Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR HANNES Hlífar Stefánsson og Héðinn Steingrímsson náðu báðir miðlungi góðum árangri á nýaf- stöðnu Evrópumóti einstaklinga sem fram fór Plovdiv í Búlgaríu og lauk um helgina. Þeir fengu báðir 6 vinn- inga af 11 mögulegum en sigurvegari varð hollenski stórmeistarinn Sergei Tiviakov sem hlaut 8½ vinning úr 11 skákum. Hann vann ísraelska stór- meistarann Sutovsky í síðustu um- ferð en á sama tíma lauk öðrum skákum í toppbaráttunni með jafn- tefli. Fyrir lokaumferðina voru átta skákmenn efstir og jafnir með 7½ vinning úr 10 skákum. Hannes gerði jafntefli við make- dónska stórmeistarann Trajko Ne- dev í elleftu en Héðinn vann búlg- arska alþjóðlega meistarann Milen Vasilev. Alls hófu 336 skákmenn keppni og var mótið geysilega vel skipað. Sig- urvegarinn Sergei Tiviakov var um tíma í hópi 10-15 bestu skákmanna heims en hefur fyrir nokkru dottið út af þeim lista. Hann er engu að síður mikilsvirtur stórmeistari sem afar erfitt er að vinna. Í lokaumferðinni beitti hann Alapin-afbrigðinu í sikil- eyjarvörn sem hefst á þann hógværa hátt 1. e4 c5 2. c3 og vann eftir langa og stranga baráttu. Sutovsky hélt fyrirlestur hér á landi fyrir nokkrum árum og taldi Alapin-afbrigðið ekki mjög vænlegt til árangurs. Lokanið- urstaðan hvað varðar efstu menn varð þessi: 1. Sergei Tiviakov (Holland) 8½ v. 2.-10. Pavel Tregubov (Rússland), Sergei Movsesian (Slóvakía), Erwin L’Ami (Holland), Maxime Vachier– Lagrave (Frakkland), Boris Grachev (Rússland), Vladimir Baklan (Úkra- ína), Yuriy Kryvioruchko (Úkraína), Tomi Nyback (Finnland). Taflmennska Hannesar og Héðins var á köflum góð en nokkuð gloppótt. Þeir fengu aldrei þann byr í seglin sem fleytti þeim áfram í hóp efstu manna. Á góðum degi geta þeir báðir stað jafnfætis þeim mönnum sem voru í toppbaráttunni. Lítt þekktir skákmenn efstir á heimsbikarmóti FIDE í Baku Hinn kunni rússneski stórmeistari Alexander Grischuk datt úr efsta sæti heimsbikarmóts FIDE sem staðið hefur yfir í höfuðborg Aserba- ídsjan, Baku, undanfarið. Þetta 14 manna mót hefur dregið til sín marga af bestu skákmönnum heims, þ.á m. Gata Kamsky og Magnús Carlsen hinn norska. Úrslit síðustu umferða hafa komið talsvert á óvart en tveir lítt þekktir skákmenn eru efstir fyrir lokaumferðina með 7½ vinning af 12 mögulegum. Staðan eftir 12 umferðir af 13: 1.-2. Wang Yue (Kína) og Vugar Gashimov (Aserbaídjsan). 3.-5. Magnús Carlsen (Noregi), Shakhriy- ar Mamedyarov (Aserbaídsjan) og Alexander Gurevich (Rússland) 7 v. 6. Michael Adams (England) 6 v. 7.-9. Ivan Cheprainov (Búlgaría), Gata Kamsky (Bandaríkin), Teimour Radjabov (Aserbaídsjan), Sergei Karjakin (Úkraína) og Peter Svidler (Rússland) 5½ v. 12.