Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Andrés Guðna-son fæddist á Uxahrygg á Rang- árvöllum 7. ágúst 1919 og lést á heimili sínu 25. apríl síðast- liðinn. Hann var sonur hjónanna Guðna Magnússonar, f. 12.11. 1889, d. 28.9. 1978, bónda í Hólm- um í Landeyjum og Rósu Andrésdóttur, f. 19.3. 1890, d. 28.1. 1983 húsfreyju. Systkini Andrésar eru Jón, f. 23.2. 1918, d. 10.9. 1991, Kristrún, f. 8.11. 1920, og Magnea Guðbjörg, f. 29.4. 1922. Uppeldissystir hans er Gerður Elimarsdóttir, f. 19.11. 1937. Andrés kvæntist hinn 26. jan- úar 1952 Guðrúnu Guðfinnu Guð- mundsdóttir, f. 10.3. 1919, d. 7.10. 1989. Foreldrar hennar voru hjón- in Kristín Gísladóttir, f. 7.6. 1879, d. 1961, og Guðmundur Jónsson, f. 7.3. 1888, d. 1920, bóndi í Grinda- vík. Andrés og Finna byggðu sér hús í Mosgerði 1 í Reykjavík, fluttu síðan að Sundlaugavegi 20 og það- an á Langholtsveg 23, en þar bjó Andrés til dánardags. Börn þeirra eru fjögur, 1) Örn Úlfar, f. 21.6. 1951, húsasmíða- meistari, giftur Jóhönnu Stef- 1945, Ruskin College í Oxford 1946, Social Institut í Stokkhólmi 1947 og Berlitz School of Language 1949 til 1950. Hann stundaði versl- unar- og skrifstofustörf, vann hjá Verslun Ingimundar Jónssonar í Keflavík 1939 til 1941, hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar í Reykjavík 1941 til 1943, var stofnaði og skrif- stofustjóri Byggingarfélagsins Brúar hf. frá 1943 til 1944, forstjóri Bílaverkstæðis Hafnarfjarðar 1947 til 1949. Andrés var skrifstofustjóri hjá Kassagerð Reykjavíkur frá 1951 til 1961, stofnaði Öskjur og prent 1958 og rak þá prentsmiðju til 1963 en lengst af rak hann heild- verslun undir eigin nafni eða í um 30 ár. Andrés var ritstjóri tímarits- ins Víðsjár frá 1947 til 1949 og skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit. Hann skrifaði og gaf út bækur, fyrst ferðaþættina Í öðrum löndum árið 1950 og síðan á seinni árum ljóðabækur, ferðabækur, smásögur og skáldsöguna Gunsu- kaffi. Hann ferðaðist mikið og hafði gaman af að skrifa um og kvikmynda þær ferðir. Hann var áhugamaður um ættfræði og síð- ustu árin tók hann saman margar ættir á Suðurlandi og gaf út. Andr- és var hestamaður til margra ára, lengst í Víðidal og svo seinni árin líka í Fljótshlíðinni. Hann var einn- ig mikill sundmaður og stundaði Sundlaugar Reykjavíkur fram á síðasta dag. Útför Andrésar verður gerð frá Áskirkju í dag 13. ánsdóttur, börn þeirra eru Arnar Þór, f. 16.9. 1972, og Rósa Guðný, f. 11.10. 1993, barnabörn eru Már Jóhann Arnarsson, f. 7.1. 1990, og Mína Arnarssdóttir, f. 7.6. 2001. 2) Kristín Rós, f. 22.12. 1952 bókari, gift Birni S. Ástvalds- syni, dætur þeirra eru Dagmar, f. 20.9. 1975, Sandra Rós, f. 31.7. 1987, og Birna Karen, f. 22.7. 1990. Barna- barn þeirra er María Rakel Magn- úsdóttir, f. 23.7. 1999. 3) Gunnar Már, f. 13.12. 1954, verslunarmað- ur, giftur Bjargey Stefánsdóttur, börn þeirra eru Stefán Andri, f. 6.5. 1980, Erla Guðrún, f. 11.8. 1983, Ír- is Dögg, f. 18.9. 1989, og Bjarki Már, f. 27.2. 1991. Barnabarn þeirra er Júlía Kristey Gunn- arsdóttir, f. 24.2. 2007. 4) Sigrún, f. 11.12. 1958, augnþjálfi, gift Þorleifi Sigurjónssyni, börn þeirra eru Andrés, f. 19.7. 1988, Alexander, f. 21.9. 