Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9–16.30, jóga kl. 9– 10, postulínsmálun og útskurður kl. 13–16.30. Árskógar 4 | Bað kl. 9.30, handavinna kl. 8–16, –smíði/útskurður kl. 9–16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl. 9.45. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðslustofa, böðun, al- menn handavinna, vefnaður, fótaaðgerð, morg- unkaffi/dagblöð, hádegisverður, línudans, kaffi, slökunarnudd. Föstudaginn 9. maí verður vorfagn- aður kl. 17 – hátíðarmatur, skemmtiatriði og ball. Skráning í s. 535–2760. Dalbraut 18–20 | Vinnustofa í handmennt opin kl. 9–16, Halldóra leiðbeinir kl. 9–12. Framsögn með Guðný og félagsvist kl. 14. Félag eldri borgara Reykjavík | Skák kl. 13, fé- lagsvist kl. 20. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin, leiðbeinandi við til kl. 17, gler og postulínsmálun kl. 9.30, ganga kl. 14. Í tilefni Kópavogsdaga er fólk hvatt til að kíkja inn og taka þátt. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Jóga kl. 9.15 og 18.15, morgunganga kl. 10, leikfimi kl. 11, matur. Les- hópur kl. 20, stökur og stundargaman í öndvegi, gestir eru þeir Hjálmar Jónsson, dómkirkjuprestur, Ólafur G. Einarsson fyrrv. alþingismaður og Stein- grímur Sigfússon alþingismaður. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Línudans kl. 12, spilað í Kirkjuhvoli kl. 13. Rúta fer frá Hleinum kl. 12.30 og Jónshúsi kl. 12.45. Vatnsleikfimi kl. 14. Lokað í Jónshúsi í dag vegna undirbúnings vorsýn- ingar / uppskeruhátíðar sem hefst á morgun kl. 14, húsið opnar kl. 13.45. Hraunbær 105 | Handavinna og glerskurður, og hjúkrunarfræðingur kl. 9, boccia kl. 10, leikfimi kl. 11, hádegismatur, Bónusbíllinn kl. 12.15, þurrburstun á keramiki kl. 13, kaffi. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl. 9– 16.30, m.a. glerskurður og perlusaumur, létt ganga um nágrennið kl. 10.30. Á morgun kl. 12 er lagt upp í ferð austur fyrir fjall, m.a. er fiskisúpa snædd á Hótel Eldhestum, ísveisla í Eden í Hveragerði, o.fl. Daganna 23., 24. 25. maí er handavinnu og list- munasýning. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, glerskurður – frjálst kl. 10, leikfimi kl. 11.30, glerskurður – frjálst kl. 13, brids kl. 13.30. Hvassaleiti 56–58 | Bútasaumur kl. 9–13 hjá Sig- rúnu. Jóga kl. 9–11, Björg F. Böðun fyrir hádegi. Námskeið í myndlist kl. 13.30–16.30 hjá Ágústu. Helgistund kl. 14 í umsjón séra Ólafs Jóhannssonar, söngstund á eftir og hársnyrting. Íþróttafélagið Glóð | Opið púttmót í Sporthúsinu kl. 10–12, ringó í Smáranum kl. 13–15, námskeið og keppni. Uppl. í síma 564–1490 og 554–5330. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun kl. 13.30 er bingó á Korpúlfsstöðum. Kvenfélag Garðabæjar | Vorfundur félagsins verð- ur haldinn kl. 19.30 í Garðaholti. Nánari uppl. er að finna í fréttabréfi og á heimasíðu félagsins. Skemmtiatriði og varning til sölu. www.kvengb.is Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgunkaffi – vísna- klúbbur kl. 9, boccia kvennahópur kl. 10.15, hand- verksstofa opin kl. 11, opið hús – vist/brids kl. 13, kaffiveitingar. Hárgreiðslustofa síma552–2488 og fótaaðgerðarstofan sími 552–7522. Leshópur FEBK Gullsmára | Vísnaflóð á Kópa- vogsdögum. Sr. Hjálmar Jónsson, Ólafur G. Ein- arsson og Steingrímur J. Sigfússon verða gestir Leshóps FEBK kl. 20 í kvöld. Vori fagnað með gamni og glensi. Enginn aðganseyrir. Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl. 9–16, Daníel leiðbeinir kl. 9–12,vinnustofa í handmennt opin kl. 9–16, Halldóra leiðbeinir kl. 13–16. Myndlist- arnámskeið kl. 9–12, leiðbeinandi er Hafdís. Leik- fimi með Janick kl. 13. