Morgunblaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 39
Á SKÁKMÓTUM skiptir enda-
spretturinn mestu máli. Menn byrja
oft vel á mótum og skjótast kannski
upp í efsta sætið eða þar um bil en
svo fatast flugið um miðbikið þess,
menn missa móðinn og frammistað-
an verður hvorki fugl né fiskur. Rýni
menn örlítið í skáksöguna má finna
dæmi um margan góðan endasprett.
Bobby heitinn Fischer byrjaði stór-
mótið í Santa Monica árið 1966 illa
og var með neðstu mönnum eftir
fyrri umferðina, hafði hlotið 3½ vinn-
ing af níu mögulegum. En í seinni
hlutanum hlaut hann 7½ vinning úr
níu skákum. Hann vann sjö síðustu
skákirnar á millisvæðamótinu í
Palma 1970 en var raunar kominn
vel fram úr öðrum keppendum áður
en sá sprettur hófst. Emanuel Las-
ker byrjaði rólega á einu frægasta
móti allra tíma í Sankti Pétursborg
1914. Capablanca virtist ætla að
stinga keppinauta sína af en gamli
heimsmeistarinn, sem var mikil
mótarefur, skaust fram úr honum á
síðustu metrunum; hann vann úr-
slitauppgjör þeirra með taflmennsku
sem enn í dag er talin skínandi dæmi
um vel heppnaða hernaðartækni á
örlagastundu. Á Reykjavíkurmótinu
1972 var Friðrik Ólafsson með 5
vinninga eftir níu umferðir og víðs-
fjarri efsta sæti. En hann vann sex
síðustu skákirnar þ. á m. tvær lyk-
ilskákir gegn Tukmakov og Timman.
Hann deildi svo efsta sæti með Flor-
in Gheorghiu og Vlastimil Hort.
Á heimsbikarmóti FIDE sem lauk
í Baku, höfuðborg Aserbaídsjan, á
dögunum var það góður endasprett-
ur sem tryggði norska undrinu
Magnúsi Carlssyni efsta sætið. Í
næstsíðustu umferð vann hann
enska stórmeistarann Michael
Adams og í lokaumferðinni lagði
hann Frakkann Bacrot að velli með
svörtu. Báðar skákirnar voru langar
og strangar og frábærlega vel tefld-
ar af Norðmanninum. Ekki verður
betur séð en að Magnús hafi flest til
að bera til að ná tindinum, seigla
hans á krítískum augnablikum fer
ekkert á milli mála. Lokaniðurstað-
an í Baku varð þessi:
1.-3. Magnús Carlsen (Noregi),
Wang Yue (Kína) og Vugar Gasimov
(Aserbadsjan)
4.-5. Shakhriyar Mamedyarov
(Aserbadsjan) og Alexander Grisc-
huk (Rússland) 7½ v.
6.-7. Michael Adams (England) og
Peter Svider (Rússland) 6½ v.
8.-10. Sergei Karjakin (Úkraína),
Teimour Radjabov (Aserbadsjkan)
og Gata Kamsky (Bandaríkin) 6 v.
11.-12. Ivan Cheparinov og David
Navara (Tékkland) 5½ v.
13.-14. Etienne Bacrot (Frakkland
og Ernesto Inarkiev (Rússland) 5 v.
Sigurskák Magnusar Carlssonar í
12. umferð sem hér fylgir á eftir er
athyglisverð fyrir þær sakir að eftir
byrjunina er hvítur skiptamun undir
og það er jafnt á liðsafla. Engar
hættur steðja að kóngsstöðu svarts
og það er búið að skipta upp á
drottningum. Þegar betur er að gáð
hefur hann rífandi stöðulegar bætur
fyrir skiptamuninn: öllu mótspili
svarts er haldið niðri, biskupapar
hvíts er ógandi og það er setið um
veikleikann á d5. Með 29. b5! brýst
Magnús í gegn vinnur skiptamun til
baka og þrátt fyrir hetjulega vörn
hallar sífellt á ógæfuhliðina hjá
Adams. Hann er tilbúinn að láta aft-
ur skiptamun af hendi en Magnús
velur tímann rétt, 42. Hb8 gerir út
um taflið.
Baku 2008, 12. umferð:
Magnús Carlsen – Michael Adams
Nimzoindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
Dc2 d5 5. a3 Bxc3+ 6. Dxc3 Re4 7.
Dc2 c5 8. dxc5 Rc6 9. cxd5 exd5 10.
e3 Da5+ 11. b4 Rxb4 12. axb4 Dxa1
13. Bb5+ Kf8 14. Re2 a6 15. Bd3
Bd7 16. f3 Ba4 17. Db2 Dxb2 18.
Bxb2 Rg5 19. Rd4 Bd7 20. Kf2 f6 21.
