Morgunblaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is „VANDAMÁLIN eru fyrst og fremst gagnvart flugmönnum og flugþjónum,“ segir Karl Ó. Karlsson hæstaréttarlögmaður en hann hélt í gær erindi um félagsleg undirboð, með áherslu á fluggeirann, á fundi Norræna flutningamannasam- bandsins. Fyrirspurn um skattamál Fjögur flugfélög eru með höfuð- stöðvar á Íslandi. Karl, sem er lög- maður hjá LAG-lögmönnum og hef- ur unnið fyrir Félag íslenskra atvinnuflugmanna, segir áhyggjur af félagslegum undirboðum hér lúta að félögum sem ekki hafa gert kjarasamninga við félög hér á landi en fljúgi engu að síður til og frá Ís- landi. Fyrst og fremst eru þetta Heims- ferðir, erlenda félagið JetX flýgur fyrir fyrirtækið, og Iceland Express en vélar þess eru reknar af sviss- neska félaginu Hello AG. Félag íslenskra atvinnuflug- manna hefur sent fjármálaráðu- neytinu fyrirspurn um hvernig hátt- að sé skattgreiðslum af launum erlendra flugmanna sem fljúga fyrir félögin Iceland Express og Heims- ferðir, að sögn Böðvars Jónssonar, aðstoðarmanns fjármálaráherra. Erindið barst ráðuneytinu í gær og segir Böðvar að ráðuneytið muni taka það til skoðunar á næstu tveim- ur vikunum. Karl segir að Iceland Express og Heimsferðir hafi ekki gert samning við Félag íslenskra atvinnuflug- manna (FÍA). Hjá þessum félögum séu nánast eingöngu erlendir flug- menn og félögin forðist „leynt og ljóst að ráða til sín Íslendinga í flug- mannsvinnu“. Karl segir menn hafa áhyggjur af því að launin sem þessir erlendu flugmenn fá séu mun lægri en þau sem íslenskir flugmenn njóta sem og að þeir búi við lakari starfskjör. Menn hafi áhyggjur af því að menn- irnir séu „keyrðir á löngum vinnu- lotum og öðru sem hefur þá beina tilvísun yfir í hugsanlegt öryggi“, segir Karl. Æskilegt að gera samning við SA Hann segir að það gildi almennt um þá, sem starfa fyrir flugfélögin á jörðu niðri, að kjarasamningsmál þeirra séu í góðu lagi. Karl segir að nú sé enginn samn- ingur í gildi um flugmenn við Sam- tök atvinnulífsins, heldur séu kjara- samningar sem eru í gildi í flugheiminum gerðir við einstök fyr- irtæki. Æskilegt væri að gerður yrði aðalkjarasamningur við SA um þessa starfsgrein. Það myndi þýða að samningar um kjör sem væru lægri en lágmarkskjör í aðalkjara- samningi væru einfaldlega ógildir. Áhyggjur af undirboðum hjá flugfélögum hér á landi Beðið um upp- lýsingar um skattgreiðslur Morgunblaðið/Ómar Flug Margir nýta sér þann möguleika að fljúga með ódýru leiguflugi, en ís- lenskir flugmenn telja að þetta flug feli í sér félagsleg undirboð. REYKJAVÍKURMEISTARAMÓT í hestaíþróttum stendur nú sem hæst á Fákssvæðinu í Víðidal. Mót- ið hófst á miðvikudag og lýkur því á mánudag, þegar keppt verður til úrslita. Keppnishaldið er stíft og stendur í um tíu tíma hvern dag, að sögn Bjarna Finnssonar, formanns Fáks. Hann segir um 600 hross skráð til keppni á mótinu, sem sé mjög umfangsmikið og fjöldi fólks fylgist þar með á degi hverjum. Keppendur segir hann á öllum aldri, allt frá 7-8 ára upp undir sex- tugt. Reykjavíkurmeistaramótið er stærsta mót ársins hjá Fáki. Margt er framundan í starfi Fáks, m.a. gæðingamót sem fram fer eftir um hálfan mánuð, auk þess sem í sumar verða haldin