Morgunblaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.05.2008, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI ÞRÍTUGASTA og fjórða starfsári Myndlistaskólans á Akureyri lýkur með veglegri sýningu sem hefst í dag. Sýnd verða verk nemenda for- námsdeildar, listhönnunar- og fag- urlistadeildar og þar gefur að líta sýnishorn af því helsta sem þeir hafa verið að fást við í myndlist og hönn- un á þessu skólaári. Einnig verða sýnd verk eftir nemendur sem voru á barna- og unglinganámskeiðum á vorönn. Sýningin verður opin kl. 14 til 18 í dag, á morgun og á mánudag. Fjörutíu og fjórir nemendur stund- uðu nám í dagdeildum og af þeim munu sautján brautskrást að þessu sinni. Á myndinni eru þeir sem ljúka námi sem myndlistarmenn og graf- ískir hönnuðir; frá vinstri: Inga Björk Harðardóttir, Margrét Ingi- björg Lindquist, Friðlaugur Jóns- son, Karl Halldór Reynisson, Mar- geir Dire Sigurðsson og Hertha Richardt Úlfarsdóttir. Vorsýning í Mynd- listaskólanum sjúkrahússins að færa þjónustuna sem næst þeim sem þurfi á henni að halda, fjölga aðgerðum og eyða biðlistum og þessir samningar séu stórir áfangar á þeirri leið. Samningur Sjúkrahússins á Akureyri og Ak- ureyrarbæjar um þjónustu FSA við öldrunar- heimilin á Akureyri felur það í sér að frá og með 1. september nk. mun sjúkrahúsið annast læknis- og vaktþjónustu á öldrunarheimilum Akureyrarbæj- ar. Þar með verða allar öldrunarlækningar í sveit- arfélaginu á einni hendi, þ.e. hvað varðar öldr- unarheimili Akureyrarbæjar, öldrunar- lækningadeild FSA á Kristnesspítala og hjúkrunardeildina í Seli. Öldrunarlæknum við FSA verður fjölgað um tvo þegar samningurinn tekur gildi og þjónusta á þessu sviði mun aukast verulega, að sögn Þorvaldar Ingvarssonar, fram- kvæmdastjóra lækninga á FSA. „Þegar sami læknir sér sjúklinginn hvort sem hann er innan eða utan stofnunarinnar verður yfirsýnin eðlilega meiri og þar af leiðandi er þetta fyrirkomulag líka betra fyrir sjúklinginn. Breytingin er fyrst og fremst gerð með hag sjúklinganna í huga,“ sagði Þorvaldur við Morgunblaðið. SÉRFRÆÐINGAR á Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) fá rafrænan aðgang að sjúkraskrám þeirra sjúklinga sem þeir sinna fyrir Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA), skv. samningi sem fulltrúar stofnananna undirrituðu á ársfundi FSA í fyrra- dag. Samningurinn er sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi og markar því þáttaskil á sviði upplýs- ingatækni í heilbrigðisþjónustu. Forráðamenn FSA undirrituðu sjö samninga á ársfundinum, eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær. Þar af voru fjórir við heilbrigð- isráðherra, en aðrir voru við Akureyrarbæ, HSA og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga á Húsavík. Forstjóri FSA segir samninginn við HSA ein- falda allt vinnuferli og samstarf lækna á stofn- unum tveimur og verða skilvirkara. Samningur FSA við Heilbrigðisstofnun Þing- eyinga er um þjónustu geðlækna FSA við skjól- stæðinga hennar. Sá samningur felur í sér að sér- fræðingar FSA í geðlækningum fara til Húsavíkur tvo daga í mánuði og veita sjúklingum á upptöku- svæði Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga þjónustu sína. „Ég er mjög ánægður með þá samninga sem undirritaðir voru hér á ársfundinum. Þeir eru af- rakstur mikillar vinnu og undirbúnings og eiga það sameiginlegt að styrkja stöðu Sjúkrahússins á Akureyri enn frekar sem annars