Morgunblaðið - 06.05.2008, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 06.05.2008, Qupperneq 44
Morgunblaðið/RAX Skotist upp til skýja Eldflaugin yfirvinnur þyngdaraflið. EFTIRVÆNTINGIN leyndi sér ekki á meðal viðstaddra þegar eldflaug nemenda Háskólans í Reykjavík hóf sig á loft frá Vigdísarvöllum um tvöleytið í gær. Fyrst virtist sem eitthvað væri að og brutust því út mikil fagnaðarlæti þegar eldflaugin, sem nemendurnir hönnuðu og smíðuðu, tókst á loft með miklum þyt eftir niðurtalningu og hrapaði síðan til jarðar. Ágúst Valfells, lektor við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, hefur farið fyrir undirbúningi nemendanna að eldflaugarskotinu síðustu fjórtán vik- urnar, í félagi við fimm aðra kennara. „Allt gekk eins og sögu,“ sagði Ágúst og bætti við að eldflaugin hafi náð 1350 metra hæð. Það hafi verið sett sem lágmarks- krafa að eldflaugin næði kílómetra hæð, en henni var skotið upp með fastefniselds- neyti. „Hugmyndin hjá okkur var að nota gervisykur og saltpétur sem eldsneyti og koma flauginni upp í eins kílómetra hæð,“ segir Ágúst. „Þar mældum við ýmsa hluti, á borð við hröðun og loftþrýsting, og bár- um saman við útreikninga nemendanna. Heildarþyngd flaugarinnar var eitthvað um tíu kíló. Flaugin var smíðuð úr áli og stáli og oddurinn úr trefjagleri. Við smíð- uðum allt frá grunni.“ Að sögn Ágústs hófst fjórtán vikna und- irbúningstímabil með fyrirlestrum og hönnun flaugarinnar. Nemendurnir, sem séu næstum því allir á öðru ári í BS-námi í tækni- og verkfræðideild, hafi haft í nógu að snúast síðustu tvær vikurnar. Prófuðu ýmsar gerðir eldsneytis Spurður út í hönnun flaugarinnar segir Ágúst nemendurna hafa prófað margar gerðir af eldsneyti. Við tilraunir sé mót- ornum snúið öfugt og hann svo hlaðinn með eldsneyti og kveikt í og skotið niður á eins konar vog sem mæli kraftinn. Síðan hafi verið metið hversu hratt eldsneytið brann og hver heildarorkan var sem losn- aði úr læðingi, en flaugin var búin tölvu- kubbi, GPS-tæki, stafrænni upptökuvél og hraða- og loftþrýstingsmæli. Þetta var ekki í fyrsta skiptið sem eld- flaug var skotið á loft á Íslandi, en í nóv- ember 2006 skutu þeir Magnús Már Guðnason og Smári Freyr Smárason flaug sem fór í um 1080 metra hæð og náði 590 km hámarkshraða, en til samanburðar var stefnt að 700 km hámarkshraða í gær. Önnur flaug íslenskrar eldflaugasögu þaut upp á Vigdísarvöllum Í himin- hvolfin með sykri Gleði Nemendur HR voru spenntir. ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 127. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» 10% halli of mikill  Bandaríski hagfræðingurinn Ro- bert Z. Aliber segir að Ísland geti ekki viðhaldið viðskiptahalla um- fram 10% af vergri landsframleiðslu. Flest hagkerfi geta viðhaldið 5-6% viðskiptahalla og þangað þarf Ísland að komast sem fyrst að mati hans. » Forsíða Frönsk flugsveit mætt  Frönsk flugsveit er stödd hér á landi til að sinna loftrýmisgæslu og störfum tengdum henni á vegum NATO og komu fjórar orrustuþotur til landsins í gær í þeim tilgangi. Er þetta í fyrsta sinn í sögu Íslands sem slík gæsla er á hendi annarra en Bandaríkjamanna. » 23 Hreppti virt listaverðlaun  Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson myndlistarkona hreppti hin virtu og eftirsóttu Listaverðlaun Cleveland- borgar í Ohio, Cleveland Arts Prize, þann 1. maí. Verðlaunin nema and- virði tæpra 200 þúsund króna. » 14 Minnst 10.000 fórust  Yfir 10.000 manns biðu bana í felli- bylnum í Búrma um helgina og þús- unda til viðbótar er saknað, að sögn þarlendra stjórnvalda. Ríkisfjöl- miðlar Búrma segja að búist sé við að tala látinna hækki til muna, jafn- vel í tugi þúsunda. » 13 SKOÐANIR» Staksteinar: Frísklegir öldungar Forystugreinar: Plága heimilis- ofbeldis | Skólalóðir í skralli Ljósvaki: Eyríkið Eiríkur UMRÆÐAN» Hræsni og Sól á Suðurlandi Neyðaróp úr bankahvelfingu Til hvers er Nató? Ó, ó, óperuhús 3! 3! $3 3 $3 3 3$ 3 !3$ 4 ( 5%. +   6  #( 3$ 3! 3 3 $3! 3  3 !3 3! - 7"1 %  3! 3 $3 3  3 $3 89::;<= %>?<:=@6%AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@%77<D@; @9<%77<D@; %E@%77<D@; %2=%%@#F<;@7= G;A;@%7>G?@ %8< ?2<; 6?@6=%2+%=>;:; Heitast 12°C | Kaldast 7°C  Austlæg átt, 3-8 m/s og rigning með köfl- um, en skýjað með köflum norðaustan til. Hætt við þoku f. austan. » 10 Arnar Eggert Thor- oddsen veltir fyrir sér arfleifð Michaels Jackson. Thriller segir hann hápunkt- inn á ferlinum. » 41 TÓNLIST» Hryllir, hryllir KVIKMYNDIR» Leikarinn Dourdan kemur af fjöllum. » 43 Því er haldið fram að einræðisstjórnin á Spáni hafi rænt sigr- inum í Evróvisjón árið 1968 af Sir Cliff Richard. » 38 TÓNLIST» Var Sir Cliff rændur? TÓNLIST» Týr verkar þjóðlögin með bárujárni. » 39 TÖLVULEIKIR» Leikurinn er uppseldur fyrir Playstation 3. » 36 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Byrjaði að undirbúa … 1978 2. Litla stúlkan fundin 3. Fannst á Vífilsstaðaveginum 4. Barnslík fundust í frysti  Íslenska krónan veiktist um 0,3% LISTDANSNEMINN Frank Fann- ar Pedersen komst um helgina í fimmtán manna úrslit í listdans- keppni í Svíþjóð. Þar reyndu með sér bestu 15 til 21 árs dansararnir á Norðurlöndunum og í Eystrasalts- löndunum. Hann hefur verið í ballett í tíu ár, frá því að hann var sjö ára. „Þetta var rosalega öðruvísi á sín- um tíma. Ég þurfti að halda þessu leyndu fyrir bekkjarfélögum mínum fyrsta árið,“ segir hann. Í gagn- fræðaskóla þótti síðan flott að dansa. Frank á ekki langt að sækja hæfi- leikana því móðir hans er Katrín Hall, listrænn stjórnandi Íslenska dansflokksins. Hann segir hana þó ekki hafa ýtt sér út í dansinn. Frank hefur sett stefnuna á háskólanám í listdansi, helst erlendis. | 36 Morgunblaðið/Golli Fimur Frank Fannar, sem hér æfir í Listdansskóla Íslands, hélt dansinum leyndum fyrir félögunum til að byrja með. Í flokki þeirra bestu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.