Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 35
Krossgáta
Lárétt | 1 sjávarbotn, 8
sálir, 9 lifrarpylsa, 10
rödd, 11 aumar, 13 vesæl-
um, 15 beinpípu, 18 ekki
framkvæmt, 21 hreinn, 22
þrífa, 23 hindra, 24 gera
gramt í geði.
Lóðrétt | 2 tímabil, 3 pen-
ingar, 4 knött, 5 lágfót-
um, 6 fíkniefni, 7 stirð af
elli, 12 nöldur, 14 ótta, 15
stilla, 16 frá Grikklandi,
17 deilur, 18 hugaða, 19
baunin, 20 spilið.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hjálm, 4 frómt, 7 púlar, 8 ósætt, 9 arð, 11 nagg,
13 hala, 14 eigra, 15 gert, 17 lest, 20 hrá, 22 felur, 23 gæt-
in, 24 raust, 25 terta.
Lóðrétt: 1 hæpin, 2 áflog, 3 mæra, 4 fróð, 5 ógæfa, 6 tötra,
10 ragar, 12 get, 13 hal, 15 gæfar, 16 rollu, 18 eitur, 19
tanna, 20 hrút, 21 ágæt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur hundrað hugmyndir um
hvað á að gerast næst. Framkvæmdu þær
allar. Nú er ekki rétti tíminn til að gera
upp á milli þeirra. Það veitir frelsi.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Ef þig langar mikið í eitthvað sem
þú hefur trú á, ýttu undir það með því að
tala um það. Það þarf meira en álit þitt,
þú þarft að meina hvert einasta orð.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Fólk leitar til þín með allar
spurningar í heiminum. Sem betur fer
skrifaðir þú aðalspurningabókina – eða
átt alla vega svar við öllu sem fólkið vill
vita.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú heyrir raddir í hnakkanum.
Nei, þú ert ekki klikkaður; sterkt innsæi
þitt er að kalla á athygli. Taktu þér hljóða
stund til að ráða í skilaboðin.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Vinir segja sögu af velgengni sinni.
Þú getur ekki annað en dáðst að þeim og
finnur fyrir smáöfund. Það sem þú hefur
er fullkomið fyrir þig.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú hefur gengist við ábyrgð-
arhlutverki þínu og gerir það gott. Þú vilt
glaður segja öðrum frá, sérstaklega ef
það fær fólk til að bretta upp ermarnar.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Aðstæður í vinnunni kalla á að þú
finnir lausnir með galopnum huga. Þú ert
tilbúinn til að sjá það sem aðrir ekki sjá.
Tveir plús tveir eru miklu meira en fjórir
hjá þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það segir þér oft meira sem
fólk segir ekki heldur en það sem það seg-
ir. Undanfarið hefur þér tekist að kreista
mikinn safa út úr litlu samtali.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert farinn að einbeita þér
að einu sjónarhorni. Vissulega er meira
en ein leið til að skoða hlutina. Sjáðu þá
með augum annarra í dag, og þú sérð
fleiri liti.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Nokkrar minniháttar upplýs-
ingar gætu komið þér í uppnám. Ekki sjá
fréttir sem slæmar eða góðar. Ef allt er
hlutlaust geturðu notað það eins og þér
hentar.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert metnaðarfullur og vildir
vera kominn framar en þú ert. En þú ert
líka sjálfstæður og vilt ekki biðja um
hjálp. Það er auðveldast að leita ráða í
bók.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það tekur meiri tíma að undirbúa
atburð en atburðurinn sjálfur tekur –
miklu, miklu meiri. Byrjaðu nú að skipu-
leggja eitthvað í fjarlægri framtíð.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 c6 4. Rc3 dxc4 5.
e3 b5 6. a4 Bb4 7. Bd2 a5 8. axb5 Bxc3
9. Bxc3 cxb5 10. b3 Bb7 11. bxc4 b4 12.
Bb2 Rf6 13. Bd3 Rbd7 14. 0-0 0-0 15.
Rd2 Dc7 16. e4 e5 17. f4 exd4 18. e5
Dc6 19. Hf3 Rc5 20. exf6 Rxd3 21. Hg3
g6 22. Bxd4 Hfd8 23. Rb3 Rxf4 24. Dd2
Hxd4 25. Rxd4 Dxf6 26. Rc2 Hd8 27.
De1
Staðan kom upp á alþjóðlega Sigem-
an-mótinu sem lauk fyrir skömmu í
Málmey í Svíþjóð. Alex Smith (2.428)
frá Svíþjóð hafði svart gegn norska
stórmeistaranum Kjetil Lie (2.558).
27. … Rxg2! 28. Hxg2 Bxg2 29. Kxg2
Db2 30. Dc1 Dc3 svartur stendur nú til
vinnings. Framhaldið varð: 31. Re1
Dxc1 32. Hxc1 b3 33. Ha1 Hb8 34. Rd3
b2 35. Hb1 a4 36. Rxb2 a3 37. Kf3
Hxb2 38. Ha1 Hc2 39. Hxa3 Hxc4 40.
Kg3 Kg7 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Ný hugsun.
