Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÖLLUM fastráðnum starfsmönnum Fiskimjöls-
verksmiðju HB Granda á Akranesi, fjórum að
tölu, var sagt upp störfum í gær. Að sögn Eggerts
Benedikts Guðmundssonar, forstjóra HB Granda,
er ástæða uppsagnanna sú að verið er að breyta til
í rekstrinum. Ekki sé ætlunin að draga úr rekstr-
inum og verða nýir starfsmenn ráðnir í stað þeirra
sem var sagt upp. Segir Eggert að ekki hafi náðst
sá árangur í rekstri verksmiðjunnar sem stefnt
hafi verið að og því sé ráðist í umræddar aðgerðir.
„Við teljum okkur þurfa að skerpa á rekstrinum
með þessu móti,“ bendir hann á.
„Við höfum verið að reyna að bæta reksturinn
og töldum að við þyrftum að taka á þessu svona.“
Umræddir starfsmenn hafa sumir unnið lengi í
verksmiðjunni en Eggert tjáir sig ekki um það
hvort þeir hafi verið taldir standa sig illa í ljósi
þess að nýir verða ráðnir í stað þeirra.
Á heimasíðu Verkalýðsfélags Akraness er
fjallað um uppsagnirnar og farið hörðum orðum
um þær. Sagt er frá því að formaður verkalýðs-
félagsins hafi hitt starfsmenn í gærmorgun og
ekki hafi farið á milli mála að starfsmenn voru
bitrir og reiðir vegna málsins og ljóst að krafist
verði skýringa á umræddri ákvörðun.
Gersamlega óskiljanleg ákvörðun
„Samkvæmt þeim upplýsingum sem formaður
hefur aflað þá stendur ekki til að leggja verksmiðj-
una niður hér á Akranesi. Á þeirri forsendu er
þessi ákvörðun gjörsamlega óskiljanleg,“ segir á
heimasíðunni.
„Menn velta því fyrir sér hvernig eigendur HB
Granda ætli sér að reka þessa verksmiðju eftir að
sá mannauður sem þarna hefur starfað í áratugi
hefur látið af störfum,“ segir þar ennfremur.
Uppsagnir hjá HB Granda
ÞEGAR Haraldur Böðv-
arsson sameinast
Granda árið 2004 þá
störfuðu 15 manns í síld-
arbræðslunni,“ segir á
heimasíðu Verkalýðs-
félags Akraness. „En nú,
eftir þessar uppsagnir
þá verður enginn eftir. Þetta er algjörlega í anda
þess sem við Skagamenn höfum mátt þola frá því
að við sameinuðumst Granda og því miður virðist
sem þessum harmleik ætli aldrei að ljúka.
Þegar uppsagnirnar í landvinnslunni hafa tekið
gildi í júní næstkomandi verða einungis 20 manns
í starfi hjá fyrirtækinu á Akranesi.“
„Enginn eftir“
BREIÐAVÍKURNEFNDIN svo-
nefnda hefur ákveðið að rannsaka
átta vistheimili á líkan hátt og gert
var í úttekt hennar á Breiðavíkur-
heimilinu í vetur. Þær stofnanir sem
um ræðir eru Vistheimilið Kumbara-
vogur, Vistheimilið Knarrarvogur,
Heyrnleysingjaskólinn, Stúlkna-
heimilið Bjarg, Heimavistarskólinn
Reykjahlíð, Heimavistarskólinn Jað-
ar, Upptökuheimili ríkisins/Ung-
lingaheimili ríkisins og Uppeldis-
heimilið Silungapollur.
Nefndin á að skila áfanga-
skýrslum um könnunina til forsætis-
ráðherra eigi síðar en 1. júlí 2009 og
1. júlí 2010. Nefndin skal síðan ljúka
störfum sínum og skila lokaskýrslu
um könnun sína til forsætisráðherra
eigi síðar en 15. apríl 2011.
Gert er ráð fyrir því að í fyrstu
verði aflað tiltækra gagna í vörslum
stjórnvalda um starfsemi þessara
stofnana. Í framhaldinu mun nefndin
taka ákvarðanir um frekari aðgerðir
til upplýsingaöflunar, meðal annars í
formi munnlegra framburða.
Nefndin hefur að svo komnu máli
ekki ákveðið hvort fjallað verði um
ofangreindar stofnanir sameiginlega
eða hverja um sig í áfangaskýrslum
eða í heildarskýrslu hennar, segir í
tilkynningu.
Rannsakar
átta vist-
heimili
Vistheimili Gerð verður úttekt á
starfsemi Heyrnleysingjaskólans.