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9–12.30, morgunstund, kl. 9.30, leikfimi kl. 10, handa- vinnustofan opin allan daginn, hárgreiðslu– og fóta- aðgerðarstofa opnar, framhaldssaga kl. 12.30, fé- lagsvist kl. 14. Uppl. í síma 411–9450. Kirkjustarf Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta kl. 17.30. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11, kirkjustarf aldr- aðra kl. 12, léttur málsverður. Heimahópur sér um helgistund og myndasýningu. Æskulýðsstarf Meme fyrir 9.–10. bekk kl. 19.30–21.30. www.digra- neskirkja.is Fella– og Hólakirkja | Kyrrðarstund kl. 12, org- elleikur, íhugun og bæn, organisti Guðný Ein- arsdóttir, umsjón sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir. Kirkjustarf eldri borgara kl. 13–16. Hress, hópur Ástbjargar Gunnarsdóttur sýnir fimleikadans. Kaffiveitingar Helgistund í kirkju. Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Stutt helgi- stund með altarisgöngu og bæn fyrir bænaefnum. Að helgistund lokinni gefst kostur á léttum máls- verði á vægu verði. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Langholtskirkja | Opið hús fyrir foreldra ungra barna og verðandi mæður kl. 10–12. Spjall og hress- ing. Stundum koma góðir gestir í heimsókn með fræðslu. Umsjón hefur Lóa Maja Stefánsdóttir móðir og sjúkraliði. Laugarneskirkja | Morgunbæn í kirkjunni kl. 8, kvöldsöngur með Þorvaldi Halldórssyni og Gunnari Gunnarssyni kl. 20. Sóknarprestur flytur Guðs orð og bæn. Tólfspora hópar ganga til sinna verka kl. 20.30. Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðastund/opið hús, gengið inn í þögnina kl. 12. Tónlist leikin og ritning- artextar lestnir, súpa og brauð kl. 12.30. Spilað kl. 13–16, vist og brids, púttgræjur á staðnum. Kaffi kl. 14.30. Akstur fyrir þá sem vilja, uppl. í síma 895– 0169. 60ára afmæli. Í dag, 6.maí, er Inga Ósk Guð- mundsdóttir (Stella) 60 ára. Hún var gift Friðriki Þór- issyni sem lést 17. nóvember 2003 og eignuðust þau fjögur börn; Þóri Inga, Sigþrúði Hrönn, Þóru Björk og Friðrik Þór. Börnin eiga öll maka og barnabörnin eru orðin 12. Stella verður að heiman í dag. 50ára afmæli. Í dag, 6.maí, er Grettir Grett- isson fimmtugur. Grettir er búsettur í Vancouver, Kanada, ásamt eiginkonu sinni Jennýju Stefaníu Jensdóttur sem mun líka fagna fimmtugsafmæli síðar á árinu. Slegið verður til veislu 16. ágúst nk. í Rafveitu- heimilinu við bakka Elliðaár í Reykjavík. Netfang: gbjorns- son@shaw.ca Brúðkaup | Elna Ósk Stef- ánsdóttir og Fannar Freyr Sigurðsson voru gefin saman í Háteigskirkju 8. mars síðast- liðinn af Séra Vigfúsi Þór Árnasyni. dagbók Í dag er þriðjudagur 6. maí, 127. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Og ég veit að boðorð hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það tala ég því eins og faðirinn hefur sagt mér. (Jh. 12, 50.) Árlegt vornámskeið Greiningar-og ráðgjafarstöðvar ríkisinsverður haldið dagana 8. og 9.maí á Grand hóteli, hið 23. í röðinni. Yfirskrift námskeiðsins er Fötlun og samfélag og segir Stefán J. Hreiðars- son, forstöðumaður Greiningarstöðv- arinnar, frá: „Við fjöllum um hvernig samfélagið kemur til aðstoðar fötluðum börnum og fjölskyldum þeirra og förum vítt og breitt yfir sviðið,“ segir Stefán. „Búast má við að um 4% af börnum sem fæðast séu með það alvarleg þroskafrá- vik að það skerði verulega horfur þeirra til sjálfstæðis ef ekkert er að gert. Reynt er að mæta þörfum þessara barna á ýmsan hát, m.a. með sérkennslu og að- stoð við foreldra þeirra. Ljóst er að margt er gott á þessu sviði á Íslandi, en samt má víða gera betur. Eru víða flöskuhálsar í kerfinu og ýmislegt sem þarf að gera til að bæta gæði þeirrar þjónustu sem þessum hópi er veitt.