Morgunblaðið - 06.05.2008, Page 21

Morgunblaðið - 06.05.2008, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 21 Í DAG fögnum við fegurð af öllum stærð- um og gerðum, við fögn- um mannfólkinu eins og það er. Í dag er megr- unarlausi dagurinn. Okkur er ekki ætlað að gleyma okkur í óholl- ustu í allan dag, því dag- urinn réttlætir ekki sjúklegt ofát frekar en sjálfsvelti. Við höfum hins vegar öll fullan rétt á því að njóta lífsins, elska okkur sjálf og vera elskuð, þó svo að við séum í afar mismunandi stærðum og gerðum. Þannig er jú lífið þó svo að margir vilji steypa alla í sama mótið. Heilsa óháð holdafari Mest um vert í lífinu er að halda heilsu. Við getum gert ýmislegt til að bæta andlegt og lík- amlegt heilbrigði okkar og snýst það í fáum orðum um að styrkja líkamann, borða næringarríka fæðu og hreyfa sig reglulega. Það er rík tilhneiging til að tengja milli þess að vera grannur og heil- brigður og feitur og óheilbrigður. En svo þarf alls ekki að vera. Margir grannir eru í lélegu lík- amlegu ásigkomulagi og svo er hægt að vera feitur í góðu formi. Ég þekki það af eigin reynslu að líða illa vegna aukakílóa. Sú vanlíðan er merkilegt nokk alveg óháð því hvort ég sé í góðu formi eða ekki. Ástæðan er margþætt en vafalífið hefur áhrif að ég fell ekki að staðalímyndinni. Ég geri þær óraunhæfu kröfur til mín að vera eitthvað sem ég hvorki get né vil vera. Staðalímyndin eða viðmiðið um hver er of feitur eða þybbinn dregur dám af því sem við- urkennt er í fjölmiðlum og sam- félaginu. Ég er ekki ein um að hafa þessar áhyggjur því staðal- ímyndirnar eru ákaflega fjarri raun- veruleikanum. Sem dæmi þá eru þrír milljarðar kvenna í heiminum sem ekki líta út eins og súpermódel en það eru bara 10 sem gera það. Samt erum við að fást við viðmið sem súpermódelin setja og í því fel- ast holdafarsfordómar. Sund fyrir sjálfstraustið Besta ráðið sem ég þekki gegn holdafarsfordómum og lélegu lík- amlegu sjálfsmati er að stunda sund. Fátt er betra fyrir sjálfs- traustið en sund auk þess sem það eykur víðsýni manns á mannslíkam- anum nánast óendanlega. Það er því ástæða til að fagna okkar góðu ís- lensku sundlaugarmenningu. Við lærum að líkamar okkar eru ótrú- lega fjölbreyttir og engin er að býsnast yfir því hvernig konan í næstu sturtu lítur út. Þetta eigum við að hafa í huga þegar við föllum í gryfju dómhörkunnar gagnvart okk- ur sjálfum, dæmum okkur sjálf fyrir eigið holdafar, óháð orkunni og út- haldinu sem við höfum hverju sinni. Við megum þá muna að við dæmum ekki aðra á sama hátt. Við metum fólkið okkar, vini kunningja af öllu öðru en kílóafjöldanum. Við metum sem betur fer persónuleikann, fram- komuna og útgeislunina. Í Biblíunni segir „Elska skaltu náunga þinn eins og sjálfan þig“. Ég vil bæta við: ,,og sjálfan þig eins og náungann!