Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Á HÁDEGISFYRIRLESTRI Sagnfræðingafélagsins í dag kl. 12.05 í Þjóðminjasafni Ís- lands flytur Kristinn Schram fyrirlestur sem hann kallar: Að endurheimta augnablikið: Þjóðfræði, kvikmyndatækni og íronía. Hann spyr hvort kvik- myndun sé sjálfsagt tæki í vettvangsrannsóknum, hvort menning varðveitt í hreyfi- mynd og hljóði verði endur- upplifuð; hvers eðlis þjóðfræðilegar kvikmyndir séu og hvort kvikmyndir hafi yfir höfuð eðli. Í fyr- irlestrinum verður fjallað um kosti og galla kvik- myndatækni við þjóðfræðilegar rannsóknir. Fræði Þjóðfræði, íronía og kvikmyndatækni Kristinn Schram þjóðfræðingur Í DAG kl. 17 verður dagskrá í Norræna húsinu á vegum Arkitektafélagsins með heit- inu: Miðborgin mín – Vanga- veltur um miðborgina. Magnús Jensson fjallar um miðborg- arhugtakið, Steve Crister kynnir tillögu að endur- uppbyggingu á Vegamótastíg, Jóhannes S. Kjarval talar um stjórnsýslu í skipulagi; Björn Gunnlaugsson kallar erindi sitt: Miðborgin fyrir alla – fáum fólk aftur í bæinn; Snorri Freyr Hilmarsson ræðir Reykjavík hægri og vinstri; Ívar Örn Guðmundsson framtíðarsýn í uppbyggingu og Jón Kaldal talar um fólk og hús. Arkitektúr Arkitektar ræða miðborgina mína Snorri Freyr Hilmarsson KÓPAVOGSDAGAR standa nú yfir og annað kvöld kl. 20 halda Kópavogstónlistarmenn- irnir Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau flautuleik- arar ásamt píanóleikaranum Peter Máté vortónleika í Saln- um. Á efnisskránni eru vals og Pikkolópolki næturgalans eftir Köhler, Mephisto-valsinn eftir Liszt, auk verka eftir Fauré, Debussy og Ravel. Punkturinn verður svo settur yfir i-ið á þessum fjörugu vor- tónleikum á Kópavogsdögum með nokkrum lög- um eftir heiðursborgarann Sigfús Halldórsson í nýrri útsetningu Atla Heimis Sveinssonar. Tónlist Kópavogslistamenn spila vorið í Salinn Guðrún Birgisdóttir Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is HILDUR Ásgeirsdóttir Jónsson myndlistarkona hreppti nú, fyrsta maí, Cleveland Arts Prize, Listaverðlaun Clevelandborgar í Ohio-ríki í Bandaríkjunum, en verðlaunin eru virt og eft- irsótt, og þau elstu sinnar tegundar í Bandaríkj- unum. Verðlaunahafar geta komið úr öllum list- greinum; tveir listamenn á miðjum starfsferli eru verðlaunaðir, einn listamaður fyrir ævistarfið og einn efnilegur byrjandi. Hildur var verðlaunuð í flokki listamanna á miðjum starfsferli, og nema verðlaunin andvirði tæpra 200 þúsund króna, auk heiðursins sem þykir mikill. Í frétt um verðlaunin segir, að þeir sem hljóti þessi verðlaun þurfi að njóta viðurkenningar í Bandaríkjunum fyrir list sína, auk þess að vera þekktir og viðurkenndir á heimaslóðum í og umhverfis Cleveland, og hafa haft búsetu í Norður-Ohio, en Hildur hefur búið í Cleveland í aldarfjórðung. Ekkert sem maður sækir um „Þetta kom mjög á óvart,“ segir Hildur, sem var stödd á Íslandi þegar tíðindin spurðust, en hún er nú með sýningu í gallerí Turpentine í Ing- ólfsstræti. „Þetta er mikill heiður fyrir mig. Sam- keppnin er mikil og svæðið stórt; það búa þarna nokkrar