Morgunblaðið - 10.05.2008, Side 21
Hefur þú það sem við leitum að?
Frumkvæði Sköpunargleði Forystuhæfni
Aperio - sérsniðið nám
fyrir einstaklinga sem
skara fram úr
Tölvunarfræðideild og Tækni- og verkfræði-
deild HR bjóða í sameiningu upp á sérsniðið
nám fyrir afburðaeinstaklinga.
Markmiðið með Aperio-kerfinu er að gefa ein-
staklingum sem skara fram úr meðal jafnaldra
sinna þverfaglegt innsæi til að rækta vísinda-
lega hugsun og nýsköpun. Tækifæri til að rækta
þessa hæfileika með það fyrir augum að verða
leiðtogar í þjóðfélaginu.
Námið er sérsniðið að styrk, áhugasviðum og
þörfum hvers og eins og gefur því nemandanum
þann sveigjanleika sem hann þarf til að þroska
frekar einstaka hæfileika sína.
Nánari upplýsingar má finna á slóðinni
www.hr.is/aperio
P
L
Á
N
E
T
A
N
2
0
0
8
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 21
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Stjórnar Þórir Erlingsson er verk-
efnisstjóri „Vors í Árborg“.
Árborg | Afmælis- og menning-
arhátíðin Vor í Árborg hófst form-
lega á Selfossi fyrradag og stendur
sleitulaust til sunnudagsins 18. maí
eða í 10 daga. Á þessum dögum
verður gestum og gangandi boðið
upp á ýmsan fróðleik, skemmtun og
afþreyingu.
Tónlistin verður í fyrirrúmi, kór-
ar, klassík, djass, rokk og dægurlög
og þar mun gleðin rísa hæst þegar
Saga sveitaballanna verður rifjuð
upp og helstu hljómsveitir austan
fjalls í gegnum tíðina birtast á svið-
inu í íþróttahúsinu Iðu.
Listamenn opna vinnustofur sín-
ar og söfnin munu standa öllum op-
in. Söngvakeppni barna, spurninga-
leikur fyrirtækja og hagyrðinga-
slagur og gengið í fylgd leiðsögu-
manna um bæjarkjarnana. Sér-
stakur fjölskylduleikur verður í
gangi þar sem fjölskyldan fer af
stað með sín vegabréf, rannsakar
hina ýmsu staði, leysir þrautir og
safnar stimplum. Vegleg verðlaun
verða veitt og dregið úr innsendum
lausnum.
Hugmyndir frá bæjarbúum
„Það hefur gengið vel að und-
irbúa Vor í Árborg, allir hafa verið
boðnir og búnir að leggja sitt af
mörkum svo hátíðin megi vera sem
glæsilegust,“ segir Þórir Erlings-
son verkefnisstjóri. „Við fengum
margar góðar hugmyndir frá bæj-
arbúum og mikið af þeim er nýtt í
dagskránni. Það hefur verið mjög
skemmtilegt að vinna að þessu
verkefni og raða saman skemmti-
legri dagskrá af öllu því frábæra
starfi sem unnið er í Sveitarfé-
laginu Árborg. Á hátíðinni er leitast
við að draga fram allt það góða
starf sem unnið er í félögum, klúbb-
um og af einstaklingum í Árborg,
draga fram menninguna í sem víð-
astri mynd,“ sagði Þórir þegar
hann var spurður hvernig undir-
búningurinn hefði gengið.
Dagskráin á „Vor í Árborg“ er
sérstaklega glæsileg enda verið að
fagna 10 ára afmæli Árborgar en
sveitarfélagið varð til við samein-
ingu fjögurra sveitarfélaga í febr-
úar 1998.
„Já, dagskráin er glæsileg í alla
staði þar sem allir ættu að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Dag-
skráin er upp á 18 síður, ég hef ekki
talið saman fjölda viðburða en það
er ljóst að þeir eru ansi margir og
úr mörgum áttum. Mér finnst erfitt
að tala um einhvern hápunkt hátíð-
arinnar en get þó nefnt sveitaballa-
hátíðna laugardagskvöldið 10. maí í
Iðu, sem Ólafur Þórarinsson eða
Labbi í Glóru stjórnar með Einar
Bárðarson sem kynni,“ sagði Þórir.
„Vor í Árborg er hátíð fólksins,
okkar íbúanna sem og gesta okkar,
sem vonandi verða sem flestir. Við
erum með sérstaka lykla sem fólk
kaupir en þá kemst það inn á alla
tónleika sem haldnir eru á hátíð-
inni. Þá erum við með mjög
skemmtilegan fjölskylduleik í gangi
en þá fer fjölskyldan saman á ýmsa
viðburði sem merktir eru sérstak-
lega í dagskránni og fær stimpil í
vegabréfið. Þegar ákveðnum fjölda
er náð en vegabréfið sett í pott og
glæsilegir vinningar dregnir út. Ég
hvet alla til að kynna sér dagskrá
hátíðarinnar á heimasíðu Árborg-
ar,“ sagði Þórir.