1990, Hákon, f. 6.5. 1996, og Kristín, f. 13.1. 1998. Andrés ólst upp ásamt systkinum hjá foreldrum sínum í Hólmum í Landeyjum. Hann stundaði nám við Héraðsskólann á Laugarvatni 1937 til 1939, Rider College í Trenton Elsku afi. Við systurnar erum mjög leiðar að sjá þig fara svona skyndilega en við vonum að þú hafir það gott hvar sem þú ert staddur núna. Þú varst alltaf mikill rólyndismað- ur. Þú lést ekki fara mikið fyrir þér en maður gat alltaf treyst á það að þú værir hinum megin við götuna og að þú værir viðstaddur öll mannamót fjölskyldunnar og svo í sundi á morgnana. Á okkar heimili varstu tíður gestur og sá maður þig ósjald- an röltandi hérna yfir til okkar og þú hlóst að ýmsu sem fram fór við mat- arborðið. Þú varst alltaf mjög hraustur þó að þú færir þér kannski ekki hratt. Orðinn næstum því 89 ára og enn í sama gamla húsinu ykkar ömmu verður að teljast eitt af þínum afrek- um. Þú varst sjálfstæður og gast allt- af séð um þig sjálfur. Sást meira að segja um barnapíustörf þegar við vorum yngri. Þú reyndir líka alltaf að vera frek- ar nýjungagjarn. Keyptir þér ferða- tölvu þegar þær fyrst komu til lands- ins og þú notaðir til að skrifa skáldsögurnar þínar í. Eftir um 15 ára notkun gafst tölvan upp. Þegar þú fórst svo með hana í Apple til að fá nýja ráku afgreiðslumennirnir upp stór augu við að sjá þennan forn- grip. Við vonum að þú vitir að okkur þykir ávallt vænt um þig og það verður skrítið að hafa þig ekki leng- ur í sunnudagsmat og jólin verða lík- lega aldrei söm. Sandra Rós og Birna Karen Björnsdætur. Andrés Guðnason ✝ Jósef Hall-dórsson var fæddur að Garða- koti í Hjaltadal 12. október 1917. Hann lést 28. apríl 2008 á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa- vogi. Foreldrar hans voru Ingibjörg Jósefsdóttir og Hall- dór Gunnlaugsson Garðakoti. Systkini Jósefs: Kristín, gift Hart- manni Guðmunds- syni b., Þrasastöðum Fjótum; Gunnlaugur, lést ungur; Hólm- laug, gift Árna Stefánssyni lög- fræðingi í Reykjavík; Hildur, gift Runólfi Þórðarssyni, verkfræðingi í Reykjavík; Gunnlaugur, b. Brattavöllum, Árskógsströnd, kvæntur Guðrúnu Kristjáns- dóttur. Öll systkini hans eru látin nema Gunnlaugur. Jósef kvæntist 19.11. 1938 Jónu Ástu Sigurð- ardóttur, f. 29.9. 1913. Þau skildu. Foreldrar hennar voru Sigurlaug Jónsdóttir og Sigurður Jónsson Hömrum í Laxárdal. Börn þeirra: Hafsteinn, f. 1.11. 1936, d. 7.2. 2006, var kvæntur Ingveldi Magn- úsdóttur. Þau skildu. Börn þeirra Thongleg Utsa og eiga þau tvær dætur. Jósef kvæntist 16.11. 1974 Ingibjörgu Gísladóttir, f. 13.10. 1915, d. 9.7. 2006. Foreldrar henn- ar voru Gísli Jónsson, b. í Saurbæ í Vatnsdal, og kona hans, Katrín Grímsdóttir. Börn Ingibjargar frá fyrra hjónabandi eru: Guðni, Guð- rún Katrín, Gísli, Sigurður, Baldur og Gunnar Dagbjartsbörn. Auk þess ólst upp hjá Jósef og Ingi- björgu Lars Kjartan, sonur Guð- rúnar Katrínar. Jósef ólst upp í Garðakoti og einnig Hofsstöðum þar til að hann fluttist til Reykja- víkur 1933 og hóf þar nám í húsa- smíði hjá frænda sínum, Birni Rögnvaldssyni, sem starfaði um árabil sem eftirlitsmaður rík- isbygginga á vegum Húsameistara ríkisins. Jósef lauk sveinsprófi 1937 og vann síðan við