Morgunblaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 41
Fyrir stuttu sat ég með vinnu-félögum í hádegismat ogþar var rætt um Marlon
Brando og hversu frábær leikari
hann hefði verið. Svo virðist nefni-
lega sem umræða um þennan
merka leikara í dag, og síðustu ár
reyndar, hafi öll verið á forsendum
þess hversu mikill furðufugl hann
varð um miðbik ævinnar, nokkuð
sem hefur skyggt á glæst framlag
hans til leiklistarinnar.
Michael Jackson er gott dæmi
um þetta, og kannski eitt það krist-
altærasta sem við höfum í dæg-
urtónlistinni. Það er næstum hægt
að fullyrða að annað eins séní hef-
ur ekki komið fram í þeirri eðlu
list en um leið er tónlist hans víðs-
fjarri þegar nafn hans kemur upp
á borðið í dag. Fáránleikinn, firr-
ingin og kynferðisglæpir eru í önd-
vegi, tímamótaverk í poppsögunni
læðast kannski inn rétt undir rest-
ina í umræðunni.
Hryllir, hryllingsmynd,“ eitt-hvað á þessa leið var íslenska
þýðingin á viðlagi titillags plöt-
unnar Thriller, er Verzlunarskóli
Íslands setti upp söngleik, byggðan
á lögum Jacksons. Sú plata er
ástæða þessara vangaveltna hér,
en platan var endurútgefin fyrir
stuttu til að minnast tuttugu og
fimm ára afmæli hennar. Platan
kom upprunalega út árið 1982 og
er mest selda plata allra tíma.
Nokkuð er deilt um upplagstölur,
sumir segja að hún hafi selst í 45
milljónum eintaka en aðrir segja
töluna mun hærri, alls 104 millj-
ónir eintaka. Þessi íslenska þýðing
á titillaginu er kannski ónákvæm
en lýsir þróun næstu ára hjá Jack-
son um leið glettilega vel. Það var
sem hann hefði að fullu tæmt sig á
Thriller, bókstaflega lagt allt í
plötuna og það litla sem var eftir
af sálarheilbrigðinu líka. Í kjölfarið
fór lýtaaðgerðum að fjölga, firr-
ingin jókst jafnt og þétt og líf Jack-
sons varð raunverulega að nokkurs
konar hryllingsmynd, bæði fyrir þá
sem fylgdust með ytra en hrylling-
urinn var einnig á blússandi stími
innra með Jackson sjálfum.
Myndbandið við „Thriller“ mark-
aði tímamót í dægurtónlistarsög-
unni, ekki bara að þetta hafi verið
dýrasta myndband sögunnar held-
ur var um fjórtán mínútna stutt-
mynd að ræða. Þar dansar Jackson
með uppvakningum og breytist í
einn slíkan sjálfur. Í dag er mynd-
bandið því sem veisla fyrir mynd-
máls- og táknfræðinga, enda spá-
dómsgildið þar og ástandslýsingin
óþægilega nærri sanni.
Eitthvað „snappaði“ því hjáJackson um það leyti sem
Thriller kom út og engin furða ef
litið er til ótrúlegra uppvaxtarára
söngvarans, sem var beittur miklu
harðræði af föður sínum eins og
líka systkini hans öll. En ekkert
virtist geta storkað þeim gríð-
arlega metnaði sem Jackson hafði
sem listamaður, uppeldið hafði
ábyggilega sitt að segja en svo var
eitthvað djúprt innra með honum
sem knúði hann miskunnarlaust
áfram í því að gera betur – viðhorf
sem hratt honum að endingu út af
brúninni.
Fyrsta meistaraverk Jacksons
var Off the Wall (1979), plata sem
hann vann með Quincy Jones. Þeir
sem unnu með Jackson að þeirri
plötu segjast aldrei, hvorki fyrr né
síðar, hafa unnið með jafn ástríðu-
fullum, ákveðnum og metn-
aðarfullum listamanni og Jackson.
Hann ætlaði að gera bestu plötu
allra tíma og þeir eru margir sem
eru á því að það hafi tekist þarna,
innihaldið næsta fullkomin blanda
af fönki, diskói, rokki og poppi.
Plötunni var vel tekið en enginn
gat gert sér í hugarlund þær gríð-
arlegu vinsældir sem Thriller átti
eftir að njóta. Sjö af níu lögum
slógu í gegn á vinsældalistum og
Jackson, saman með virtúósinum
Quincy Jones, tókst að byggja far-
sællega á því sem var lagt upp með
á forveranum og allir virtust geta
tengt við plötuna. Thriller varð
ótrúlega vinsæl – en á plötunni var
einnig ótrúlega góð tónlist, tveir
þættir sem fara æ sjaldnar saman.