“ Njótum megrunarlausa dagsins og veitum athygli því yndislega fólki sem er allt í kringum okkur og upp- fyllir ekki kröfur staðalímyndanna. Látum ekki staðalímyndir koma í veg fyrir að vera við sjálf. Fögnum fjölbreytileika mannslíkamans Björk Vilhelmsdóttir skrifar í tilefni af megrunarlausa deg- inum, sem er í dag » Það er rík tilhneig- ing til að tengja milli þess að vera grannur og heilbrigður og feitur og óheilbrigður. En svo þarf alls ekki að vera. Björk Vilhelmsdóttir Höfundur er félagsráðgjafi og borg- arfulltrúi Samfylkingarinnar. TILLÖGUR þær sem kynning fer nú fram á í Salnum í Kópavogi eru auðvitað talsvert mismunandi og að sjálfsögðu í þeim góð- ir bjórar, en frá þeim liggja þó þræðir sem tvinnast saman að einhverjum sameig- inlegum punkti. Eitt- hvað truflar mann og gerir enga tillögu beinlínis grípandi eða heillandi. Þessi sam- eiginlegi punktur eða leiðarhnoða virðist leiða mann helst að einhverskonar hreyk- istíl. Einskonar yfirkeyrður hreyk- istíll einkennir allar tillögurnar og gerir að verkum að húsin sem gerð er tillaga að geta engan veginn hvílt í sátt við umhverfið og húsin sem fyrir eru. Engin samtvinnuð heild myndast með þeim. Húsin nýju æpa á meira rými og ýta við þeim sem fyrir eru. Allur skali týn- ist, húsin eru stærðarlega úr takt. Að öðru leyti virkar stíll tillagna á margan hátt ekki frumlegur, held- ur í einskonar undarlegu samhengi eða sambandi við önnur óperuhús í nágrannalöndum. Síst á þetta við um tillögu þá sem ýtt hefur verið út af borðinu, þar sýnir sneiðing að ekki er farið upp fyrir Kópavogskirkju og virki- lega er reynt að vinna með úti- rýmið milli menningarhúsanna. Haldið er upp á ásinn sem liggur frá torginu milli bókasafns og tón- listarhúss. Hann er ótruflaður og Kópa- vogskirkja hvílir þar á þeim stalli sem hún á skilið. Torgið á milli er rýmra og byggingin lægri. Vandi teiknara er mikill, því tónninn hef- ur þegar verið sleginn hvað varðar mörg at- riði, svæðið, eða lista- torgið, hefur nú þegar yfirbragð agaðs glæsi- leika, bæði hvað varð- ar skala, útirými, form og áferð. Samt er yfirbragð lista- torgsins nútímalegt og frumlegt, ögrandi hvað varðar ýmsa þætti eins og línur og áferð. En fyrst og fremst ákveðni og hugrekki. Tek- ist hefur í senn að mynda þægi- legt, spennandi og aðlaðandi um- hverfi. En kannski vantar þarna punktinn yfir i-ið, en hann verður að lúta sömu öguðu sköpunargleð- inni. Aðalatriði er þó það að tillögur þessar virða engan veginn þá hóg- værð og kyrrlátu tign sem ein- kennt hefur Kópavogskirkju sem kennileiti á höfuðborgarsvæðinu. Minnismerki um stórhug og bjart- sýni ungs bæjarfélags á mótunar- árum þess og þeirrar kynslóðar er skóp það. Það hlé sem nú verður á úr- vinnslu tillagnanna á að nota vel og helst að finna þessari byggingu nýjan stað þar sem meira rými er til þess að hún fái notið sín. Auð- vitað er freistandi að hið nýja óp- eruhús sé hluti af umhverfi lista- torgsins en stærðarlega virðist erfitt að svo sé. Legg til við þau yfirvöld sem fara með mál óperuhússins í Kópa- vogi að þau endurskoði vel stað- setningu hússins, t.d. út á hafn- arsvæðinu á Kársnesi. Með slíkri staðsetningu væri nýju kennileit bætt í bæjarmynd Kópavogs í stað þess að skyggja á það sem hefur sómt sér vel í 50 ár. Ó, ó, óperuhús Valdimar Harðarson skrifar hugleiðingu eftir skoðun á þremur tillögum í samkeppni um Óperuhús í Borgarholtinu í Kópavogi. Valdimar Harðarsson » Aðalatriði er þó það að tillögur þessar virða engan veginn þá hógværð og kyrrlátu tign sem einkennt hefur Kópavogskirkju sem kennileiti á höfuðborg- arsvæðinu. Höfundur er landslagsarkitekt FÍLA. OLÍUVERÐ er nú í hæstu hæð- um og