Morgunblaðið - 10.05.2008, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Aðalfundur Símans hf. 2008
Aðalfundur Símans hf. verður haldinn
þriðjudaginn 20. maí 2008
á Hilton Reykjavík Nordica
og hefst fundurinn kl. 17.00
DAGSKRÁ
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári.
2. Skýrsla forstjóra um rekstur félagsins og
endurskoðaður reikningur fyrir liðið starfsár lagður
fram til samþykktar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs.
4. Kosning stjórnar félagsins.
5. Kosning löggilts endurskoðanda.
6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna félagsins
fyrir störf þeirra.
7. Ákvörðun um samruna Símans hf. við Anza hf.
og AGH ehf. undir nafni Símans hf. í samræmi við
samrunaáætlun dags. 27. desember 2007.
8. Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu.
9. Önnur mál.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi þurfa
að berast stjórn eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Gögn vegna samruna skv. 7. dagskrárlið hafa
legið frammi frá birtingu samrunaáætlunar í
Lögbirtingablaðinu, 30. janúar 2008, og eru hluthöfum
Símans hf. aðgengileg á skrifstofu félagins að Ármúla
25, 108 Reykjavík.
Dagskrá fundarins, endanlegar tillögur svo og
ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund.
Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhent
hluthöfum á aðalfundardaginn frá kl. 16 á
fundarstað.
Stjórn Símans hf.
Í HNOTSKURN
» Aukin hætta á harðri lend-ingu íslenska hagkerfisins og
versnandi horfur á öðrum mörk-
uðum sem bankarnir starfa á
valda því að Fitch metur horfur
lánshæfiseinkunnar bankanna
þriggja sem neikvæðar.
» Viðhorf markaðarins hefurbatnað að mati Fitch en
bankarnir eru þó viðkvæmir fyr-
ir áhrifum þess að ólgan verði
langvinnari en búist er við.
» Eiginfjárhlutföll bankannahafa veðrast við stækkun
þeirra og því geta þeir ekki tekið
vandræðum á sama hátt og áður
að mati Fitch.
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið
Fitch Ratings lækkaði í gær láns-
hæfiseinkunn Kaupþings og Glitnis
um eina skor en staðfesti einkunn
Landsbankans. Einkunn langtíma-
skuldbindinga Kaupþings og Glitnis
er nú A- en var áður A. Einkunn
skammtímaskuldbindinga bankanna
er F2 en var áður F1 en einkunn
bankanna fyrir fjárhagslega styrk
er óbreytt, B/C. Einkunn langtíma-
skuldbindinga Landsbankans er A,
einkunn skammtímaskuldbindinga
F1 og einkunn fyrir fjárhagslegan
styrk bankans er B/C. Í kjölfar þess
að einkunnir bankanna hafa verið
endurskoðaðar tekur Fitch þá af at-
hugunarlista en segir horfur ein-
kunna þeirra neikvæðar.
Óbreytt einkunn Landsbankans
byggist samkvæmt fréttatilkynn-
ingu Fitch á því að 2⁄3 hlutar útlána
bankans eru fjármagnaðir með inn-
lánum og kemur það bankanum til
góða að hafa á skömmum tíma
byggt upp mjög stóran grunn inn-
lána á erlendum mörkuðum. Þá tek-
ur fyrirtækið það með í reikninginn
að Landsbankinn hefur leitast eftir
að binda innlánin. Tekjur vegna
fjárfestingarbankastarfsemi eru lík-
legar til þess að vera viðkvæmar
fyrir breytingum á markaðsaðstæð-
um.
Hin nýja einkunn Glitnis endur-
speglar að undirliggjandi arðsemi
bankans er nægileg en eiginfjár-
hlutfall bankans (eiginfjárþáttur A)
er lægra en hinna. Lausafjárstaða
bankans í lok mars er talin sterk og
ætti að duga til þess að mæta
væntri endurfjármögnunarþörf. Bú-
ist er við að sumir þeirra markaða
sem bankinn starfar á muni versna
og tekur einkunnin mið af því en
tekið er fram að annar heimamark-
aður Glitnis, Noregur, er sterkur.
