Morgunblaðið - 06.05.2008, Síða 13

Morgunblaðið - 06.05.2008, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 13 ERLENT ÍSLENSK kona, Sigfríð Ein- arsdóttir, var stödd á hóteli í Yan- gon-borg í Búrma þegar fellibyl- urinn Nargis skall á og hún fjallar um þá reynslu á bloggsíðu sinni, www.sigfrideinars.bloggar.is: „Um miðnætti vaknaði ég við það að allt nötraði og skalf. Það var svarta myrkur, greinilega raf- magnslaust og vindurinn barði gluggana. Þarna fann ég að hr. Nargis var mættur og það átti bara eftir að versna. Þrátt fyrir að gluggarnir væru lokaðir þá jós sandinum yfir mig og einhver ein- kennilegur fnykur kom með stærstu hviðunum, sterk, súr lykt sem fyllti mann af einhverjum völdum skelf- ingu. Ég var í herbergi uppi á 4. hæð og var eini gesturinn á gisti- heimilinu. Reglulega heyrði ég glamrið í þakplötunum og gler brotna, það var svarta myrkur svo ég sá ekkert út, bara hnipraði mig saman í rúminu og vonaði að það færi að birta. Ég klæddi mig og bak- pokinn var tilbúinn á gólfinu ef ég þyrfti að stökkva í skyndi – get ekki sagt að það hafi mikið verið sofið. Um miðja nótt heyrði ég að hót- elstrákarnir voru komnir fram og ég hjálpaði þeim að binda aftur gluggana í húsinu. Við störðum út í myrkrið – veðrið var brjálað. Þegar svo fór að birta sáum við nokkra menn komna út, varla stætt þótt þeir væru hlémegin. Upp úr hádegi gekk þetta svo yfir og hvað við vor- um fegin! Skemmdirnar voru gríð- arlegar, heilu trén rifin upp með rótum, staurar með auglýsing- arskilti voru bognir eins og lakkr- ísstangir, girðingar rifnar upp og mörg hús þak- og gluggalaus.... Í borginni búa margir í hálf- gerðum kofum, svo ansi margir eru heimilislausir. Rafmagnslínur eru slitnar um alla borg svo þeir tala um 1-3 mánuði þar til rafmagn kemst á. Vatnsleiðslur fóru líka í sundur svo á síðustu dögum mátti fólk bera rigningarvatn að heimilum sínum. Stjórnvöld skaffa bensín og selja á margföldu verði svo fáir bílar eru á götunum, sem þýðir líka að fólk fær ekki varning – búðir að tæmast.“ Sigfríð kom til Bangkok í gær. „Við störðum út í myrkrið – veðrið var brjálað“ Eftir Kristján Jónsson og Boga Þór Arason STJÓRNVÖLD í Búrma sögðu í gær að yfir 10.000 manns hefðu beðið bana í fellibylnum Nargis í vestan- verðu landinu um helgina og þús- unda til viðbótar væri saknað. Rík- isfjölmiðlar Búrma sögðu að búist væri við að tala látinna myndi hækka til muna, jafnvel í tugi þúsunda, þeg- ar björgunarmenn kæmust á af- skekkt svæði þar sem vitað er að mikið tjón varð. Ljóst er að hundruð þúsunda manna hafa misst heimili sín, að sögn embættismanna Sameinuðu þjóð- anna. Utanríkisráðherra Búrma, Nyan Win, sagði að herforingjastjórnin myndi þiggja alþjóðlega neyðarað- stoð vegna hamfaranna. Áður hafði herforingjastjórnin verið gagnrýnd fyrir að takmarka starfsemi er- lendra hjálparsamtaka í Búrma, einu af einangruðustu löndum heims. „Herforingjastjórnin hefur sett skorður við starfi mannúðarsamtaka í Búrma og afleiðingarnar eru skelfi- legar, sum hafa orðið að hætta,“ sagði Aung Din, framkvæmdastjóri Baráttunnar fyrir Búrma, samtaka með aðsetur í Bandaríkjunum. Reiði í Yangon Aung Din sagði að fjölmiðlar stjórnvalda í Búrma hefðu nær ekk- ert gert til að vara almenning við óveðrinu. Þeir hefðu þess í stað verið fullir af áróðri fyrir þjóðaratkvæða- greiðslu um nýja stjórnarskrá á laugardaginn kemur. Íbúar stærstu borgarinnar, Yan- gon (áður Rangoon), sögðust vera reiðir yfir því að stjórnvöld hefðu ekki varað nægjanlega við fellibyln- um og lítið gert til að koma nauð- stöddum til hjálpar eftir óveðrið. Stjórnvöld margra ríkja buðust til að veita Búrma aðstoð vegna ham- faranna, þeirra á meðal Bandaríkja- stjórn sem hefur gagnrýnt mann- réttindabrot herforingjastjórnar- innar. Rauði krossinn í Búrma og Al- þjóða Rauði krossinn hafa veitt neyðaraðstoð frá því að hamfarirnar gengu yfir. Fyrsta aðstoð felst í því að