Ha1 Ke7 22. Bc2 Hhd8 23. h4 Rf7
24. Bxh7 Hh8 25. Bc2 Hxh4 26. Bb3
Hh5 27. Re2 Bc6 28. Rf4 Hg5
29. b5 Bxb5 30. Rxd5+ Kf8 31.
Rc7 Hd8 32. Re6+ Ke8 33. Bd4 Bd7
34. Rxd8 Rxd8 35. Hh1 Ke7 36. e4
Re6 37. Be3 He5 38. Hh7 Kf8 39. Bc2
Bc6 40. f4 Bxe4 41. Hh8+ Ke7 42.
Hb8. Rd8 43. fxe5 Bxc2 44. exf6+
gxf6 45. Bd4 f5 46. Be3 Kd7 47. Bg5
Re6 48. Hxb7+ Kc8 49. Hb2 Be4 50.
Be7 Rf4 51. Ha2 Kd7 52. Bd6 Rxg2
53. Hxa6 f4 54. Ha4 Bc6 55. Ha7+
Ke6 56. Ha6
– og Adams gafst upp, 56. … Kd7
er svarað með 57. Hxc6 og vinnur
mann.
Tíu íslenskir skákmenn tefla á
Kaupþings-mótinu í Lúxemborg
Stórmeistararnir Hannes Hlífar
Stefánsson, Henrik Danielsen og
Þröstur Þórhallsson eru meðal kepp-
enda á opna skákmótinu sem Kaup-
þing stendur fyrir í Lúxemborg.
Mótið er annað opna alþjóðlega mót
Kaupþings í Lúxemborg. Í fyrra
varð Hannes Hlífar í efsta sæti
ásamt indversku skákdrottningunni
Humpy Koneru. Fjölmargir aðrir
sterkir íslenskir skákmenn verða
meðal keppenda: Stefán Kristjáns-
son, Jón Viktor Gunnarsson, Björn
Þorfinnsson, Bragi Þorfinnsson,
Ingvar Þór Jóhannesson, og Hjörvar
Steinn Grétarsson.
Í gærkvöldi stóð til að halda lands-
keppni milli Íslands og Lúxemborg
en níu umferða aðalmótið hefst svo í
dag. Búist er við góðri þátttöku en
stigahæsti íslenski skákmaðurinn,
Hannes Hlífar verður væntanlega
nr. 5 í styrkleikaröðinni. Alls tekur
101 skákmaður þátt í A-flokki móts-
ins, 78 tefla í B-flokki en þar er stiga-
þakið við 2.200 Elo stig og í C–
flokknum eru 23 skákmenn skráðir
til leiks.
Þrír efstir á skákmót
öðlinga
Jóhann Ragnarsson, Hrafn Lofts-
son og Jóhann Örn Sigurjónsson
urðu jafnir og efstir á skákmóti öð-
linga sem lauk sl. miðvikudagskvöld.
Þeir hlutu allir 5 vinninga af 7 mögu-
legum en fyrir lokaumferðina voru
Kristján Guðmundsson og Björn
Þorsteinsson efstir en töpuðu báðir,
Kristján fyrir Jóhanni Erni og Björn
fyrir Hrafni Loftssyni. Þetta ágæta
mót stóð yfir í sex vikur en tefld var
ein umferð á hverju miðvikudags-
kvöldi. Alls tók 21 skákmaður þátt í
mótinu og varð lokaniðurstaðan
þessi hvað varð efstu menn:
1.-3. Jóhann Ragnarsson, Hrafn
Loftsson og Jóhann Örn Sigurjóns-
son 5 v. (af 7)
4.-7. Björn Þorsteinsson, Magnús
Gunnarsson, Kristján Guðmundsson
og Vigfús Vigfússon 4½ v.
8.-9. Hörður Garðarsson og Páll
Þórhallsson 4 v.
Góður endasprettur tryggði
Magnúsi Carlssyni sigurinn
Úrslitarimman Magnús Carlsen t.v. stillir upp svörtu fyrir viðureignina við
Frakkann Etienne Bacrot. y
SKÁK
Baku, Aserbadsjan
Heimsbikarmót FIDE
20. apríl-6. maí 2008
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
saman. Þá er prófundirbúningur stóð
yfir sá Sigríður um að allir fengju
nauðsynlega næringu, síðasta verk-
efni hennar þegar lesið var á nóttunni
inni í Njörvasundi, var að vera viss
um að allt væri til staðar í mat og
drykk. Og loks að liðnum fjórum ár-
um, þegar sýnt var að námslok væru
á næsta leiti, var ekki við annað kom-
andi en fagna þeim tímamótum með
hópnum og halda honum sérstaka
veislu á fallegu vorkvöldi sem þau
hjón gerðu svo eftirminnilegt. Gest-
risni, hjálpsemi og vinátta þeirra
hjóna Sigríðar og Vilhjálms við vini
barnanna þeirra var einstök og ákaf-
lega minnisstæð. Hvernig var annað
hægt en að láta sér þykja vænt um
þau.
