Morgunblaðið - 10.05.2008, Side 14

Morgunblaðið - 10.05.2008, Side 14
14 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR – Byrjum á framtíðinni. Hvernig sérðu hana fyrir þér, nú þegar sam- þykkt hefur verið að afskrá félagið? Frá því að ég tók við í byrj-un desember höfum viðunnið að því að endur-skipuleggja eignasafnið og renna styrkari stoðum undir reksturinn. Ég held að það hafi gengið í samræmi við það sem lagt var upp með fyrir þetta tímabil. Á móti voru aðstæður á fyrsta árs- fjórðungi erfiðar en ég tel að við séum komin fyrir vind hvað það varðar. Við erum í stakk búin til að styðja við kjarnafjárfestingar okkar í Glitni, Tryggingamiðstöðinni og Landic Property, sem verður okkar meginhlutverk fyrst um sinn.“ – Verður rekstrarforminu breytt? „Með einum eða öðrum hætti verður það svipað, við munum halda áfram að skoða hvað má bet- ur fara. Við stefnum að því að minnka efnahagsreikninginn, vænt- anlega um 50-100 milljónir í viðbót og að ná eiginfjárhlutfallinu yfir 40%. Við verðum þó áfram fjárfest- ingarfélag með eignarhluti í þess- um félögum, ég sé ekki fyrir mér að stórkostlegar breytingar verði á því.“ – Svo FL Group verður áfram til? „Já, ég sé að minnsta kosti ekki annað í stöðunni í dag, félagið er ennþá sterkt. Fyrir utan kjarna- fjárfestingarnar þrjár eru margar aðrar eignir sem við þurfum áfram að vinna í. Líklega munum við selja einhvern hluta þeirra í burtu til að einbeita okkur að þessum þremur. En félagið eins og það er í dag mun, með einum eða öðrum hætti, halda áfram.“ – Hvernig verður fjárfestingar- stefnan? „Meginþunginn og áherslurnar liggja í fjármálageiranum, með banka- og tryggingarekstrinum, og svo fasteignafélögum. Utan land- steinanna höfum við stækkað fjár- festingar okkar í Refresco, stærstu framleiðslu drykkjarvara undir eig- in vörumerkjum viðskiptavina (e. private label) í Evrópu. Við höfum líka markvisst verið að fara út úr fluggeiranum með sölu allra eigna þar nema Northern Travel Hold- ing. Í dag eigum við fjögur félög á fasteignasviðinu og munum líklega reyna að fækka þeim niður í eitt fé- lag og einbeita okkur að sterkasta félaginu í þeim hópi. Ég sé ekki fram á að við munum fara út í margar nýjar fjárfestingar á næstunni, nema þá einhverjar sem myndu styðja við og stækka núverandi eignir.“ – Nú hafa þegar hafist aðgerðir sem miða að því að draga úr rekstrarkostnaði, m.a. með fækkun starfsfólks. Verður gengið lengra í þessum sparnaðaraðgerðum? „Við höfum gert mjög mikið á síðastliðnum fimm mánuðum. Með- al aðhaldsaðgerða má nefna að starfsmönnum hefur fækkað úr 41 í 26 og við höfum gert gríðarlegar breytingar á starfseminni. Hins vegar er mikilvægt að hafa í huga að félagið er mjög umsvifamikið, með margar stórar fjárfestingar og það þarf fólk til að sinna þeim vel. Almennt hefur rekstrarkostnaður dregist saman, um 33,5% frá sama tímabili í fyrra og 73,1% frá fjórða ársfjórðungi, það er ekki eingöngu vegna fækkunar starfsfólks heldur líka vegna annarrar hagræðingar í rekstri. Að auki fylgir töluverður kostn- aður því að vera skráð félag, svo ég geri ráð fyrir að nokkur sparnaður muni fylgja afskráningunni.“ – Hár rekstrarkostnaður síðasta árs var einmitt mikið gagnrýndur af hluthöfum. „Gagnrýnin var að sumu leyti réttmæt en að öðru leyti hafa menn kannski sett kostnaðinn í rangt samhengi. Ef rekstrarkostnaður hjá félagi eins og okkar er settur í beint samhengi við fjölda starfs- manna fæst skrítin tala, miklu eðli- legra er að setja hann í samhengi við umsvif félagsins. Kostnaðurinn í fyrra svaraði til um 1% af eign- unum, en hann var engu að síður óþarflega hár, enda stefnum við á að lækka hann um 50% á þessu ári.“ – Þegar litið er á gríðarlegt tap félagsins, hvað hefði mátt fara bet- ur? „Þegar menn velta fyrir sér tapi félagsins verður að hafa í huga að eignasafnið var mjög stórt og um- svifamikið en svo breyttust aðstæð- ur og urðu mjög erfiðar eins og þekkt er. Stærstu bankar hins vest- ræna heims hafa t.a.m. margir tap- að gríðarlegum fjárhæðum, svo við erum ekki einir um það. Tölurnar eru mjög stórar í íslensku sam- hengi en það skýrist af stærð eignasafnsins, á fimmta hundrað milljarða. Við höfum sagt að markaðs- áhætta félagsins var of mikil miðað við stærð þess. Í byrjun desember hófum við að draga úr þessari áhættu og héldum áfram á fyrsta ársfjórðungi þessa árs þegar við seldum mikið af eignum, fyrir yfir 70 milljarða, sem var ákveðinn lokahnykkur í að draga úr áhætt- unni. Við þurftum að selja sumar eignirnar með tapi, en þetta voru nauðsynlegar aðgerðir. Vissulega hefði verið betra ef markaðsáhættan hefði verið minni þegar fjármálakreppan skall á, en enginn sá þessar aðstæður fyrir og það er auðvelt að vera vitur eftir á.