Morgunblaðið - 06.05.2008, Síða 1

Morgunblaðið - 06.05.2008, Síða 1
STOFNAÐ 1913 123. TBL. 96. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is DROPAR MEÐ SÖGU BLÓÐSLETTUR GETA UPPLÝST GLÆPINN GEFUR MYND AF ATBURÐUM >> 6 ZIJA KRRUTAJ ER FLÓTTAMAÐUR VILJA BÆTA LÍF UNGS FÓLKS >> 18 EIN STÓR FJÖLSKYLDA FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ÓHÆTT er að fullyrða að frumvarpið um lögfestingu á matvæla- og fóðurlöggjöf ESB, sem Alþingi hefur nú til meðferðar, sé einn af viðamestu lagabálkum sem komið hafa til kasta þingsins að undanförnu. Frumvarpið, sem er um 60 blaðsíður, felur í sér innleiðingu fjölmargra Evrópureglu- gerða og hefur sjávarútvegs- og landbún- aðarnefnd Alþingis leitað umsagna nálægt 130 aðila við það. Fram hefur komið að fylgja þarf frumvarpinu eftir með setningu reglugerða um á fimmta tug efnisatriða. Frestur til að skila umsögnum við frum- varpið rennur út í dag og blasir við að nefndarmanna sjávarútvegs- og landbúnað- arnefndar bíður ærið verkefni að fara yfir flóð umsagna og athugasemda. „Það verður hörkuvinna,“ segir Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður nefndarinnar. Fram hefur komið hörð gagnrýni á frumvarpið en að sögn Arn- bjargar koma stærstu áhyggjurnar frá slát- urleyfishöfum, afurðastöðvum og framleið- endum hvíta kjötsins, þ.e. kjúklinga- og svínabændum. Bændasamtök Íslands hafa nú ákveðið að senda ekki inn umsögn við frumvarpið held- ur fær þingnefndin væntanlega erindi í dag þar sem BÍ krefjast þess að fá lengri frest til að fara yfir frumvarpið og rökstyðja þá afstöðu með greinargerð til nefndarinnar. „Við teljum ekki hægt að gefa ábyrga um- sögn á svo skömmum tíma,“ segir Eiríkur Blöndal, framkvæmdastjóri BÍ. „Það er ekki einfalt mál að rekja sig eftir Evrópu- rétti, þetta tekur einfaldlega lengri tíma. Okkar afstaða er sú að við getum ekki fellt okkur við að [frumvarpið] verði samþykkt í vor, vegna þess að við þurfum lengri tíma til að gefa ábyrga umsögn.“ Veigamesta breytingin felst eins og fram hefur komið í að ekki verður lengur bann- aður innflutningur á fersku kjöti. Markmið þess er þó allt annað en að auka viðskipti milli landa með matvörur og er fyrst og fremst að stuðla að auknu fæðuöryggi og treysta hagsmuni neytenda. Í umfjöllun Matvælastofnunar segir að rannsóknir á ferskum vörum nái ekki að útiloka að ein- hver mengun geti verið til staðar. Því sé nauðsynlegt að halda uppi stöðugu eftirliti og taka sýni til rannsókna. Morgunblaðið/Ásdís Matvælaöryggi Auka þarf sýnatöku af ferskum matvörum eftir breytingarnar. BÍ krefj- ast lengri frests Flóð umsagna um matvælafrumvarp Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is LITLAR líkur eru á því að íslensku bankarnir komist hjá því að verða fyrir áhlaupi. Jafnvel má ætla að hljóðlátt bankaáhlaup sé hafið. Þetta segir bandaríski hagfræðingurinn Ro- bert Z. Aliber en hann hélt fyrirlestur í Há- skóla Íslands í gær. „Mig grunar að enginn eigandi jöklabréfa eða bankaskuldabréfa sem nálgast gjalddaga muni endurnýja þau á næst- unni og ég giska á að flestir yfirmenn fjár- stýringar stórfyrirtækja séu farnir að flytja fé sitt til banka utan Íslands,“ segir Aliber. Aliber hefur rannsakað eignaverðsbólur víða um heim í áratugi og segir einkennin sem sjá má í íslensku efnahagslífi dæmigerð fyrir þá þróun sem átt hefur sér stað víða. Hann leggur til að íslensku viðskiptabönkunum verði skipt upp í tvær einingar hverjum, ann- ars vegar viðskiptabanka og hins vegar fjár- festingarbanka. Aliber segir mikilvægt að gengi krónunnar verði lækkað til þess að draga úr viðskipta- hallanum. Ekkert land geti haldið við jafn- miklum viðskiptahalla og hér hefur ríkt til lengdar. Þá telur hann nauðsynlegt að Seðla- bankinn leggi verðbólgumarkmiðið á hilluna.  Ísland ekki einstakt | Miðopna  Litlar skýringar á lækkun | Viðskipti Bankaáhlaup hafið?  Bandarískur hagfræðiprófessor segir litlar líkur á að bankarnir komist hjá áhlaupi  Segir mikilvægt að gengið lækki til þess að rétta viðskiptahallann Prófessorinn Robert Z. Aliber. Í HNOTSKURN » Úrvalsvísitala kauphallarinnar lækkaðium 3,2% í gær. » Aðeins eitt úrvalsvísitölufélag hækkaðií verði, Eimskip, en öll hin lækkuðu. » Gengi hlutabréfa bankanna lækkaði um1,8-3,8%. UM 70 manns sátu hátíð- arkvöldverð í boði forseta Íslands á Bessastöðum í gær til heiðurs Friðriki krónprinsi Danmerkur og eiginkonu hans Mary krónprins- essu. Margt girnilegra rétta var á matseðlinum, gestir fengu þorsk í forrétt, matreiddan að hætti fjög- urra þjóða. Í aðalrétt var lamba- hryggur með apríkósum, furu- hnetum og lauksultu. Í eftirrétt voru suðrænir ávextir í leik við ís- lenskan ís. Meðal gesta voru utan- ríkisráðherra, forseti Alþingis og fleiri. Í dag munu krónprinshjónin fara á hestbak í Dallandi í Mos- fellsbæ og síðan snæða hádeg- isverð með Geir H. Haarde for- sætisráðherra og eiginkonu hans Ingu Jónu Þórðardóttur. Að því loknu verður gengið að hinum svo- kölluðu konungssteinum í hlíðinni fyrir ofan Geysi. Á morgun verður Stykk- ishólmur heimsóttur og meðal ann- ars farið í Vatnasafnið. | 6 Morgunblaðið/Golli Stórveisla fyrir prins- inn á Bessa- stöðum ÞÓTT fiskurinn Comet sé bara með gullfiskaminni er hann klár í kollinum og hefur lært ýmsar brellur, til að mynda að spila fótbolta. Eigandi fisksins, Dean Pomerleau, hefur einnig kennt honum að leika körfu- bolta og dansa limbódans. Þá kann Comet að fara í svig á milli stanga eins og skíðamaður og ýta ruðningsbolta yfir röð af stólpum. Pomerleau kveðst verðlauna fiskinn með fæðu þegar honum tekst að ljúka verkefninu. Hann segir að hver sem er geti kennt gæludýr- unum sínum svipaðar brellur. „Það eru alltaf að koma fram fleiri sannanir fyrir því að fiskar eru greindari en fólk hefur talið,“ sagði Pomerleau, sem er 41 árs Los Angeles-búi. Fiskur sem spilar fótbolta og dansar H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8- 00 80 NÝJAR OG HANDHÆGARI UMBÚÐIRostur.is Engisprettur >> 37 Öll leikhúsin á einum stað Leikhúsin í landinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.