Morgunblaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 43 Félagsstarf Bústaðakirkja | Sumarferð Kven- félags Bústaðasóknar til Stykk- ishólms verður farin sunnudaginn 18. maí nk. kl. 10 frá Bústaðakirkju. Uppl. hjá Laufeyju í síma 898-5208 og Fjólu í síma 581-3276. Félagsheimilið Gjábakki | Krumma- kaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10. Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga er fjölbreytt dagskrá, m.a. opn- ar vinnustofur, spilasalur o.m.fl. Sund og leikfimiæfingar eru í Breiðholts- laug mánud. og miðvikud. kl. 9.50. Helgistundir eru á fimmtudögum kl. 10.30 í samstarfi við Fella- og Hóla- kirkju. Uppl. um starfsemina á staðn- um og s. 575-7720. Hæðargarður 31 | Bókmennta- dagskrá til heiðurs skáldunum Ólöfu frá Hlöðum og Skáld-Rósu verður í Leikhúsinu að Möðruvöllum í Hörg- árdal fimmtudaginn 15. maí kl. 20.30. Soffíuhópur frá Hæðargarði 31 undir stjórn Soffíu Jakobsdóttur leikara og Tungubrjótar frá Dalbraut 18 undir stjórn Guðnýjar Helgadóttur leikara. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snæ- landsskóla, Víðigrund kl. 9.30. Uppl. í síma 564-1490. SÁÁ félagsstarf | Félagsvist og dans verður í Von, Efstaleiti 7, og hefst vistin kl. 20, dans að henni lokinni. Hljómsveitin Klassík leikur fyrir dansi. Sjálfsbjörg – félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu | Kolaportsstemn- ing verður haldin í dag frá kl. 14 í fé- lagsheimilinu í Hátúni 12. Veitingasala. Vitatorg, félagsmiðstöð | Miðviku- daginn 14. maí kl. 10 fyrir hádegi mun biskup Íslands, herra Karl Sig- urbjörnsson, messa hjá okkur. Allir eru velkomnir. Fimmtudaginn 15. maí kl. 13 verður farið suður með sjó, í Herdísarvík, Strandarkirkju og í Eden, þar verða kaffiveitingar. Uppl. í síma 411-9450. Kirkjustarf Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Jesú- konur í kaffisal kirkjunnar kl. 10-12. Konur á öllum aldri velkomnar. Byrj- um á morgunverði, lofum Guð sam- an. Ester Jacobsen talar. dagbók Í dag er laugardagur 10. maí, 131. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Fagnið því, þótt þér nú um skamma stund hafið orðið að hryggjast í margs konar raunum. (1Pt. 1, 6.) Ráðstefna verður haldin ávegum MANNAUÐS áþriðjudag, 13. maí, í húsiHáskólans í Reykjavík við Ofanleiti. Yfirskrift námskeiðsins er Er pláss fyrir starfsframa tveggja ein- staklinga á þínu heimili? – Áskoranir og tækifæri, og segir Elfa Hrönn Guðmundsdóttir frá: „Við fjöllum um þær áskoranir sem pör standa frammi fyrir þegar báðir aðilar eru á fullu á sinni framabraut. Þetta eru pör þar sem báðir aðilar eru ekki í dæmigerðum „níu-til-fimm“ störfum heldur gegna stöðum sem krefjast þess að þau sýni sveigjanleika og sinni verkefnum eða bregðist við uppákomum utan venjulegs vinnu- tíma,“ segir Elfa sem er leiðtogi MANNAUÐS. „Pör í þessari stöðu þurfa oft að leita sérstakra lausna til að samræma fjölskyldu og frama, og geta þessar lausnir bæði orðið til hjá þeim sjálfum og einnig falist í fram- lagi samfélags og fyrirtækis. Önnur pör fara þá leið að annar aðilinn setur starfsframa sinn á bið svo hinn geti sinnt framanum af fullum krafti, en skipta svo kannski um hlutverk síð- ar.