Einkunn Kaupþings tekur einnig
mið af því að búist er við því að að-
stæður versni á kjarnamörkuðum
bankans, Íslandi og Bretlandi. Stórt
lausafjársafn Kaupþings ætti að
styðja við dreifni fjármagnslinda
bankans að mati Fitch, sem mun
halda áfram að fylgjast náið með
þróun tekna af fjárfestingarbanka-
starfsemi og markaðsviðskiptum.
Fitch lækkar lánshæfisein-
kunn Kaupþings og Glitnis
Einkunn Landsbankans óbreytt Horfur neikvæðar vegna efnahagsóvissu
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði um
0,45% í gær en framan af degi
stefndi í mun meiri lækkun en mest
lækkaði vísitalan um ríflega 2% inn-
an dags. Þegar upp var staðið stóð
vísitalan í 4.901 stigi.
Mest hækkun varð á bréfum Atl-
antic Petroleum, 7,3%, en bréf
Spron lækkuðu mest, 3,9%.
Heildarvelta dagsins nam 41,9
milljörðum en þar af var velta með
hlutabréf fyrir ríflega 4,2 milljarða.
Mest velta var með bréf Glitnis, 1,2
milljarðar króna.
Mest velta með Glitni
● VIÐ LOKUN
markaðar í gær
var geng-
isvísitala krón-
unnar 158,9
stig og hefur hún
aldrei áður verið
jafn há og krón-
an því aldrei jafn
veik gagnvart
þeirri körfu gjald-
miðla sem vísi-
talan miðar við. Krónan veiktist um
1,9% í gær og er ástæðan helst talin
sú að markaðurinn hafi búist við
skýrari skilaboðum, eða jafnvel að-
gerðum, frá Seðlabankanum sam-
hliða útgáfu Fjármálastöðugleika
2008. Reyndar veiktust allar há-
vaxtamyntir í gær og virðist áhættu-
fælni hafa aukist, a.m.k. tímabund-
ið.
Gengisvísitalan í
sögulegu hámarki
● VERÐBÓLGA er á ný orðin veruleg
ógn við heimshagkerfið að mati Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF. Fin-
ancial Times hefur eftir John Lipsky,
aðstoðarframkvæmdastjóra IMF, að
vegna ört hækkandi orku- og mat-
arverðs hafi verðbólguáhyggjur vakn-
að á ný eftir margra ára ró. Á sama
tíma og verðbólga vex hefur hægt á
hagvexti.
Peningamálayfirvöld verða að
bregðast skjótt og harkalega við til
þess að ávinningur uppsveiflu und-
anfarinna ára eigi ekki að þurrkast út
að sögn Lipsky sem þó telur hægt að
forðast að verðbólguskot 8. áratug-
arins.
Verðbólgudraugurinn
lætur á sér kræla á ný
● HELSTU hlutabréfavísitölur vest-
anhafs lækkuðu frá mánudags-
morgni til föstudagskvölds í vikunni
og er það í fyrsta skipti í mánuð sem
vikulækkun mælist á hlutabréfa-
markaðnum að sögn Bloomberg. Í
gær lækkuðu helstu vísitölurnar og
er lækkunin fyrst og fremst rakin til
fjármálafyrirtækja en AIG, eitt
stærsta tryggingafélag heims, til-
kynnti í eftir lokun markaðar á
fimmtudag að það hefði tapað 7,8
milljörðum dala á fyrsta ársfjórð-
ungi. Félagið þurfti að afskrifa 15
milljarða dala vegna lánaafurða
sinna, þar af 9,1 milljarð vegna
skuldatryggingasamninga. Í kjölfar-
ið þarf AIG að ná í nýtt fjármagn sem
nemur 12,5 milljörðum dala. Þá hef-
ur stjórn Citigroup ákveðið að selja
eignir fyrir 400 milljarða dala.
Vikulækkun vestra
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
VERÐBÓLGAN mun ná hámarki
13,5% á þriðja ársfjórðungi og hald-
ast yfir 12% það sem eftir lifir árs, en
hins vegar er vaxtahækkunarferli
Seðlabankans lokið og framundan er
bratt lækkunarferli, sem hefjast
mun í nóvember. Er þetta spá grein-
ingardeildar Kaupþings, en hagspá
bankans var kynnt í gær.
Þá er í spánni gert ráð fyrir því að
gengisvísitala krónunnar muni ná
hámarki á þessum fjórðungi, styrkj-
ast þegar líða taki á árið og standa í
142 stigum við árslok. Myndarleg
aukning gjaldeyrisvaraforða Seðla-
bankans eða jákvæðar fréttir af fjár-
mögnun bankanna gætu flýtt bata á
gjaldeyrismarkaði, að mati greining-
ardeildarinnar.
