Morgunblaðið - 06.05.2008, Page 24

Morgunblaðið - 06.05.2008, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN HVAÐ er Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsókn- arflokksins, alltaf að tönglast á að landsfundur Sjálf- stæðisflokksins hafi samþykkt að einka- væða heilbrigðisþjón- ustuna? Síðast í Silfri Egils á sunnudaginn, margítrekað. Þetta er einfald- lega útúrsnúningur og þessi makalausa síbylja Sivjar er satt að segja nokkuð þreytandi, ekki síst þar sem vitað er að hún er vísvítandi að reyna að blekkja al- menning með slíkum málflutningi. Hvorki í lands- fundarályktun Sjálf- stæðisflokksins um velferðarmál, né í stjórnmálaályktun flokksins má finna tilvísun í að Sjálf- stæðisflokkurinn vilji einkavæða heilbrigð- iskerfið. Í landsfund- arályktun Sjálfstæð- isflokksins um vel- ferðarmál er m.a. talað um „fjölbreytt rekstrarform“, að „heilbrigð- isþjónusta sé að mestu greidd úr sameiginlegum sjóðum“; að „fjár- veitingar séu í samræmi við þarf- ir, umfang og eðli þjónustunnar á hverjum tíma“; að „sjálfstæðum aðilum verði í auknum mæli gefið færi á að taka að sér verkefni á sviði heilbrigðis- og velferðarþjón- ustu og að kostir einstaklings- framtaks verði nýttir á þessu sviði“. Þetta hljómar illa við hug- myndir um einkavæðingu heil- brigðisþjónustunnar, í þeirri merkingu sem hugtakið hefur ver- ið skilið, þ.e. að bæði rekstur og fjármögnun hennar yrði á höndum einkaaðila, yfirleitt með stór- auknum kostnaði fyrir sjúklinga. Um það eru ekki hugmyndir uppi í okkar samfélagi og Sjálfstæð- isflokkurinn hefur ekki ályktað í þá veru. Siv teygir sig hins vegar heldur langt því hún telur sig senni- lega fá festu í mál- flutning sinn í ályktun Sjálfstæðisflokksins um iðnaðarmál en þar er fjallað um að einka- væðing ríkisfyrirtækja hafi leyst úr læðingi mikla krafta sem hafi verið til auðnu fyrir alla þjóðina. Þar er m.a. rætt um hve ný- sköpun og þróun- arstarf á vegum einkaaðila hafi skilað miklum árangri og í því skyni hvatt til frekari aðkomu einka- aðila á sviði mennta-, heilbrigðis- og orku- mála. Með tilvísun í ályktun flokksins um velferðarmál er skýrt að einkavæðing heil- brigðisþjónustunnar í þeim skilningi sem að framan er lýst er hins vegar ekki á döfinni. Siv getur því andað rólega og næst þegar hún tekur upp þennan málflutning má öllum vera ljóst að hennar eini tilgangur er að afvegaleiða um- ræðuna. Svo virðist reyndar vera sem þingmenn Framsóknarflokks- ins telji sig helst ná árangri í mál- flutningi sínum með því að stunda slíkan útúrsnúning og hálfsann- leik, þess eru nokkur dæmi upp á síðkastið, en slíkur leikur er ekki farsæll neinum stjórnmálamanni til lengri tíma. Siv með útúrsnúning Ásta Möller gerir athugasemd- ir við málflutning Sivjar Frið- leifsdóttur Ásta Möller »Hvergi í landsfund- arályktun um velferðarmál, né í stjórnmála- ályktun má finna tilvísun í að Sjálfstæð- isflokkurinn vilji einkavæða heil- brigðiskerfið. Höfundur er þingmaður Sjálfstæð- isflokksins og formaður heilbrigð- isnefndar Alþingis. ÞAÐ MÁ með sanni segja að það hafi verið gaman að fylgjast með leikritinu sem Bæjarmálafélag Bol- ungarvíkur setti á fjalirnar á dögunum enda þarf það ekki að koma á óvart þar sem til voru kallaðir at- vinnumenn úr leik- arastétt sem tóku virkan þátt í upp- færslunni. Ekkert var til sparað til að tryggja kastljós fjöl- miðla á