“ Dagskrá námskeiðsins er fjórskipt: „Við byrjum námskeiðið með ávarpi Jó- hönnu Sigurðardóttur félagsmálaráð- herra. Þá mun Gerður A. Árnadóttir, formaður Þroskahjálpar, flytja erindið Hvar kreppir skórinn? og gefa tóninn fyrir umræðuna um hvað má betur fara. Því næst verða þrír fyrirlestrar um stefnumótun og úrræði,“ segir Stefán. „Seinni hluta fyrri dagsins beinum við sjónum sérstaklega að þjónustu skóla og leikskóla og ræðum þau álitamál sem koma upp þegar barn með þroskafrávik hefur skólagöngu, s.s. hvernig tryggja megi barninu fullnægjandi þjónustu en sjá til þess um leið að það geti fylgt starfinu í almennum skóla undir for- merkjum skóla án aðgreiningar.“ Dagskrá fyrri námskeiðsdags lýkur svo með vangaveltum rithöfundarins Sjón um hugmyndir manna um fötluð börn fyrr á öldum og nú. „Seinni dag vornámskeiðsins skoðum við siðferðileg álitamál. Við tölum m.a. um réttmæti fósturgreiningar og laga- lega stöðu fatlaðra og fjölskyldna þeirra,“ segir Stefán. „Loks skoðum við viðhorf fatlaðra til samfélagsins og höf- um fengið til okkar hóp ungs fólks með fötlun, sem segja okkur frá upplifunum úr sínu daglega lífi.“ Skráning og nánari upplýsingar um dagskrá vornámskeiðs Greiningar- og ráðgjafarstöðvarinnar eru á slóðinni www.greining.is. Námskeiðið er opið bæði fagmönnum og áhugafólki. Heilsa | Rýnt í hvernig samfélagið styður fötluð börn og fjölskyldur þeirra Hvar kreppir skórinn?  Stefán J. Hreið- arsson fæddist á Akureyri 1974. Hann lauk lækna- prófi frá HÍ 1974 og stundaði fram- haldsnám í barna- lækningum og fötl- unum barna í Bandaríkjunum frá 1976 til 1982. Stefán var sérfræð- ingur á Barnaspítala Hringsins 1982- 1985 og hefur verið forstöðumaður Greiningar- og ráðgjafarstöðvar rík- isins frá 1986. Kona Stefáns er Mar- grét O. Magnúsdóttir lífeindafr. og eiga þau þrjú börn og átta barnabörn. Tónlist Bústaðakirkja | Vortónleikar Kórs Bústaðakirkju sem ásamt barokkhljómsveit flytur Gloria (RV589) eftir Vivaldi miðvikudag- inn 7. maí kl. 20. Konsertmeistari er Hildigunnur Halldórsdóttir og stjórnandi er Renata Ivan. Dag- skráin byrjar með tónlistarflutn- ingi einsöngvara kórsins við und- irleik Renötu Ivan. Salurinn, Kópavogi | Elleftu út- skriftartónleikar tónlistardeildar Listaháskólans eru kl. 20 en þá heldur Geirþrúður Ása fiðluleikari tónleika. Á efnisskrá eru verk eft- ir Mozart, Grieg, Ravel og Pablo de Sarasate. Fyrirlestrar og fundir Árnagarður | Hádegisspjall Bandalags þýðenda og túlka verður á morgun kl. 12.15, „Tákn- mál á tímamótum: lögverndun, málstefna og orðabækur“, í HÍ, Árnagarði, st. 220. Sigurlín Mar- grét Sigurðardóttir, Ásta Bald- ursdóttir og Rannveig Sverr- isdóttir halda fyrirlestra um íslenska táknmálið, lögverndun þess, orðabókagerð og mál- stefnu. Fyrirlestrarnir verða túlk- aðir á táknmál. Félag nýrnasjúkra | Félag nýrna- sjúkra heldur fræðslu- og stuðn- ingsfund á morgun kl. 19.30 í Há- túni 10b. Blöðrunýru – arfgengur sjúkdómur er efni fyrirlestrar tengslahóps nýrnasjúkra og að- standenda þeirra. Stuðnings- fundir eru fyrsta miðvikudag hvers mánaðar. Norræna húsið | Dagskrá á veg- um Arkitektafélags Íslands undir titlinum: Miðborgin mín – Vanga- veltur um miðborgina verður kl. 17. Fundaröðin Byggingarlist í brennidepli er samstarf Norræna hússins, Arkitektafélags Íslands, Listaháskóla Íslands, Center for Icelandic Art og Listasafns Reykjavíkur. Fréttir og tilkynningar 101 gallery | Blóðbankabíllinn verður við Samkaup í Grund- arfirði frá 12-17. Útivist og íþróttir Klúbbhús