Fráfall Sigríðar var óvænt og
snarpt. Megi hæsti höfuðsmiður leiða
hana inn á veg ljóssins í austrinu ei-
lífa. Börnum Sigríðar og öðrum
vandamönnum er vottuð innileg sam-
úð.
Skúli Eggert.
Kveðja frá
Kvenfélagasambandi Íslands
Mánudaginn 5. maí verður borin til
hinstu hvílu heiðurskonan Sigríður
Ingimarsdóttir.
Með störfum sínum að félagsmál-
um kvenna á Íslandi lagði hún Kven-
félagasambandi Íslands ómetanlegt
lið um margra áratuga skeið. Hún
átti m.a. stóran þátt í útgáfu Hús-
freyjunnar, sem er tímarit sam-
bandsins og um leið kvenna um allt
land, enda enn gefið út eftir hartnær
60 ár. Við útgáfu blaðsins kom hún að
ýmsum störfum, bæði í ritstjórn, sem
ritstjóri og greinahöfundur, og lagði
með störfum sínum farsælan grunn
að útgáfu blaðsins.
Störf kvenfélagskvenna voru henni
afar hugleikin og hún gerði sér grein
fyrir mikilvægi þeirra í mannlífsflóru
landsins, og því mikla líknar- og
menningarstarfi sem þær hafa staðið
fyrir. Hún var kvenfélagskona af lífi
og sál.
Sigríður hafði á lífsgöngu sinni
sinnt fjölmörgum trúnaðarstörfum
fyrir hönd Kvenfélagasambands Ís-
lands og árið 1987 var hún kjörin
varaformaður sambandsins. Hún
gegndi því starfi af frábærri trú-
mennsku og dugnaði í fjögur ár, auk
þess að eiga sæti í ýmsum nefndum
og ráðum bæði innan sambandsins og
á opinberum vettvangi. Þá sat Sigríð-
ur fjölda formannaráðsfunda og
landsþinga KÍ á þessum áratugum.
Sigríður Ingimarsdóttir var einnig
verðugur fulltrúi Kvenfélagasam-
bands Íslands á norrænum og alþjóð-
legum ráðstefnum kvenfélagasam-
banda til fjölda ára.
Á Landsþingi KÍ árið 2000 var hún
kjörin heiðursfélagi Kvenfélagasam-
bands Íslands í þakklætisskyni fyrir
hennar óeigingjarna og farsæla starf
og munum við ætíð minnast hennar
sem mætrar og dugmikillar konu
sem lagði samborgurum sínum lið í
sjálfboðastarfi og án annarra launa
en þeirra að njóta með þeim sem
nutu.
Nú að leiðarlokum þökkum við
Sigríði samfylgdina og fórnfúst og
óeigingjarnt starf í þágu Kvenfélaga-
sambands Íslands og vottum ástvin-
um hennar samúð.
F.h. Kvenfélagasambands Íslands
Sigurlaug Viborg forseti.
Hún Sigríður Ingimars er látin. Ég
þekkti hana ekki mikið, en hef samt
vitað af henni síðan ég var lítil stelpa.
Foreldrar mínir voru vinnufólk hjá
tengdaforeldrum hennar og það
myndaðist ótrúlega mikil tryggð og
vinátta milli þessara fjölskyldna.
Á Bjólfgötunni bjuggu svo Árni,
Guðrún og við til margra ára. Sigríð-
ur og Villi komu austur í heimsókn
með börnin sín. Það efldi svo vinátt-
una ásamt afmælis- og jólakveðjum,
sem gjarnan fylgdi mynd af barna-
börnunum. Ég vil þakka þeim Sigríði
og Vilhjálmi, sem líka er látinn, fyrir
áratuga vináttu við foreldra mína
Siggu og Fúsa, eins og þau alltaf köll-
uðu. Ég veit að þeim þótti mjög vænt
um Háeyrarfólkið, tengdabörn og
alla afkomendur. En það smáfækkar
í hópnum. Og nú er þessi mæta kona
horfin og þarf ekki að bera sínar
byrðar lengur. Börnum hennar og
öðrum ástvinum sendi ég innilegar
samúðarkveðjur. Blessuð sé minning
Sigríðar Ingimars og allra vinanna
sem horfnir eru á braut.
Guðlaug Vigfúsdóttir,
Seyðisfirði.
