Morgunblaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Tuttugu og tvær myndir komatil greina sem handhafarGullpálmans í Cannes en há- tíðin hefst í 61. sinn í næstu viku. Opnunarmynd kvikmyndahátíð- arinnar nefnist Blindness og er verk leikstjórans Fernandos Meiel- les (The Constant Gardener) en að vanda verður að finna myndir vel þekktra leikstjóra í bland við minna þekkta. Á meðal þeirra nafnkunnugri má nefna Clint Eastwood en mynd hans, Changel- ing, fjallar um barnsrán og hug- arvíl móðurinnar sem grunar að réttu barni hafi ekki verið skilað til hennar eftir fundinn. Meðal leik- enda í myndinni eru Angelina Jolie og John Malkovich. Maðurinn sem gerði mynd sem gerðist að hluta til inni í höfðinu á John Malkovich, Charlie Kaufman, mætir einnig til leiks með mynd sýna Synecdoche, New York. Þar fer Philip Seymour Hoffman fyrir hópi leikara í hutverki leikhúsrek- anda sem lendir ósjaldan í vand- ræðum þegar hann reynir að byggja eftirlíkingu af Manhattan í leikhúsinu sínu.    Heimamaðurinn Laurent Cantetsýnir myndina Entre Les Murs. Myndin er byggð á sögu, handriti og ævi François Bégau- deau sem lýsir reynslu sinni sem kennari í litlum skóla í París. Ann- ar landi þeirra, Arnaud Desplech- in, verður aðeins úr takt við sól- skinið í Cannes og sýnir mynd sína Un Conte De Noël (Jólasaga). Þriðji Frakkinn í hópnum heitir Philippe Garrel og hann leikstýrir syni sínum Louis og fleirum í myndinni La Frontiére De L’Aube. Ljósmyndarinn og kvikmynda- gerðarmaðurinn Nuri Bilge Ceylan kemur frá Tyrklandi með mynd sína um apana þrjá (UC Maymun) og Ari Folman frá Ísrael með teiknimyndina Watz With Bashir. Ítalinn Matteo Garrone sýnir okkur svo starfsemi nútímaglæpa- fjölskyldu á Ítalíu í mynd sinni Go- morra.    Bræðurnir frá Belgíu, Jean-Pierre og Luc Dardenne, sýna sína nýjustu mynd, Le Silence De Lorna (Þögn Lornu). Þeir bræður geta þegar státað af einum Gull- pálma en hann fengu þeir árið 2005 fyrir mynd sína L’Enfant. Enn meiri góðkunningi hátíð- arinnar telst þó Atom Egoyan sem nú er tilnefndur til Gullpálmans í fimmta sinn án þess að hafa hlotið verðlaunin eftirsóttu. Hver veit nema mynd hans Adoration snúi gæfunni honum í hag. Og talandi um góðkunningja hátíðarinnar. Wim Wendes hefur átta sinnum verið tilnefndur til verðlaunanna eftirsóttu og einu sinni hlotið, fyrir Paris, Texas. Í ár sýnir hann sína nýjustu mynd, Palermo Shooting.    Annað tveggja tvíeykja í leik-stjórastólnum að þessu sinni eru Walter Salles (The Motorcycle Diaries) og Daniela Thomas með örlagasögu tveggja bræðra, Linha De Passe. James Gray mætir til Cannes annað árið í röð með mynd sem hann sjálfur skrifaði og leik- stýrði. Í fyrra var það We Own the Night og í ár Two Lovers. Joaquin Phoenix og Gwyneth Paltrow leika elskendur í meinum. Svo verður spennandi að sjá hvernig Steven Soderbergh gerir sér mat úr ferð Che Guevara til New York til að ávarpa þing Sameinuðu þjóðanna árið 1964. Það er Benicio Del Toro sem fer með hlutverk Che. Önnur mynd í ævisagnastíl nefnist El Divo og fjallar um ítalska forsætisráð- herrann Giulio Andreotti, sem hef- ur verið kjörinn á þing sjö sinnum á undanförnum 60 árum. Það er ítalski leikstjórinn Paolo Sorrent- ino sem gerir myndina.    