Morgunblaðið - 10.05.2008, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 10.05.2008, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 19 MENNING Nánari upplýsingar í síma 893 5046 og á www.fjallaland.is og www.leirubakki.is Allir velkomnir að koma og skoða! Til sölu mjög fallegar lóðir við Ytri-Rangá í landi Leirubakka. Kjarri- og mosavaxið hraun. Sögufrægt hérað, mikil fjallasýn, veðursæld og hlý sumur. Miklir útivistarmöguleikar. Allt eignarlóðir sem seljast með vegi að lóðamörkum og vatni og rafmagni í götum. Hitaveita verður í boði. Golfvöllur í undirbúningi. Kaup á landi er ein öruggasta fjárfesting sem völ er á. Aðeins 100 km frá Reykjavík. Upplagt að fá sér bíltúr um helgina, skoða lóðirnar, fara á Heklusýninguna og kanna hið landsfræga kökuhlaðborð Leirubakka! Fjölbreytileg þjónusta er við lóðaeigendur heima á Leirubakka: Hótel, veitingahús, verslun, bensínstöð, Heklusetur með glæsilegri Heklusýningu, hestaleiga, reiðskóli, skipulagðar gönguferðir og margt fleira. Út í vorið! BORGARLEIKHÚSIÐ frumsýndi á fimmtudagskvöld Dauðasyndirnar sem byggir á verki Dantes, Divina Commedia. Hinn guðdómlegi gleði- leikur er eitt af stórvirkjum heims- bókmenntanna. Þar er tekist á við stórar tilvistarspurningar og er verkið æði-flókið. Verk Dantes telst til svokallaðra leiðslubókmennta þar sem höfundur sjálfur ferðast um handanheima. Divina Com- media er eitt þekktasta verk heimsbókmenntanna af þessu tagi og er eins konar allegóría um líf mannsins. Í verkinu ferðast Dante í fylgd skáldsins Virgils frá helvíti til himna í gegnum hreinsunareldinn. Hér er brugðið upp hinni dæmi- gerðu heimsmynd kaþólskra mið- alda sem var í senn ægileg og fög- ur. Dante er tilfinningalega „alveg í klessu“, eins og komist er að orði í sýningunni, í tilvistarkreppu og uppgefinn á lífinu. Látin ástvina hans, Beatrice, fær skáldið Virgil til að leiða Dante til „Paradiso“ í gegn- um helvíti og hreinsunareldinn. Á þessari leið í gegnum níu heima mæta þeir félagar mörgum kunn- uglegum andlitum og lenda í ýms- um háska enda leiðin torsótt. Dante þarf að horfast í augu við sjálfan sig og syndir sínar en með dyggri að- stoð Virgils nær hann á leiðarenda. Textinn er unninn af leikhópnum og er allfrjálsleg túlkun á þessu verki Dantes án þess að það komi niður á meginhugmyndum verksins. Hér er hugvitsamlega staðið að verki. Sýningin er undirbúinn spuni og eru því engar tvær leiksýningar eins. Spunaleikhús lýtur sérstökum lögmálum en ætla má að leikarar fái fullkomið frelsi í vinnu sinni en það er ekki svo. Hlutverk leikstjór- ans, Rafaels Bianciottos, er að leggja leikurunum/trúðunum til reglur í spunanum sem áhorfendur verða lítið varir við, þó eru sumar útlistaðar í upphafi verksins. Til dæmis má gera mistök og þá skal taka þeim með brosi á vör. Það á að ekki að „hugsa“ heldur „vera“ sem er eins konar þema verksins og skilaboð til áhorfenda. Þessar regl- ur eru brotnar í gríð og erg enda eðli trúðsins að vera í nú–inu. Leik- stjórinn er eins konar leið- sögumaður í gegnum spunann líkt og Virgill er leiðsögumaður Dantes og ferst honum það vel úr hendi. Sagan er einfölduð og útskýrð af trúðunum Barböru, Úlfari, Zöru og Gjólu sem leiknir eru (í sömu röð) af Halldóru Geirharðsdóttur, Bergi Þór Ingólfssyni, Höllu Margréti Jó- hannesdóttur og Hörpu Arnardótt- ur. Þau bregða sér í allra kvikinda líki og er leikur þeirra á þremur plönum, þ.e. leikari sem leikur trúð sem leikur persónu. Þetta virðist mjög flókið en þarna er greinilega fagfólk á ferð svo unun er á að horfa. Þótt verk Dantes sé skrifað á miðöldum (um aldamótin 1300) er sagan klassískt ferðalag manns í leit að sjálfum sér. Leikhópurinn blandar skemmtilega saman mið- aldabókmenntum, endurreisn og nútíma svo áhorfendur geta auð- veldlega tengt efni verksins við daginn í dag. Trúðahlutverkið