“ Dagskrá ráðstefnunnar hefst með erindi dr. Stevens Poelmans, prófess- ors við IESE-háskólann í Barcelona: „Hann hefur stundað rannsóknir á pörum á framabraut og skrifað bæk- ur um það efni,“ segir Elfa Hrönn. „Steven skoðar í fyrirlestrinum helstu áskoranir sem þessi pör standa frammi fyrir. Hann segir líka frá rannsóknum IESE-háskólans á sviðinu, og fjallar um leiðir sem fyr- irtæki hafa farið til að koma til móts við pör í þessari stöðu.“ Eftir stutt kaffihlé munu nokkur framapör deila reynslusögum sínum með ráðstefnugestum: „Allt er þetta fólk þar sem báðir aðilar í samband- inu eru í krefjandi störfum sem kalla á mikinn sveigjanleika og álag. Þau munu leyfa okkur að skyggnast inn í lífið á heimilinu og segja frá þeim hindrunum sem þau hafa mætt og þeim lausnum sem þau hafa fundið.“ Ráðstefnunni lýkur með erindi Andrésar Ragnarssonar sálfræðings, „en hann hefur starfað mikið við hjónaráðgjöf og segir frá þeim vandamálum framahjóna sem sál- fræðingar þurfa helst að fást við,“ segir Elfa Hrönn. Nánari upplýsingar og skráning er á www.mannaudur.is og er veittur 60% afsláttur af þátttökugjaldi fyrir pör. Fjölskyldan | Fjallað um hindranir sem mæta pörum á framabraut Geta bæði átt starfsframa?  Elfa Hrönn Guðmundsdóttir fæddist í Reykja- vík 1965. Hún lauk stúdents- prófi frá VÍ 1985, B.A. í stjórn- málafræði frá HÍ 1993 og MBA frá HR 2007. Elfa Hrönn var starfsmannastjóri hjá Intrum á Íslandi, starfaði við sér- verkefni á vegum Viðskitparáðs og VÍ vegna Listmenntaskóla Íslands og hefur frá 2008 verið leiðtogi MANNAUÐS. Elfa Hrönn er gift Eyjólfi Jóhannssyni sölustjóra og eiga þau tvö börn. Tónlist Hallgrímskirkja | Mótettukór Hallgríms- kirkju flytur Vesper eftir Sergei Rachm- aninov annan í hvítasunnu, 12. maí, kl. 17. Einsöngvarar: Vladimir Miller basso prof- ondo frá St. Pétursborg, Nebojsa Colic ten- ór og Auður Guðjónsdóttir alt. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Miðasala s. 510- 1000, sjá nánar á www.listvinafelag.is Fréttir og tilkynningar GA-fundir (Gamblers Anonymous) | Ef spilafíkn hrjáir þig eða aðstandendur þína er hægt að fá hjálp með því að hringja í síma 698-3888. Glætan bókakaffi | Aðalstræti 9. Ýmis til- boð og kaupaukar í tilefni dagsins. Allir eru hvattir til að leggja leið sína í miðborgina og njóta þess sem boðið verður upp á í dag. „Komdu í bæinn“. Minnum einnig á heimasíðuna þar sem hægt er að skoða bókaúrvalið, www.glaetan.is Við sendum með pósti. Myndlist Eden, Hveragerði | Erla Magna Alexand- ersdóttir heldur málverkasýningu í Eden til 14. maí. Hún sýnir olíumálverk. Þetta er 14. einkasýning Erlu. Hallgrímskirkja | Í dag kl. 14 verður opnuð sýning í forkirkju Hallgrímskirkju, sem myndlistarnemar Listaháskólans hafa unn- ið með Einari Garibalda Eiríkssyni, prófess- or við LÍ. Sýningin er samvinnuverkefni Listaháskólans, Listvinafélags Hallgríms- kirkju og Hins íslenska Biblíufélags í tilefni nýju Biblíuþýðingarinnar. Saltfisksetur Íslands | Blátt og bleikt, heiti einkasýningar Helgu Sigurðardóttur, vísar í þá liti sem heilla mest og eru viðfangsefnin absrakt, en undirliggjandi er hin magn- þrungna íslenska náttúra sem gefur inn- blástur og kraft. 