byggingar og eigið verkstæði þar til hann réðist til Meistarafélags húsa- smiða 1966. Hann var einn af stofnendum Meistarafélags húsa- smiða og starfaði þar allt til þess að hann veiktist 1987. Jósef var einnig einn af stofnendum Harm- onikufélagsins í Reykjavík. Síðast- liðna tvo áratugi hefur hann búið á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi og notið þar frábærrar umönnunar starfsfólks heimilis- ins. Jósef verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 15. eru þrjú auk þess sem Hafsteinn átti tvö börn frá fyrri sambúð. Ingibjörg Erla, f. 25.5. 1939, var gift Birni Al- freðssyni. Þau skildu. Þau eiga þrjú börn, Þröstur f. 17.12. 1940, d. 31.12. 1999, Reykjavík, var kvæntur Ósk Péturs- dóttur. Þau skildu. Börn þeirra eru þrjú auk þess sem hann átti tvö börn frá fyrri sambúð. Jósef kvæntist 27.1. 1945 Dýrfinnu Helgadóttur, f. 4.10. 1925, d. 14.9. 1991. Þau skildu. Foreldrar hennar voru Helgi Jörgensson og Anna Sigurð- ardóttir, Reykjavík. Börn þeirra: Gunnlaugur, f. 6.7. 1945, kvæntur Lilju Njálsdóttur og eiga þau fjög- ur börn. Helgi, f. 7.2. 1947, d. 3.12. 2005. Kona hans var Arnbjörg Pálsdóttir og eru dætur þeirra þrjár. Halldór, f. 23.6. 1949, d. 18.3. 1986, var kvæntur Ólöfu Guðrúnu Albertsdóttur og eru dætur þeirra fjórar. Gunnar, f. 6.4. 1953, var kvæntur Brynhildi Egilson. Þau skildu. Þau eiga þrjá syni. Seinni kona Gunnars er Það eru rúm 40 ár síðan Jósef kom inn í mína fjölskyldu en þá kynntist hann móður minni og þau giftust síð- ar. Það var nokkur tortryggni sem barðist í huga unglings þegar hann kom inn á heimili okkar, en hann sýndi það fljótt hvern mann hann hafði að geyma. Jósef var húsa- smíðameistari, og hafði á sér gott orð fyrir dugnað og áreiðanleika. Er hann og móðir mín kynntust var hann farinn að vinna hjá Meistara- félagi húsasmiða sem skrifstofu- stjóri og mælingamaður. Það kom sér vel fyrir 17 ára pilt sem hafði áhuga á að komast í smíð- anám að þekkja Jósef. Hann kom mér í samband við meistara sem ég svo lærði hjá. Jósef og móðir mín áttu mörg góð ár saman. Þau byggðu sér hús við Víðigrund í Kópavogi og þar naut Jósef sín, hann teiknaði húsið sjálfur og vann nánast öll verk við það. Já, það var oft langur vinnudagur, en hann naut hverrar stundar. Það var fróðlegt fyrir mig sem ungan mann að fylgjast með Jósef byggja húsið af kunnáttu og með fumlausum vinnu- brögðum. Á þessum árum ferðuðust þau bæði innanlands og utan. Þau fóru í árlegar sumarferðir á vegum Meist- arafélags húsasmiða og einnig í ferð- ir með Starfsmannafélagi stjórnar- ráðsins en þar vann móðir mín. Í þessum ferðum var Jósef ómissandi með harmonikkuna sem hann var óþreytandi að spila á. Árið 1987 fékk Jósef alvarlegt heilablóðfall og hefur síðan verið bundinn við hjólastól. Fyrstu árin var hann heima meðan móðir mín gat sinnt honum en síðar fór hann í Sunnuhlíð þar sem hann hefur búið í 19 ár. Hann naut frábærrar umönn- unar góðs starfsfólks í Sunnuhlíð. Hann hefur alla tíð haft skýra hugs- un og fylgdist vel með. Hann spurði út í framkvæmdir og nýjungar í hús- byggingum. Einnig vildi hann fylgj- ast með þeim meisturum og fyrir- tækjum sem hann þekkti meðan hann vann hjá Meistarafélaginu. Já, hann