útvega hreint vatn, neyðarskýli, fatnað, plast-yfirbreiðslur og hrein- lætisvörur fyrir þá sem hafa misst heimili sín. Neyðarteymi hafa verið send á staðinn til að meta umfang hjálparstarfsins. Varað við farsóttum Rauði kross Íslands styður hjálp- arstarfið með því að greiða í neyð- arsjóð Alþjóða Rauða krossins en ákvörðun um frekara framlag verður tekin þegar umfang hjálparstarfsins er ljóst og neyðarbeiðni liggur fyrir, að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá Rauða krossinum. Talsmaður Rauða krossins í Yan- gon sagði að gera þyrfti þegar í stað ráðstafanir til að koma í veg fyrir að farsóttir blossuðu upp í landinu eftir náttúruhamfarirnar. Talsmaður búrmísks mannrétt- indahóps segir að 36 hafi látið lífið þegar öryggisverðir í alræmdasta fangelsi landsins, sem er í Yangon, beittu skotvopnum um helgina til að bæla niður uppþot fanga þegar byl- urinn reið yfir landið. Þakplötur rifn- uðu af fangelsinu í látunum og nokkrir fangar kveiktu þá eld til að hlýja sér. Aðrir urðu skelfingu lostn- ir og skutu þá verðir og hermenn á fangana. Óttast að tugir þúsunda hafi farist  Herforingjastjórnin í Búrma gagnrýnd fyrir að hafa lítið gert til að vara við fellibylnum  Stjórnin kveðst ætla að þiggja alþjóðlega neyðaraðstoð Reuters Ægikraftur Börn sitja á tré, sem rifnaði upp með rótum, við heimili þeirra í Yangon eftir fellibylinn ógurlega. FORSETI Senegals, Abdoulaye Wade, segir að rekstur Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, sé „sóun á pen- ingum“ og leggja ætti stofnunina niður. Stofnunin hefur nýlega kynnt neyðaráætlun sem hefur að mark- miði að stemma stigu við ört hækk- andi matvælaverði í heiminum sem einkum kemur hart niður á fátæku fólki í þróunarríkjunum. Aðalstöðvar FAO eru í Róm og yf- irmaður hennar er landi Wades, Jacques Diouf. Wade, sem er þekkt- ur fyrir að vera ómyrkur í máli, sagði að í raun væri hátt heims- markaðsverð á mat stofnuninni sjálfri að kenna, svo gersamlega vanhæf væri FAO til að fást við verkefnin sem henni væru falin. Við- varanir myndu ekki bera árangur. „Yfirmaðurinn er hæfur … en það er sjálf stofnunin sem ég set spurning- armerki við,“ sagði Wade í útvarps- og sjónvarpsávarpi. Forsetinn sagðist lengi hafa barist fyrir því að aðalstöðvar FAO yrðu fluttar, þær ættu að vera í Afríku, álfunni þar sem mest er um hungur. „Að þessu sinni geng ég lengra, við verðum að leggja hana niður,“ sagði hann og bætti við að aðrar stofnanir væru að vinna sömu verkin og „að því er virðist með meiri árangri“. Önnur stofnun á vegum SÞ, Al- þjóðastofnun landbúnaðarþróunar, IFAD, tilkynnti í liðinni viku að verja ætti 200 milljónum Banda- ríkjadollara, um 15 milljörðum króna, í aðstoð við fátæka bændur í löndunum sem hafa orðið verst úti vegna hækkandi matarverðs. Pen- ingana á að nota til að ýta undir mat- vælaframleiðslu í löndunum. En að sögn Wades hefur FAO á sama tíma beðið um 1,7 milljónir dollara, um 130 milljónir króna, til að fjármagna „neyðaráætlun sem miðar að því að dreifa útsæði og áburði til að auka landbúnaðarframleiðslu“. Taldi Wade að munurinn á þessum fram- lögum sýndi vel hvernig FAO væri smám saman að lenda á jaðrinum í starfi SÞ. Vill leggja FAO niður Forseti Senegals segir að rekstur Matvæla- og landbún- aðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna sé „sóun á peningum“ Í HNOTSKURN »Yfirmaður FAO, JacquesDiouf, hvatti nýlega til þess að starf SÞ yrði tekið til endur- skoðunar. Kvartaði Diouf undan því að ólík stefna ýmissa al- þjóðastofnana hindraði FAO í að ná árangri. Heimsmarkaðsverð á matvælum hefur nær tvöfaldast á síðustu þremur árum. ÞAÐ SEM FAGMAÐURINN NOTAR! H L E Ð S L U BORVÉL • Ákaflega létt og einstakt jafnvægi • Án kola, níðsterkur EC-TEC mótor • FastFix smellupatrónur • 42 gírar með nákvæmari átaksstillingu og rafeindastýrðu „cut-out“ sem eykur endingu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.