Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Bára ValdísPálsdóttir
fæddist á Grett-
isgötu 33, Reykja-
vík, hinn 27.03.
1916, hún lést á
Dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi,
27. apríl síðastlið-
inn. Hún var dóttir
hjónanna Páls
Friðrikssonar
stýrimanns, f. 10.3.
1879, d. 6.6. 1956,
frá Hólmabúð,
Vogum, og Mar-
grétar Árnadóttur, húsmóður, f.
25.5. 1877, d. 19.6. 1948, frá
Meiðastöðum Garði, 4 ára gömul
fluttist hún að Innra-Hólmi með
foreldrum sínum og ólst þar
upp. Börn Margrétar og Páls
voru 10, elst þeirra var Friðrik
Ólafur, f. 19.7. 1903, Þorbjörg, f.
9.8. 1904, Magnús, f. 8.8. 1905,
Árni, f. 11.7. 1907, Helga Fjóla,
f. 11.11. 1909, Þóra, f. 23.1.
1911, Ísleifur, f. 23.10. 1912,
Ragnar, f. 17.4. 1914, Bára f.
27.3. 1916, og Sólveig Elín, f.
5.8. 1918, og nú með fráfalli
Báru eru öll systkinin látin. Bára
gekk í Miðbæjarskólann í
23.3. 1946, börn þeirra eru
Stella og Björn, fyrir átti Díana
soninn Valtýr Bergmann Sigríks-
son; 4) Benedikt, f. 20.6. 1946 í
sambúð með Jónu Sigurð-
ardóttur, f. 15.5. 1947, og eiga
þau eina dóttur Karen Eddu, af
fyrra hjónabandi á Benedikt syn-
ina Einar, Valtýr Bergmann, lát-
inn, og Valtýr Bergmann; 5)
Kristrún, f. 8.12. 1951, í sambúð
með Erling Þór Guðmundssyni,
f. 1.12. 1947, og eiga þau eina
dóttur, Báru. Alls eru afkomund-
ur Báru 47 talsins.
Bára vann við hin ýmsu störf
um ævina svo sem við fisk-
vinnslu og hin ýmsu þjón-
ustustörf en lengst af af vann
hún í Bjarnalaug á Akranesi.
Bára starfaði mikið í kvenna-
deild Slysavarnafélags Akraness,
einnig starfaði Bára lengst af í
Alþýðuflokksfélagi Akraness.
Hún var mikill áhugamanneskja
um íþróttir, þá sérstaklega um
knattspyrnu, þar sem hún fylgd-
ist með öllum knattspyr-
unuleikjum Skagamanna sem
hún hafði tök á. Hún sá um þvott
á öllum íþróttabúningum Skaga-
manna í fjölda ára. Síðustu ævi-
árin dvaldi Bára á Dvalarheim-
ilinu Höfða, Akranesi.
Útför Báru verður gerð í dag,
6. maí, frá Akraneskirkju og
hefst athöfnin klukkan 14.
Reykjavík frá 7 til
14 ára aldurs. Árið
1937 giftist Bára
Valtý Bergmann
Benediktssyni vél-
stjóra, f. 11.11.
1909, d. 9.2. 1961,
syni hjónanna Bene-
dikts Tómassonar,
skipstjóra, f. 24.4.
1876, d. 10.1. 1961,
frá Bjargi, Akra-
nesi, og Guðrúnar
Sveinsdóttur hús-
móður, f. 11.10.
1895, d. 28.11. 1960,
frá Sveinsstöðum í Reykjavík.
Benedikt og Guðrún byggðu
Skuld á Akranesi og bjuggu þar
lengst af. Bára og Valtýr bjuggu
lengst af á Sunnubraut 16, Akra-
nesi. Þau eignuðust 5 börn, elst
1) Margrét, f. 4.11. 1937, gift
Arnari Viðari Halldórssyni, f.
25.6. 1942, börn þeirra eru Val-
dís, Halldór og Sigurborg; 2)
Guðrún Bergmann, f. 3.9. 1941,
d. 11.3. 1978, gift Ármanni M.
Sigurðssyni, f. 2.9. 1939, börn
þeirra eru Bára Valdís, Sig-
urður, Valtýr og Jóhannes Krist-
ján, 3) Díana Bergmann, f. 15.8.
1942, gift Viktori Björnssyni, f.
Elsku mamma. Þú lagðir upp í þína
hinstu ferð að morgni sunnudagsins
27. apríl síðastliðins. Þú hefðir ekki
getað valið fallegra ferðaveður, sátt
við allt og alla, en sagðir að þú ættir
eftir að sakna okkar, stóra hópsins
þíns. Það er sárt til þess að hugsa að
ekki verðir þú lengur til staðar, klett-
urinn sem hefur leitt okkur systkinin
í gegnum lífið með þinni staðfestu og
æðruleysi. Aldrei skal gefast upp
heldur stöndum við saman eins og þú
sagðir þegar á móti blés, og það þú
sýndir þegar pabbi veiktist og allt
það sem þú lagðir á þig til að halda
heimilinu saman eftir að hann lést.