tvö Íslandsmeistaramót, þ.e. mót ung- menna og fullorðinna. Þá fara fram kynbótasýningar og kynbóta- dómar alla næstu viku í Víðidaln- um. Hann berst á fáki fráum Morgunblaðið/Golli BISKUP Íslands, Karl Sigurbjörns- son, og Reykjavíkurbiskup, Pétur Bürcher, hafa undirritað samkomu- lag sem felur í sér leiðbeiningar um samstarf Þjóðkirkjunnar og Kaþ- ólsku kirkjunnar á Íslandi um afnot af kirkjum. Einnig eru þar leiðbein- ingar og hvatning hvað varðar sam- eiginlegt helgihald. Í leiðbeiningunum kemur fram að hafa skuli samband með fyrirvara við sóknarprest eða þann sem hann hefur veitt umboð til útláns. Fjallað er um umbúnað og þóknun vegna ræstinga og kirkjuvörslu. Bent er á möguleika á skriflegum samningi ef um reglubundin afnot er að ræða. Hvatt er til sameiginlegs helgi- halds með bænastundum, lof- gjörðar- og prédikunarguðsþjón- ustum í samstarfi presta og safnaða. Altarissakramentið er ekki haft um hönd við slíkt helgihald, af tillitsemi við mismunandi guðfræðilegan skilning á máltíð Drottins. Samkomulag um afnot af kirkjum og helgihald Undirritun Viðstaddir undirritunina voru sr. Sigurður Sigurðarson vígslu- biskup, Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sr. Ágúst George, sr. Jón A. Baldvinsson vígslubiskup, Msgr. Emil Paul Tscherrig erkibiskup, Pétur Bürcher Reykjavíkurbiskup og sr. Kristján Valur Ingólfsson. FJALLAÐ var um greinargerð Ríkisendurskoð- unar um svo- nefnda RAI- skráningu hjá hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni á fundi heilbrigðis- nefndar Alþingis í gær. Fulltrúar Rík- isendurskoðunar og heilbrigðisráðu- neytis og forsvarsmenn Sóltúns komu á fund nefndarinnar. „Það er ákveð- inn ágreiningur á milli aðila um túlk- un á samningnum og á skilgreining- um sem notaðar eru til grundvallar greiðslu. Það er ekki ágreiningur um að þarna er veitt framúrskarandi þjónusta og einstakur aðbúnaður en það eru uppi mismunandi túlkanir á skilgreiningum,“ segir Ásta Möller, formaður nefndarinnar. „Fram kom á fundinum að heilbrigðisráðherra hef- ur skipað sáttanefnd til þess að kom- ast að niðurstöðu í þessu máli. Verður m.a. kallaður til erlendur aðili sem er sérfróður um RAI-matið, sem er grundvöllur greiðslnanna,“ segir Ásta. Hún kveðst lengi hafa verið þeirrar skoðunar að það þjóni hagsmunum beggja aðila að taka þjónustusamn- inginn við Sóltún upp í ljósi reynsl- unnar. „Það eru sex ár síðan Sóltún hóf starfsemi en á þeim tíma sem lið- inn er hefur margt breyst í öldrunar- þjónustunni og hefur Sóltún verið notað sem fyrirmynd,“ segir hún. Fá erlend- an sér- fræðing Ásta Möller Rætt um Sóltún á fundi heilbrigðisnefndar FLUGVÉL Rauða krossins hlaðin hjálpargögnum lenti í höfuðborg Búrma í fyrrakvöld. Önnur vél með hjálpargögn fylgdi í kjölfarið í gær- morgun, segir í tilkynningu frá Rauða Krossinum. Þar segir að al- þjóðlegir sérfræðingar Rauða kross- ins séu að störfum í Búrma og von sé á fleiri sendifulltrúum. Um 27.000 sjálfboðaliðar Rauða krossins í Búrma sinna hjálparstarfi nú þegar. Þá kemur fram að utanríkisráðu- neytið veitti í fyrradag 7,7 milljónum króna í starf Alþjóða Rauða krossins á hamfarasvæðunum. Hjálpargögn lent í Búrma ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.