Sigga Ingimars var hluti af hópn-
um þegar við skemmtum okkur í
Njörvasundinu, vinir Arinbjarnar og
Þórhalls, yngstu sona hennar og Villa
Árna. Alltaf hress og kát, fordóma-
laus og opin fyrir öllu. Það var sama
hvað yfir heimilið gekk, partí, ferðir
vestur, afnot af ameríska kagganum
hans Villa eða hvað það nú var. Eftir
á að hyggja var fordómaleysið og um-
burðarlyndið gagnvart galsafengn-
um unglingahópnum ótrúlegt, eigin-
lega endalaust. Líklega var Sigga sú
manneskja sem gat sagt mér flestar
sögur af pabba mínum, sem lést fyrir
aldur fram. Veiðisögur, framsóknar-
sögur og sögur frá Hreðavatnsskála,
hún kunni þær allar. Sigga var
merkileg kona, frumkvöðull í málefn-
um fatlaðra og á mörgum öðrum svið-
um. Kvenréttindakona, ritstjóri Hús-
freyjunnar og húsfreyja sjálf,
skörungur sem stóð alltaf með sínu
fólki og vinum þess hvað sem á gekk.
Hlýleg og gerði ekki mannamun. Við
sem kynntumst stöndum ríkari eftir.
Ég votta ykkur, börnum og afkom-
endum Siggu Ingimars innilega sam-
úð.
Takk fyrir samfylgdina, kæra
Sigga.
Kristín S. Hjálmtýsdóttir.
Kæri frændi.
Nú er komið að
kveðjustund sem eng-
inn átti von á.
Margar góðar
minningar rifjast upp þegar horft er
til baka.
Við munum alltaf eftir þér sem ró-
legum, góðhjörtuðum manni, alltaf
tilbúinn að veita hjálparhönd ef á
þurfti að halda. Aldrei talaðir þú illa
um nokkurn mann, það var frekar
að þú reyndir að eyða slíku tali hjá
öðrum.
Þú hafðir góða nærveru og það
var alltaf rólegt og gott andrúmsloft
í kringum þig. Melkorka leit mikið
upp til þín og var sérstaklega háð
þér þegar hún var yngri, enda hafðir
þú mjög gott lag á börnum sem löð-
uðust iðulega að þér.
Við kveðjum hér góðan frænda,
minning þín mun lifa í hjörtum okk-
ar.
Þótt kveðji vinur einn og einn
og aðrir týnist mér,
ég á þann vin, sem ekki bregzt,
og aldrei burtu fer.
Þó styttist dagur, daprist ljós
og dimmi meir og meir,
ég þekki ljós, sem logar skært,
það ljós, er aldrei deyr.
Hafdís Ósk, Rebekka
og Melkorka.
Trausti Finnsson
✝ Trausti MarinóFinnsson fædd-
ist á Djúpavogi 21.
janúar 1952. Hann
varð bráðkvaddur á
Kanaríeyjum 27.
mars síðastliðinn og
var jarðsunginn frá
Djúpavogskirkju
12. apríl.
Mig langar, elsku,
hjartans Trausti
minn, að kveðja þig
með nokkrum orðum
þar sem ég og þú
þekktumst betur en
flestir vissu. Þar sem
þú varst nú ekki nema
fimm árum eldri en ég
tókst okkur lengst af
að halda sambandi
alla tíð. Mín fyrsta
minning og kynni af
þér voru heima hjá
þér, þar sem þú
skaust húsaskjóli yfir
mig í að minnsta kosti hálfan mánuð
þegar ég var á 15. ári og foreldrar
þínir á lífi þar sem þú bjóst hjá
þeim. Margt gátum við spjallað sam-
an og farið út að keyra. Þú bauðst
mér með einu sinni á Neskaupstað.
Þú áttir gulan Volkswagen og fórst í
þetta ferðalag yfir Öxi 1971 ásamt
þáverandi félaga þínum sem átti
hvítan Moskwitz. Þetta ferðalag var
erfitt en skemmtilegt. Þú varst allt-
af svo rólegur og framúrskarandi
hugmyndaríkur. Þetta var eins og
að fara á báti og komast hálfa leið,
en allt hafðist þetta og á Neskaup-
stað komumst við og einnig til baka
þegar búið var að tjasla bílnum sam-
an.
Ég þakka þér fyrir öll símtölin frá
Kanarí eftir að þú fórst að fara yfir
kalda tímann hér heima sem þú
þoldir illa eftir þau tvö slys sem þú
varst búinn að lenda í og segja mér
frá eins og svo mörgu öðru sem ég
geymi í hjarta mér. Þú varst mér
svo sannarlega besti kærasti, besti
vinur og ég sakna þín sárt.
Guð geymi þig, elsku gulldreng-
urinn minn.
Ástar- og saknaðarkveðja,
Sigurrós Rósa Guðmundsdóttir.