BANDBREIDD Fréttavefjar Morg-
unblaðsins, mbl.is, hefur verið fimm-
földuð.
Fyrir breytinguna var band-
breiddin 200 megabit en er nú 1000
megabit. Fyrir stuttu voru einnig
teknir í notkun nýir miðlarar sem
geta betur annað enn frekari um-
ferð. Þessar aðgerðir eiga að tryggja
auðveldari aðgang notenda að vefj-
um mbl.is.
Bandbreidd
mbl.is verið
fimmfölduð
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
RÍFLEGA 100 manns tóku þátt í leit
að sex ára stúlku, nemanda í grunn-
skóla við Vífilsstaði í Garðabæ, sem
lét sig hverfa úr útivistarstund í skól-
anum fyrir hádegi og fannst ekki fyrr
en um tveimur og hálfum tíma síðar,
þá á gangi nálægt miðbæ Garða-
bæjar. Leitarmenn höfðu töluverðar
áhyggjur af stúlkunni enda er stutt í
hætturnar á leitarsvæðinu: vatn, vegi,
læki og skurði.
Útiveran stóð á milli klukkan 11 og
12 og segir Þorgerður Anna Arn-
ardóttir, skólastjóri Barnaskóla
Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum, að
það hafi verið „hræðileg upplifun“
þegar stúlkan skilaði sér ekki í hús.
„Það eru margar hugsanir sem fljúga
í gegnum kollinn þegar maður lendir í
svona reynslu.“
Sagðist mega skoða heiminn
Þorgerður segir að við útiveruna sé
farið eftir fastmótuðu kerfi og börnin
séu bæði talin þegar þau fari út og
aftur þegar þau fara inn. Kennarar
hafi séð stúlkuna að leik með öðrum
stúlkum og hvarf hennar uppgvöt-
aðist ekki fyrr en kallað var inn.
Í skólanum eru tveir kennarar um
hvern kjarna (bekk) og fóru þeir þeg-
ar í stað út að leita. Þeir fundu hana
ekki í grennd við skólann og var þá
fjölgað í leitarhópnum og stúlkurnar
sem voru með henni að leik jafnframt
spurðar hvort stúlkan hefði kannski
ætlað á flakk. „Þá kemur í ljós að hún
hafði ætlað að skoða sig svolítið um,
fara í smá ferðalag. Hún sagði að hún
mætti nú alveg skoða heiminn,“ segir
Þorgerður. Hún hafi m.a. nefnt að
hún ætlaði kannski niður að vatni og
fóru kennarar þá þangað til að leita,
en án árangurs. Upp úr hálfeitt var
síðan haft samband við föður stúlk-
unnar og lögreglu, að sögn Þorgerð-
ar. Þá voru kennarar jafnframt að leit
í hrauninu við Vífilsstaðalæk og víðar.
Langt ferðalag
Af gefnu tilefni einblíndu björg-
unarsveitarmenn að miklu leyti á Víf-
ilsstaðavatn og nágrenni en kennarar
ákváðu að leita þar sem björg-
unarsveitirnar voru ekki, m.a. innan-
bæjar í Garðabæ. Það var einmitt einn
kennari sem fann stúlkuna á gangi ná-
lægt Kirkjulundi í Garðabæ og var
hún þá á leið heim til sín. Hún mun
hafa verið hin rólegasta.
Ferðalag stúlkunnar stóð í um tvo
og hálfan tíma. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu hafði stúlkan geng-
ið frá skólanum yfir í Kauptún og einn-
ig komið við í stórri leikfangaverslun
vestan Reykjanesbrautar.
Um 180 nemendur eru í Barnaskóla
Hjallastefnunnar í Garðabæ. Í úti-
veru eru um 30–40 börn úti við í einu.
Skólalóðin er ekki afmörkuð en Þor-
gerður segir að nemendur eigi að vita
hvar þau mega leika sér og hvar ekki.
Útigæslan sé öflug en eftir þetta at-
vik verði farið yfir vinnulagið. Jafn-
framt verða reglurnar brýndar fyrir
börnunum.
Ætlaði í „smá ferðalag“
!" ##$ %"
& "
' $(
)*" +
*# '"
Morgunblaðið/Júlíus
Leitað Lögregla, björgunarsveit, kennarar og fleiri tóku þátt í leitinni.
Í HNOTSKURN
» Um 100 björgunarsveitar-menn tóku þátt í leitinni og
um tugur leitarhunda.
» TF-EIR, þyrla Landhelgis-gæslunnar, var kölluð út en
hafði rétt tekið á loft þegar
stúlkan fannst.