-13. Etienne Bacrot (Frakkland) og Ernesto In- arkiev (Rússland) 5 v. 14. David Navarra (Tékkland) 4½ v. Kínverjinn Wang Yue tefldi á síð- asta Reykjavíkurmóti og varð í efsta sæti ásamt Hannesi Hlífari Stefáns- syni og landa sínum Wang Hao. Hann hefur farið taplaus í gegnum þetta sterka mót og bendir margt til þess að Kínverjar séu að ná yfir- burðastöðu á skáksviðinu bæði með- al kvenna og karla. Enn hafa þeir þó ekki náð að vinna ólympíumót og enginn hefur komist nálægt því að keppa um heimsmeistaratitil karla. Magnús Carlsen náði þeim merka áfanga nýlega að komast í 5. sæti á stigalista FIDE en fyrir ofan hann eru Anand, Kramnik, Topalov og Morozevich. Skákir Magnúsar eru alltaf athyglisverðar og hann leggur mikið upp úr því að tefla allar byrj- anir og koma menn ekki að tómum kofunum hjá honum á neinu sviði. Í 9. umferð tefldi hann við einn besta skákmann heims, Aserann Radja- bov, og beitti drekaafbrigði sikileyj- arvarnarinnar. Hér er enn og aftur komin byrjun þar sem tölvurnar geta leiðbeint mönnum langt fram í miðtafl og jafnvel endatafl. Þess má þó geta að 18. leikur Magnúsar, – Rg6 er að öllum líkindum nýr af nálinni sem sýnir enn og aftur hversu mikil sköpun fyrirfinnst inn- an skáklistarinnar. Vopnaviðskiptin sem í hönd fara í framhaldinu eru stórskemmtileg enda tveir frábærir skákmenn á ferðinni, Magnús heldur stillingu sinni með vönduðum leikj- um á borð við 25. … De5, 27. … g3 og 28. … Hf8. Það eru frípeð svarts sem gera á endanum út um taflið: Heimsbikarmót FIDE, 9. umferð: Teimour Radjabov – Magnús Carlsen 1.e4 c5 2.Rf3 d6 3.d4 cxd4 4.Rxd4 Rf6 5.Rc3 g6 6.Be3 Bg7 7.f3 Rc6 8.Dd2 0-0 9.Bc4 Bd7 10.Bb3 Hc8 11.h4 h5 12.0-0-0 Re5 13.Bg5 Hc5 14.Kb1 He8 15.g4 hxg4 16.h5 Rxh5 17.Hxh5 gxh5 18.Dh2 Rg6! 19.Dxh5 Da5 20.f4 Hxg5 21.fxg5 e6 22.Rf5 exf5 23.Dxg6 Be6! 24.Dh5 fxe4 25.Hf1 De5 26. Hxf7 Bxb3 27. axb3 g3 28.Ka2 Hf8 29.Hxf8+ Kxf8 30.Dg4 e3 31.g6 e2 32.Df3+ Ke8 33.Df7+ Kd8 34.Dg8+ Kd7 35.Df7+ De7 36.Df5+ Kd8 37.Da5+ b6 38.Dd5 e1D 39.Da8+ Kd7 40.Db7+ Ke8 – og Radjabov gafst upp. helol@simnet.is Tiviakov Evrópumeistari SKÁK Plovidiv, Búlgaríu Evrópumeistaramót einstaklinga 20. apríl til 4. maí 2008 Morgunblaðið/Ómar Efstur Einn sigurvegara síðasta Reykjavíkurmóts, kínverski stór- meistarinn Wang Yue, skaust óvænt upp í efsta sæti á heimsbik- armóti FIDE Baku. Helgi Ólafsson FRÉTTIR RÁÐSTEFNA verður haldin í Há- skólabíói á morgun, 7. maí, undir yfirskriftinni „Lífeyriskerfi fram- tíðarinnar – Endurmat norrænu velferðarkerfanna“. Ráðstefnan er á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, Norræns öndveg- isseturs í velferðarrannsóknum (www.reassess.no), Landssamtaka lífeyrissjóða og Tryggingastofnunar. Á ráðstefnunni verða fjórir er- lendir fyrirlesarar sem allir hafa ver- ið leiðandi í alþjóðlegum samanburð- arrannsóknum á lífskjara- og vel- ferðarmálum á undanförnum árum, segir í fréttatilkynningu – þeir Joa- kim Palme, prófessor við Háskólann í Stokkhólmi; Olli Kangas, forstöðu- maður rannsóknasviðs Trygginga- stofnunar Finnlands; Axel West Pedersen, prófessor við rannsóknar- stofnunina NOVA í Osló, og Jörgen Goul Andersen, prófessor við Ála- borgarháskóla. Þá munu Hrafn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Landsambands lífeyr- issjóða, og Stefán Ólafsson, prófess- or og stjórnarformaður TR, fjalla um lífeyriskerfi Íslendinga og end- urskoðun þess. Stefán hefur verið leiðandi í opinberri umræðu um líf- eyris- og lífskjaramál á Íslandi á undanförnum misserum en auk þess leiðir hann aðkomu íslenskra fræði- manna að Reassess: Norrænu önd- vegissetri í velferðarrannsóknum, segir í fréttinni. Auk þeirra munu fulltrúar vinnu- markaðarins, hagsmunasamtaka og fleiri sitja í pallborði. Ráðstefnan hefst klukkan 9.00 og stendur til 15.30. Ráðstefnan er opin öllum og þátttökugjald er ekkert. Æskilegt er að fólk skrái sig til þátttöku með því að senda tölvupóst á kolbeinn@hi.is. Lífeyris- kerfi fram- tíðarinnar „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez.) Með þakklæti og virðingu, þín Stella. Það eru mikil tímamót í lífi okkar nú þegar við kveðjum ömmu Báru. Amma Bára hefur alltaf skipað stór- an sess í huga okkar og erum við þakklát fyrir að hafa fengið að hafa hana hjá okkur svona lengi. Amma átti langa og viðburðaríka ævi þar sem hún hlaut sinn skerf af mótlæti og erfiðleikum, en kjarnakonan Bára Páls lét fátt slá sig út af laginu og hún þekkti ekki hugtakið að gefast upp. Þannig kom hún 5 börnum vel til manns þrátt fyrir að verða ekkja 45 ára gömul. Hún vann karlmannsstörf á eyrinni til að fá hærri tekjur, bakaði hafrakex og seldi í Einarsbúð, leigði út herbergi svo eitthvað sé talið. Seinna hóf hún störf í Sundlauginni og sá um þrif á búningum fyrir ÍA. Okkur eru mjög minnisstæðar heim- sóknirnar upp á Skaga þar sem órjúf- anlegur hluti var að hjálpa ömmu að hengja búningana til þerris. Í minn- ingunni finnst okkur það sérstaklega einkenna ömmu hvað hún hafði gam- an af lífinu. Hún vildi taka þátt í öllu, fylgdist vel með, og hafði mjög mik- inn áhuga á íþróttum og stjórnmál- um. Ferðalög voru einnig stór þáttur í hennar lífi en hún ferðaðist mikið til útlanda alveg fram á seinni ár. Hún amma Bára var alveg einstök kona og lét aldrei bilbug á sér finna. Í bernskuminningunni var hún frábær amma sem vann í sundlauginni sem voru mikil forréttindi að okkar mati, snillingur í að baka pönnukökur og síðast en ekki síðast einn helsti stuðningsmaður knattspyrnudeildar ÍA og mikill fótboltaáhugamaður. Á týpískum sunnudegi var fullur eld- húskrókurinn af börnum, hún bakaði ofan í okkur pönnukökur sem hurfu jafnóðum og í bakgrunni mátti heyra í Bjarna Fel. fara yfir stöðuna í ensku deildinni. Amma var harður stuðn- ingsmaður ÍA og mætti á alla leiki allt fram undir það síðasta og oft átti hún erfitt með að sitja á sér eftir leiki ÍA og KR þar sem hún þurfti að láta mann vita af því að KR-ingarnir væru nú óttalegir tuddar. Þegar við eltumst og þroskuðumst breyttist að- dáunin í virðingu fyrir þessari ein- stöku konu sem féll aldrei verk úr hendi og sá alltaf björtu hliðarnar á öllu. Jákvæðnin og lífsgleðin fylgdi henni alveg fram í andlátið og tókst henni að fá okkur til að skellihlæja aðeins nokkrum dögum áður en hún kvaddi þennan heim. Við vorum mörg barnabörnin og var oftast mik- ið fjör hjá henni á Sunnubrautinni. Núna hin síðari ár, þegar krafturinn var farinn að þverra, var hún samt sem áður tilbúin að taka þátt í öllu og fór ansi langt á hörkunni. Hún tók þátt af kappi í öllu því starfi sem hún gat á Höfða og tók m.a. þátt í pútt- keppnum og var mjög liðtæk í föndr- inu. Síðan hún byrjaði að föndra bjó hún til allar jólagjafirnar sjálf og alla vinningana á frægu jólabingói fjöl- skyldunnar. Gjafirnar frá ömmu Báru glöddu ekki síst yngstu kyn- slóðina, langömmubörnin, sem þótti mikið til þess koma að fá fallegu hlut- ina sem hún bjó til. Við kveðjum ömmu Báru með söknuði, og færum henni þakkir frá okkur og fjölskyld- um okkar fyrir allar góðu stundirnar og allt það góða sem við lærðum af henni, af lífsviðhorfi hennar og lífs- gleði. Valdís, Halldór og Sigurborg. Móðursystir mín Bára Pálsdóttir er látin. Hún kveður nú síðust systk- inanna tíu sem ólust upp hjá kær- leiksríkum foreldrum á Grettisgötu 33 í Reykjavík. Fjölskyldufaðirinn var stýrimaður og mikill sjósóknari og duglegur að afla heimilinu tekna, móðirin var heima og stóð vörð um hag heimilisins, þar sem alltaf var rúm fyrir gesti og gangandi. Á heim- ilinu ríkti hlýja og glaðværð og sú hugsun að vera sjálfbjarga. Það var það veganesti sem börnin fengu frá foreldrum sínum út í lífið. Bára var kona fríð sýnum, stolt og lagði sig fram um að vera ævinlega vel til fara og þegar aldurinn færðist yfir var hún fljót að tileinka sér allt sem hjálpaði henni að njóta lífsgæða og áranna og vildi einnig miðla því til annarra. Hún var dugleg og vel vinn- andi, tókst á við sérhver störf á lífs- leiðinni og sá farsælan endi á þeim. Við systkinadætur hennar höfum nú á seinni árum átt ánægjulegar samverustundir. Á þeim stundum var Bára heiðursfrænkan sem átti ítök í okkur öllum. Hinn 5. apríl hitt- umst við í sal á Höfða þar sem Bára og börn hennar voru gestgjafar. Þarna sameinuðumst við og rifjuðum upp liðnar samverustundir og Bára var hrókur alls fagnaðar. Þá sáum við hvað margt frá æskuárum hennar hafði mótað hana. Hún sagði okkur frá heimilisbragnum á Grettisgöt- unni og því lífsviðhorfi og gildum sem þeim börnunum var innprentað, í þeirri von að við sem yngri værum virtum það af hvaða bergi við erum brotin, því af fjölskyldusögunni var Bára stolt. Árið 1937 giftist Bára Valtý B. Benediktssyni og fluttust þau á Akranes. Um 1946 byggðu þau sér hús á Sunnubraut 16 þar sem þau sköpuðu sér traust og fallegt heimili og börnin urðu alls fimm að tölu, öll mannkostafólk. En sorgin sótti fjöl- skylduna heim. Valtýr veiktist alvar- lega og andaðist 1961. Þá kom í ljós kjarkur Báru og dugnaður við að halda heimilinu saman. Hún gekk til allra starfa, þar sem hún fékk bestu tekjurnar hverju sinni. Hún var sönn Alþýðuflokkskona og vann að þeim málum og studdi. Einnig vann hún ötullega í Slysa- varnafélaginu. Árið 1961 tók Bára til starfa í Bjarnarlaug og var sund- laugavörður allt til starfsloka. Á þessum vettvangi naut hún sín, því hún var afar félagslynd, kynntist mörgum og var nærri unga fólkinu og hafði áhuga á íþróttum, sundi og fótbolta sérstaklega. Ég minnist þess þegar ég var unglingur hve gaman var að fara með Báru á „völlinn“. Þá hrópaði hún hátt og hvatti sína menn til dáða, og þá tóku allir eftir okkur. Á seinni árum ferðaðist Bára mikið bæði innanlands sem utan. Hún átti góða ferðafélaga og naut sín vel í þeirra hópi og naut efri áranna. Að leiðarlokum finnst mér við hæfi að kveðja frænku mína með orðum sr. Friðriks Friðrikssonar sem var í svo miklum metum hjá fjölskyldunni á Grettisgötunni: Svo er endar ógn og stíðin, upp mun renna sigurtíðin, oss er kallar heim heim til hallar himna Guð, er lúður gjallar. (Fr. Fr.) Guð blessi minningu góðrar konu. Sigríður Thodóra Sæmundsdóttir, Skarði. Þú kvaddir um líkt leyti og vet- urinn, sú síðasta úr hópi níu systkina frá Grettisgötu 33. Ég kveð þig, amma, eða Amma Bára eins og við kölluðum þig. Nýtt ferðalag er hafið hjá þér, þú hafðir jú yndi af því að ferðast. Nýjar lendur opnast og þú færð að hitta hann Valla þinn eftir nær hálfrar aldar aðskilnað. Þið fenguð góðan aldarfjórðung saman þú og Valtýr og þú vildir vera fín þeg- ar þið hittust aftur. Að standa uppi sem ekkja 45 ára, með telpu 9 ára, dreng 14 ára og þrjár stúlkur á aldr- inum 18 til 23 ára á tímum þegar eng- ir voru lífeyrissjóðirnir var ekki auð- velt hlutskipti. Með elju og dugnaði hélst þú öllu þessu saman svo sómi var að og gerðir fram á þinn síðasta dag. Þú áttir það til að nefna þær all- ar systurnar „Díana, Kristrún, Gréta, Rúna!“ þegar mikið lá við og þú varst að tala til einnar af þeim en nöfnin á öllum barnabarnabörnunum og barnabarnabarnabörnunum varst þú með á hreinu og gættir þess að enginn gleymdist þegar að yngra fólkið var búið að missa yfirsýnina. Margar myndir hafa komið upp í hugann frá Sunnubrautinni síðustu daga. Þú standandi í eldhúskróknum að slá í pönnukökur eða sitjandi við sjónvarpið prjónandi lopapeysur með hringaða lopahnyklana við fætur þér. Búningar til þerris á öllum stólbök- um, ofnum, handriðum og snúrum yf- ir sumartímann. Margir tiltarnir hafa unnist í hreinum og stroknum bún- ingum frá þér. Alltaf var jafn gott að koma til þín, Amma, og ef ég þekki þig rétt þá ert þú búin að hlaupa 2.000 metrana sem þú ætlaðir að gera þegar að þú yrðir frjáls. Þær hafa verið dásamlegar stundirnar sem þú hefur gefið okkur og ekki hvað síst þær síðustu. Þessi mikli friður og þessi mikla sátt. Þó að líkaminn hafi verið orðinn lúinn og þú orðin þreytt var hugurinn enn til staðar og það var þér líkt að gera þessa síðustu daga léttbærari fyrir fólkið þitt með kímni, glettni og góðum orðum sem einungis er hægt að geyma við hjartaræturnar. Mig langar að þakka starfsfólki Dvalarheimilisins Höfða fyrir alúðina og umhyggjuna sem þau sýndu þér síðustu árin. Þér, Amma, vil ég þakka allt það góða sem þú hef- ur gefið mér, stundirnar, ástúðina, umhyggjuna að ógleymdum öllum pönnukökunum. Ég kveð þig, Amma, á sama hátt og þú kvaddir mig um daginn: „Við eigum eftir að dansa saman síðar …“ Sigurður. Bára Valdís Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.