Íslenska fjallahjóla- klúbbsins | Íslenski fjallahjóla- klúbburinn fer fyrstu þriðjudags- kvöldferð sumarsins kl. 20 úr Mjóddinni þar sem strætó stopp- ar. Hjólað verður frá Mjódd í klúbbhúskaffi á Brekkustíg 2. Miðað er við að öll fjölskyldan geti tekið þátt í ferðunum sem taka um 2 klst. HÖFUÐKÚPA sem talin hefur verið af þýska skáldinu Frie- drich Schiller er hér mynduð með röntgentækni. Í hátt á aðra öld hafa skáldin Goethe og Schiller hvílt í kistum hlið við hlið í Weimar. Í kistu Schillers voru þó tvær höfuðkúpur og í 180 ár hefur verið óljóst hvor væri af skáldinu. Ná- kvæm tveggja ára rannsókn þykir nú hafa leitt í ljós að hvorug sé Schiller og vandast þá málið; hvar er skáldið? Reuters Hvar er Schiller? FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Verkalýðs- félaginu Hlíf: „Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Hlífar 22. apríl bendir stjórnvöld- um á þann óeðlilega mismun sem er á innvinnslu lífeyrisréttinda launa- fólks. Fundurinn telur það alls óvið- unandi að þeir sem starfa á almenn- um vinnumarkaði ávinni sér að jafnaði um 30% lakari lífeyrisrétt- indi heldur en þeir sem vinna hjá ríki eða sveitarfélögum. Þessi mikli og ósanngjarni munur felst í því að ríki og sveitarfélög greiða 11,5% mótframlag í lífeyrisgreiðslur en atvinnurekendur á almennum vinnumarkaði einungis 8%. Það er óþolandi að fólk á almennum vinnu- markaði, sem heldur þjóðfélaginu uppi með vinnu sinni við fram- leiðslu- og þjónustustörf, búi við allt önnur og lakari lífeyriskjör en þeir sem vinna hjá ríki og bæ. Fundurinn telur að alþingismenn og ráðherrar, sem sjálfir njóta sér- sniðinna lífeyrisréttinda langt um- fram almenna markaðinn, verði hið fyrsta að hrista af sér doðann og leiðrétta þetta hrópandi misræmi.“ Lífeyrisréttindi verði jöfnuð HÁDEGISSPJALL Bandalags þýð- enda og túlka verður miðvikudaginn 7. maí í stofu 220 í Árnagarði, Há- skóla Íslands kl. 12.15-13. Fyrirlestra flytja Sigurlín Mar- grét Sigurðardóttir, Ásta Bald- ursdóttir og Rannveig Sverrisdóttir. Fundarstjóri verður Árný Guð- mundsdóttir. Hádegisspjallið verður túlkað yfir á táknmál. Hádegisspjall þýðenda og túlka MATA, leiðbeinandi og andlegur meistari, verður með fyrirlestur (sittings) í Maður lifandi í Borg- artúni 24, fimmtudaginn 8. maí kl. 20 og eins dags hugleiðslu í Bláfjöll- um laugardaginn 10. maí. Mata hefur stundað hugleiðslu í tugi ára og hefur öðlast mikinn styrk, andlega visku og kærleiks- ríka nærveru, segir í tilkynningu. Á laugardag leiðir Mata hugleiðslu þar sem hún kennir nýjar aðferðir til að vekja fólk til meðvitundar og opna fyrir innri leiðsögn. Andlegur meistari heim- sækir Ísland JAPANSKA ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita Íslendingum Monbukagakusho-styrki til fram- haldsnáms í Japan og MEXT styrk til verklegs framhaldsnáms í Japan. Fullgerðar umsóknir þurfa að berast með pósti til Sendiráðs Jap- ans, Laugavegi 182, 105 Reykjavík, í síðasta lagi 15. og 18. júní í sumar en umsóknir og frekari leiðbeiningar má nálgast hjá sendiráðinu eða á síð- unni: www.studyjapan.go.jp/en Styrkir til framhaldsnáms í Japan OPIÐ hús skógræktarfélaganna verður í kvöld, þriðjudagskvöldið 6. maí, og hefst kl. 19.30, í fundarsal á jarðhæð Kaupþings, Borgartúni 19. Þar mun Einar Ó. Þorleifsson, náttúrufræðingur hjá Fuglavernd- arfélagi Íslands, fjalla í máli og myndum um fuglana í garðinum og skóginum. Opnu húsin eru hluti af fræðslu- samstarfi Skógræktarfélags Ís- lands og Kaupþings. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Garð- og skógarfuglar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.