Ráð gert fyrir þjóðarsátt
Í hagspánni segir að núverandi
verðbólguskot sé vitnisburður um
kerfisgalla í leiðni peningamála-
stefnu Seðlabankans, en ekki skort á
trúverðugleika hans. Er þar bent á
að helsta verkfæri bankans til að slá
á verðbólgu, hækkanir á stýrivöxt-
um, sé ætlað að draga úr einka-
neyslu, en ýti hins vegar undir einka-
neyslu með því að styrkja krónuna.
Segir í spánni að svo „virðist sem
seðlabankamenn sjálfir séu haldnir
of mikilli sjálfsásökun vegna slæms
árangurs í baráttunni við verð-
bólgu.“ Þrátt fyrir allt hafi Seðla-
bankinn sannað að honum sé alvara.
Trúverðugleiki skipti vitaskuld máli,
en það sé af og frá að skortur á hon-
um geti skýrt fall verðbólgumark-
miðsins á undanförnum misserum.
Í spá Kaupþings er gert ráð fyrir
því að „þjóðarsátt“ náist á vinnu-
markaði um að koma böndum á verð-
bólgu. Endurskoða á kjarasamninga
í ársbyrjun 2009, en greiningardeild-
in gerir ráð fyrir því að aðilar á
vinnumarkaði taki höndum saman til
að koma í veg fyrir víxlhækkun launa
og verðlags.
Mikið verðbólgu-
skot framundan
%
!
&
$
#
&
'
( )*
+
),+,
- - -& -# -$ -
. "
. #
'
'
. $
% /.
'
'
0 ,
12
'
'
3
'
'
. &
. '&
'
'
!
" !
#$%&'! ()*+",
() *
+
, +!*
5 + 67
/++89 67
4:5 67
67
5, ),+ 67
;7 4+7<
=,1
>?,1 67
@A,
/,+ 67
,1),+ =,1 67
67
BC 5 D/ %
E% 7) 67
3F 67
G 67
-
).
/ !
"# 67
7? 67
5,5? 0F
5,5? B5 B
4+ /,+
67
H F /,+
>?,1? 67
I6 E 67
+5 67
3 F
,
59, 67
(,,59, 67
(!
'!0
1 2
J,5 F , J
;/ ,1 67
;E, 67
3!4
(+5
1
,
3) K + 1
!
@
& &L#
&L&L
L&L
$"
# ""$
#$$$
#
$##&L
$" "$L
###&"
"# L& $
&
L
"$"&
D
L
$&&L""
D
"#
L""
D
D
&
D
D
$$""
D
D
M
"M"
M$
#M&
M
M$
M
$M
M"
L"M
&M&$
M #
"M$
L#M
M$
#M
"$M
##M
"$M
M$"
&$M
D
D
D
D
D
#LM
M
D
M
"M$
M#
#M&&
M
M
M$
$&M
M"
L"M
&M"
M$
"M#"
L#M
M"
#M
&M
#LM
"""M
M$
&M
D
M
M
D
D
#M
D
#M
E91
8+5
$
#
"
$
L
$
$
#
&&
L
D
D
$
D
"
"$
D
D
D
D
"
D
D
5,,
8+8
L$
L$
L$
L$
L$
L$
L$
L$
L$
L$
L$
L$
L$
L$
$$
$
L$
L$
$$
L$
L$
"$
$$
L$
#
$
L$
$
"$
● ORÐRÓMUR er uppi á markaði í
Englandi um að fjármálaþjónustufyr-
irtækið Exista hyggist gera yfirtöku-
tilboð í bresku sportvörukeðjuna JJB
Sportsásamt Chris Ronnie, forstjóra
JJB. Frá þessu er greint í Daily Tele-
graph í fyrradag en gengi hlutabréfa
JJB hækkaði um 5,5% á miðvikudag.
Exista og Ronnie eiga fyrir 29%
hlut í JJB Sports.
Spurður um málið segir Sigurður
Nordal, framkvæmdastjóri sam-
skiptasviðs Existu, félagið aldrei tjá
sig um orðróm á markaði.
Orðrómur um tilboð