borgarleikhúsinu í sum- ar.  Halli og Gói hafa flutt lög úr leik- húsinu í vetur, og gera það enn og aftur í kvöld, en nú ásamt hljóm- sveit, og nýja og endurbætta útgáfu af lögunum. Nefna má lög úr þekkt- um söngleikjum á borð við Vesa- lingana, Gauragang, Hárið og Litlu hryllingsbúðina. Húsið verður opn- að kl. 21 og tónleikarnir hefjast kl. 22. Miðasala er við innganginn og miðaverð er kr. 1.800. Að tónleik- unum loknum verður stiginn dans.  Á morgun, sumardaginn fyrsta, verður lokasýning á leikritinu Rembu eftir Hörð Þór Benónýsson á Græna hattinum. Verkið fjallar um iðnaðarmenn í blíðu og stríðu. Sýningin á morgun er vegna fjölda áskorana og hefst kl. 21.00. Miða- verð er 1.500 kr.  Fulltrúar félagsskaparins Matar úr héraði verða í göngugötunni á Akureyri í dag á milli kl. 15 og 17 og gefa fólki að smakka ýmiskonar góðgæti sem framleitt er á svæðinu. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Stuð Þursarnir vöktu lukku á Græna hattinum fyrir skömmu. Veturinn kvaddur FRAMKVÆMDASTJÓRI Búseta á Norðurlandi segir að félagið þurfi að fresta öllum nýframkvæmdum, „ef peningakrísan í bönkunum verður viðvarandi“ og hugsanlega geti orðið einhverjar tafir á frágangi bygginga sem nú er unnið að. Búseti afhenti fyrr á þessu ári síð- ustu íbúðirnar í nýju fjölbýsihúsi við Kjarnagötu í Naustahverfi á Akur- eyri, en það er stærsta fjölbýlishús utan höfuðborgarsvæðisins. Í húsinu eru 58 íbúðir og á sama byggingar- reit er hafin bygging 24 íbúða í við- bót. Aðstæður ólíkar Félagið áformaði byggingu 25-30 íbúða á reit við Hólmatún, auk þess sem önnur svæði á Akureyri hafa verið í skoðun, en ekki verður af þeim framkvæmdum strax. Benedikt Sigurðarson, fram- kvæmdastjóri Búseta á Norðurlandi, segir þróun rekstrar og efnahags fé- lagsins endurspegla þær breytingar sem orðið hafa í rekstrarumhverfi þess síðustu mánuði. „Þegar aðal- fundur Búseta á Norðurlandi var haldinn á árinu 2007 voru horfur og spár í efnahagsmálum afar ólíkar því sem þær eru um þessar mundir. Upp úr miðju síðasta ári var spáð áfram- haldandi háu húsnæðisverði og góð- um aðgangi að fjármagni – á alþjóða- vettvangi. Auk þess hafði ný ríkisstjórn gefið fyrirheit um aukinn sveigjanleika á húsnæðismarkaðn- um – m.a. með sérstakri nefndaskip- an félagsmálaráðherra,“ segir Bene- dikt á heimasíðu félagsins. „Fjármagnskostnaður og verð ný- bygginga hafði að vísu hækkað veru- lega. Þá gerðum við hjá Búseta á Norðurlandi metnaðarfullar áætlan- ir um frekari sókn og þróun bygg- inga og þjónustu félagsins. Nú er öldin nokkuð önnur; svart- sýnustu spár gera ráð fyrir 15-30% raunlækkun húsnæðis á næstu tveimur árum. Stýrivextir hækka enn og þar með framkvæmdafjár- mögnun. Bankakerfið hefur fryst ný lán – amk. í bili og enn er beðið eftir niðurstöðum nefndar félagsmálaráð- herra og þróun hámarkslána og lánaflokka hjá Íbúðalánasjóði lætur á sér standa. Ef peningakrísan í bönkunum verður viðvarandi kann Búseti að þurfa að fresta öllum nýj- um framkvæmdum og það geta auk þess orðið einhverjar tafir á frágangi yfirstandandi bygginga.“ Byggt á nýjum stöðum? Benedikt segir að félagið hafi auk- ið þjónustu sína með ráðningu um- sjónarmanns og hafi þegar sett í gang umtalsverð verkefni við viðhald eldri eigna. „Áhugi virðist vera fyrir hendi á félagsforminu og eftirspurn eftir íbúðum félagsins hefur verið mikil allt síðasta ár. Einnig hafa sveitarstjórnir í nágrannabyggðum sýnt áhuga á að fá félagið til sam- starfs um byggingar og/eða rekstur íbúða á nýjum stöðum.“ Búseti frestar nýfram- kvæmdum fyrir norðan Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Búseti Stærsta fjölbýlishúsið utan höfuðborgarsvæðisins, við Kjarnagötu á Akureyri. Íbúðir í húsinu eru 58 og afhenti Búseti þær síðustu fyrr á árinu. Í HNOTSKURN »Á aðalfundi Búseta vorustjórnarmenn Ingi Rúnar Eð- varðsson og Hrafn Hauksson endurkjörnir, en fyrir voru í stjórn Guðlaug Kristinsdóttir formaður, Ingvar Björnsson varaformaður og Helgi Már Barðason. ÓVISSUSÝNING vetrarins hjá Leikfélagi Akureyrar verður Alveg brillíant skilnaður, einleikur Eddu Björgvinsdóttur. Verkið verður sýnt í lok maí. Aðsókn hefur aldrei verið meiri hjá LA en á yfirstand- andi leikári. LA hefur haft þann sið síðustu ár að bjóða upp á eina „óvissusýn- ingu“ og þá valið eitthvert verk sem notið hefur mikilla vinsælda í höfuðborginni sama leikár. Í frétt frá LA segir að einleikur Eddu hafi notið fádæma vinsælda á síðustu þremur leikárum „enda einstaklega fyndin sýning hér á ferðinni“. Miða- sala hefst 30. apríl en takmarkaður fjöldi miða er í boði. Leikritið Killer Joe verður sýnt á Akureyri upp úr miðjum maí. „Kill- er Joe hlaut afburðadóma þegar hún var frumsýnd í Borgarleikhús- inu og var svo tilnefnd til átta Grímuverðlauna í fyrra. Hér er á ferðinni mögnuð sýning á leikriti sem hreyfir við þér,“ segir í frétt frá LA. Leikstjóri er Stefán Bald- ursson. Maímánuður verður því fjörlegur hjá LA en í byrjun mánaðarins verður leikhúsið í fósturhlutverki við fjörlega sýningu á Wake me up sem hópur ungra leikara í grunn- og menntaskólum Akureyrar setur upp undir stjórn Guðjóns Davíðs Karlssonar. Aðsókn hefur verið mikil hjá LA í vetur, eins og áður hefur komið fram. Gestir á Akureyri verða um 40.000 þegar leikárinu lýkur en það er um 40% meira en á síðasta leik- ári sem þó var metár. Tvær sýningar, Fló á skinni og Dubbeldusch, víkja af fjölunum nú í lok apríl til að rýma til fyrir síðustu sýningum leikársins. Brillíant skilnaður í maímánuði AKUREYRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.