Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 43 TOM (Dempsey) er ungur kvenna- ljómi sem virðist safna hjásvæfum eins og aðrir safna hreindýrs- hornum. Myndin hefst á und- antekningu, þegar honum er hafnað af Hönnu (Monaghan), í gleðskap á allraheilagramessu. Áratugur líður, Tom er orðinn vellríkur viðskiptajöfur í New York og kvenfólkið fellur fyrir honum líkt og mý fyrir DDT. Sú sem hann umgengst mest er þó aðeins vin- kona hans, sem er engin önnur en Hanna, sem starfar nú sem lista- verkakaupandi fyrir Metropolit- ansafnið. Hún heldur til Skotlands á vegum þess og þarf að dveljast ytra í sex vikur, á meðan heldur Tom áfram að safna stelpum og spila körfubolta við vini sína. Þegar Hannah snýr aftur er hún ástfangin upp fyrir haus af Colin (NcKidd), hertogaefni sem hún kynntist í Skotlandi, og Tom verður skyndi- lega ljóst að hann elskar stúlkuna. Hann þiggur boð Hönnu um að vera „heiðurs-brúðarmær“, og held- ur með föruneyti hennar í gift- inguna í Skotlandi, ástæðan: Hann ætlar að ræna brúðinni. Fislétt rómantísk gamanmynd, virðist ætluð ungum og róm- antískum telpum sem hafa sína litlu lífsreynslu úr Disneymyndum og ævintýrabókum. Dempsey (sem var fallandi stjarna fyrir áratug og er alltof gamall fyrir hlutverkið) er tréhestslegur í aðalhlutverkinu og ósannfærandi. Efnið er óraunsæ lýsing á draumaprinsum og -prins- essum sem fá allt upp í hendurnar, kynni Hönnu og hertogasonarins eru dæmigerð fyrir andagiftina: Hún strandar í búpeningshjörð í Hálöndunum, Colin kemur aðvíf- andi og hjálpar henni út úr klemm- unni. Þá kemur í ljós að hann er erfingi stæstu viskíverksmiðju ver- aldar. Minna mátti ekki gagn gera. Sambandið á milli Toms og Hönnu er í svipaðri falsettu; í heilan ára- tug vináttu hafa þau aldrei rætt sín hjartans mál, fyrr en allt er komið á síðasta snúning. Reyndar illskilj- anlegt hvað jafn skörp og þroskuð kona og Hanna á að sjá við flag- arann. Það er ekki ætlast til að áhorf- endur velti myndum sem þessari hið minnsta fyrir sér, en Made of Honour er svo kjánaleg að hún verður pirrandi á löngum köflum og engar undankomuleiðir gefnar. Monaghan er vissulega sæt og prinsessuleg en spurning hvort hún hefur eitthvað fleira fram að færa, hún fær engin tækifæri til að sýna hæfileika að þessu sinni. Dempsey passar betur fyrir sjónvarpsskjáinn og getur hugsanlega leyst Sydney Pollack af eftir einn áratuginn í við- bót, þegar hann er orðinn of gamall fyrir hlutverk á borð við það sem hann fer með í þessu auðgleymda ástarævintýri. Hannah og brúðarmeyjarnar KVIKMYND Háskólabíó, Sambíóin, Smára- bíó, Regnboginn, Borgarbíó Akureyri Leikstjóri: Paul Wiland. Aðalleikarar: Patrick Dempsey, Michelle Monaghan, Kevin McKidd. 