Morgunblaðið - 10.05.2008, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 31
lánum, vogunar- og hrægamma-
sjóðum, skuldatryggingamilliliðum
o.s.frv. Þetta eru hins vegar nýtil-
komnir og léttvægir áhrifavaldar í
okkar, að stærstum hluta til
heimatilbúna, vanda. Almennt var
ríkjandi andvaraleysi eða með-
virkni á meðan á stóriðju-, skatta-
lækkunar- og útrásarveisluhöld-
unum stóð og fjölmiðlar,
fræðasamfélag, forystumenn sam-
taka o.fl. sungu góðærisklisjunni
lof og dýrð. Ótrúlega fáir urðu til
að benda á innistæðuleysið. Varn-
aðarorð um gríðarlegan við-
skiptahalla og háskalega erlenda
skuldasöfnun voru að engu höfð,
hvað þá að menn teldu vaxandi
misskiptingu og siðlausa græðgi-
svæðingu áhyggjuefni. Fáir ef
nokkrir hafa reynt oftar en und-
irritaður að benda á hættumerkin
og vara við, í ræðum, blaðagrein-
um og jafnvel í bókarformi, allt frá
árunum 2002-2003. Það veitir mér
að vísu takmarkaða huggun eins
og nú er komið en ég þarf þó
a.m.k. ekki að burðast með sam-
viskubit eða svara áleitnum spurn-
ingum sem ég ætla rétt að vona að
ýmsir glími nú við. Spurningum
eins og: Hvar var ég? Hvað var ég
að hugsa? Af hverju hélt ég kjafti?
Ríkisstjórnin sem hrökklaðist
frá haustið 1988 hafði ríflegan
þingmeirihluta. Að henni stóðu
þrír af fjórflokkunum rótgrónu.
Hún varð samt að játa sig sigraða
frammi fyrir alþjóð, aðstæðurnar
tóku völdin. Sú staðreynd varð
ekki um flúin þá, frekar en hún
verður nú, að ríkisstjórn sem ræð-
ur ekki við verkefni sitt víkur með
einhverjum hætti fyrr eða síðar.
VERÐBÓLGA mælist nú nálægt
12% á viðurkenndan mælikvarða
og horfur fyrir næstu
mánuði og fram til
haustsins eru dökkar.
Flest bendir til
tveggja stafa verð-
bólgutölu, a.m.k. í all-
marga mánuði á þessu
ári. Ekki er víst að
allir geri sér grein
fyrir hvers konar
tímamót hér er um að
ræða.
Á sjöunda og eink-
um áttunda og níunda
áratug síðustu aldar
fór verðbólga vaxandi
og víxlhækkanir verð-
lags og launa festust í sessi. Fram-
an af þessum tíma voru allar
fjárskuldbindingar óverðtryggðar
og því brann sparnaður almenn-
ings hratt upp í verðbólgunni en
óverðtryggð lán rýrnuðu að sama
skapi og greiðslubyrði þeirra létt-
ist, þ.e.a.s. hjá þeim sem fengu á
annað borð lán. Við þessar að-
stæður varð það að hlunnindum að
fá lán á Íslandi og kunningsskapur
við bankastjóra skipti sköpum.
Þegar verðbólga keyrði úr hófi var
verðtrygging lána tekin upp í
áföngum. Verðtrygging lána er
þannig skilgetið verbólguafkvæmi
og neyðarkostur, en þarf þó ekki
að valda miklum vandræðum svo
lengi sem vextir eru hóflegir og
óumbreytanlegir og svo lengi sem
kaupgjald er verðtryggt jafnframt.
En því var ekki alltaf og er ekki
enn til að dreifa. Árið 1983 komst
til valda ríkisstjórn Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks. Sú
stjórn rauf með lögum samhengi
verðtryggingar lána og launa sem
leiddi til hins illræmda „misgeng-
is“. Lánin skrúfuðust upp í tugpró-
senta verðbólgu en launin sátu eft-
ir. Þúsundir heimila lentu í miklum
erfiðleikum, margir misstu íbúðir
sínar en sátu engu að síður eftir
með skuldir og eiga jafnvel enn
um sárt að binda.
Tímamót í hagstjórn 1990
Níundi áratugurinn var tími
efnahagslegra og pólitískra svipt-
inga og sá þess m.a. stað í því að
ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks,
Framsóknarflokks og Alþýðuflokks
undir forystu Þorsteins Pálssonar
liðaðist í sundur undir haust 1988.
Var höfuðástæðan, fyrir utan
ósætti milli manna, uppgjöf gagn-
vart miklum efnahagserfiðleikum.
