Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 9
FRÉTTIR
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
„LEIÐIN sem gengin verður er
táknræn,“ segir Bríet Birgisdóttir
hjúkrunarfræðingur á gjörgæslu-
deild og einn skipuleggjenda átaksins
Gengið gegn slysum sem fram fer á
fimmtudag. „Við byrjum við Land-
spítalann við Hringbraut og áleiðis að
Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð
þar sem sjúkraflutningamenn og
slökkviliðsmenn standa heiðursvörð.
Þeir standa með fimmtán svartar
blöðrur sem eru táknrænar fyrir þá
sem létust í umferðinni á síðasta ári
en hjúkrunarfræðingar verða með
166 rauðar blöðrur sem tákna þau al-
varlegu umferðarslys sem urðu á
sama tímabili. Þaðan höldum við
framhjá Fossvogskirkjugarði og end-
um loks við þyrlupallinn við spítalann
í Fossvogi þar sem blöðrunum verður
sleppt.“
Stéttirnar sem bregðast við
Hópurinn sem skipuleggur göng-
una er myndaður af fólki úr öllum
þeim stéttum sem bregðast þurfa við
þegar alvarleg slys henda; það eru
hjúkrunarfræðingar, lögregla,
slökkvilið, sjúkraflutningamenn, geð-
hjúkrunarfræðingar, slysa- og bráða-
læknar, sjúkrahúsprestar og útfarar-
stjórar. „Það lendir á okkur að taka á
móti og reyna að bjarga fólki sem
lendir í slysum. Við viljum reyna að
hafa áhrif og koma því til leiðar í þjóð-
félaginu að fólk fari varlega,“ segir
Bríet. „Nú styttist í Hvítasunnuhelg-
ina sem er yfirleitt fyrsta stóra ferða-
helgi sumarsins. Við viljum minna
ökumenn á að aka ekki af hugs-
unarleysi, aka hægar og í samræmi
við aðstæður. Það að lenda í slysi get-
ur haft svo alvarlegar afleiðingar,
ekki aðeins líkamlegar heldur einnig
andlegar og oft þær að fólk ber ör á
sálinni alla ævi eftir alvarleg slys.“
Vel sótt ganga
Gengið var gegn slysum í fyrsta
skipti á síðasta ári og mættu þá um
5.000 manns í gönguna, að sögn
skipuleggjenda. Léttar veitingar
verða í boði í göngulok. Mælt er með
að þeir sem eiga erfitt um gang eða
nota hjólastóla sláist í hópinn við Veð-
urstofu Íslands þegar að baki er sá
kafli leiðarinnar þar sem brekkur og
tröppur geta verið farartálmar.
Gangan mun hefjast Eiríksgötu-
megin við Landspítala og er öllum
sem áhuga hafa boðið að ganga með
hópnum.
Segjum stopp við slysum
Ganga gegn slysum á fimmtudag Hefst k. 16.30 við Landspítala og lýkur
í Fossvogi 15 banaslys og 166 alvarleg slys urðu í umferðinni á síðasta ári
Morgunblaðið/RAX
Förum varlega Viðbragðsaðilar efna til göngu með almenningi og minna ökumenn á að haga akstri eftir að-
stæðum. Umferðarslys hafa iðulega skelfilegar afleiðingar sem fylgt geta fólki fyrir lífstíð.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
„ÞETTA eru helstu hagsmunasam-
tök sveitarfélaga í Evrópu og sem
slík eru þau viðsemjendur fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins um ýmis mál, stundum á forstigi,
stundum ekki. Þau gæta hagsmuna
gagnvart Evrópusambandinu með
því að upplýsa kjörna fulltrúa og
embættismenn framkvæmdastjórn-
ar,“ segir Anna Margrét Guðjóns-
dóttir, forstöðumaður Brusselskrif-
stofu Sambands íslenskra sveitar-
félaga, um hlutverk Evrópusamtaka
sveitarfélaga, sem funda hér í
Reykjavík í vikunni.
„Það eru sveitarfélagasamtök
þrjátíu og sex landa í þessum sam-
tökum. Þau sinna ýmsum öðrum
verkefnum en hagsmunagæslu
gagnvart ESB, enda var upphaflegt
hlutverk þeirra að efla samvinna
sveitarfélaga í Evrópu, sem er enn
eitt af lykilhlutverkum þeirra.
Fundurinn er haldinn tvisvar á
ári, en ástæða þess að hann er á Ís-
landi núna er sú að Samband ís-
lenskra sveitarfélaga opnaði skrif-
stofu í Brussel fyrir tæplega tveimur
árum og síðan hefur þátttaka ís-
lenskra sveitarfélaga í starfinu auk-
ist mjög mikið. Við lögðum í fram-
haldinu fram tillögu um að fundurinn
yrði haldinn hér og samtökin féllust
strax á það. Það er verið að ræða
nýja stjórnarskrá ESB og margt
fleira. “
Samtök Um 130 fulltrúar sækja fundinn í Reykjavík, allir kjörnir fulltrú-
ar, og ræðir þar um borgarstjóra, bæjarstjóra og bæjar- og borgarfulltrúa.
Sveitarfélagasamtök
ESB funda í Reykjavík
FJÖLDI farþega
í flugi Flugfélags
Íslands til og frá
Vestmanna-
eyjum jókst
um 27% fyrstu
fjóra mánuði
þessa árs miðað
við sama tímabil í
fyrra.
Aukning farþega á þessari flug-
leið er nokkuð almenn en þó er
áberandi hvað mikið af hópum hef-
ur flogið með félaginu á þessum
fyrstu mánuðum ársins. Bókanir
fyrir sumarið eru góðar. Frá og
með 1. maí hafa verið flognar þrjár
ferðir á dag alla daga vikunnar
nema miðvikudaga og laugardaga
og verða 19 ferðir á viku í boði í allt
sumar.
„Sú öfluga uppbygging atvinnu-
lífs og ferðaþjónustu í Vestmanna-
eyjum sem verið hefur á undan-
förnum misserum gefur væntingar
um að þessi aukning sem nú hefur
orðið muni vera varanleg og mun
Flugfélag Íslands halda áfram af
fullum krafti því kynningar- og
markaðsstarfi sem hófst í lok ársins
2006 þegar félagið hóf aftur áætl-
unarflug til Vestmannaeyja,“ segir
í frétt frá Flugfélagi Íslands.
Mikil fjölg-
un farþega
í Eyjaflugi
Útsala
Útsala
Útsala
Útsasala
ala
Útsala Útsala
Útsala
Mjódd, sími 557 5900
m
bl
1
00
10
63
Verið velkomnar
Vordagar í fullum gangi
Gallapils, kvartbuxur, stuttbuxur og margt fleira
15% afsláttur af öllum vörum frá Esprit á vordögum
STÆRÐIR
40-52
Hverfisgötu 6 101 Reykjavík
sími 562 2862
FRÁBÆR BUXNASNIÐ
SPARIBUXUR, GALLABUXUR, KVARTBUXUR,
VANDAÐAR VINNUBUXUR, 2 SÍDDIR
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið virka daga 10.00-18.00
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00
Gallapils
verð frá 3.900 kr.
M
bl
.
10
02
05
8
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Stuttbuxur
margar gerðir og litir
Str. 36-56
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T
N‡r sjúkrafljálfari
Sandra Dögg Árnadóttir sjúkrafljálfari Bc
er komin aftur til okkar.