leiksviðið á meðan Bolungarvík var í sárum. Allir fengu frítt inn. Meðan athygl- isþörfin réð ríkjum leið hinn al- menni borgari fyrir ástandið. Úr dagbókinni Ég varð 32 ára mánudaginn 21. apríl síðastliðinn. Ég bjóst við að eiga notalega kvöldstund í faðmi fjölskyldunnar en símtöl og sms- skilaboð frá Grími Atlasyni bæj- arstjóra rufu friðinn. Skilaboðin voru þess eðlis að það var ljóst að hlutirnir voru ekki eins og þeir áttu að vera. Áður en afmælisdag- urinn var á enda runninn voru leiktjöldin dregin frá með hvelli – meirihlutinn var sprunginn! Það kom mér spánskt fyrir sjónir þegar bæði Soffía Vagns- dóttir oddviti K-listans og Grímur Atlason fráfarandi bæjarstjóri létu hafa það eftir sér í fjölmiðlum að þeim hafi komið meirihlutaslit A- og K- lista í Bolungarvík á óvart. Þessi slit komu mér ekkert á óvart. Ég hafði á undanförnum mánuðum orðið þess áskynja að það var vaxandi ágreiningur og órói í meirihluta- samstarfinu. Þetta kom m.a. fram í sam- tölum mínum við ein- staklinga á framboðs- listum beggja aðila. Undir lok síðasta árs hafði bæjarfulltrúi K- listans jafnvel gengið svo langt að segja mér að sambúðin með A-listanum væri orðin mjög erfið. Sú erfiða sambúð var þá þegar á vörum margra bæjarbúa. Það hefur verið haft eftir Grími Atlasyni í fjölmiðlum að það komi honum á óvart að A- og D-listi ætli að fara að vinna saman í bæj- arstjórn Bolungarvíkur. Það vita allir að A-listinn varð til eftir klofning í Sjálfstæðisflokknum fyrir tveimur árum og er ekki hægt að leyna því að flokkurinn var í sárum eftir síðustu sveitar- stjórnarkosningar. Það er heldur ekki hægt að leyna því að Anna Guðrún Edvardsdóttir oddviti A- listans hefur ekki vandað Sjálf- stæðisflokknum kveðjurnar á bæj- arstjórnarfundum. En hún er ekki ein um það. Bæjarfulltrúar K- listans notuðu hvert tækifæri sem þeir höfðu til að koma höggi á Sjálfstæðisflokkinn. Upptökur frá bæjarstjórnarfundum bera því glöggt vitni. Að gera góðan bæ betri Ég er þannig uppalinn að for- eldrar mínir kenndu mér ýmis góð gildi sem ég hef reynt að tileinka mér í lífinu. Þar má nefna mikil- vægi sáttarinnar og fyrirgefning- arinnar. Það er ekkert leyndarmál að ég hafði fyrirgefið oddvita A- listans að hafa klofið sig frá flokknum fyrir tveimur árum. Ég hafði einnig fyrirgefið ýmis ófögur orð sem fylgismenn A og K lista höfðu um Sjálfstæðisflokkinn í kringum síðustu kosningar. Og ég mun eflaust á einhverjum tíma- punkti fyrirgefa ýmis ófögur um- mæli sem fallið hafa í hita leiksins síðustu daga. Þegar ég bauð fram krafta mína til setu í bæjarstjórn var ég stað- ráðinn í að lofa Bolvíkingum að njóta krafta minna til að gera góð- an bæ betri. Ég gerði mér einnig grein fyrir því ég gat bæði lent í meirihluta og minnihluta. Samt sem áður ætlaði ég ekki að sitja með hendur í skauti þótt ég myndi starfa í minnihluta. Ég tel mig hafa unnið ágætlega með þeim meirihluta sem starfað hefur und- anfarin tvö ár. Slíðrum sverðin Það hefur ríkt stríðsástand milli sumra íbúa Bolungarvíkur und- anfarna daga. Í hita leiksins hafa menn látið ýmis ófögur orð falla. Það kann ekki góðri lukku að stýra. Bolungarvík er aðeins 900 manna sjávarþorp sem þolir illa innbyrðis erjur og deilur á milli manna. Lýðræðisleg niðurstaða kosn- inga í fulltrúalýðræði gengur út á að a.m.k. fjórir fulltrúar mynda meirihluta í sjö manna bæjar- stjórn; má þá einu gilda