Saga sveitaballanna
verður rifjuð upp
Í HNOTSKURN
»Verkefnisstjóri hátíðarinnarer Þórir Erlingsson, mat-
reiðslumaður á Eyrarbakka.
Hann er giftur Katrínu Ósk Þrá-
insdóttur og börn þeirra eru Ey-
dís Líf, 9 ára, og Eyþór Ás, 6 ára.
»Þórir og fjölskylda eru aðflytjast úr landi tímabundið,
eða til Suður-Karólínu til borgar
sem heitir Columbia, þar sem
Þórir fer til framhaldsnáms.
Menningarhátíðin
„Vor í Árborg“
stendur í 10 daga
Selfoss | Um 30 manna sendinefnd
frá Kína var stödd á Hótel Selfossi á
dögunum til að halda fund um við-
ræður Kína og Íslands um samstarf
í hinum ýmsu málaflokkum. Um var
að ræða fjórðu lotu samninga-
viðræðna um fríverslun milli Ís-
lands og Kína.
Ísland hefur samið um fríverslun
við fjöldamörg ríki um allan heim,
oftast í samfloti við EFTA-ríkin
Noreg, Sviss og Liechtenstein. Kína
var hins vegar ekki til viðræðu um
samning við EFTA en vildi semja
við Ísland. Ísland er fyrsta ríki í
Vestur-Evrópu sem hefur hafið við-
ræður.
„Fundurinn gekk eftir atvikum
vel, hægt var að gera út um mörg
tæknileg málefni, m.a. um ákvæði
varðandi tæknilegar viðskipta-
hindranir og heilbrigðiseftirlit.
Kínverska sendinefndin notaði ein-
mitt tækifærið og heimsótti Mat-
vælastofnun á Selfossi,“ sagði
Gunnar Snorri Gunnarsson, sendi-
herra Íslands í Kína, um leið og
hann bætti því við að næsta lota
yrði væntanlega í Kína, annað
hvort í lok júní eða næsta haust.
Heima hjá ráðherra Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, sem er bú-
settur á Selfossi, notaði tækifærið og bauð kínversku sendinefndinni heim
til sín. Nefndin kunni vel að meta heimboð ráðherrans og fannst gaman að
fá að koma í heimahús. Hér er sendinefndin saman komin í tröppunum á
heimili viðskiptaráðherra, ásamt Ragnheiði Hergeirsdóttur, bæjarstjóra í
Árborg, og öðrum embættismönnum nefndarinnar.
Kínverjar í heim-
sókn hjá ráðherra
Eftir Jón H. Sigurmundsson
Þorlákshöfn | Síðustu tónleikar
Tóna við hafið í Þorlákshöfn á þess-
um vetri voru haldnir síðastliðinn
sunnudag þegar fluttur var söng-
leikurinn „Lifandi skógur“. Lögin í
söngleiknum eru eftir Norðmann-
inn Thor Karseth og fjalla textarnir
um skógrækt og umhverfisvernd.
Tónleikarnir voru samstarfs-
verkefni menningarnefndar Ölfuss,
Grunnskóla Þorlákshafnar og Tón-
listarskóla Árnesinga. Ester Hjart-
ardóttir kórstjóri færði verkið í
leikbúning sem hentaði þeim hópi
er þarna kom fram en það voru
börn úr öllum þremur kórum
grunnskólans og lúðrasveit Þor-
lákshafnardeildar tónlistarskólans.
Gestur Áskelsson, stjórnandi lúðra-
sveitarinnar, útsetti lögin og bæði
Ester og Gestur æfðu verkið með
börnunum í vetur. Yfir 50 börn
voru á sviðinu allan tímann en verk-
ið tók tæpan klukkutíma í flutningi.
Þau yngstu voru í 1. bekk en þau
elstu í 7. bekk. Með grípandi laglín-
um og skemmtilegum texta miðl-
uðu börnin upplýsingum um nauð-
syn umhverfisverndar, upplýsing-
um um lífríki skógarins og skóg-
rækt. Þarna komu fram ýmis
skógardýr, ávextir, tré og runnar
auk manna. Börnin stóðu sig ein-
staklega vel og fipuðust ekki þó að
fyrir framan þau sætu um 250
manns að horfa og hlusta á þau.
Leikmyndin var skemmtileg og
litrík en hana vann Sigrún Berglind
Ragnarsdóttir, kennari við grunn-
skólann. Anna Berglind Júlíus-
dóttir dansari æfði hreyfingar og
dansa með börnunum og Halldór
Sigurðsson, skólastjóri grunnskól-
ans, aðstoðaði við uppsetningu.
Þetta er í annað skipti sem Tónum
við hafið lýkur með stóru sam-
starfsverkefni skóla og menningar-
nefndar og er stefnt að því að halda
því áfram.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Í skógi Söngleikurinn Lifandi skógur var setur á svið í Þorlákshöfn á loka-
tónleikum „Tóna við hafið“ sem þar er haldið úti.
Söngleikurinn „Lifandi
skógur“ settur á svið