Morgunblaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Þvílík brúðkaupsferð, þú ert nú algjör krúsindúlla, Haarde minn, það var nú varla hægt að enda húllumhæið á rómantískari stað. Jóhanna Sigurðardóttir félags-málaráðherra hafði lög að mæla þegar hún sagði á síðasta áratug: „Minn tími mun koma!“ Hennar tími er svo sannarlega kominn. Mest ánægja ríkir meðal lands- manna með hennar störf sem ráð- herra.     Jóhanna er þeimeiginleikum gædd að bregð- ast skjótt við, taka á vandanum áður en hann er orðinn óviðráð- anlegur og ráð- ast í að vinda strax ofan af vit- leysu, ef hún sér að eitthvað slíkt er í uppsiglingu.     Þetta sýndi ráðherrann m.a. ífyrradag þegar hún brást snöf- urmannlega við umkvörtun föður fatlaðs drengs hér í Morgunblaðinu um að Svæðisskrifstofa fatlaðra í Reykjavík hygðist láta íbúa á sam- býlum fatlaðra greiða fyrir heim- ilistæki.     Ráðherrann tók strax af skarið ogupplýsti hér í Morgunblaðinu í gær að slíkar greiðslur fatlaðra hefðu aldrei komið til tals í ráðu- neytinu og hún hefði þegar leiðrétt þennan misskilning hjá Svæð- isskrifstofunni.     Frábært hjá Jóhönnu í alla staði!     Þurfum við ekki fleiri svona ráð-herra? Voru ekki uppi áform um það í Samfylkingunni að skipta Jóhönnu út á miðju kjörtímabili?     Ætlar Samfylkingin að haldaþeim áformum sínum til streitu að losa sig við langvinsæl- asta ráðherrann sinn?!     Hvað gerir Ingibjörg Sólrún nú?Kannski ekki neitt?! STAKSTEINAR Jóhanna Sigurðardóttir Vindur strax ofan af vitleysunni                      ! " #$    %&'  (  )                     *(!  + ,- .  & / 0    + -           !   !             12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (   "   # #    $ $ %$  % &  $$  '                 :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).? %" "%    "%" %" %" % %"  %" %"  %"  % %  %   "%                       *$BC $$$$               !    "    #$ % &  '    '  &   *! $$ B *! ( ) *$ $)$     ! + <2 <! <2 <! <2 ( * $,  ' -$.   /                      8   (      $ B   " 2  (      " (#       !   #       % ") $ *  (   *     #  #     $ % *  ' 01 $ $22  $! $3  !$,  ' SIGLINGASTOFNUN STEFNUMÓTUN Í SAMGÖNGUM Samgönguráð efnir til sjöunda og síðasta fundar í fundaröð sinni um stefnumótun í samgöngum. Fundarefnið að þessu sinni er: Nútíma upplýsingatækni í samgöngum. Áætlun um leiðsögu- og upplýsingakerfi. Arnór B. Kristinsson Flugstoðum ohf. fjallar um flugleiðsögu. Guðjón Scheving Tryggvason Siglingastofnun fjallar um leiðsögu til sjós. Björn Ólafsson Vegagerðinni fjallar um landleiðsögu. Umræður og fyrirspurnir Fundarstjóri er Dagur B. Eggertsson formaður samgönguráðs Erindin byggjast á væntanlegri leiðsöguáætlun, nýrri stefnumótun frá samgönguráðuneytinu. Gera má ráð fyrir að leiðsögutækni muni auka öryggi, hagkvæmni og afköst í öllum samgöngugreinum í náinni framtíð. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 15. maí 2008 kl. 15:00 - 17:00 á Hótel Sögu Reykjavík í salnum Harvard II. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Væntanlegir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig á netfangið postur@sam.stjr.is eigi síðar en klukkan 12:00 þann 15. maí 2008. Samgönguráð Flugmálastjórn Íslands - Siglingastofnun Íslands - Vegagerðin Samgönguráðuneytið VEÐUR SIGMUND Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Bjarni Harðarson | 9. maí Desember-gjafirnar teknar til baka ... En þá ber svo við að stjórnvöld bera nú fyrir sig að þessi hópur þurfi nú ekki að fá eins rífleg- ar bætur og ella hefði verið