Það var mikið líf í kringum þig, þú
með þitt góða skap og skemmtilegu
kímnigáfu. Þú varst kona með miklar
skoðanir á lífinu og tilverunni og oft
voru miklar og fjörugar umræður í
eldhúsinu á Sunnubrautinni, sérstak-
lega þegar pólitíkin var annars vegar.
Þú, þessi mikla jafnaðarmanneskja
og krati. Þegar ég lít til baka hefði
hluti af þessari götu átt heita Krata-
braut.
Þegar þú fluttist á Skagann varstu
mikill Valsari, en það breyttist fljót-
lega þar sem þú giftist inn í Skuld-
arættina þar sem fótboltagenin eru
mjög sterk og tryggari stuðnings-
maður var varla til. Þú fórst alltaf
með okkur Báru á fótboltaleiki með-
an þú varst fær um það, sást um að
þvo búningana af öllum flokkum ÍA í
mörg ár. Var það gert heima og var
heimilið undirlagt í gulum treyjum.
Þegar ég fór með þér í Neskaup-
stað í þrjú sumur í síldarsöltun, fyrst
11 ára, fannst mér ansi mikið til mín
koma að eiga að aðstoða þig við sölt-
unina. Var ég sett upp á kassa svo ég
næði í botninn á tunnunni. Þessi tími
er ógleymanlegur í minningunni. Síð-
an bjuggum við Bára hjá þér þar til
ég keypti mína fyrstu íbúð og er sá
tími mjög dýrmætur okkur. Þér var
mikið í mun að gefa öllum jólagjafir
og bjóst þú þær allar til sjálf. Var það
hluti af jólaundirbúningnum hjá mér
að hjálpa þér við pökkunina, sem var
heilmikil athöfn. Þú varst yndisleg
mamma, amma, langamma og langa-
langamma og voru allir jafnir. Einnig
þau barnabörn sem þú fékkst í kaup-
bæti og voru þau sem þín eigin. Síð-
asta jólaboðið sem þú varst hjá okkur
var stórkostlegt. Það var haldið að
Miðgarði og var það dýrmæt stund
þar sem allur hópurinn var saman
kominn og þar deildir þú út gjöfum til
allra unganna þinna í síðasta skipti
og síðan var dansað í kringum jóla-
tréð og naust þú þessarar stundar
vel. Það er yndislegt til þess að hugsa
að ömmubörnin sem voru á landinu
hittu þig og gátu kvatt þig síðustu
vikurnar sem þú varst hér hjá okkur
og eiga þau góðar minningar sem er
mikill fjársjóður fyrir þau. Það var
yndisleg síðasta heimsóknin til okkar
á Álftanesið. Þú komst þó þú værir
orðin lasburða og með þér kom alltaf
mikill kraftur og gleði og fengum við
okkur smá sérrítár fyrir svefninn en
það fannst þér notalegt.
Elsku mamma, ég kveð þig með
miklum söknuði, en ég veit að þér líð-
ur vel og ert kominn til Valla þíns,
stóru ástarinnar í lífi þínu. Það eru
mikil forréttindi að þú skyldir vera
með okkur svona lengi. Guð blessi
þig.
Þín
Kristrún.
Nú er komið að hinstu kveðjustund
í 35 ára samferð með elskulegri
tengdamóður, þótt fátt eitt verði talið
hér í þessum kveðjuorðum. Bára Val-
dís Pálsdóttir, eða Bára Páls, eins og
hún var oftast kölluð, var eftirminni-
leg kona, glaðlynd, þrautseig og alltaf
jákvæð. Það var einkenni Báru að sjá
alltaf það jákvæða í fari hvers manns,
hún elskaði okkur eins og við vorum.
Öll þessi ár heyrði ég hana aldrei
hallmæla nokkrum manni. Það kom
aldrei til greina hjá Báru að láta deig-
an síga þrátt fyrir ýmsa erfiðleika.
Bára var mjög félagslynd kona, starf-
aði í Slysavarnafélaginu árum saman
og ekki má gleyma Alþýðuflokknum,
en Bára var ein af þessum örfáu eð-
alkrötum. Hannyrðir og allskonar
handavinna var meðal áhugamála
Báru, hún saumaði, prjónaði og hekl-
aði og eiga allir afkomendurnir eitt-
hvað sem hún hefur búið til. Á seinni
árum bjó hún til margan hlutinn úr
leir og öðru föndri, listavel gert og
margt af því hrein listaverk. Á seinni
hluta ævinnar ferðaðist Bára mikið
bæði innanlands og erlendis. Hún fór
margar ferðir um hálendi Íslands og
þá var ferðast með margfrægum Ar-
abíuhóp. Ég minnist ferðar sem við
Díana og tvö börn okkar Stella og
Björn fórum með Báru til Ítalíu 1985.
Ekkert okkar mun nokkru sinni
gleyma þeirri ferð og ég veit að minn-
ing barnanna með Ömmu Báru á Ítal-
íu geymist alla tíð. Við vorum ekki
búin að vera lengi á staðnum þegar
Bára hafði komist að því að ein konan
í ferðinni hafði haft með sér pönnu-
kökupönnu, nú var ákveðið að fá
pönnuna lánaða, en pönnukökurnar
hjá Ömmu Báru eru heimsfrægar.
