Morgunblaðið - 06.05.2008, Side 19
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 19
!
"
# !
$
%
& #
# '()*$ + ,-
#
% "
.$
/
0 0
1
#
."
.
2
$
3
4/56789:548;9< *'- ,)==
8
#
64
+
1
>?
>>
>=
!" # $
%
' '?
- kemur þér við
Sérblað um bíla
fylgir blaðinu í dag
Megrunarlausum
degi fagnað á Íslandi í
þriðja sinn
Íslendingar eru farnir
að spara og leggja nú
peninga inn í banka
Páll Óskar má ekki
vera að því að fara á
Evróvisjón
Hvar verður Bjarni
Fel á Evrópumótinu í
knattspyrnu í sumar
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Á fyrstu dögum sumars hefur veðr-
áttan verið köld. Gróður er ekkert
farinn að taka við sér og jörð grá yf-
ir að líta. En það er þó ýmislegt sem
bendir til þess að vorið sé á næsta
leiti. Eyjabændur og smábáta-
eigendur eru flestir búnir að setja
báta sína á flot og eru að undirbúa
vorverkin. Ferðamenn eru farnir að
láta sjá sig í bænum. Um helgina
komu nokkrir hópar ferðamanna og
Sæferðir sigldu þrjár ferðir um
Breiðafjörð á laugardag með far-
þega. Fólk sem stundar ferðaþjón-
ustu er bjartsýnt í byrjun vertíðar
og á von á að Stykkishólmur laði til
sín fjölda gesta enda hefur ferða-
mönnum fjölgað stöðugt og setja
þeir sterkan svip á bæjarlífið yfir
sumarið.
Á morgun heimsækja Hólminn tign-
ir gestir. Friðrik krónprins Dan-
merkur og Mary eiginkona hans
koma í heimsókn í fylgd með for-
setahjónum okkar. Gestirnir munu
heimsækja grunnskólann og þar er
bæjarbúum boðið að vera viðstaddir
og taka þátt í heimsókninni. Gest-
irnir heimsækja Vatnasafnið,
Norska húsið og heimsókninni lýkur
með siglingu út á Breiðafjörðinn.
Það hefur löngum verið talað um að
í Stykkishólmi lifi enn dönsk áhrif.
Sagt var að Hólmarar hefðu verið
flottir á því og talað dönsku á
sunnudögum. Víst er um það að
Hólmurum er hlýtt til dönsku þjóð-
arinnar og árlega halda bæjarbúar
sína sumarhátíð, Danska daga.
Danska fánanum verður víða flagg-
að á morgun því hann er til á mörg-
um heimilum.
Bæjarbúar hafa verið mjög duglegir
að flokka heimilissorpið frá því að
flokkunin hófst í byrjun febrúar.
Bæjaryfirvöld stefndu að því að
minnka urðun úrgangs um 60-70%
fyrsta árið. Þetta markmið náðist
strax eftir fyrsta mánuðinn. Sam-
kvæmt nýjustu tölum fara tveir
þriðju hlutar af heimilissorpi í end-
urvinnslu og moltugerð og aðeins
þriðjungur fer til urðunar. ESB hef-
ur gefið út þá tilskipun að minnka
allt lífrænt sorp um 65% fram til
ársins 2020. Þessi skilyrði hafa
Hólmarar uppfyllt nú þegar því héð-
an fer ekkert lífrænt sorp til urð-
unar. Þetta er mjög góður árangur.
Bæjaryfirvöld telja að góð kynning
á verkefninu sem fór fram meðal
íbúa í upphafi hafi skilað árangri og
eins að bæjarbúar voru strax já-
kvæðir fyrir því að vel tækist til.
Hólmarar eru að temja sér hugs-
unina: „Hugsum áður en við hend-
um.“
Ár er liðið síðan Vatnasafn Roni
Horn í Stykkishólmi var formlega
vígt. Safnið hefur vakið mikla at-
hygli þetta fyrsta starfsár. Stór
hluti ferðamanna sem heimsækja
Hólminn kemur þarna við til að
skoða listaverk Roni Horn. Einn
þáttur í starfsemi Vatnasafnsins er
að bjóða rithöfundum til dvalar í
safninu. Þar hefur verið innréttuð
íbúð þeim til afnota. Gestirnir eru á
launum meðan þeir dvelja og nota
tímann til skrifta og eins eiga þeir
að hafa góð samskipti við bæjarbúa.
Fyrsti rithöfundurinn sem dvaldi á
Vatnasafninu var Guðrún Eva Mín-
ervudóttir. Í vikubyrjun kom næsti
gestur. Hann er frá Bandaríkjunum.
Það er rithöfundurinn Rebecca Sol-
nit. Hún skrifar óvenjulegar bækur,
ekki skáldverk heldur hugleiðingar
um heiminn og ýmsa þætti í mann-
legu atferli. Rebecca dvelur hér
næstu þrjá mánuði.
Körfuboltinn hefur verið bæj-
arbúum ofarlega í huga í vetur. Af
miklum áhuga hafa þeir fylgst með
góðu gengi liðs Snæfells í barátt-
unni um Íslandsmeistaratitilinn.
