Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Atli Geitarhús Stærsti kiðlingurinn á Rauðá vakti áhuga nemenda, f.v.: Arnór Ingi Heiðarsson, Ólafur Freyr Jónasson og Bjarni Dagur Vigfússon. Eftir Atla Vigfússon Þingeyjarsveit | Árleg sveitaferð 4. bekkjar Borgarhólsskóla á Húsavík var farin á dögunum og að sögn Bjargar Jónsdóttur kennara voru krakkarnir ánægðir enda mikil til- breyting í skólastarfinu að fá að skreppa suður í sveit til þess að sjá hvað þar er að gerast. Alls voru rúmlega 30 nemendur ásamt kennurum sínum sem fóru í ferðina og var byrjað á því að fara í mjaltir á bænum Fremstafelli í Kinn en þar er mjög nútímalegur búskap- ur með tveimur mjaltaþjónum og annarri tækni sem gladdi augað. Síð- an var farið að bænum Rauðá í Þing- eyjarsveit þar sem skoðað var eina geitabú héraðsins og gerðu kiðling- arnir mikla lukku enda margir þeirra orðnir pattaralegir og stórir. Þar gaf einnig að líta sauðfé og kálfa, en bóndinn, Vilhjálmur Grímsson, hefur um árabil tekið á móti skólum til þess að sýna þennan búskap sem geitaræktin er. Um hádegisbil var svo farið að Fosshóli þar sem nem- endur fengu hressingu hjá Goðafoss- veitingu en síðan lá leiðin í Hesta- miðstöðina Saltvík sunnan Húsavíkur þar sem farið var á hest- bak og fengu allir að taka þátt undir leiðsögn Bjarna Páls Vilhjálmsson- ar, eiganda hestamiðstöðvarinnar, og hans fólks. Húsdýraskóli stofnaður Að sögn Bjargar Jónsdóttur munu börnin í framhaldi af ferðinni vinna verkefni í skólanum sem tengjast landbúnaðinum og m.a. vinna í tó- vinnu og fleira auk þess sem lestr- arefni um sveitina er lagt til grund- vallar ásamt myndböndum. Þá tengist efnið vinnu með ljóð og sögur úr sveitinni og í myndmenntinni fær sköpunargáfan að njóta sín. Mikill áhugi er fyrir því í Þingeyj- arsýslum að auka fræðslu um hús- dýrin og landbúnaðinn almennt en til stendur að stofna heildstæðan um- hverfisskóla á komandi hausti þar sem starfandi verða hinar ýmsu deildir og gæti Húsdýraskólinn orðið ein þeirra. Aðrar deildir verða lík- lega m.a. Fornleifaskólinn, Hvala- skólinn, Laxárskólinn og Þjóðgarðs- skólinn og er þá verið að tala um tímabundið útinám og verkefna- vinnu inni í skólunum sem tengist einu þema hverju sinni. Þeir bændur sem tekið hafa á móti skólabörnum eru sammála um það að best sé að fá færri börn í einu og leyfa þeim að gera eitthvað og fá tíma til að upplifa og fá þannig sem mest út úr heimsókninni. Útinám er það sem koma skal segja margir enda mjög gefandi fyrir þá sem það vinna og það mun víkka út starfsemi grunnskólanna í sýslunni. Tilbreyting að fá að skreppa í sveitina Í HNOTSKURN »Borgarhólsskóli á Húsavíkhefur um langt árabil sýnt því mikinn áhuga að efla fræðslu um húsdýr og landbúnað al- mennt. »Húsdýraskólinn er þróun-arverkefni fyrir grunnskóla sem farið verður að vinna að á komandi hausti í Þingeyjarsýslu. Eftir Birki Fanndal Haraldsson Mývatnssveit | Margur maðurinn hefur átt sér þann draum að eign- ast fornbíl. Það veltur þá á ýmsu hverslags bíll það er sem menn falla fyrir. Einn velur sér glæsi- vagn frá Ameríku þegar annar velur Trabant frá Austur- Þýskalandi. Kári Þorgrímsson í Garði hafði lengi átt sér þann draum að eign- ast Trabant enda í eina tíð aðdá- andi Austurþýska Alþýðulýðveld- isins. Kári lét þennan draum sinn rætast þegar þýskur vinnumaður sem dvaldi í Garði um tíma útveg- aði honum ágætan Trabant að austan og ók honum í veg fyrir ferjuna Norrænu, sem flutti síðan bílinn til Íslands. Þessi Trabant er frá því um 1980 og verður auð- veldlega í ökufæru standi þegar Kári gefur sér tíma til að fara með hann á skoðunarstofu. Kári segist dást að því hvað A-Þjóðverjum tókst að gera góðan bíl úr nánast engu og var það heldur önnur saga en með Rússana sem höfðu nægtir alls en útkoman var ekki nærri eins góð þegar þeir smíðuðu Moskvich-bílinn, að mati Kára. Til að setja punktinn yfir i-ið keypti Kári loðhúfu með bílnum, hermannshúfu sem hann telur efa- laust að sé ættuð úr þrotabúi Var- sjárbandalagsins sáluga. Í húfunni er fagurgljáandi skjaldarmerki Sovétríkjanna, hamarinn og sigðin. Það má búast við að Mývetn- ingar í brauðstriti hversdagsins og ekki síður erlendir ferðamenn verði kindarlegir á svip þegar þeir mæta Kára