Næst á dagskrá var að fara og kaupa
hráefni í pönnukökur og gekk það
ágætlega þar til kom að lyftiduftinu,
ég var löngu búinn að gefast upp við
að útskýra fyrir afgreiðslumanninum
hvað okkur vantaði, en hann talaði
eingöngu ítölsku. Bára gafst ekki upp
og á íslensku útskýrði hún fyrir
manninum hvernig lyftiduft liti út og
lék verkun þess. Að lokum söng Ítal-
inn aríu fyrir Báru, það var hreint
stórkostleg skemmtun að fylgjast
með þessu.
Það var venja Báru þegar hún fór
erlendis að þá keypti hún alltaf eitt-
hvað handa öllum barnabörnunum til
að gleðja þegar heim kæmi.
Þessu mátti alls ekki gleyma í Ítal-
íuferðinni, hún hafði frétt af útimark-
aði í 80 km fjarlægð og þangað fór
hún ein í rútu og gerði góð kaup.
Heima á Íslandi biðu börnin og
hlökkuðu til heimkomu Ömmu Báru
frá Ítalíu. Að leiðarlokum þakka ég
yndislegri konu fyrir allt sem hún var
mér og fjölskyldu minni. Um leið og
ég votta öllum afkomendum hennar
dýpstu samúð.
Samferðamenn, gjörist glaðir,
grátið ekki dauða minn.
Heim þig kallar himnafaðir,
nú hættir störfum líkaminn.
En ekki þrjóta andans leiðir
ykkur þó ég skilji við.
Nú eru vegir nógu greiðir,
nú er líf mitt fullkomið.
Gangið því til grafarinnar
glaðir, burt frá þessum stað,
ár eru talin ævi minnar
en andinn lifir, munið það.
Þegar líkams brestur bandið,
bikar hérlífs tæmið þið,
svífið yfir sólarlandið,
saman aftur búum við.
(Sálmur, höf. ókunnur.)
Megi góður Guð geyma fjölskyldu
þína.
Blessuð sé minning Báru Valdísar
Pálsdóttur.
Viktor Björnsson.
Einhverju sinni þegar ég kom í
heimsókn til tengdaforeldra minna sá
ég mynd á vegg sem var af konu og
manni á æskuskeiði sínu. Þessi kona
var ákaflega svipsterk, glaðbeitt og
glæsileg; myndin hefur sennilega
verið tekin einhvern tíma á árunum í
kringum 1940. Þetta var Bára Valdís
Pálsdóttir en unga manninn missti
hún frá sér mörgum árum síðar. Hún
Bára Valdís Pálsdóttir✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Grænatúni 18,
Kópavogi,
fyrrverandi prestsfrú,
Reynivöllum Kjós,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi,
föstudaginn 2. maí.
Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni
föstudaginn 9. maí kl. 13.00.
Áslaug Kristjánsdóttir, Jai Ramdin,
Bjarni Kristjánsson,
Karl Magnús Kristjánsson, Helga Einarsdóttir,
Halldór Kristjánsson, Guðrún Kristinsdóttir,
Kristrún Kristjánsdóttir, Axel Snorrason,
Valdimar Kristjánsson, Brenda Phelan,
Guðmundur Kristjánsson, Jónína B. Ólsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
REGINN BERGÞÓR ÁRNASON,
Tjarnarlundi 16a,
Akureyri,
lést föstudaginn 2. maí á gjörgæsludeild
Sjúkrahúss Akureyrar.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
9. maí klukkan 13.30.
Málfríður H. Jónsdóttir,
Regína Þ. Reginsdóttir, Sigurður Vilmundarson,
Valgerður J. Reginsdóttir, Guðmundur Jósteinsson,
Árni Jón Reginsson, Ágústa Pálsdóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma, langalangamma og langalangalangamma,
KRISTJANA BJARNADÓTTIR,
Hrafnistu,
Reykjavík,
andaðist að morgni mánudagsins 5. maí.
Kristjana Guðmundsdóttir,
Björg H. Sigurðardóttir,
Sigurður H. Sigurðsson, Ólafía K. Jónsdóttir,
Elsa H. Sigurðardóttir,
Ásgeir H. Sigurðsson, Kristjana G. Hávarðardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HJÖRLEIFUR ÞÓRÐARSON,
Skógarseli 17,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 4. maí.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 11-E.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
15. maí kl. 13.00.
Jensína Guðrún Magnúsdóttir,
Þórður Georg Hjörleifsson, Emelía Blöndal,
Þórdís Hjörleifsdóttir, Haukur Þór Bjarnason
og barnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÚN JÚLÍUSDÓTTIR,
Brúnavegi 9,
Reykjavík,
lést á öldrunardeild Landspítala í Fossvogi
sunnudaginn 4. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Júlíus Kristinn Magnússon,
Sigrún Magnúsdóttir, Jón Jóhannesson,
Elín Magnúsdóttir, Rudi Rudari
og barnabörn.
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Vönduð vinna og frágangur
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista