Morgunblaðið - 06.05.2008, Page 17

Morgunblaðið - 06.05.2008, Page 17
Hugmyndin kviknaði fyrirnokkrum árum þegar égvar nýflutt hingað tillands og hafði eignast mína yngstu dóttur, Darcie Þórdísi,“ útskýrir Letetia Jónsson sem hingað flutti ásamt manni sínum Sturlu Jónssyni arkitekt en saman eiga þau einnig stelpurnar Chanel, 14 ára, og Theu, 11 ára. „Í Bretlandi var að- gengi að upplýsingum um tóm- stundaiðkun barna svo einfalt og gott. Það var einfalt að vita hvaða námskeið væru í gangi og hvenær. Fyrsta árið var tungumálið, íslensk- an, mér líka fjötur um fót. Mér fannst þetta eins og fuglamál,“ segir hún og hlær. „Það var nánast ekkert af upplýsingum á ensku eða öðrum tungumálum. Nú er ég farin að tala aðeins meiri íslensku og get lesið hana nokkuð vel. En það var því tilviljunarkennt hvað og hvort ég frétti af því sem var að gerast í samfélaginu og fyrsta árið fannst mér ég svolítið einangruð með Darcie.“ Framtíðin er landið allt Það sem fyrst var bara hugdetta varð brátt að viðskiptahugmyndinni Frístundir Ísland og að ástríðuverk- efni Letetiu sem nú er að verða að veruleika. „Já, ég hef verið vakin og sofin yfir þessu síðastliðna 18 mán- uði en ég er einnig í mastersnámi í ensku í Háskóla Íslands. Það er því nóg að gera og þetta er búin að vera mikil vinna og skemmtileg,“ segir hún en áður vann hún sem verkefn- isstjóri hjá Vodafone UK og segir það hafa nýst sér vel. – Finnst þér þú hafa komist betur inn í íslenskt samfélag í gegnum þessa vinnu? „Já, það má segja að þetta hafi verið mín leið til þess að aðlagast ís- lensku samfélagi því að í gegnum þetta hef ég kynnst fjölmörgu fólki, bæði í viðskiptum og öðru. Vefurinn hefur líka fengið góðar undirtektir og öllum líst mjög vel á hugmyndina, sem er að sameina undir einum hatti alla tómstundaiðju fyrir krakka á aldrinum 1-18 ára. Það er hægt að leita undir sveitarfélögum á höf- uðborgarsvæðinu, eins og Reykja- vík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Seltjarnarnesi. Þetta er alveg ný þjónusta. Framtíðin er samt að vera með upplýsingar fyrir landið allt og næst á dagskrá eru Akureyri, Dalvík og Húsavík svo dæmi séu tekin. Þess vegna heitir vefurinn Frístundir Ís- land.“ Andlit Íslands breyst – Nú er vefurinn á þremur tungu- málum, hvers vegna finnst þér það mikilvægt? „Það er mikilvægt vegna þess að það endurspeglar Ísland í dag. Hér eru nú töluð fleiri tungumál en ís- lenska því hér býr fleira fólk en það sem hefur átt Íslendinga sem for- feður. Andlit Íslands hefur breyst og við þurfum að endurspegla þá fjöl- breytni sem nú ríkir hér. Ég vil að þessar upplýsingar séu aðgengilegar fyrir sem flesta. Til að byrja með verður vefurinn á íslensku, ensku og pólsku og síðar hef ég hug á að bæta við upplýsingum á taílensku og víet- nömsku. Vefsíðan á fyrst og fremst að vera aðgengileg fyrir notendur og hún er mjög einföld í notkun. Þar verður t.d. sagt frá því hvort mögu- legt sé að nota frístundakort sveitar- félaganna til niðurgreiðslu á nám- skeiðum. En þetta er líka þjónusta fyrir íþróttafélög, klúbba, skóla og fyrirtæki sem bjóða upp á íþrótta- og tómstundaþjónustu.“ Letetia segir að auk vefsíðunnar komi út bæklingur þrisvar á ári, einnig fjöltyngdur, í maí, í lok ágúst og í byrjun janúar, þar sem fram komi námskeiðsframboðið. „Þetta eru aðalnámskeiðstímabilin og bæklingnum er ætlað að styðja við vefsíðuna, sem er samt reglulega uppfærð,“ segir Letetia um þetta nýjasta barn sitt en vefsíðan fer formlega í loftið á næstunni. uhj@mbl.is Frístundir á fjölmörgum tungumálum Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjölskyldan Letetia ásamt dætrunum Chanel, Theu, og Darcie Þórdísi og eiginmanninum Sturlu. Letetia Jónsson fann ekki auðveldlega það sem hún leitaði að hér á landi og í stað þess að bíða með hendur í skauti ákvað hún að búa til slíkan vettvang. Frístundir Ísland er af- raksturinn, fjöltyngdur upplýsingavefur sem auðveldar leit að íþrótta- og tómstunda- iðju fyrir börn á aldr- inum 1-18 ára. Unnur H. Jóhannsdóttir ræddi við þessa bresku athafnakonu. www.fristundir.is Fyrsta árið var tungu- málið, íslenskan, mér líka fjötur um fót. Mér fannst þetta eins og fuglamál. |þriðjudagur|6. 