“ – Getur eitthvert félag þolað svona mikið tap? „Já, það getur það, eigið fé FL Group nú er 115 milljarðar sem þýðir að við erum enn með eignir umfram skuldir sem miklu nemur. Hins vegar er ljóst að það er ekki auðvelt að stýra fyrirtækinu í gegn- um þessa sveiflu. Félagið er samt sem áður sterkt og við teljum að við séum komin fyrir mesta vind- inn.“ halldorath@mbl.is „Getum þolað svona tap“ Í HNOTSKURN »Jón Sigurðsson er þrítugurað aldri og tók við starfi for- stjóra FL Group hinn 4. desem- ber síðastliðinn. Hann var áður aðstoðarforstjóri félagsins frá desember árið 2006. »Markaðsvirði FL Group er85,7 milljarðar króna, skv. upplýsingum kauphallarinnar. »FL Group á rætur að rekja tilársins 2005 þegar Flugleiðir, sem þá voru eignarhaldsfélag 11 fyrirtækja í ferðaþjónustu, breyttu um nafn. FL Group hefur nú dregið sig út úr fjárfestingum í þeim geira, utan eignarhluta í Northern Travel Holding. Morgunblaðið/RAX Forstjórinn Jón Sigurðsson sér ekki fram á stórkostlegar breytingar á félaginu en útilokar þó ekki sölu á eignum. ílmánaðar, en bréf Glitnis á gengi 30. apríl, 17,05. 83% hluthafa höfðu þegar fallið frá þessu kauptilboði. Stjórn félagsins sagði afskrán- inguna mikilvæga meðal annars í ljósi óróa á mörkuðum og til að draga úr hættu á að hluthafar töp- uðu enn frekar á fjárfestingunni. FL ei meir í kauphöllinni HLUTHAFAFUNDUR FL Group samþykkti í gær með 99,86% at- kvæða tillögu um að félagið yrði skráð úr kauphöllinni á Íslandi. Þá var samþykkt að stjórnin gæti keypt hluti þeirra félaga sem þess óska með hlutum í Glitni. Gengi bréfa FL verði 6,68, miðgengi apr-                                                    !  "  # $!     SAMRÁÐSNEFND atvinnulífs og stjórnvalda stóð fyrir fundi í gær um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Við það tækifæri var ritað undir samning um stofnun fræðslu- og rannsókna- miðstöðvar um samfélagsábyrgð fyr- irtækja. Að miðstöðinni stendur Há- skólinn í Reykjavík, með stuðningi sex íslenskra fyrirtækja og utanrík- isráðuneytisins. Páll Ásgeir Dav- íðsson, sérfræðingur í lagadeild HR, er forsvarsmaður miðstöðvarinnar. Íslensku fyrirtækin sem um ræðir eru Landsbankinn, Glitnir, Alcan á Íslandi, Síminn, Orkuveita Reykja- víkur og Össur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra setti fundinn en hann sóttu fulltrúar um 100 fyrirtækja, ís- lenskra og norrænna, sem hafa skrif- að undir samning um Global Com- pact, sem er vettvangur Sameinuðu þjóðanna fyrir samfélagslega ábyrg fyrirtæki. Meira en 4.000 fyrirtæki um allan heim eiga aðild að Glo- bal Compact, þar af tvö íslensk: Landsbankinn og Glitnir. Fulltrúar m.a. frá Danfoss, Telenor, Lego og Nokia voru við- staddir fundinn. Í ræðu sinni sagði Ingibjörg Sólrún m.a. að stjórnvöld hefðu mikilvægu hlutverki að gegna við að hvetja fyr- irtæki til samfélagslegrar ábyrgðar sinnar. Þetta væri ekki síður mik- ilvægt við erfiðar aðstæður á mörk- uðum eins og nú. Stjórnvöld hefðu einnig lagt sitt af mörkum í góðu samstarfi við fyrirtækin. Páll Ásgeir Davíðsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið að miðstöðin, sem mun heita Eþikos, yrði vett- vangur fræðslu og rannsókna á þessu sviði. Stuðningur fyrirtækja væri gríðarlega mikilvægur en auk fjár- framlags munu fyrirtækin sitja í stjórn miðstöðvarinnar og þannig hafa bein áhrif á þróun umræðu um samfélagsábyrgð fyrirtækja. Páll Ásgeir sagði að við núverandi aðstæður á mörkuðum væri nauðsyn- legt að endurskoða hlutverk fyrir- tækja í samfélaginu. Í hnattrænum heimi gætu fyrirtæki ekki einangrað sig frá málefnum eins og hlýnun jarð- ar, fátækt og verndun mannréttinda. „Þá er mikill áhugi meðal starfs- manna fyrirtækja, fjárfesta og neyt- enda á að fyrirtæki séu samfélags- lega ábyrg. Í samfélagsábyrgð felst ekki eingöngu krafa um nýja starfs- hætti heldur einnig markaðstækifæri og leið fyrirtækja til að tryggja af- komu sína til lengri tíma,“ sagði Páll. Miðstöð samfélagsábyrgðar fyrirtækja Morgunblaðið/G.Rúnar Samfélagsábyrgð Ritað undir samstarfssamning um miðstöðina af utan- ríkisráðherra, rektor HR og forsvarsmönnum fyrirtækjanna sex. Páll Ásgeir Davíðsson Hvers má vænta þegar FL Group verður skráð af markaði? Halldóra Þórsdóttir ræddi við Jón Sigurðsson, forstjóra FL Group.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.