hvaða fjórir fulltrúar það eru og í hvaða flokki þeir standa. Það sem mest er um vert er að milli þessara fjögurra fulltrúa ríki trúnaðar- traust. Sjaldnast er niðurstaða kosninga öllum að skapi en mik- ilvægt er að hún sé virt. Af áhorfendapöllunum Baldur Smári Einarsson skrifar um bæjarstjórnarmál á Bolungarvík » Þessi slit komu mér ekkert á óvart. Ég hafði á undanförnum mánuðum orðið þess áskynja að það var vaxandi ágreiningur og órói í meirihluta- samstarfinu. Baldur Smári Einarsson Höfundur er bæjarfulltrúi D-listans í Bolungarvík. Margt er maður búinn að heyra frá skammsýnum pólitíkusum og fjárþurfandi viðskiptalífsfulltrúum um nauðsyn þess að við göngum í Evrópusambandið. Það gengur stöðugt þessi síbylja um að við getum ekki staðið á eigin fótum og það eina vitlega í stöðunni sé að íslenska þjóðin gerist próventulýður hjá hinu stórkostlega Brusselkompaníi! Þeir sem hæst hafa galað í þessum efnum, eiga það yfirleitt sam- merkt að vera áhang- endur Samfylking- arinnar eða nálægt hennar áhrifasviði. Það er því ekkert nýtt að heyra í slíkum „sendiherrum“ og oft- ast lætur maður óþjóðlegt málæði þeirra eins og vind um eyrun þjóta. Samt er það hvim- leitt að heyra fólk af eigin þjóð tala um sjálfstæði landsins sem einhverja skiptimynt, heyra hvernig gjaldmiðill landsins er rakkaður niður af þessu krataliði samhliða því að evran er lofsungin sí og æ. Það er hamast við það að níða niður þjóðrækin sjónarmið og forusta Samfylkingarinnar virðist óðfús vilja senda fullveldisrétt okk- ar til Brussel, í þeirri trú að þar sé hagsmunum okkar betur borgið en í höndum íslenskrar stjórnmálafor- ustu. Ekki hafa menn þar á bæ mikla trú á eigin hæfileikum eða annarra í íslenska stjórnkerfinu, þegar vilji til slíks valdaafsals liggur fyrir. Ekki er þjóðlegheitunum fyrir að fara í þeim áróðri sem rekinn er af evr- usinnum og öðrum fylgjendum er- lendrar yfirtöku í sjálfstæðismálum þessa lands. Kannski er helsti draumur slíkra ráðamanna að fá að vera ábyrgð- arlausar undirtyllur á háu kaupi í gervistjórn undir yfirþjóðlegu valdi. Margt er meira en lítið skrítið í þeim kýrhaus sem kratar þessa lands hafa verið að setja upp í þess- um málum og virðist manni oft sem þeim sé ekki sjálfrátt. Þann 11. mars sl. birtist t.d. í Mbl. sendibréf til sjálfstæðismanna, ritað af Ellert B. Schram, fyrrver- andi sjálfstæðismanni og núverandi Samfylk- ingarþingmanni. Þetta bréf er undarleg rit- smíð og það er eins og ritarinn sé í handalög- málum við eigin sam- visku í því sem þar er sett fram. Hann talar um að stutt sé milli hinnar klassísku sjálf- stæðisstefnu og jafn- aðarmennskunnar og gæti þar verið að af- saka hringl sitt á milli flokka. Hann talar um tvo frjálslynda og praktíska flokka í einni sæng í ríkisstjórn. Með orðinu praktískur virð- ist hann meina að málamiðlun megi gera í öllum hlutum. Hann segist líka ætla að láta mannréttindabrotin í kvótakerfinu liggja milli hluta vegna þess að ríkisstjórnin þurfi að sitja sem fastast, en hann verði hinsvegar að benda á útgönguleið fjármálalífsins inn í ESB. Sem sagt mannréttinda- brot á Íslandi verða veigalítil í aug- um mannsins miðað við krossferð- arhugsjónina miklu – að koma þjóðinni undir miðstjórnarveldið í Brussel! Jafnframt talar ritari um að við hættum að hafa vit fyrir öðrum og meinar sennilega að við eigum að fara að láta aðra hafa vit fyrir okk- ur. „Leyfum þjóðinni að ráða,“ segir hann svo, „erum við ekki öll að beita okkur fyrir auknu frelsi?