þar sem þeim var skenkt ríflega í desem- ber síðastliðnum. Þannig notar ríkið það lag sem kjarasamningarnir skapa til að innheimta 700 milljón króna kjarabótina með 3,6 milljarða sparn- aði. Sparnaði sem kostar hvern bóta- þega um 10 þúsund á mánuði og þá ... Meira: bjarnihardar.blog.is Þorleifur Ágústsson | 8. maí Fast þeir sóttu sjóinn ... grásleppufeðgar Þungbúinn dagur með súld og gráma. Ég átti leið út hlíðina – um Hnífs- dal og við mér blasti Ós- hlíðin. Vegavinnutæki stóðu mannlaus við yf- irgefin hesthús – það eru breytingar í aðsigi – gera á göng til að hleypa lífi til Bolungarvíkur – eða frá – lífi sem vonandi smitar norðanverða Vestfirði alla – á suðurfirðina er ófært – þar er líf – bara ótengt líf. Óshlíðin var óárennileg í grárri birtunni og ... Meira: tolliagustar.blog.is Jón Magnússon | 9. maí Sumarlokanir á tímum loftrýmiseftirlits Í fréttum í dag er sagt frá því að loka eigi öldr- unaríbúðum á Þingeyri yfir sumartímann og flytja þá sem þar búa á Ísafjörð. Fljótlega sjáum við fréttir um sum- arlokanir sjúkradeilda og aðrar sparn- aðarráðstafanir vegna sumarleyfa. Skert þjónusta er óumflýjanleg segja forstöðumennirnir vegna þess að við höfum ekki peninga til annars. Sjálf- sagt allt rétt. ... Meira: jonmagnusson.blog.is Ragnar Freyr Ingvarsson | 8. maí Ljúffengur ofnbak- aður kjúklingur ... ... Þessi uppskrift er sí- gild á mínum bæ. Ég er mikill aðdáandi ofnbak- aðs kjúklings og þá sér- staklega þegar ég grilla hann á teini – ekkert betra. Núna vorum við bara svo mörg í mat að ekki var hægt að grilla á teini, heldur var kjúklingum nánast staflað upp á ofnskúffu. Þetta var glæsileg sjón, nokkrir kryddaðir kjúklingar í röðum. Ég hef eitthvað verið að forvitnast hvort að hægt sé að nálgast lífrænan kjúkling, eða free range hænur en hef ekki orðið neins vísari. Það væri gaman ef einhver gæti beint mér á rétta braut. Ég segi oft að hlutirnir séu einfaldir, sem er í raun alveg rétt. Það er fátt sem ég geri í minni eldamennsku sem er flókið eða krefst mikillar tæknilegrar kunnáttu. Hins vegar má segja að ég fari oft lengri leiðina að hlutunum eins og til dæmis við sósu- gerð. Ég byrja eiginlega alltaf að á því að búa til hefðbundið grænmetissoð. Stundum hef ég gert kjúklinga, gæsa, nauta, andasoð frá grunni en alltof sjaldan. Þar svindla ég stundum og nota gott soð – mér finnst Oscars vera ágætt og gefa frá sér ágætt soð án málmbragðs sem oft fylgir teng- ingasoði. Eins hef ég verið að nota fljótandi soð sem hafa reynst mér hreint ágætlega. Ljúffengur ofnbakaður kjúklingur með rótargrænmeti, einföldu salati og ostasoðsósu Þessi uppskrift á rætur sínar að rekja í bækur/þætti Jamie Oliver - þetta var eiginlega uppskrift sem ég sá á vídeóspólu með matreiðsluþátt- um hans sem mér var gefin og er eig- inlega fyrsta uppskriftin sem ég man eftir að hafa veitt mér mikinn inn- blástur í eldhúsinu. Fyrst var að útbúa kryddsmjör sem var gert á eftirfarandi hátt; 100 gr af mjúku söltuðu smjöri, 5 msk af góðri jómfrúarolía var sett í skál. Þá heilmikið af fersku basil, steinselju, timian, safi úr 1 sítrónu sí- trónu, salt og piprar er hnoðað saman og sett undir haminn. Hamnum er lyft varlega upp þannig að pláss myndast á milli hans og kjötsins. Þetta er ein- falt, bara renna hendinni undir ham- inn og skilja hann frá kjötinu, bara að passa sig að rjúfa ekki gat á hann þannig að kryddsmjörið renni ekki út. Kjúklingurinn er settur í 180 gráðu ... Meira: ragnarfreyr.blog.is BLOG.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.