5. 2008| mbl.is daglegtlíf SAMHENGI gæti verið milli vírussýkingar og lungnakrabbameins ef marka má rann- sókn sem bandarískir vísindamenn kynntu nýverið á stórri lungnakrabbameins- ráðstefnu í Genf og Berlingske tidende greinir frá á vefsíðu sinni. Dr. Arash Rezazadeh og samstarfsmenn hans frá Háskólanum í Louisville í Ken- tucky rannsökuðu 22 sjúklinga sem höfðu lungnakrabbamein. Fimm þeirra reyndust einnig bera í sér HPV-veiruna sem er talin vera forsenda þess að konur fái legháls- krabbamein. Vírusinn getur einnig valdið öðrum tegundum af slímhimnukrabbameini auk þess sem hann orsakar kynfæravörtur. Allir sjúklingarnir sem voru rannsakaðir reyktu en Rezazadeh telur að uppgötvun hans bendi til þess að vírusinn auki hætt- una á því að fá krabbamein. Af þeim fimm sjúklingum sem höfðu HPV-veiruna voru tveir sýktir af tegund hennar númer 16 en hún, auk tegundar 18, er talin orsaka um 70 prósent legháls- krabbameinstilfella. Tveir sjúklinganna voru smitaðir af tegund 11 sem auk teg- undar 6 orsakar um 90 prósent allra kynfæravarta. Fimmti sjúklingurinn hafði HPV-tegund 22 sem hingað til hefur ekki verið tengd ákveðnum sjúkdómi. Morgunblaðið/Ásdís Krabbamein Reykingar eru enn stærsti áhættuþáttur þess að fá lungnakrabbamein. Veira tengd lungnakrabba HEILLANDI kvenrómur getur mögulega afhjúpað ákveðið grundvallaratriði. Það get- ur þó verið varasamt að láta þýða röddina heilla sig upp úr skónum. Til dæmis er ekki gefið að kynþokkafull konurödd gefi til kynna að draumadísin sé á næsta leiti. Skýringin getur frekar verið að eigandinn sé á sínu frjósamasta tímabili og að röddin breytist í takt við tíðahring hans, samkvæmt nýrri rannsókn sem forskning.no greinir frá. Rannsóknin leiddi í ljós að þær kvenraddir sem þóttu mest aðlaðandi tilheyrðu konum sem höfðu egglos. Niðurstaðan var byggð á tilraun sem gerð var meðal námsmanna en þeir fengu að hlusta á hljóðupptökur af kon- um sem töldu frá einum og upp í tíu á fjórum mismunandi stöðum í tíðahring sínum. Bæði karlkyns og kvenkyns stúdentum þóttu raddir frjósömu kvennanna mest að- laðandi. Ánægð kona aðlaðandi Vísindamennirnir Gordon Gallup og Nath- an Pipitone við State University of New York í Albany í Bandaríkjunum standa á bak við rannsóknina. Þeir segja raddbreyting- arnar styðja kenningar þess eðlis að kon- urnar séu öðruvísi en ella í kringum egglos. Breytingarnar geta þó verið svo smávægi- legar að það sé erfitt fyrir karlmenn að átta sig á þeim nema með aðstoð vísindamann- anna. Engin augljós ytri merki gefa til kynna að kona sé frjósöm, ólíkt mörgum öðrum spendýrum þar sem kynfæri kvendýrsins þrútna og gefa þannig karldýrinu merki um frjósemi. Vísindamennirnir telja þó að konur gefi frá sér fleiri merki um frjósemi sína, sé tekið tillit til hárfínna breytinga á henni í tengslum við egglos. T.d. breytist skynbragð þeirra á lykt auk þess sem þær verða móttækilegri fyrir kyn- lífi. Kanadamaðurinn David Feinberg, sem er sér- fræðingur í mannsröddinni og aðdráttarafli, tel- ur þó ósennilegt að niðurstöður þeirra félaga, Pipitone og Gallup, gagnist fólki með beinum hætti. Það vanti t.a.m. að kanna hvernig radd- breytingar skili sér í venjulegu samtali. Auk þess sveiflist skap kvenna eftir tíðahringnum og t.d. geti fólk einfaldlega laðast að konum sem hljómi ánægðar, frekar en vegna þess að þær séu frjó- samar. Aðlaðandi Marilyn Monroe þótti vissulega hafa einstaklega kynþokkafulla rödd. Kynþokkafullar kvenraddir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.