Norður
♠KG53
♥KG6
♦K1062
♣G8
Vestur Austur
♠10 ♠D642
♥10873 ♥D95
♦743 ♦D95
♣106532 ♣974
Suður
♠Á987
♥Á42
♦ÁG8
♣ÁKD
Suður spilar 6♠.
Slemman byggist í stórum dráttum á
því að hitta í trompið eða tígulinn, en
enginn sagnhafi á Íslandsmótinu var
með miðið rétt stillt. Lauf var algengt
útspil og margir spiluðu trompi á gos-
ann í öðrum slag. Ekki tókst það.
Næsta verk var að henda hjarta í lauf
og trompa hjarta. Það gekk áfallalaust.
En ♦D fannst hvergi, enda eðlilegt í
ljósi spaðalegunnar að staðsetja
drottninguna í vestur.
Eftir á að hyggja býður ♠10 vesturs
upp á nýja hugsun. Þegar sagnhafi
spilar litlu trompi að blindum og tían
kemur óumbeðin má búast við að hún
sé annaðhvort blönk eða önnur frá
♠D10. Þá kemur til greina að taka á
kónginn, fara næst í þá aðgerð að
henda hjarta í lauf og stinga hjarta, en
svína loks spaða til vesturs. Hér
heppnast svíningin, en ef hún mis-
heppnast má búast við að vestur sé
endaspilaður.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Hvað kallast fellibylurinn sem olli mannskaða ogmiklu tjóni í Búrma um helgina?
2 Í hvaða kirkju sótti hestafólk á höfuðborgarsvæðinumessu á sunnudaginn?
3 Hverjir urðu Íslandsmeistarar í handknattleik karlaog kvenna í ár?
4 Hver er nýkjörinn forseti Skáksambands Íslands oghver er forveri hans?
Svör við spurningum gær-
dagsins:
1. Í þekktu vísindatímariti er
því haldið fram að rangt sé að
vernda smáfisk á kostnað
stóra fisksins. Hvaða vís-
indarit er þetta? Svar: Nature.
2. Hvað voru tekjur af sölu
hreindýraveiðileyfa miklar á
síðasta ári? Svar: 87 millj-
ónir. 3. Gamalgróið fyrirtæki
er að hætta starfsemi eftir
101 ár. Hvaða fyrirtæki er
það? Svar: Hans Petersen. 4.
Landrover á stórafmæli í dag.
Hversu gamall er bíllinn?
Svar: 60 ára.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
LEIÐRÉTT
Vegna stærða stúdentshúfna
Þau leiðu mistök urðu í grein í Morgunblaðinu
í gær um útgjöld tengd stúdentsútskrift, að
ranglega var sagt að hjá SÞ stúdentshúfum
fengjust húfur í fjórum stöðluðum stærðum.
Hið rétta er að húfurnar þar fást í sjö stöðl-
uðum stærðum. Beðist er velvirðingar á þessu.
Passa.is.
Í grein um nýja barnfóstrumiðlun sem birtist í
Morgunblaðinu sl. sunnudag var nafn miðl-
unarinnar misritað. Rétta nafnið er Passa.is.
Ráðstefna um
heilbrigðisþjónustu
MEISTARANÁM í stjórnun heilbrigðisþjón-
ustu við Háskólann á Bifröst efnir til ráð-
stefnu um: Fjölbreytt rekstrarform í heil-
brigðisþjónustu: Kostir þeirra og gallar.
Ráðstefnan verður haldin miðvikudaginn 28.
maí nk. á Grand hóteli í Reykjavík kl. 9-12.30.
Flutt verða mörg erindi frá ólíkum aðilum.
Í lokin verður pallborð þar sem fjallað verður
um stjórnendur í heilbrigðisþjónustu. Skrán-
ing fer fram með því að senda tölvupóst á
bifrost@bifrost.is Ráðstefnan fer fram á
ensku og aðgangur er ókeypis.
ICELAND Express útskrifaði fyrir skömmu 22
flugliða sem stundað hafa nýliðanám hjá félaginu
síðustu mánuði. Þeir hefja störf í háloftunum fyrir
Iceland Express um miðjan maí þegar sum-
aráætlun félagsins hefst.
Margir voru kallaðir en fáir útvaldir að þessu
sinni, því að um það bil 800 umsóknir bárust þegar
auglýst var eftir nýliðum í vetur en einungis 22
nýjar stöður voru lausar. Nýliðanámið hjá Iceland
Express er umfangsmikið. Mesta áherslan er lögð
á þætti sem tengjast öryggi um borð, notkun ör-
yggisbúnaðar flugvélanna, skyndihjálp og þar
fram eftir götunum. Jafnframt á Iceland Express í
góðu samstarfi við sérsveit Ríkislögreglustjóra
sem þjálfar flugliðana í að afstýra mögulegum
vandræðum í flugi, segir í tilkynningu. Einnig er
farið vandlega í allt sem tengist hefðbundnari
þjónustu og umönnun farþega.
Dúxinn í flugliðanáminu að þessu sinni var Þor-
leifur Thorlacius en þrír piltar og nítján stúlkur
útskrifuðust úr flugliðanámi Iceland Express að
þessu sinni.
Flugliðar Það var glatt á hjalla hjá nýútskrifuðum flugliðum Iceland Express við útskriftina sl. föstudag.
800 umsækjendur um 22 störf flugliða