10 bls. umsögn um Helgu Sigurðardóttur er í apríl/maí 2008 blaði International Artist Magazine. Uppákomur Vestmannaeyjar | Ídag hefst árleg Fjöl- skylduhelgi í Vestmannaeyjum. Vegabréf- um með nánari upplýsingum hefur verið dreift inn á öll heimili og liggja einnig frammi hjá helstu þjónustufyrirtækjum fyrir aðra gesti eyjanna þessa daga. Dag- skráin stendur fram á mánudagskvöld. Yf- irskrift hátíðarinnar er „Stöndum saman“. Fyrirlestrar og fundir Styrkur | Vorfundur Styrks verður í Skóg- arhlíð 8 þriðjudaginn 13. maí, kl. 20. Kynn- ing á sumardvöl fyrir krabbameinssjúkl- inga á Eiðum, Löngumýri og Sólheimum. Gestir: Gunnar Rögnvaldsson og Kolbrún Karlsdóttir. Allir velkomnir. AFMÆLI FRÚ Ingunn Sveins- dóttir í Stykkishólmi er 90 ára í dag, 10. maí. Okkur er bæði ljúft og skylt að minnast ömmu okkar á svo merkum tímamótum. Ingunn er fædd í Köldukinn á Fellsströnd í Dalasýslu og er hún elst tíu systk- ina. Faðir hennar var Sveinn Hallgrímsson og móðir Salóme Krist- jánsdóttir, bæði frá Fellsströnd. Á uppvaxt- arárum Ingunnar voru helstu tilhlökkunardag- arnir reglulegar kirkjuferðir í Dag- verðarnes. Fátt var um aðrar sam- komur eða skemmtanir í sveitinni. Tilkoma útvarpsins var bylting fyrir fólk á þessum árum, en Ingunn heyrði fyrst í útvarpi hjá Elísabetu og Pétri í Dagverðar- nesi. Þá var setið í bað- stofunni með sálma- bækur, hlustað á útvarpið og sungið með. Ingunn á einnig margar góðar minn- ingar frá bæjunum Kvenhóli og Sveins- stöðum, en þann síðari byggði faðir hennar. Um tvítugt kynntist Ingunn Valtý Guð- mundssyni frá Níp á Skarðsströnd. Þau voru gefin saman í Saurbæjarkirkju 3. ágúst 1940 af sr. Ásgeiri Ásgeirs- syni. Ingunn var glæsileg á brúð- kaupsdegi sínum – klædd í síðan bleikan kjól og með blóm í hárinu. Fagnað var eftir á með veislukaffi heima við. Hjónin hófu búskap á Níp en héldu síðan suður til Reykjavíkur til starfa og mennta. Um þær mundir fóru í hönd já- kvæðir breytingatímar hjá þjóðinni. Hernámsárin skópu tekjur, sjálf- stæði og víðsýni. Valtýr starfaði meðal annars hjá hernum og lét vel af þeirri reynslu. Bylting varð í vél- væðingu og landið rafvæddist. Ís- land eignaðist knattspyrnulandslið og Gunnar Huseby varð Evrópu- meistari í kúluvarpi. Sumarið 1950 fluttu Ingunn og Valtýr til Stykkis- hólms. Börnin voru þá orðin fjögur talsins og átti eftir að fjölga um eitt. Valtýr byggði hús við Skúlagötu 4, sem þau nefndu Sveinsstaði, en þar bjuggu þau í 9 ár þar til þau árið 1962 fluttu sig yfir á Austurgötu 9 sem varð heimili þeirra næstu 29 árin. Frá 1991 hafa þau búið að Skólastíg 14a, en Valtýr féll frá í lok árs 2004, níræður að aldri. Afkomendur Ing- unnar og Valtýs eru orðnir fjölmarg- ir og búsettir víða um heim. Þeir hugsa með hlýhug til hennar í dag. Björgvin og Rúnar Þorsteinssynir. Ingunn Sveinsdóttir FRÉTTIR FAGRÁÐ um meðferð kynferð- isbrota innan þjóðkirkjunnar hefur beðið Morgunblaðið að birta