meginsjúkrahúss landsins. Það er ekki síður mikilvægt í mínum huga að þessir samningar efla samstarf á milli stofnana og á milli svæða og styrkja þar með upp- byggingu sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu í lands- hlutanum,“ segir Halldór Jónsson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. Hann segir stefnu Sögulegur samningur Sérfræðingar FSA fá aðgang að sjúkraskrám sjúklinga sem þeir sinna fyrir HSA Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gaman Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigð- isráðherra og Halldór Jónsson, forstjóri FSA.  Kaffihúsamessa og tónleikar verða haldnir í félagsheimilinu Sæborg í Hrísey í dag kl. 16.00. Séra Kristján Björnsson sókn- arprestur í Vestmanneyjum ásamt kaffihúsakór Landakirkju flytja guðþjónustu á léttum og ljúfum nótum. Foreldrafélag Grunnskólans í Hrísey verður með kaffiveitingar til fjáröflunar fyrir félagsstarfið.  Á morgun kl. 20.00 verða tónleikar í Ketilhúsinu þar sem Anna Jónsdóttir sópransöngkona og Sigríður Freyja Ingimars- dóttir píanóleikari munu flytja lög af nýútkomnum geisladiski, Móðurást. Mæðradagurinn er á morgun og lögin á diskinum eiga það öll sameiginlegt að fjalla á einhvern hátt um móðurina. Þarna er að finna lög gamalla ástsælla tón- skálda, svo sem Eyþórs Stefáns- sonar og Sigvalda Kaldalóns, en einnig nýrri verk, svo sem eftir Björgvin Þ. Valdimarsson, Sigurð Bragason og Egil Gunnarsson, sem samdi lag sérstaklega fyrir diskinn.  Á mánudaginn, annan í hvítasunnu, verður haldin söng- og grínskemmtun í KA-heimilinu með Yfirliðsbræðrum, sem eru Óskar Pétursson og Örn Árnason ásamt undirleikaranum Jónasi Þóri. Þeir hafa unnið saman áður en aldrei komið fram undir þessu nafni. Þetta er fyrsta skemmt- unin í langri tónleikaröð þeirra félaga á landsvísu en þar munu þeir fylgja eftir geisladiski þar sem þeir syngja lög eftir Everly Brothers. Hafa þeir félagar samið íslenskan texta við lögin. Forsala aðgöngumiða er í Eymundsson á Glerártorgi. Miðaverð 2.500 kr. Yfirliðsbræð- ur og fleiri með tónleika Hornafjörður | Tíu þúsundasti fuglinn var merktur hjá Fugla- athugunarstöð Suðausturlands sl. þriðjudagskvöld. Það var mar- íuerla. Merkingar hófust hjá stöðinni vorið 2005 og hafa um 3.100 fuglar verið merktir að meðaltali árin 2005 til 2007. Mun færri fuglar hafa verið merktir í vor en hin þrjú á undan og er líklegasta skýr- ingin frekar rysjótt veður og af- gerandi norðanáttir seinni hluta mars og fram í miðjan apríl, að því er kemur fram á vefnum fuglar.is. Langmest hefur verið merkt af skógarþröstum (4.905) og nær allir í Einarslundi, en alls hafa verið merktir fuglar af 54 tegundum. Margir fuglar hafa endurheimst aftur í Einarslundi, einnig á öðrum stöðum innanlands og á nokkrum stöðum í Evrópu. Tíu þúsund fuglar merktir Eftir Sigurð Mar Halldórsson Hornafjörður | Sú einstaka til- viljun varð á dögunum að reykj- arpípa sem kastað var í sjóinn fyr- ir 16 árum kom í veiðarfæri báts og er nú komin til eiganda síns. Þannig var að Bjartmar Ágústs- son var háseti á Skógey SF árið 1992 og ákvað hann að hætta að reykja í einum róðrinum og kast- aði pípunni sinni í sjóinn. Um dag- inn, 16 árum síðar, var svo Sig- urður Ólafsson SF á humarveiðum í Lóndýpinu og kom þá pípa í troll- ið. Hannes Ingi Jónsson, vélstjóri á Sigurði, kannaðist við gripinn enda var hún merkt og tók pípuna til handargagns. Hann færði svo Bjartmari félaga sínum pípuna og þar