Fastgengisstefna, sem
hafði verið reynd
misserin á undan,
endaði með ósköpum
og haustið 1988 blasti
við að hjól atvinnulífs-
ins, einkum í útflutn-
ings- og samkeppn-
isgreinum, voru að
stöðvast.
Ríkisstjórnin sem
þá var mynduð á um
það bil 10 dögum í
september 1988 fékk
það erfiða hlutskipti í
hendur að gera allt í
senn: tryggja eftir
föngum kaupmátt launa og verja
lífskjörin, halda atvinnulífinu gang-
andi, sporna gegn atvinnuleysi og
kljást við verðbólgudrauginn sem
gekk ljósum logum.
Sú glíma verður ekki rakin nán-
ar hér, aðeins fullyrt að ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar vann
mikið og gott starf. Sjávarútvegur-
inn og aðrar útflutningsgreinar
komust á rétt ról, hættunni á stór-
felldu atvinnuleysi var bægt frá
dyrum. Síðast en ekki síst lagði
söguleg samvinna aðila vinnumark-
aðarins, í góðu samstarfi við rík-
isstjórn og Bændasamtökin, grunn
að þjóðarsáttinni sem markaði
mikil tímamót í hagstjórn og allri
þróun efnahagsmála eftirstríðs-
áranna. Verðbólgan var slegin nið-
ur og það svo hraustlega að nánast
skapaðist þjóðhátíðarstemming
haustið 1990 þegar eins stafs ver-
bólgutala leit í fyrsta sinn dagsins
ljós á Íslandi eftir tveggja til
þriggja áratuga barning í ólgusjó
óstöðugleika.
„Hvar var ég?“
Það er þessi stóri ávinningur
sem nú er við það að glatast sök-
um ábyrgðarleysis og hagstjórnar-
mistaka ríkisstjórna Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks og
sökum dauðyflisháttar núverandi
ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar. Að sjálfsögðu er hér
við fleiri eða fleira að sakast en
ríkisstjórnir einar. Heimsbúskapn-
um svelgist nú á afurðum nýfrjáls-
hyggju- og græðgiskapítalismans,
fyrirbærum eins og undirmáls-
Þjóðarsáttin glötuð – Verð-
bólgudraugurinn vaknaður
Steingrímur J. Sigfússon
skrifar um efnahagshorfurnar.
Steingrímur J.
Sigfússon
» Það er þessi stóri
ávinningur sem nú
er við það að glatast
sökum ábyrgðarleysis
og hagstjórnarmistaka
ríkisstjórna Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknar-
flokks og sökum dauð-
yflisháttar núverandi
ríkisstjórnar …
Steingrímur J. Sigfússon er alþing-
ismaður, formaður Vinstrihreyfing-
arinnar græns framboðs.
stöðvar hér á landi. Ég skora á borg-
arfulltrúa Reykjavíkur að leyfa flug-
vellinum að vera áfram á sínum stað,
fólk úti á landi þarf á því að halda að
komast til Reykjavíkur á sem hag-
kvæmastan hátt, jafnvel til vinnu,
lækninga og fleira.
ERLING ARNAR ÓSKARSSON,
stýrimaður.
MANNI er nú alveg farið að blöskra
þessi umræða um flugvöllinn í
Reykjavík eftir að hafa séð í fréttum
að nánast allir borgarfulltrúar séu
fylgjandi því að færa flugvöllinn
nema borgarstjóri. Enginn virðist
geta axlað þá ábyrgð og hafa til þess
getu að ákveða flugvellinum heppi-
legan stað. Þetta er með öllu ólíðandi
gagnvart okkur hinum sem búum úti
á landi og þurfum á þessum velli að
halda, staðsetning á flugvellinum er
ekkert einkamál Reykvíkinga. Þessi
umræða er orðin úr sér gengin og
sýnir óendanlegt getuleysi þeirra
sem fara með þessi mál, það væri fyr-
ir löngu búið að leysa þetta fólk frá
störfum ef það ætti að þjóna sam-
bærilegu stórfyrirtæki og Reykjavík
er. Flugstöðin í Reykjavík er til
skammar, samanber aðrar flug-
Reykjavíkurflugvöllur
Frá Erling Arnari Óskarssyni
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
VIKA hjúkrunar er nú haldin í
þriðja sinn á Landspítala. Þá kynna
hjúkrunarfræðingar og ljósmæður
hluta af því mikla þró-
unar- og umbótastarfi
sem fer fram í hjúkrun
á spítalanum. Hjúkr-
unarráð hefur veg og
vanda af viku hjúkr-
unar, en vikan er
uppskeruhátíð hjúkr-
unarfræðinga og ljós-
mæðra um leið og
minnst er fæðing-
ardags Florence
Nightingale.