þegar þetta er ritað selst tunnan á um 117 Bandaríkjadali. Orsakasamhengið á bak við hátt olíuverð er flókið en aðalatriðið er að olían er takmörkuð auðlind og brennsla hennar veldur mengun. Bílar og önnur far- artæki nota mikla orku og menga gríð- arlega. Að hluta er ástæðan sú að eig- endur ökutækja og ökumenn bera ekki byrðar í samræmi við þá mengun sem þeir valda né þann til- kostnað sem hlýst af bílaeign og sam- göngum. Ofan í kaup- ið er umhverfiskostn- aður nánast ekki inni í myndinni. Ástæðan fyrir lágum kostnaði bíleigenda er einkum tvíþætt: Annars vegar óbeinar samfélags- legar niðurgreiðslur á samgöngumann- virkjum og vegakerfi. Hins vegar er ytri kostnaður vanmetinn, óskilgreindur og/eða ekki metinn til fulls. Innri kostnaður Samfélagslegur kostnaður sem hlýst af flutningum á vörum og fólki er að miklu leyti í hlutfalli við eknar vegalengdir en kostnaður ökumanna endurspeglar ekki þann kostnað. Tökum dæmi. Vegagerð og við- hald samgöngumannvirkja er al- mennt á kostnað allra skattgreið- enda. Þessi kostnaður breytist ekki hvort sem bíleigandi ekur mikið eða lítið. Afleiðingin er sú að með auknum akstri eykst sam- félagslegur kostnaður. Kostnaður við gerð og viðhald bílastæða er mikill og iðulega er engin gjaldtaka á bílastæðum hjá fyrirtækjum og stofnunum. Þessi staðreynd veitir einkabílum for- skot á annan og umhverfisvænni samgöngumáta. Almenn gjaldtaka fyrir bílastæði gæti bæði dregið úr eldsneytisnotkun og mengun. Jafn- framt myndi draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda sem valda hlýnun andrúmslofts. Einkavæðing samgöngumannvirkja gæti verið liður í því að nálgast raunkostnað á hvern notanda samgöngu- mannvirkja. Ytri kostnaður og ytri þættir Þeir sem að eigin vali aka um götur og vegi bera því ekki kostn- að í fullu samræmi við notkun sína heldur eru það aðrir sem bera kostnaðinn að talsverðum hluta. Vegaslit af völdum flutningabíls með tengivagn getur verið mörg þúsund sinnum meira en fólksbíls. Samfélagslegur kostn- aður vegna umferð- arslysa er í samhengi við eknar vegalengdir. Því lengra og því meira sem ekið er, því fleiri verða slysin og aukinn kostnaður hlýst af völdum slysa. Þrátt fyrir að mann- tjón, slys og eignatjón sé greitt með iðgjöld- um tryggingafélaga og ætti þar af leiðandi samkvæmt ísköldu mati að koma nokkurn veginn út á sléttu er engu að síður ljóst að samfélagslegur kostnaður vegna um- ferðarslysa er gríð- armikill. Mörg tár þorna aldrei og sum ör hverfa ekki þó þau geti gleymst. Umferðaröngþveiti á vanhönnuðu og löngu sprungnu gatnakerfi lengir þann tíma sem tekur fólk að komast á milli staða. Þetta tímatap er ekki metið til fjár. Mengun vegna út- blásturs og svifryks skaðar heilsu bæði ökumanna, farþega og fólks sem er í grennd við miklar um- ferðaræðar. Afleiðingar Vanmat og reyndar rangt mat á kostnaði við samgöngur og um- ferðarmannvirki er afdrifaríkt. Mannslífum er fórnað. Of mörg ökutæki eru á götunum. Of langt er ekið og of margar ferðir eru farnar. Mikil orkusóun verður og mengun frá ökutækjum og far- artækjum er gegndarlaus. Al- menningssamgöngur, hjólreiðar og umferð gangandi er ekki meiri en raun ber vitni m.a. vegna þess að kostnaður við samgöngur er van- metinn og