bónda, akandi um sveitina í Trabbanum, með loðhúf- una glæsilegu á höfði. Morgunblaðið/BFH Heima í Garði Kári Þorgrímsson gerði það fyrir fréttamann að stilla sér upp við Trabantinn með hermannshúfuna góðu á höfði. Gerðu góðan bíl úr litlum efnum Reykjanesbær | Fræðsluráð Reykjanesbæjar efnir til hvatning- arverðlauna fyrir einstaka kenn- ara, kennarahópa og starfsmenn í leikskólum, grunnskólum og tón- listarskóla bæjarins. Verðlaunin eru veitt fyrir starf eða verkefni sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni. Afhending verðlaunanna fer fram 11. júní. Skila þarf inn tilnefn- ingum til Fræðsluráðs Reykjanes- bæjar fyrir 20. maí. Markmið hvatningarverð- launanna er að vekja athygli á gróskumiklu starfi skólanna og stuðla að nýbreytni og þróun- arstarfi. Verðlaunin eru viðurkenn- ing fyrir vel unnin störf í þágu nem- enda og foreldra og staðfesting á því að skólinn sé fyrirmynd ann- arra á því sviði sem um ræðir. Hvetja kennara og starfsfólk til dáða SUÐURNES Sandgerði | Guðmundur Maríasson hefur opnað málverkasýningu á Listatorgi í Sandgerði, „Sérð þú það sem ég sé?“ Guðmundur er Suðurnesjamaður og býr í Reykjanesbæ. Hann fékk snemma áhuga á myndlist, fór í myndlistarskóla og hefur verið að mála síðan. Sýningin er opin til 15. maí milli kl. 13 og 17. Sérð þú það sem ég sé? Sandgerði | Það var handagangur í öskjunni hjá leikmönnum og stuðn- ingsmönnum knattspyrnufélagsins Reynis í Sandgerði þegar þeir tóku að sér að rífa gamalt saltfiskverk- unarhús á Garðvegi 3. Húsið er sambyggt Fræðasetrinu og verður byggt nýtt hús á grunninum. Reynismenn höfðu tvær afkasta- miklar vélar til verksins sem stjórn- að var af mikilli færni, tveir gáma- bílar sáu um að aka brakinu frá staðnum og höfðu ekki undan, enda einvala lið sem vann að rifinu. Verkið unnu þeir í sjálfboðavinnu til að safna peningum til starfsins. Nú verður hafist handa við að undirbúa byggingu á nýju húsi á grunninum sem er 740 fermetrar. Þar verður sett upp rannsóknastöð fyrir sýk- ingarannsóknir á fiskum. Áætlað er að nýja húsið verði komið upp í júlí. Með endurbyggingu saltfiskverk- unarhússins er búið að endurnýja allt húsnæði sem áður hýsti frysti- hús og saltfiskverkunarhús Garðs hf. og síðar útgerðarstöð Guð- mundar Jónssonar. Sandgerðisbær stendur að þess- um framkvæmdum sem eru áætl- aðar munu kosta um 35 milljónir. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Niðurrif Vaskir knattspyrnumenn með stórvirkar vinnuvélar voru ekki lengi að rífa gömlu fiskverkunarhúsin sem stóðu við hlið Fræðasetursins. Rifu gamalt salt- fiskverkunarhús Reykjanesbær | Róbert Daníel Cu- tress varð Skákmeistari Heiðarskóla 2008. Sigraði hann á skákmóti sem haldið var í skólanum um þennan tit- ilinn. Yfir 60 nemendur tóku þátt í mótinu en að lokum kepptu fjórir nemendur um fjögur efstu sætin. Skákmeistari Heiðarskóla 2008 varð Róbert Daníel sem er úr 9. bekk HE. Í öðrum sæti varð Hlynur Almar Sölvason í 5. EN og jafnir í 3.-4. sæti voru Guðni Már Grétarsson 9. HE og Geirmundur Ingi Eiríksson 4. HT. Róbert Daníel fékk eignarbikar frá fyrirtækinu „Milli himins og jarð- ar“ og einnig verður nafn hans sett á bikar sem geymdur er í skólanum. Á myndinni eru skákmeistararnir, Geirmundur, Hlynur, Róbert og Guðni, og Sóley Halla Þórhallsdóttir, aðstoðarskólastjóri Heiðarskóla. Róbert Daníel er Skák- meistari Heiðarskóla Reykjanesbær | Nemendur í 1. bekk í öllum grunnskólum Reykja- nesbæjar fengu á dögunum að gjöf sundpoka frá Reykjanesbæ í tilefni sumarkomu. Sundpokarnir eru afhentir árlega en með þeim fylgir sundferðakort sem er hvatning til hreyfingar. Með því að safna 40 stimplum í kortið geta börnin átt von á skemmtilegum vinningi í Vatnaveröld í Reykja- nesbæ. Þetta er í þriðja sinn sem sund- pokunum er dreift til ungmenna en í upphafi var þeim dreift til allra nem- enda í 1.-10. bekk í Reykjanesbæ við opnun Vatnaveraldar í Reykja- nesbæ, sem er yfirbyggður vatns- leikjagarður og ný 50 m innilaug. Með verkefninu er minnt á sund sem holla afþreyingu og börnin hvött til hreyfingar. Um leið er minnt á að það er frítt í sund fyrir öll börn í Reykjanesbæ. Börnin minnt á sundið Ljósmynd/Dagný Gísladóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.