milljónir manna. Það er ekkert farið að líta á listamenn úti fyrr en þeir eru búnir að starfa að list sinni í að minnsta kosti tíu ár. En við verð- launin er líka tekið mið af því hversu duglegt fólk er að sýna og sinna listinni. Mér þykir þetta ekki síst heiður vegna þess að þarna eru allar list- greinar saman, og maður er líka að keppa við ann- ars konar listamenn. Þetta er ekkert sem maður sækir um; fólk er tilnefnt og dómnefnd velur. Ég vissi ekki einu sinni að ég væri tilnefnd,“ segir Hildur. Erindi nýstúdentsins Hildar til Cleveland fyrir aldarfjórðungi var að leggja stund á arkitektúr, og það gerði hún í tvö ár. En hún freistaðist til að taka með því námi fáeina áfanga í myndlist. Eftir fyrstu árin skipti Hildur alveg yfir í myndlistina. „Ég sá að það átti miklu betur við mig, og sé aldr- ei eftir því að hafa skipt. Ég fann ekki nægilega fyrir skyldleika þessara greina í arkitektúrnum, og hefði viljað hafa meiri teikningu og skúlptúr þar. Þess vegna fór ég að taka myndlistarkúrsa.“ Hildur lauk prófum úr textíldeild og vefur myndverk sín. Engu að síður kallar hún sig mál- ara og verkin málverk. „Hugmyndafræðilega séð eiga verkin mín miklu meira skylt við málverkið en textíl, að mínu mati, en samt eru þau unnin á venjulegan gamaldags vefstól.“ Og íslenskur upp- runi listakonunnar leynir sér ekki. „Já, síðustu sjö árin eða svo hef ég eingöngu unnið úr íslensku landslagi. Ég ferðast um landið, horfi, skoða og tek myndir. Þegar ég fer aftur út geri ég skissur og vinn úr hugmyndunum. Mér finnst ég vera ís- lenskur listamaður þótt ég búi úti. Og þá hlýtur maður auðvitað að velta því fyrir sér hvort það séu ef til vill sterk-íslensku einkenn- in sem hafi vakið hrifningu Ohio-búa á list Hildar. „Ég held að það sé það, en líka aðferðin sem ég nota. Hún er einstök, og virðist vekja bæði athygli og forvitni.“ Hildur málar þráðinn sem hún vefur með. Ekki þannig að hún sé með málningarburst- ann á lofti við vefstólinn, heldur er hún búinn að mála alla þræðina í réttum litum, áður en sjálf handavinnan hefst. Þannig er verkið í senn vefn- aður og málverk. „Þetta er það sem ég geri.“ Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson fékk æðstu listverðlaun Clevelandborgar í Ohio Málari sem vefur málverk á vefstól Verðlaunahafinn „Hugmyndafræðilega séð eiga verkin mín miklu meira skylt við málverkið en text- íl, að mínu mati, en samt eru þau unnin á venjulegan gamaldags vefstól,“ segir Hildur. GRAMOPHONE, tónlistartímaritið breska ætlar að koma öllu sínu efni frá stofnun tímaritsins árið 1923 á netið, til ókeypis afnota fyrir al- menning. Gramophone hefur frá upphafi verið metið áhrifamesta og virtasta tónlistartímarit um klass- íska tónlist í heiminum. Áætlað er að í september verði efnið tilbúið. Umfjöllun um útgefið efni hefur ávallt verið undirstaða tímaritsins, en þar hefur einnig verið að finna gríðarlegan fjölda viðtala við allt þekktasta og athyglisverðasta tón- listarfólk heims, auk greina um allt það er lýtur að klassískri tónlist, tónlistarútgáfu og hljómtækjum. Ljóst