Kínverski leikstjórinn ZhangkeJia sýnir myndina Er Shi Si Cheng Ji (Borgirnar 24) og kollegi hans frá Singapúr, Eric Khoo, sýn- ir My Magic. Frá Argentínu kemur svo Lucrecia Martel með La Mujer Sin Cabeza (Höfuðlausa konan) og frá Filippseyjum Brillante Men- doza með Serbis. Pablo Trapero freistar þess svo að leyfa áhorf- endum að skyggnast inn í hug- arheim móður sem reynir að ala son sinn upp innan veggja fang- elsis. Myndin nefnist Leonera. Yngsti leikstjórinn í hópnum hlýtur svo að vera Ungverjinn Kornel Mundruczó með mynd sína Delta. Það er svo í höndum níu manna dómnefndar undir eflaust styrkri stjórn Seans Penns að ákveða hver þessara mynda hlýtur Gullpálmann í Cannes hinn 25. maí næstkom- andi. Hátíðin hefst hins vegar á miðvikudaginn kemur. Cannes á næsta leiti Blinda Julianne Moore og Mark Ruffalo leika í opnunarmynd hátíðarinnar, Blindness. Kvikmyndin er byggð á skáldsögu portúgalska nóbelsverðlaunhafans Jose Saramago. Reuters Cannes 2007 Gullpálmann í fyrra hlaut 4 Luni, 3 Saptamini Si 2 Zile eftir rúmenska leikstjórann Cristian Mungiu. AF LISTUM Birta Björnsdóttir »Enn meiri góðkunn-ingi hátíðarinnar telst þó Atom Egoyan sem nú er tilnefndur til Gullpálmans í fimmta sinn án þess að hafa hlotið verðlaunin eftirsóttu. birtabjorns@gmail.com Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÉG er náttúrulega mjög ánægður í mínu hjarta yfir þessu. Þetta kom mér mjög á óvart, en ég er af- skaplega þakklátur fyrir þessa við- urkenningu,“ segir tónlistarmað- urinn Stefán Hilmarsson sem í gær var útnefndur heiðurslistamaður Kópavogs árið 2008. „Það er gaman að bæjarfélagið skuli aðeins hugsa út fyrir boxið. Það hefur verið þannig að ákveðnar stéttir listamanna hafa oftar verið heiðraðar með þessum hætti, og þá oft þeir sem kalla mætti klassíkera. Það er auðvitað ekkert nema gott um það að segja, en það má kannski segja að hin nýgilda list hafi þarna fengið ákveðið vægi til mótvægis við hina sígildu. Það væri gaman að sjá þessa dýnamík áfram í þessum útnefningum á næstu ár- um,“ segir Stefán sem hefur búið í Kópavogi ásamt fjölskyldu sinni frá árinu 1997. „Við fluttum úr Reykjavík í Kópavog á sínum tíma, og þá var fátt um fína drætti í húsnæðis- málum í borginni. Við urðum hins vegar vör við mikinn uppgang og ákveðna djörfung og framsækni í Kópavoginum. Mér finnst þetta val endurspegla þessa djörfung og þá framsækni sem hefur einkennt þetta bæjarfélag,“ segir Stefán sem er ekkert á leiðinni úr Kópavog- inum. „Það er gott að búa í Kópa- vogi, ég get vitnað um það,“ segir hann og hlær. Aðspurður segir Stefán líklegt að hann muni halda tónleika í Kópa- vogi áður en langt um líður. „Það er ákveðin hefð fyrir því að heið- urslistamenn hafi sett upp sýningu eða haldið tónleika. Ætli ég reyni það ekki, þannig að ég á svona frekar von á því að ég muni halda tónleika á næstu mánuðum.“ Sálin og fjölskyldan Það var Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, sem út- nefndi Stefán heiðurslistamann við hátíðlega athöfn í Salnum í gær. Að launum hlaut Stefán verðlaunagrip, auk peningaverðlauna. „Ég veit ekki hvað það var mikið, þetta kom í umslagi sem liggur nú bara heima. En það er náttúrulega al- gjört aukaatriði,“ segir Stefán sem tók að sjálfsögðu lagið við athöfnina í gær. „Ég tvinnaði saman mína helstu samstarfsfélaga, það er að segja Sálina, og fjölskyldu mína, og flutti lagið „Undir þínum áhrif- um“.“ Þessa má loks geta að myndlist- armaðurinn Baltasar Samper var útnefndur heiðurslistamaður Kópa- vogs á síðasta ári. Hugsað út fyrir boxið Morgunblaðið/hag Kópavogsbúar Stefán ásamt Sigurrósu Þorgrímsdóttur, formanni lista- og menningarráðs, og Gunnari I. Birgissyni bæjarstjóra. Stoltur „Mér finnst þetta val endurspegla þessa djörfung og þá framsækni sem hefur einkennt þetta bæjarfélag,“ segir Stefán sem sést hér halda stutta tölu í Salnum í gær. Stefán Hilmarsson útnefndur heið- urslistamaður Kópavogs árið 2008
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.