eft- irfarandi yfirlýsingu: „Í seinni fréttum sjónvarps hinn 8. maí var viðtal við fyrrverandi forstöðumann Barnahúss, þar sem velt var vöngum yfir aðkomu fag- ráðs um meðferð kynferðisbrota innan þjóðkirkjunnar að máli sem lögreglan á Selfossi hefur nú með höndum og varðar meint kynferð- isbrot sóknarprestsins þar. Viðtalið var kynnt sem harðorð gagnrýni og tekið fram að aðkoma fagráðs hefði skaðað málið. Það er að heyra að viðmælandi gangi út frá því að fagráð hafi rætt við meintan þolanda, sem ekki var gert. Í við- talinu sagði orðrétt: „aðkoma full- trúa fagráðs að þessu máli er til þess fallin að gera framburð vitnis fyrir dómi hugsanlega rýrari vegna þess að menn geta bent á að höfð hafi verið áhrif á það hvað barnið segir með endurteknum við- tölum – þess háttar viðtöl eru einn- ig íþyngjandi.“ Það skal tekið fram að fagráð hefur í einu og öllu starfað eftir gildandi lögum. Núverandi fagráð er skipað presti, lögfræðingi og uppeldis- og afbrotafræðingi og hafa hinir tveir síðastnefndu enga aðkomu að kirkjunni að öðru leyti. Fagráð gætir þess sömuleiðis að talsmenn þess séu ekki í störfum á vegum kirkjunnar. Í því máli sem nú er til umfjöllunar hefur fagráð gætt þess að ekki sé rætt við meintan þolanda og þannig ekki raskað rannsóknarhagsmunum málsins. Fulltrúi fagráðs hefur því ekki valdið því að meintur þolandi þurfi að þola endurtekin og íþyngj- andi viðtöl eins og sagt er í frétta- viðtalinu. Fagráð gerir athugasemd við að ekki var við undirbúning fréttar- innar sannreynt hvort það væri rétt sem viðmælandi virtist gefa sér, að fulltrúi fagráðs hefði rætt við meintan þolanda, en á þeirri rangfærslu hvílir sú staðhæfing að aðkoma fagráðs hafi skaðað málið. Við gerð fréttarinnar var ekki leit- að upplýsinga frá fagráðinu eða sjónarmiða þess. Fréttin kastar því rýrð á fagráð, ef ekki kirkjuna alla sem hefur, með starfsreglum þeim sem kirkjuþing hefur sett nr. 739/ 1998, tekið einarða afstöðu til líða ekki kynferðisbrot innan sinna veggja. Þær starfsreglur eru ekki til aðfinnslu heldur miklu heldur til eftirbreytni öðrum sem vilja taka af festu á kynferðisbrotum. Fagráði er falið að fylgja eftir málum svo að þau fari í viðhlítandi farveg en hefur sjálft ekki rann- sóknarhlutverk. Í tilvikum fullorð- inna er fagráði ætlað að styðja meinta þolendur. Það styður þá til að koma umkvörtunum sínum á framfæri og fá viðhlítandi umfjöll- un í réttarkerfinu eða, ef viðkom- andi vill eða treystist ekki til að leggja fram kæru, þá beina málinu til úrskurðarnefndar kirkjunnar. Í tilvikum þar sem börn eiga hlut að máli er þeim sem málið ber fram, gerð grein fyrir að málinu skuli vísað til barnaverndarnefndar. Því er síðan vísað til barnavernd- arnefndar sem hefur allt forræði málsins á sínum höndum.