Jósef var alveg klár í koll- inum, og eins og starfsfólkið í Sunnu- hlíð talaði um, var alltaf hægt að fara inn til hans til að spjalla. Við hjónin og börnin okkar erum þakklát fyrir að hafa kynnst Jósef og verið honum samferða. Blessuð sé minning hans. Gunnar Dagbjartsson. Fyrir um það bil 40 árum lágu leið- ir móður minnar og Jósefs Halldórs- sonar saman, hún þá ekkja og hann hafði einnig misst maka sinn. Þegar Jósef fór að koma á heimili okkar mömmu, og síðan þegar þau fóru að búa saman, er mér minnisstætt hversu kurteis og tillitssamur hann var. Jósef Halldórsson var bygginga- meistari og hafði m.a. byggt fyrir foreldra vinar míns, þar sem ég heyrði að gott orð fór af verklagni hans og hvernig hann skilaði af sér verki. Jósef starfaði á mælingastofu Meistarafélags húsasmiða í mörg ár. Þar var vinnudagurinn oft langur og síðan bættist við vinna á kvöldin og um helgar við að aðstoða og reikna út tilboð í verk fyrir byggingameist- ara, en Jósef þótti töluglöggur og út- sjónarsamur. Eins var hann oft kall- aður til sem matsmaður í ágreiningsmálum þar sem hann þótti réttsýnn og hafði góða þekkingu á byggingariðnaðinum. Jósef var jafnaðarmaður alla tíð og talaði alltaf af virðingu um leið- toga Alþýðuflokksins. Hann spilaði á harmoniku og var félagi í Harmon- ikufélagi Reykjavíkur. Oft eftir lang- an vinnudag fannst honum hvíld í að grípa í nikkuna og spila nokkur lög og fá sér eitt staup af koníaki, aldrei meira, því hann var mjög reglusam- ur og kunni með vín að fara. Það var áhugavert að fylgjast með þegar Jósef og móðir mín fengu út- hlutað lóð undir einbýlishús við Víði- grund í Kópavogi. Húsið teiknaði Jósef og byggði nánast einn og keypti sáralitla vinnu að. Þar kom berlega í ljós hversu útsjónarsamur og uppfinningaríkur Jósef var, þá var hann nýtinn með afbrigðum. Dugnaður og þrek einkenndi Jósef en hann byggði húsið eingöngu á kvöldin og um helgar samhliða mik- illi vinnu og í stuttu sumarfríi. Það var mikið áfall þegar Jósef, þá sjötugur, fékk heilablóðfall og lam- aðist öðrum megin, einmitt þegar löngum starfsferli var rétt að ljúka og þau mamma gátu farið að njóta þess að ferðast saman innanlands og utan, en Jósef hafði mjög gaman af því að heimsækja börn móður minn- ar til Svíþjóðar, þegar þau bjuggu þar. Kom þá í ljós áhugi hans á að kynnast því hvernig aðrar þjóðir byggðu og þeirri tækni sem beitt var við húsbyggingar erlendis. Þrátt fyrir að hafa verið bundinn við hjólastól tuttugu síðustu ár æv- innar bugaðist hann aldrei og var já- kvæður og gladdist þegar hann fékk fréttir af áföngum sem hans börn og barnabörn eða mömmu náðu í lífinu. Blessuð sé minning mikils heið- ursmanns. Baldur Dagbjartsson. Mikið var ég nú heppin, afi minn, að þú varst afi minn. Fyrst man ég eftir þér í Víðigrundinni með Ingi- björgu ömmu. Þangað var alltaf svo gott að koma. Þar las ég Andrésblöð- in sem Lars átti á meðan mamma og pabbi spjölluðu við ykkur ömmu. Og stundum spilaðir þú fyrir okkur á harmonikkuna. Eftir að þú veiktist fyrst fyrir 19 árum kynntist ég þér alveg upp á nýtt. Og þá myndaðist strengur á milli okkar sem slitnaði aldrei. Mikið er ég þakklát fyrir það. Þó að það væri þitt