ligg- ur misvel fyrir leikurunum. Hall- dóra og Bergur Þór hafa lært sér- staklega og tileinkað sér trúðinn hjá meistara sínum í trúðafræðum, Mario Gonzales. Það er óhætt að segja að Halldóra Geirharðsdóttir sé fremst meðal jafninga í þessari sýningu. Halldóra hefur gífurlegt vald á persónusköpun og tilfinningu fyrir kómík. Bergur Þór er mjög skemmtilegur sem Dante og spilar á allan tilfinningaskalann, bregður sér í og úr hlutverkum án vand- kvæða. Harpa Arnardóttir er reyndur spunaleikari og er sviðs- framkoma hennar sjarmerandi og hún á auðvelt með að hrífa salinn með sér með litlum innskotum til áhorfenda og brosi sem fyllir út í rýmið. Halla Margrét skilaði sínu hlutverki með miklum sóma, með fallegum sviðshreyfingum, en átti ekki eins auðvelt með skiptingar milli persóna verksins. Öll hafa þau mikið vald á raddbeitingu og var söngur þeirra og tónlist skemmti- legur hluti sýningarinnar. Leikur þeirra við áhorfendur er mik- ilvægur þáttur án þess að vera uppáþrengjandi. Umgerð sýningarinnar er einföld, engu ofaukið, ekkert vannýtt. Svartir og hvítir búningarnir voru tímalausir og virtust ekki hamla leikurum á neinn hátt. Ljós og hljóð áttu gott samspil við leikara enda er rétt tímasetning gríðarlega mikilvæg í kómík sem þessari. Sýningin er bráðfyndin og skemmtileg en með háalvarlegum tóni. Ég er ekki frá því að eftir sýn- ingu hugsi maður meira um nú–ið. Svo er það hverjum í sjálfsvald sett hvort þeir séu þar eða ekki. Guðdómlegur gleðileikur Morgunblaðið/Valdís Thor Dauðasyndir Bráðfyndin og skemmtileg sýning með háalvarlegum tóni Ingibjörg Þórisdóttir LEIKLIST Borgarleikhúsið - litla sviðið Leikarar: Bergur Þór Ingólfsson, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Halldóra Geir- harðsdóttir og Harpa Arnardóttir. Leikstjóri: Rafael Bianciotto. Aðstoð- arleikstjóri: Sólveig Guðmundsdóttir. Leikmynd: Helga I. Stefánsdóttir og Rafael Bianciotto. Búningar: Helga I. Stefánsdóttir. Tónlistarstjóri: Kristjana Stefánsdóttir. Hljóðmynd: Ólafur Örn Thoroddsen. Ljós: Halldór Örn Óskars- son. Sviðshreyfingar: Ariane Anthony og hópurinn. Fimmtudagskvöldið 8. maí 2008. Dauðasyndirnar Í APÓTEKI, einum af þremur söl- um í Hafnarborg, stendur nú yfir forvitnileg sýning á munum sem geta hvort heldur verið álitnir skúlp- túrar eða skartgripir. Hildur Ýr Jónsdóttir hefur hannað og búið til óvenjuleg hálsmen og nælur úr óhefð- bundnum efnum á borð við laxaroð, ryðgað járn og gamalt gúmmí. Frumleikinn liggur þó ekki svo mjög í efnisvalinu, enda erum við vön öllu hvað það varðar, heldur í útfærslunni og handverkinu. Úttroðnir litlir saumaðir pokar úr laxaroði minna á smækkaðar myndir af sláturkeppum og nokkrir sam- ankomnir í einu hálsmeni koma skemmtilega á óvart um leið og þau ganga vel upp fagurfræðilega séð. Sumir munanna munu líklega alltaf fara betur á hillu eða vegg en sem þægilegir skart- gripir þar sem þeir eru oft í stærra lagi. Myndband sem sýnir kvenmann máta á sig hvern skartgripinn á fæt- ur öðrum er svolítið kómískt þar sem hlutirnir ganga misvel upp sem skart. Það virðist þó alls ekki vera aðalmálið á sýning- unni, heldur einmitt að brjóta upp viðurkennt viðmið hefðbundinna skartgripa. Hlutirnir ganga einnig skemmti- lega upp sem míneatúrar og eru ekkert síður skemmtilegir sem inn- anhússskart. Efnistökin eru fag- mannleg hvort heldur sem verið er að útfæra verk úr spýtuflísum úr grásleppubát, rekavið eða bláskelj- um og útkoman skemmtileg og sannfærandi. Roð og annað fjöruskraut Þóra Þórisdóttir MYNDLIST Hafnarborg Sýningin stendur til 25. maí. Opið alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og á fimmtudögum er opið til kl. 21. Að- gangur ókeypis. Hildur Ýr Jónsdóttir, skúlptúr-skartgripir bbbmn Morgunblaðið/Golli Skart Fagmannleg efnistök.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.