100 mín. Bandaríkin 2008. Made of Honour bbnnn Sæbjörn Valdimarsson Kjánaleg „Það er ekki ætlast til að áhorfendur velti myndum sem þessari hið minnsta fyrir sér,“ segir meðal annars í dómi gagnrýnanda. LEIKARINN Gary Dourdan úr CSI þáttunum vin- sælu segist ekki hafa hugmynd um það hvernig kókaín, heróín og fleiri eiturlyf enduðu í bílnum hans. Hann var handtekinn í síðustu viku eftir að lögregla fann hann sofandi í bílnum snemma morguns með úrval eit- urlyfja í kringum sig. Bílnum var lagt ólöglega úti á götu og sneri öfugt miðað við akstursstefnu. Að sögn Dourdan var hann að koma heim af Coac- hella tónlistarhátíðinni og var mjög þreyttur. Hann hefði því ákveðið að leggja bílnum og fá sér lúr til þess að tryggja að hann yrði í ökuhæfu ástandi. Hann segir að lögreglan taki skýringar hans trúanlegar, enda hafi engin fíkniefni mælst í blóði hans. „Ég hef verið mjög samvinnufús svo ég geti hreinsað nafn mitt og haldið áfram að lifa mínu lífi,“ sagði hann í tölvupósti til Ac- cess Hollywood. Hann sagðist ennfremur vera að skipuleggja for- varnarviðburði til þess að koma þeim boðskap á fram- færi að enginn þyrfti eiturefni til þess að skemmta sér vel. „Maður þarf bara góða vini, fjölskyldu, góða tón- list og heiðarlega og trúaða sál.“ Dourdan kemur fyrir rétt þann 28. maí næstkom- andi. Kemur af fjöllum Saklaus? Leikarinn segist hvorki eiga heróín né kókaín. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Rhodos 7. júní frá kr. 74.990 m/hálfu fæði Verð kr. 74.990 - hálft fæði Netverð á mann , m.v. gistingu í tvíbýli með hálfu fæði í hótelherbergi á Rhodos Palace Hotel ****+ í viku. Aukavika kr. 34.000. M bl 1 00 18 13 Ath. aðeins örfá herbergi í boði! Bjóðum nú frábært sértilboð í viku á Hotel Rhodos Palace ****+ með hálfu fæði. Frábær valkostur sem býður góðan aðbúnað fyrir hótelgesti. Njóttu lífsins í fríinu á eyju sólarinnar. Ath. mjög takmarkaður fjöldi herbergja í boði á þessu frábæra verði. Rhodos Palace Hotel ****+ er glæsilegt hótel á góðum stað í Ialysos örstutt frá ströndinni. Hér er sannarlega frábær aðbúnaður og mikil þjónusta í boði. 785 herbergi sem öll eru með loftkælingu, síma, gervi- hnattasjónvarpi, tónlistarrásum, minibar/ísskáp, internettengingu, bað- herbergi með hárþurrku og svölum eða verönd. Stór og fallegur sundlaugargarður með 3 sundlaugum. Úrval veitingastaða og bara er á hótelinu. Skemmtidagskrá fyrir börn og fullorðna, barnaleiksvæði o.fl., o.fl.. Ótrúlegt sértilboð á Rhodos Palace Hotel Frábær gisting ****+ www.marelfoodsystems.com Kynning á afkomu fyrsta ársfjórðungs Marel Food Systems býður til kynningarfundar miðvikudaginn 7. maí klukkan 8:00 í sal A á Hilton Reykjavík Nordica. Hörður Arnarson, forstjóri, kynnir afkomu Marel Food Systems og Stork Food Systems á fyrsta ársfjórðungi 2008 ásamt því að kynna sameiningu fyrirtækjanna tveggja sem tekur gildi 8. maí. Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður, mun svo kynna framtíðarsýn hins sameinaða félags. Dagskrá: 8.00-8:30 Morgunverður 8:30-8:45 Afkoma Marel Food Systems og Stork Food Systems á fyrsta ársfjórðungi 2008 8:45-9:00 Sameinað fyrirtæki Marel Food Systems og Stork Food Systems 9:00-9:15 Framtíðarsýn sameinaðs félags Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að skrá þátttöku sína með tölvupósti á jih@marel.com Marel Food Systems býður tilmorgunverðarfundar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.