♦♦♦
ÓLAFUR F. Magnússon borgar-
stjóri segir að hann hafi í grundvall-
aratriðum ekki skipt um skoðun
varðandi verðlaunatillögu um þróun
Vatnsmýrarinnar. Þetta kemur fram
í tilkynningu sem hann sendi frá sér í
gær. Þar kemur einnig fram að það
liggi fyrir og sé ekkert nýtt að hann
telji að framtíðarþróun Vatnsmýrar-
innar eigi ekki að fela í sér flutning
flugvallar, eins og verðlaunatillagan
gerir ráð fyrir. „Að því leyti er ég
ekki sáttur við tillöguna, en sú af-
staða er hvorki ný né fréttnæm,“
segir í tilkynningunni.
Ólafur segist þó líta svo á að hafa
megi verðlaunatillöguna til hliðsjón-
ar við uppbyggingu á jaðarsvæðum
flugvallarins, óháð staðsetningu
hans. „Ég tel hins vegar brýnt að til-
lagan lagi sig að ýmsum samgöngu-
lausnum og skipulagslegum stað-
reyndum en ekki öfugt.“
Loks segir Ólafur að hann beri
fullt traust til þeirra sem verkefnið
leiða í umboði borgarráðs.
Ólafur treystir
þeim sem leiða
verkefnið
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
GÍSLI Marteinn Baldursson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir
að engum komi á óvart að Ólafur F.
Magnússon, borgarstjóri, vilji hafa
flugvöllinn í Vatnsmýrinni, hann hafi
ekki breytt um stefnu og enginn titr-
ingur sé á stjórnarheimilinu í
Reykjavík. Skipulag Vatnsmýrar-
innar verði rætt á fundi borgar-
stjórnar í dag að beiðni allra flokka
og því oftar sem rætt sé um svæðið
þeim mun betra.
Ekkert á óvart
Ólafur F. Magnússon, borgar-
stjóri, gagnrýndi vinningstillöguna í
hugmyndasamkeppni um Vatnsmýr-
ina á íbúafundi á laugardag.
Gísli Marteinn Baldursson, sem
var í dómnefnd hugmyndasam-
keppninnar, segir að alltaf hafi legið
fyrir að Ólafur F. Magnússon vildi
hafa flugvöll í Vatnsmýrinni en ekki
væri gert ráð fyrir flugvelli í vinn-
ingstillögunni. Því hafi alltaf verið
ljóst að Ólafur styddi ekki tillöguna
og ef hann hefði verið í dómnefndinni
hefði hann greitt allt annarri tillögu
sitt atkvæði. Engu að síður hafi um-
rædd tillaga sigrað í samkeppninni,
og Ólafur, sem þá hafi verið orðinn
borgarstjóri, hafi sagt að þrátt fyrir
að í tillögunni væri lagt til að flug-
völlurinn færi úr Vatnsmýrinni
mætti nýta sér hugmyndir í henni
um svæðið utan flugvallarins. Þess
vegna hafi allir flokkar sameinast
um tillögu í borgarráði sem hafi
gengið út á það að vinna áfram að
skipulagi umhverfis flugvöllinn með
hliðsjón af þessari nýju tillögu.
Engin breyting
Borgarfulltrúinn segir að það sem
Ólafur hafi sagt á laugardaginn sé
ekki í andstöðu við þessar meginlín-
ur. Sjálfsagt sé að hann ítreki sína
skoðun um flugvöllinn og þar með
andstöðu við stóran hluta tillögunn-
ar. „Það kemur ekkert á óvart en þá
er alveg hægt að ítreka líka vilja
minn og þar með ágreining okkar
Ólafs um flugvöllinn vegna þess að
ég vil einmitt vinna að þessari sig-
urtillögu alla leið,“ segir Gísli Mar-
teinn. „Það er hins vegar ekkert nýtt
og það er mál sem við höfum afgreitt
í okkar málefnasamningi og veldur
engum titringi á stjórnarheimilinu í
Reykjavík. Ólafur talaði svolítið
hressilega á laugardaginn og þess
vegna hafa kannski margir hrokkið í
kút en hann hefur staðfest við okkur
– og það sést glöggt ef skoðað er
hvað hann sagði – að hann hefur ekk-
ert breytt um stefnu og þaðan af síð-
ur hefur einhver breyting orðið á
þeirri vinnu sem við erum að vinna
núna í Vatnsmýrinni.“
Segir borgarstjórann ekki hafa
breytt um stefnu í Vatnsmýrinni
Enginn titringur á stjórnarheimilinu að sögn Gísla Marteins Baldurssonar
Ólafur F.
Magnússon
Gísli Marteinn
Baldursson