“ Heitir það nú að beita sér fyrir auknu frelsi að reyna að koma þjóð- inni undir erlent vald? Ellert segir að aðildin að ESB færi okkur nýjan, stöðugan gjald- miðil, frjálsan aðgang að stærri markaði, ódýrari neysluvörur og að- gang að ákvarðanatöku.....! Heyr á endemi! Hver getur tryggt að evran verði stöðugur gjaldmiðill til lengri tíma litið, hver getur tryggt að aðgangur að stærri markaði sé frjáls og verði frjáls, hver tryggir lágt verð á neysluvörum til framtíðar, hver segir að aðgangur okkar að ákvarð- anatöku innan ESB skipti máli, þar sem við verðum núll og nix? Þingmaðurinn talar eins og hann sé endurómur af mági sínum, segir að við verðum laus úr ánauð ónýts gjaldmiðils með inngöngu í ESB og svo lýkur hann þessu endemisbréfi með því að ákalla sjálfstæðismenn eftirfarandi: „ESB er í anda ykkar hugsjóna, samtök um frið og öryggi, frjálsan markað og heiðarlega sam- keppni!“ Þvílíkt bull! ESB er bandalag um hagsmuni en ekki hugsjónir, trygging fyrir friði og öryggi er síst meiri þar en annarsstaðar, frjáls markaður og heiðarleg samkeppni eru hugtök sem er í meira lagi vafasamt að gildi í veruleikanum. Sjálfstæðismenn kalla sig svo vegna þess að þeir vilja sýna sig sem verjendur fyrir það sjálfstæði sem við misstum 1262 og aldir tók að endurheimta. Ef þeir bregðast í því hlutverki og taka að sér að beina þjóðinni inn í Brussel-dilkinn, munu margir sannfærast um að þeir standi ekki undir nafni. Hitt er jafnljóst að Ellert B. Schram er nú orðinn alskveraður krati og hættur að vera sjálfstæð- ismaður. Það sést m. a. á því að hann telur sýnilega enga ástæðu til að verja það sem verja ber. Þó að mér hafi löngum verið lítið um íhaldið gefið, tel ég að breytingin sem orðið hefur á Ellert B. Schram sé ekki til batnaðar, hvorki fyrir hann sjálfan né þjóðina sem hann á að starfa fyrir sem þingmaður. Ég teldi því fara best á því, fyrir hann sjálfan og okkur öll, að hann skrifaði ekki fleiri svona bréf í Brussel-stíl til sjálfstæðismanna eða annarra, því það virkar á mann svipað og útfararskrá gjaldþrota hugsunar hjá manni sem eitt sinn var þó maður. Hinn óþjóðlegi kratakór Rúnar Kristjánsson er ósáttur við síðustu ritsmíð Ellerts B. Schram »Heitir það nú að beita sér fyrir auknu frelsi að reyna að koma þjóð- inni undir erlent vald? Rúnar Kristjánsson Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd Móttöku- kerfi aðsendra greina MORGUNBLAÐIÐ er með í notkun móttökukerfi fyrir að- sendar greinar. Formið er að finna við opnun forsíðu fréttavefjarins mbl.is vinstra megin á skjánum undir Morg- unblaðshausnum þar sem stendur Senda inn efni, eða neðarlega á forsíðu fréttavefj- arins mbl.is undir liðnum Sendu inn efni. Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að skrá sig inn í kerfið með kennitölu, nafni og netfangi, sem fyllt er út í þar til gerða reiti. Næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá notandasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarkslengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt. Þeir, sem hafa hug á að senda blaðinu greinar í um- ræðuna eða minningargreinar, eru vinsamlegast beðnir að nota þetta kerfi. Nánari upp- lýsingar gefur starfsfólk greinadeildar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.