Morgunblaðið - 06.05.2008, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
BANDARÍSKA ævintýramyndin um
Járnmanninn, Iron Man, var tekju-
hæsta myndin í íslenskum kvik-
myndahúsum um liðna helgi, og jafn-
framt sú mest sótta. 6.621 skellti sér á
myndina um helgina, en frá frumsýn-
ingu hennar á miðvikudaginn í síð-
ustu viku hafa tæplega 11.000 manns
séð hana. Það þýðir að tekjur af
myndinni nema nú rúmum níu millj-
ónum króna.
Stirðbusaleg saga
Iron Man skartar vandræðagems-
anum Robert Downey Jr. í aðal-
hlutverkinu, en auk hans leika þau
Gwyneth Paltrow og Jeff Bridges
stór hlutverk í myndinni. Þrátt fyrir
mjög góða aðsókn hefur myndin hlot-
ið fremur misjafna dóma, og sem
dæmi má nefna að hún fékk aðeins
tvær stjörnur af fimm mögulegum í
dómi Heiðu Jóhannsdóttur hér í
Morgunblaðinu á sunnudaginn. Í
gagnrýni sinni sagði Heiða meðal
annars: „Járnmaðurinn er tæknilega
vel gerð kvikmynd en að sama skapi
er hér á ferðinni stirðbusalega mótuð
saga um baráttu góðs og ills sem sæk-
ir hugmyndafræðilega þætti til ein-
faldaðra hugmynda um hið „réttláta“
hryðjuverkastríð Vesturlanda gegn
öfgaöflum frá Mið-Austurlöndum.“
Kvennabósi í öðru sæti
Í öðru sæti Bíólistans að þessu
sinni má finna rómantísku gam-
anmyndina Made Of Honor. Alls sáu
2.702 myndina um helgina, sem gerir
3.831 bíógest frá frumsýningu á mið-
vikudaginn. Samanlagðar tekjur
nema rúmum þremur milljónum.
Myndin fjallar í stuttu máli um æv-
intýri kvennabósans Toms sem er
ekki allur þar sem hann er séður.
Tekjuhæstu myndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum
Járnmaðurinn hafði
betur en Brúðarmærin
5"> .
!
"
# $$#%
&#$' #
(
)"
* # %
+
Hann er úr járni… Járnmanninum er ýmislegt til lista lagt og getur meðal
annars flogið. Hvort hann kemst í splitt er hins vegar önnur saga.
Kvartett
Sigurðar Flosasonar
Mánudagur 12. maí kl. 20:00
– annar í hvítasunnu
Kvartettinn flytur efni af geisladiskunum
Gengið á lagið, Gengið á hljóðið
og Leiðin heim í bland við ný lög.
Eyþór Gunnarsson: píanó
Valdimar K. Sigurjónsson: kontrabassi
Pétur Östlund: trommur
www.dimma.is
Tónlistarflytjandi ársins - Jazztónlist
Íslensku tónlistarverðlaunin 2007
Hvítasunnujazz
Sigurður Flosason og vinir
Forsala hjá midi.is
Stakir tónleikar kr. 2.000 - Hátíðarpassi kr. 3.500
í Fríkirkjunni
Tónleikaröðin er styrkt af Reykjavíkurborg
Bláir skuggar
Laugardagur 10. maí kl. 20:00
Kvartettinn hefur nýverið sent frá sér tvo
diska, Bláa skugga og Blátt ljós, sem
báðir hafa fengið frábærar viðtökur.
Þórir Baldursson: Hammond orgel
Jón Páll Bjarnason: gítar
Pétur Östlund: trommur
Sigurður Flosason og
Gunnar Gunnarsson
Sunnudagur 11. maí kl. 16:00
- Hvítasunnudagur
Nýjar sálmaútsetningar í bland við efni
af metsöludiskum þeirra félaga;
Sálmum lífsins, Sálmum jólanna
og Draumalandinu.
Kristjana Stefánsdóttir
og Kvartett
Sigurðar Flosasonar
Sunnudagur 11. maí kl. 20:00
- Hvítasunnudagur
Kristjana flytur nýja og eldri söngtónlist
Sigurðar við ljóð Aðalsteins Ásbergs
m.a. af geisladisknum Hvar er tunglið?
Eyþór Gunnarsson: píanó
Valdimar K. Sigurjónsson: kontrabassi
Pétur Östlund: trommur
YFIR 18.000
ÁHORFENDUR
- Páll Baldvin Baldvinnsson
Fréttablaðið
eee
- Sigurjón M. Egilsson
Mannlíf
eeee
Stefán Birgir Stefánsson
sbs.is
- S. V.
Morgunblaðið
eee
Sýnd í kringlunni
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
Sýnd í álfabakka,kringlunni, keflavík, akureyri og SelfoSSi
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
IRON MAN kl. 6D - 9PD - 10D B.i. 12 ára DIGITAL
IRON MAN kl. 9PD B.i. 12 ára POWERDIGITAL
OVER HER DEAD BODY kl. 5:50 - 8 B.i. 7 ára
P2 kl.10:10 B.i. 16 ára
STÓRA PLANIÐ kl. 6D - 8D B.i. 10 ára DIGITAL
IRON MAN kl. 5:30D - 8D - 10:40D B.i. 12 ára DIGITAL
IRON MAN kl. 5:30D - 8D - 10:40D LÚXUS VIP
MADE OF HONOUR kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
DRILLBIT TAYLOR kl. 5:40 B.i. 10 ára
IN THE VALLEY OF ELAH kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára
FORGETTING SARAH M. kl. 8 - 10:20 B.i.12 ára
SHINE A LIGHT kl. 8 - 10:40 LEYFÐ
FOOL´S GOLD kl. 5:40 B.i.7 ára
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 5:40 LEYFÐ
Sýnd í álfabakka
eeee
- H.J., MBL BÍÓTAL
KVIKMYNDIR.IS
eeee
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
„atH SérStakt leyniatriði er að mynd lokinni (eftir leikara/credit liStanum)“
eeee
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
BRESKA götublaðið The Sun birti í gær myndir af 19 ára
dóttur Sir Bobs Geldofs, Peaches, þar sem hún er að
kaupa fíkniefni. Var Peaches, sem er þáttasjórnandi í sjón-
varpi, að kaupa efnin af sölumanni sem grunaður er um að
hafa einnig selt söngkonunni Amy Winehouse.
Á myndbandi sem birtist á vef blaðsins og lögreglan
fann á minnislykli þegar hún handtók fíkniefnasalann, sést
hvar Peaches réttir sölumanninum 190 pund og segist
þurfa allt sem hann sé með. Á minnislyklinum var einnig
myndband þar sem sést hvar Winehouse reykir krakk.
Peaches hefur áður hafnað því að hafa neytt kókaíns en
móðir hennar, Paula Yeates, lést af of stórum skammti af
heróíni árið 2000. Geldof hefur í viðtali sagst verða óður ef
hann kæmist að því að dóttir hans neytti fíkniefna.
Dóttir Geldofs
gripin við kaup
á fíkniefnum
Reuters
Áhyggjufullur Geldof hefur áhyggjur af Peaches.
Fréttir í tölvupósti