Miklu er til tjaldað á endur-útgáfu Thriller, sem kom í
febrúar síðastliðnum. Fjögur
myndbönd eru á meðfylgjandi
mynddiski en svo túlka samtíma-
listamenn nokkur laga plötunnar,
will.i.am úr Black Eyed Peas tekur
þátt í „The Girl is Mine“, Fergie,
söngkona sömu sveitar, syngur
með í „Beat It“ og Kanye West
endurhljóðblandar „Billie Jean“.
Platan kom einnig út á vínyl,
eins og vinsælt er orðið í dag. Net-
verjum gefst þá kostur á alls kyns
niðurhali með ýmsum aukalögum.
Alls kyns húllumhæ var svo í
kringum útgáfuna, meðal annars
dansaði sjálf Naomi Campbell við
titillagið þegar Ofurskálin eða
Super Bowl, úrslitaleikur ameríska
fótboltans, fór fram í febrúar síð-
astliðnum.
Thriller er klassísk plata, óskor-
að meistarastykki, hápunkturinn á
ferli Jacksons. Árið 1987 kom plat-
an Bad út, og þó að mörg laganna
hafi notið vinsælda þá var tónlistin
sjálf farin að láta á sjá. Leiðin hef-
ur legið niður á við, í marg-
víslegum skilningi, síðan. Það er
ólíklegt að annað eins komi frá
okkar manni nú, enda slíkar kröfur
ómögulegar. En er annað hægt en
að fyllast smáangurværð þegar
Thriller rúllar í gegn, og hver
snilldin rekur aðra? Allir eiga sína
listrænu toppa en þurfti þetta að
fara svona rækilega til andskotans
eftir það?
Hryllingsmynd?
» Það er næstum hægt að fullyrða að annað einsséní hefur ekki komið fram í þeirri eðlu list en
um leið er tónlist hans víðsfjarri þegar nafn hans
kemur upp á borðið í dag.
arnart@mbl.is
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
Kóngurinn Til vinstri: Jackson í hinu byltingarkennda myndbandi við titillag plötunnar Thriller. Spádómsgildi þessarar myndar, hvað þróun á útliti Jack-
sons varðar, er óneitanlega kaldranalegt. Til hægri: 25 ára afmælisútgáfa plötunnar Thriller sem kom upphaflega út árið 1982.
Ungl ingadei ld ir f yr i r 11-15 ára
Grunnnám / Miðnám / Framhaldsnám
Einsöngsnám / Söngkennaranám
Inntökupróf fara f ram í maímánuði
Upplýsingar : 552 7366 / songskol inn. is
. . .er e inn f remsti tónl istarskól i landsins
og býður upp á a lhl iða tónl istarnám
með söngröddina sem aðalhl jóðfæri
Sýnd í álfabakka
ÞAÐ ÞARF ALVÖRU KARLMANN
TIL AÐ VERA BRÚÐARMEYJA
eee
,,Hugljúf
og skemmtileg"
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
IRON MAN kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
DRILLBIT TAYLOR kl. 6 B.i. 10 ára
OVER HER DEAD BODY kl. 8 B.i. 7 ára
THE RUINS kl. 10 B.i. 16 ára
IRON MAN kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
SUPERHERO MOVIE kl. 8 LEYFÐ
P2 kl. 10 B.i. 16 ára
IRON MAN kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
FORGETTING SARAH M. kl. 8 B.i. 12 ára
21 kl. 10:30 B.i. 16 ára
SKEMMTILEGASTA RÓMANTÍSKA
GAMANMYND ÁRSINS
eeee
“Ein besta
gamanmynd
ársins”
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
-S.V., MBL
eeee
- 24 stundir
Sýnd í álfabakkaog akureyri
2 vikur á toppnum!
vinsælastamyndin á Íslandi Í daG!
Sýnd í kringlunni og keflavík Sýnd í keflavík Sýnd á akureyri Sýnd á SelfoSSi
UNDRAHUNDURINN
ER BESTI VINUR
MANNSINS
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Sýnd í álfabakkaSýnd í álfabakka
Sýnd í álfabakka
og akureyri
Sýnd í kringlunni
og SelfoSSi
Sýnd í álfabakka
frábær öðruvíSi Spennumynd
í leikStjórn paul HaggiS, (CRASH)
eeee
BBC
eeee
Ebert
eeee
S.V. - MBL