með var hún komin aftur til eiganda síns eftir að hafa legið á hafsbotni í 16 ár. Bjartmar telur ólíklegt að þetta verði til þess að hann fari að reykja á ný en furðar sig á þessari tilviljun. Það er einnig með ólík- indum hvað pípan er heilleg og að hún hafi ekki brotnað í humartroll- inu. Morgunblaðið/Sigurður Mar Halldórsson Gamall vinur Bjartmar Ágústsson með pípuna góðu sem hann henti í sjóinn fyrir sextán árum en hefur nú endurheimt með óvæntum hætti. Endurheimti pípuna eftir 16 árSelfoss | Mikil aukning hefur orðiðá nánast öllum sviðum sjúkrahúss Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi fyrstu fjóra mánuði ársins, að því er fram kemur á heimasíðu HSu. Sjúklingum fjölgar og legu- dögum einnig. Sjúklingar sem lagðir eru inn á sjúkradeildir eru mun fleiri og í aprílmánuði var aukningin 23% miðað við sama mánuð í fyrra. Ferl- isjúklingar eru einnig mun fleiri flesta mánuðina og voru 44% fleiri núna en á sama tíma í fyrra. Spegl- unum á meltingarfærum hefur fjölgað mjög mikið og enn fjölgar fæðingum, þær voru 66% fleiri nú í apríl en í fyrra. Aukning á öllum sviðum Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Flóinn | „Ég er þessa stundina að gera gríðarmikinn ask sem ég mun ekki láta frá mér og verður einungis til sýnis,“ segir Sigríður Jóna Krist- jánsdóttir, listakonan Sigga á Grund í Flóahreppi. Hún er einnig að und- irbúa sýningu á útskurðarverkum sínum í Gallerí Ormi í Sögusetrinu á Hvolsvelli. Sýningin verður opnuð í dag, laugardag, kl. 14. Askurinn er hálfur metri í þver- mál og mikið skreyttur. Það gætu því margir borðað úr honum, ef það stæði til boða, en Sigga ætlar að hafa þetta verk eingöngu til sýnis. „Þetta er gamalt og fallegt form – og góðlegt og því gaman að fást við það,“ segir Sigga um askinn. Mikil vinna fer í þetta eina verk en Sigga vonast til að ljúka því fyrir haustið og hafa askinn þá til sýnis í galleríinu Tré og list í Forsæti. Þar eru mörg verk eftir hana til sýnis. Hún fékk styrk úr Menningarsjóði Suðurlands til að vinna að þessu verkefni. Sigga hefur lengi átt sér þann draum að gera allar gangtegundir ís- lenska hestsins. Hún gerði hest á tölti fyrir nokkrum árum og hefur það verk verið sýnt víða, bæði hér á landi og í Englandi, og vakið athygli. Hún hefur ekki treyst sér til að fara út í framhald verksins nema geta einbeitt sér að því. Þess vegna hefur hún meðal annars sótt um lista- mannalaun. Nú elur hún þá von í brjósti að hún geti haldið áfram við hestamyndirnar í haust, þegar ask- urinn verður tilbúinn. „Ég sé hestamyndirnar fyrir mér. Allar gangtegundirnir og svo meri með folald. Þetta er fallegt í huga mér,“ segir Sigga og tekur fram að hestarnir þyrftu að vera til sýnis, all- ir saman, og ekki hægt að selja þá. „Það hafa margir falast eftir töltar- anum en ég hef ekki viljað láta hann frá mér,“ segir listamaðurinn. Hún hefur mesta ánægju af því að skera út verk sem eingöngu eru hugsuð til sýningar. „Þessi verk kalla svo stíft á mig að ég verð að koma þeim frá mér. Tíminn líður hraðar en maður vill,“ segir hún. Jafnframt segist Sigga ekki geta annað en tekið einhverjar pantanir inn á milli, eftir því sem tíminn leyfi. „Þessi verk kalla svo stíft á mig“ Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Stöllur Listakonan Sigga á Grund með verk sitt, Kristólínu Rós. Listakonan Sigga á Grund opnar sýningu á Hvolsvelli LANDIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.