“ Fagráð hefur starfað eftir gildandi lögum MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Brim- borg: „Að blekkja neytendur er bann- að samkvæmt íslenskum lögum. Eðlileg og sjálfsögð neytendavernd er þó ekki það eina sem vakir fyrir löggjafanum, heldur er slíkt bann ekki síður nauðsynleg forsenda þess að samkeppni fái þrifist. Lög- gjöfinni er því ekki síður ætlað að stuðla að heiðarlegri og um leið virkri verðsamkeppni, sem myndi ella snúast fljótlega upp í keppni um snjöllustu neytendablekking- arnar. Þessu mikilvæga markmiði 5. og. 6. gr. laga nr. 57/2005 um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins, mega fyrirtæki ekki missa sjónar á í markaðsstarfi sínu. Auglýsinga- herferðir sem innihalda skilaboð sem eru röng eða villandi skaða neytendur og rýra um leið traust þeirra á fyrirtækjum innan þeirra atvinnugreina sem þau starfa. Þetta á ekki hvað síst við á tímum vaxandi samdráttar í efnahagslíf- inu og verðbreytinga samfara ör- um gengisbreytingum. Sem kunnugt er hefur Brimborg gert alvarlegar athugasemdir við markaðsherferð Heklu „varanleg verðlækkun um allt að 17% gegn verðbólgu.“ Loforð sem viðkom- andi umboð gefur neytendum stenst ekki skoðun, jafnvel þó að einungis sé gefið fyrirheit um „allt að“ 17% verðlækkun. Samkvæmt orðanna hljóðan felur slíkt fyr- irheit þó annað og meira í sér en 17% verðlækkun á einum bíl, nánar tiltekið Audi A4 1.8 TFSI bensín 4 dyra, 6 gíra beinskiptum, sem hef- ur ekki selst hér á landi í hálft þriðja ár. Enginn beinskiptur Audi A4 með bensínvél á stærðarbilinu 1.6 til 2.0 hefur selst á árinu 2008, enginn seldist á árinu 2007, enginn seldist á árinu 2006 og aðeins tveir bílar seldust á árinu 2005. Vel kann að vera að þarna sé um allt að 17% verðlækkun að ræða. Það er engu að síður augljóst, að verðlækkun á bíl sem ekkert hefur selst af, hefur engin áhrif til lækk- unar verðbólgu. Auglýsinga- herferðin sem byggist á baráttu gegn verðbólgu og lætur í veðri vaka að allar bíltegundir frá Heklu hafi lækkað um allt að 17%, er af þeim sökum villandi fyrir neyt- endur, ekki réttmæt gagnvart keppinautum og brýtur í bága við lög. Neytendastofa hefur m.a. það hlutverk að fylgjast með því, að fyrirtæki fari að lögum varðandi auglýsingar og kynningar hvers konar og stuðla þannig að vernd neytenda og frjálsri samkeppni. Brimborg hefur sent Neyt- endastofu formlega athugasemd vegna umræddrar auglýsinga- herferðar og er stofnunin hvött til að bregðast hratt við. Trúverð- ugleiki Heklu er ekki aðeins í húfi, heldur trúverðugleiki bílgrein- arinnar í heild.“ Brimborg sendir Neytendastofu athugasemd STJÖRNUSTELPUR er fyrirtæki sem hefur einsett sér að skapa öruggt og skapandi umhverfi fyrir stelpur sem þeim hefur ekki boðist áður annars staðar. Miðað er að því að efla sköp- unargleði og sjálfstraust m.a. í gegnum leiki. Stjörnustelpur standa fyrir þremur mismunandi námskeiðum fyrir stelpur í sumar, poppstjörnu- námskeiði sem er fyrir stelpur á aldrinum 9-11 ára, prinsessu- námskeiði fyrir stelpur á aldrinum 4-7 ára og föndurnámskeiði fyrir stelpur á aldrinum 6-11 ára. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.stjornustelpur.is Skráning er hafin og fer hún fram á vefnum stjornustelp- ur@stjornustelpur.is. Takmark- aður fjöldi nemenda er á hvert námskeið. Staðfestingargjald er 10.000 kr. Námskeið hjá Stjörnustelpum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.