er að gagnavefur Gramop- hone verður einstakur, og auðveld- ar til muna heimildaöflun og rann- sóknarvinnu í tónlist. Þá hyggst Gramophone bæta um betur í byrjun næsta árs og opna samhliða gagnasafninu nýjan tón- listarvef sem mun veita alla þá þjónustu sem unnendur klassískrar tónlistar gætu kosið sér. Þangað verður hægt að sækja tónlist til kaups í stafrænu formi, jafnt sem á plötum. Þar verður hægt að hlusta á sýnishorn af plötum sem eru á leið í útgáfu, lesa dóma, kaupa miða á tónleika víðs vegar um heim. Gramo- phone frá 1923 á netið Einstakar heimildir opnaðar almenningi TENGLAR .............................................. gramophone.co.uk SÖGULEGIR tónleikar voru haldn- ir í Riyad í Sádi-Arabíu nýverið, þegar þýskur strengjakvartett, Artiskvartettinn, lék sígilda kamm- ertónlist, eftir Mozart, Brahms og fleiri, og fyrir áheyrendur af báð- um kynjum. Tónleikarnir fóru fram í 500 sæta sal í ríkisrekinni menningar- miðstöð, og hafa vakið spurningar um hvort strangtrúaðir Sádar og íslamskt konungsríki þeirra hafi í hyggju að opna samfélag sitt frekar fyrir vestrænum áhrifum. Tónleik- arnir voru liður í þýskri menning- arhátíð í Sádi-Arabíu, og var haft eftir þýska sendiherranum, Jürgen Krieghoff, í tilefni af hátíðinni, að miklar breytingar ættu sér nú stað í Sádi-Arabíu. Sádar hlusta á Brahms ÞESSA dagana stend- ur yfir sýning Þórdísar Aðalsteinsdóttur í Specta-galleríinu í Kaupmannahöfn þar sem hún sýnir á þriðja tug málverka. Þórdís hélt sýningu á Kjarvalsstöðum fyrir tveimur árum og vakti hún talsverða athygli. Á síðasta ári var hún með einkasýningar í galleríum í Los Angel- es og Tókýó en hún er á mála hjá Stux- galleríinu í New York, þar sem hún er búsett. Lofsamlegur dómur birtist um sýninguna í Politiken. Sagt er frá því að þegar listakonan var ung hafi lítinn hungraðan ísbjörn rek- ið að landi. Björninn var drepinn en heim- sókn hans hafði sest að í huga Þórdísar. Hún sá fyrir sér að björninn færi um bæinn og kíkti á glugga. Löngu síðar varð til málverk sem sýnt er í Kaupmanna- höfn og heitir „Ísbjörn eða gluggi með útsýn til himinsins.“ „Eins og sést í málverkinu af ís- birninum, er draumsleg, súrrealísk stemning einkennandi fyrir málverk Þórdísar,“ skrifar Kristine Kern. „Í myndunum birtast iðulega absúrd senur, sem vega salt á milli hins húmoríska og dýrslega. Falleg dýr með dapurleg, svört augu, afrifna útlimi og hversdags- hlutir eins og kaffibollar mætast á strigunum. Málverkin eru einföld en engu að síður hlaðin smáatriðum sem hliðra merkingum til.“ Verk Þórdísar má sjá víðar í Kaupmannahöfn þessa dagana, en hún er ásamt Þór Vigfússyni fulltrúi Íslands á Carnegie sýningunni sem var opnuð 17. apríl síðastliðinn. Þórdís Aðalsteinsdóttir sýnir málverk í Kaupmannahöfn Sögð vega salt á milli hins húmoríska og dýrslega Þórdís Verkin einföld en hlaðin smáatriðum. ♦♦♦ Kynntu þér Tvennu á www.nb.is Við tryggjum þér bestu vextina! Nýjung sem sameinar kosti verðtryggðra og óverðtryggðra reikninga TB W A\REYKJAVÍK\ SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.