bjagaður. Kostnaður við landflæmi sem fara undir umferðarmannvirki er stórlega vanmetinn. Lágur flutn- ingskostnaður stuðlar einnig að dreifðri byggð og því að fólk vinn- ur og verslar fjarri heimilum sín- um. Og dreifðri byggð er dýrt að þjóna með almenningssamgöngum. Út frá umhverfissjónarmiði er þessi þróun öfugþróun. Umhverfiskostnað- ur og samgöngur Steinn Kárason fjallar um samgöngumál » Ökumenn bera ekki byrðar í sam- ræmi við mengun né þann til- kostnað sem hlýst af bílum og samgöngum. Umhverfiskostn- aður er nánast ekki inni í mynd- inni. Steinn Kárason Höfundur kennir auðlindahagfræði við háskólana á Bifröst og á Akureyri. UM MIÐJAN apríl birtu fjöl- miðlar viðtöl við votlendisfræðing- inn William J. Mitsch. Morgunblaðið hefur eftir honum: „að öfl- ugasta aðgerð sem Íslendingar geta beitt til að minnka magn koldíoxiðs í loft- hjúpnum sé að end- urheimta votlendi“ og „um leið mynduð þið sjá aftur fuglana og annað í lífríkinu sem glataðist þegar svæð- ið var ræst fram.“ Þessi staðreynd er löngu þekkt á Íslandi. Sl. sumar birti Viðskiptablaðið ítarlega grein eftir Ólaf Teit Guðnason. Þar er fjallað um árlega losun koldíoxíðs úr framræstu landi. Þar kemur fram að hér á landi hafa verið þurkaðir um 4.000 ferkílómetrar af votendi sem losar nú árlega um 7,2 milljónir tonna af koldíoxíði. Að auki tapast árleg kolefnisbinding þess votlendis, sem var. Langmestur hluti þessa eyði- lagða votlendis var aldrei nýttur og er enn óræktaður úthagi. Skurð- irnir voru grafnir til þess eins að eftir þeim gæti runnið fé úr rík- issjóði. Á snærum Guðs Um 1.000 ferkíló- metrar af þessu eyði- lagða votlendi eru á Suðurlandi. Þeir losa árlega um 1,8 milljón tonna af koldíoxíði. Á Suðurlandi eru náttúruverndarsamtök, sem kalla sig Sól á Suðurlandi. Þau hafa það yfirlýsta markmið að berjast gegn losun á mengandi loftteg- undum. Þau efndu m.a. til samkomu í Fríkirkj- unni í Reykjavík til að andmæla vatnsinntaki fyrir virkjun neðst í Þjórsá. Af því tilefni sagði aðstoð- arprestur Fríkirkjunnar að Þjórsá væri sköpun Guðs og kirkjunni bæri að standa vörð um sköp- unarverk Guðs. Keldusvínið er út- dautt og þórshani nánast líka, flór- goðinn er á sömu leið og lómurinn fáséður. Því væri fróðlegt að fregna frá presti hvort lífríkið, sem nærir þessa fugla, sé ekkert á snærum Guðs. Hræsni Venjulegur heimilisbíll losar um 4 tonn á ári af koldíoxíði. Sam- kvæmt því losar framræst votlendi Suðurlands árlega jafnt og 450 þúsund heimilisbílar. Það kostar lítið að minnka þessa mengun um mörg hundruð þúsund tonn á ári. Vilji er allt sem þarf. Þegar félagar í Sól á Suðurlandi halda kirkjusamkomu til að vernda lífríki og lofthjúp jarðar og stein- þegja svo þar um mögulega end- urheimt vistkerfis, sem eyðilagt var í þeirra eigin heimabyggð, og losar til himins 1,8 milljónir tonna af kolefni á ári, þá finnst mér tal þeirra um náttúruvernd vera marklaus hræsni og þeim til skammar. Hræsni og Sól á Suðurlandi Birgir Dýrfjörð skrifar um losun koldíoxíðs Birgir Dýrfjörð » 1000 ferkílómetrar af þessu eyðilagða vot- lendi eru á Suðurlandi. Þeir losa árlega um 1,8 milljónir tonna af kol- díoxíði. Höfundur er í flokksstjórn Samfylkingarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.