hlutskipti eftir að þú veiktist að vera öðrum háður með svo ótalmargt sem við sem höfum heilsu teljum sjálfsagt, þá vorkennd- ir þú þér aldrei. Stundum varstu dapur yfir því, en í leiðinni þakklátur fyrir allt sem þú hafðir. Ekki síst varstu þakklátur fyrir hana Ingi- björgu ömmu sem var þér svo undur dýrmæt. Nú ertu kominn á fund hennar á ný, og ég er sannfærð um að það hafa verið fagnaðarfundir. Þakka þér fyrir samveruna, afi minn. Minninguna um þig mun ég geyma í hjarta mínu. Þín sonardóttir, Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir. Í dag kveðjum við þig, kæri afi. Minning um afa með nikkuna, tób- aksdósina og hatt. Heimsóknir til ykkar ömmu í Víðigrund, þar sem alltaf var gott að koma. Amma með sína blíðu rödd og svo yndislega góð. Afi stór og sterkur, sem gat allt gert. Þið áttuð svo vel saman og var ynd- islegt að sjá hvernig þið horfðuð hvort á annað – með ástaraugum. Þegar þú fékkst áfallið breyttist margt. Lífi þínu var snúið á hvolf á einu augabragði. En þið stóðuð sterk saman, þú og amma. Árin liðu, þú fluttir í Sunnuhlíð og amma var í Fannborginni rétt fyrir ofan þannig að hún gat bara labbað til þín. Sum- arið sem ég bjó í Reykjavík kom ég til ykkar á hverjum sunnudegi. Sát- um yfir veitingum og spjölluðum um nýja og gamla tíma. Þér leiddist nú ekki að rifja upp þá tíma þegar þú varst ungur, stríðsárin stóðu m.a. ljóslifandi fyrir augunum á mér þeg- ar þú lýstir komu hersins, þú þá ung- ur smiður. Þessar stundir eru mér mjög dýrmætar og var yndislegt að koma til ykkar. Þú kvaddir hljóðlega við undirleik harmoniku, söngs og Gulla þér við hlið. Eins falleg stund og hún getur orðið. Nú ert þú farinn til ömmu, sem hefur tekið á móti þér með út- breiddan faðminn. Þeir sem á undan hafa farið bíða þar einnig. Hvíl í friði, kæri afi. Sonja Dröfn Helgadóttir. Mikill heiðursmaður er kvaddur. Jósef Halldórsson lauk sveinsprófi í húsasmíði árið 1937 og fjórum árum seinna fékk hann svo útgefið meist- arabréf. Jósef starfaði síðan við byggingar sem húsasmiðameistari og rak eigið trésmiðaverkstæði. Á þessum fyrstu árum sem eigin hús- bóndi var hann atkvæðamikill, tók þátt í félagsstarfi og hagsmunabar- áttu og var í hópi þeirra húsasmiða- meistara sem 4. júní 1954 tóku sig saman og stofnuðu Meistarafélag húsasmiða. Árið 1966 hætti Jósef eigin atvinnurekstri og gerðist starfsmaður Meistarafélags húsa- smiða. Hann tók að sér að stýra og hafa yfirumsjón með endurskoðun mælinga fyrir félagið. Það var mikill happafengur fyrir félagið að fá þenn- an harðduglega, glögga og vand- virka fagmann til starfa og var Jósef aðalmælingamaður félagsins í 21 ár, eða allt þar til að hann varð að hætta störfum sökum heilsubrests vorið 1987. Meistarafélag húsasmiða sýndi Jósef Halldórssyni þakklæti sitt fyr- ir frábært og óeigingjarnt starf með því að gera hann að heiðursfélaga á aðalfundi félagsins 29. apríl 1988. Félagið þakkar þessum aldna höfðingja samfylgdina og sendir fjöl- skyldu hans hugheilar samúðar- kveðjur. F.h. Meistarafélags húsasmiða, Baldur Þór Baldvinsson formaður. Jósef Halldórsson Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upp- lýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.