Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 34
Hjóls saknað MIÐVIKUDAGINN 9. apríl var hjóli af gerðinni Giant Faith 2, stolið fyrir utan verslunina Markið um kl. 19. Hjólið er dökkgrænt að lit, tveggja dempara Downhill-hjól. Sá sem hefur einhverjar upplýsingar um hjólið er vinsamlegast beðinn að hafa sambamd í síma 698-8271. Bestu þakkir MIG langar að þakka Hólmfríði inni- lega fyrir að finna fuglinn minn. En hún hafði veitt honum athygli þar sem hann flaug yfir bílnum hennar. Nú er hann komin heim til sín í Breiðholtið og líður vel, reynslunni ríkari eftir langt ferðalag. Stella Einarsdóttir. Hálsmen tapaðist ÉG tapaði hálsmeni mánudags- kvöldið 15. apríl. Þetta er síð silf- urkeðja með stórri silfurkúlu (víra- virkishálmen). Gæti hafa tapast á bílastæði fyrir utan Kringluna, hjá Borgarleikhúsinu, í Borgarleikhús- inu eða á bílastæði í Sólheimum, við leikskólann Holtaborg. Hálsmenið hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir mig og er fundarlaunum heitið. Guðlaug sími 587-8201/856-6525. Sveitasími ÉG er að leita að gömlum sveitasíma sem er með sveif. Þetta er svona kassasími sem hefur enga númeraða skífu heldur hringt með löngum eða stuttum hringingum. Ef einhver á svona og langar að selja eða gefa einn slíkan yrði ég afar þakklát, en símanúmerið mitt er 864-5576. Týndur páfagaukur PÁFAGAUK- URINN Snúlli flaug frá heimili sínu í gær, 21. apríl, hann er mannelskur og gæfur. Ef einhver hefur séð til hans eða hefur upplýs- ingar um hann þá vinsamlegast hafið samband í síma 694-7899. 34 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand EIGUM VIÐ AÐ GRILLA SYKURPÚÐA OG SEGJA DRAUGASÖGUR? ÉG ÁT ALLA SYKURPÚÐANA OG DRAUGAR ERU EKKI TIL... HEYRÐU NÚ MIG! HVER ÁT ALLA SYKURPÚÐANA? LÚLLI SEGIR AÐ ÞÚ HAFIR GRAFIÐ TEPPIÐ ERTU VISS UM AÐ ÞAÐ HAFI VERIÐ RÉTT? AUÐVITAÐ ER ÉG VISS! ÉG HEF ALLTAF RÉTT FYRIR MÉR HVAÐ NÚ? LÚLLI BAÐ MIG AÐ VERA HJÁ SÉR ÞETTA ER FYRSTA NÓTTIN HANS ÁN TEPPISINS... HÚN VERÐUR MJÖG ERFIÐ! ÉG ÆTLA AÐ STELA BÍLNUM MÍNUM AFTUR AF MUMMA! ÉG Á HANN! ÉG MÁ ALVEG STELA HONUM EF ÉG VIL! ÉG ÆTLA AÐ FELA MIG FYRIR AFTAN ÞESSA RÓLU HÉRNA... OG ÞEGAR MUMMI GENGUR FRAM HJÁ ÞÁ GRÍP ÉG BÍLINN OG HLEYP ÉG HEFÐI KANNSKI ÁTT AÐ KAUPA MÉR SJÚKRATRYGGINGU ÁÐUR EN ÉG GERI SVONA VITLEYSU ALLIR ÞEGNAR VERÐA AÐ GREIÐA VIÐBÓTARSKATTA Í SJÓÐ SEM KONUNGURINN ÆTLAR AÐ NOTA TIL AÐ BYGGJA TÓNLEIKAHÖLL, ÞAR SEM ÞEGNAR HANS GETA HLUSTAÐ Á ALLA FÆRUSTU TÓNLISTARMENN HEIMS AF HVERJU ER HANN AÐ ÞVÍ? SONUR HANS VAR AÐ BYRJA AÐ LÆRA Á FIÐLU ÞAÐ ER SVO FRÁBÆRT AÐ VERA EINN ÚTI Í NÁTTÚRUNNI HÉRNA SEGIR MÉR ENGINN HVAÐ ÉG Á AÐ GERA... HVAÐ Á ÉG AÐ GERA? ERTU AÐ FARA HEIM? KLUKKAN ER BARA SEX! ÞAÐ ER ALLT Í LAGI. ÉG ER BÚINN AÐ GERA ALLT SEM ÉG ÞARF ADDA HJÁLPAÐI MÉR AÐ SKIPULEGGJA MIG BETUR, ÞANNIG AÐ ÉG GET AFKASTAÐ JAFN MIKLU Á STYTTRI TÍMA FYRST ÞÚ HEFUR TÍMA AFLÖGU ÞÁ ÆTTUM VIÐ AÐ LÍTA Á ÞETTA VERKEFNI ÚFF... ALLT Í LAGI. ÉG SKAL SEGJA ÖDDU AÐ ÉG VERÐI SEINN ÞÓ AÐ JAMESON HAFI REKIÐ MIG ÞÁ ÞÝÐIR ÞAÐ EKKI AÐ ÉG SÉ HÆTTUR AÐ VERA LJÓSMYNDARI EF ÉG VERÐ HEPPINN ÞÁ GÆTI ÉG FENGIÐ VINNU FYRIR BLAÐ HÉR Í L.A. PARKER ER Á LEIÐINNI HINGAÐ... OG HANN GENGUR BEINT Í GILDRUNA MÍNA dagbók|velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is HÉR eru tveir vinir í heilsubótagöngu meðfram sjónum. Þeir virðast þó ekki alveg á sama máli hvaða stefnu eigi að taka því forvitnin rekur hunds- nefið í ýmsar áttir. Morgunblaðið/Frikki Félagar á göngu Tengd félög starfa oft náið saman, ekki aðeins á vettvangi hlutafélaga- réttar, heldur einnig t.d. í samkeppnis- og skattalegu tilliti. Þá gerir verðbréfalöggjöfin ráð fyrir því að sérstakar reglur gildi um félög sem skráð eru á skipulögðum verðbréfamörkuðum. Samhengi samstæðna er rakið samkvæmt reglum félagaréttar, samkeppnislaga, laga um ársreikninga, laga um fjármálafyrirtæki, laga um verðbréfaviðskipti og laga um tekjuskatt. Höfundurinn er prófessor við lagadeild H.Í., á langan ritferil að baki á sviði lögfræði og hefur samið ýmis grundvallarrit, m.a. ritið Hlutafélög, einkahlutafélög og fjármálamarkaðir sem Bókmenntafélagið gaf út 2003 og styður hina nýju bók Samstæður hlutafélaga. SAMSTÆÐUR HLUTAFÉLAGA Bókin er samfelld lýsing á þeim reglum sem gilda um samstæður hlutafélaga og einkahlutafélaga, þegar tengsl þeirra eru með ákveðnum og nánum hætti, nánar skilgreind í löggjöf um hlutafélög og einkahlutafélög og einnig í sérlöggjöf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.