Liðinu tókst ekki að ná þeim titli, en
varð í öðru sæti. Félagið náði til við-
bótar að verða bikarmeistarar. Það
er góður árangur hjá liði sem hefur
ekki stærra bakland en 1.100 manna
samfélag. Þennan góða árangur má
ekki síst þakka þjálfara liðsins, Geof
Kotila. Hann er nú á förum eftir
tveggja ára starf. Samningstími
hans er útrunninn og hann sá sér
ekki fært að framlengja hann. Vinna
við ráðningu nýs þjálfara er í fullum
gangi. Kvennalið Snæfells í körfu-
bolta skilaði ekki síðri árangri en
karlarnir. Þær unnu 1. deild Ís-
landsmótsins með glæsibrag. Því
leika bæði karla- og kvennalið í úr-
valsdeild í körfubolta næsta vetur.
STYKKISHÓLMUR
Gunnlaugur Árnason fréttaritari
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Svipmikil Ráðhúsið, Norska húsið og Clausenshús sóma sér glæsilega í
bæjarmyndinni í Stykkishólmi og setja svip á bæinn.
Vorannir eru byrjaðar, skrifarJón Gissurarson, og fyrsta
lambið fæddist á Víðimýrarseli í
liðinni viku:
Yndið betra verður valla
vorið eykur gleðibrag.
Kuldans vígi fer að falla
fyrsta lambið kom í dag.
Fyrir nærri fjörutíu árum áttu
Ármann Þorgrímsson, Hjálmar
Jónsson og Ari Friðfinnsson saman
næturvöku og varð Aldarfarsríman
til, sem var meira en fimmtíu vísur.
Byrjunin er svohljóðandi:
Dimm er nótt við Norðurpól
nornir óttans brýna tól
blómið rjótt til bana kól
brá á flótta himinssól.
Eykst nú þvarg með okkar þjóð
eyrun sarga bítilhljóð
eltir margur yngisfljóð
eins og vargur rolluslóð.
Nú er tími nýr á jörð
náhvítt hrímið hylur svörð
eðlisglíma iðkuð hörð
ástarbríma knúin hjörð.
Undirleiðin oft er þrædd
Amors veiðin tíðum rædd
mögnuð seið og meyjan frædd
um mannsins neið og hún afklædd
Senn nú endar söngur minn
um sælubrenndan mannheiminn
ég því vendi á veginn þinn
þó víst það lendi á sorphauginn.
Loks „Yfirlýsing“
Magnúsar Óskarssonar:
Ég segi það bara sjálfur
og segi svo ekki meir:
Ég held ég sé betri hálfur
heldur en flestir tveir.
VÍSNAHORNIÐ
Af lambi
og aldarfari
pebl@mbl.is
kljá rimmuna. Boston
laut í tré í öllum úti-
leikjunum en það varð
liðinu til happs að það
átti heimaleikjarétt-
inn og það verður
ekki frá þeim grænu
tekið að þeir kláruðu
viðureignina með bra-
vör í Boston-
garðinum á sunnudag-
inn, lögðu Atlanta þá
með 34 stiga mun, 99-
65. Boston Celtics
hefur til þessa verið
talið sigurstrangleg-
ast í NBA í vetur en
nú er spurning hvort
menn þurfi að endur-
skoða þá afstöðu eftir þetta
óvænta basl.
x x x
Það hrósuðu fleiri sögufræg liðsigri á sunnudag. Þannig
bjargaði Southampton sér frá falli
í næstneðstu deild í ensku knatt-
spyrnunni. Víkverji þekkir nokkra
eldheita stuðningsmenn „Dýrling-
anna“ og veit að þeir anda nú létt-
ar eftir að hafa verið með hjartað
í brókinni um nokkurra vikna
skeið. Allt er gott sem endar vel.
Loks má Víkverji til með að
óska gömlum skólabróður sínum,
Axel Stefánssyni, til hamingju
með Noregsmeistaratitilinn í
handknattleik.
Víkverji var heldurseinn að kaupa í
matinn síðastliðinn
sunnudag, kom við í
Krónunni laust fyrir
kvöldmat. Það vakti
athygli hans að hill-
urnar voru heldur
gisnar, heilu metr-
arnir auðir, og aug-
ljóst að ekki hafði
verið fyllt í þær í
nokkurn tíma. Fyrir
vikið fékk Víkverji
ekki allt sem hann
þurfti á að halda sem
gerist annars sára-
sjaldan í þessari
ágætu verslun. Vík-
verji skilur að helgi er helgi og
ekki er starfað af fullum þunga í
verslunum en er það verjandi í
hörðu umhverfi samkeppninnar að
fylla ekki í hillur heila helgi í mat-
vöruverslun á Íslandi?
x x x
Víkverji hefur lúmskt gaman afNBA-körfuboltanum og fékk
vægt klums yfir harðlífi sigursæl-
asta liðsins í vetur, Boston Celtics,
í fyrstu umferð úrslitakeppninnar
gegn Atlanta Hawks. Boston var
með 80% vinningshlutfall í deilda-
keppninni en Atlanta aðeins 45%
(það lakasta af öllum liðum sem
komust í úrslitakeppnina) en samt
sem áður þurfti sjö leiki til að út-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
ókeypis
smáauglýsingar
mbl.is