Í viku hjúkrunar
eru ýmsir viðburðir,
m.a. verður opið hús á
göngudeild þvagfæra-
rannsókna og á
lungnadeild þann 14.
maí, en þar kynna
hjúkrunarfræðingar
störf sín og starfs-
hætti. Nýjungar í
starfsemi og rann-
sóknar- og þróun-
arverkefni eru kynnt
á veggspjöldum og í
ár eru kynnt 47 verk-
efni. Þessi verkefni
sýna mikla grósku í
starfi hjúkrunarfræð-
inga og ljósmæðra á
Landspítala sem samhliða umönnun
sjúklinga leita sífellt leiða til umbóta
í hjúkrun. Dæmi um verkefni sem
kynnt eru: Aukið aðgengi að vatns-
meðferð fyrir konur í fæðingu; geð-
þjónusta öldrunarsviðs, rannsókn á
upplifun filippeyskra sjúklinga á
Landspítala; lífsgæði og endurhæf-
ingarþarfir sjúklinga sem fá lyfja-
meðferð við krabbameini; þjónusta
við sjúklinga sem greinst hafa með
fyrirferð í lunga og svo mætti lengi
telja. Veggspjaldasýningin hófst
þann 7. maí og stendur til 21. maí nk.
Veggspjöldin eru til sýnis miðsvæðis
á Landspítala í Fossvogi og á Hring-
braut og er sýningin opin öllum með-
an spítalinn er opinn.
Hjúkrunarfræðingar og ljós-
mæður fjalla lítið um eðli starfsins á
opinberum vettvangi, líklega vegna
nálægðar við einstaklinga og fjöl-
skyldur þeirra á erfiðum tímum.
Ímynd hjúkrunar er því oftast lýst
sem umhyggju, kærleik og umönn-
un. Umhyggja og nærvera eru horn-
steinar hjúkrunar en starf hjúkr-
unarfræðinga og ljósmæðra og
þekking þeirra felst ekki síður í
flóknum hjúkrunarmeðferðum, mati
á einkennum og líðan sjúklinga og
þekkingu til að grípa inn í þegar
bataferlið fer af réttri
leið. Hjúkrunarfræð-
ingar og ljósmæður
greina hættumerki í
bataferli sjúklings,
veita fyrstu meðferð og
leita samvinnu við aðra
heilbrigðisstarfsmenn
til að snúa þeirri þróun
við.
Hjúkrunarfræði er
sjálfstæð fræðigrein og
rannsóknum á árangri
hjúkrunar hefur vaxið
fiskur um hrygg á und-
anförnum árum og nið-
urstöður þeirra hafa
þegar skilað sér í um-
bótum í hjúkr-
unarmeðferð hér á
landi. Merki þess sáust
á Vísindum á vordögum
á Landspítala og nú á
veggspjaldsýningu í
viku hjúkrunar.
Erlendar rannsóknir
hafa sýnt tengsl á milli
menntunar hjúkr-
unarfræðinga og mönn-
unar við líðan sjúk-
linga, legutíma og tíðni
ýmissa fylgikvilla, s.s.
sýkinga í blóði, þvagfærasýkinga og
öndunarbilunar. Þessar rannsóknir
sýna að lengd menntunar hjúkr-
unarfræðinga skiptir sköpum fyrir
velferð og öryggi sjúklinga. Mik-
ilvægt er því að hafa vel menntaða
og þjálfaða hjúkrunarfræðinga og
ljósmæður í starfi á háskólasjúkra-
húsinu Landspítala.
Stjórnendur Landspítala þakka
hjúkrunarráði fyrir að halda viku
hjúkrunar og sýna þannig hjúkr-
unarfræðingum, ljósmæðrum, öðr-
um starfsmönnum spítalans, sjúk-
lingum og aðstandendum þeirra þá
grósku sem er í hjúkrun á Landspít-
ala. Jafnframt þakka þeir hjúkrun-
arfræðingum og ljósmæðrum fyrir
óeigingjarnt og metnaðarfullt starf
sem eflir og bætir þjónustu við sjúk-
linga Landspítalans.
Vika hjúkrunar
á Landspítala
Anna Stefánsdóttir segir frá
þróunar- og umbótastarfi
sem fer fram í hjúkrun á
Landspítalanum
Anna Stefánsdóttir»Umhyggja og
nærvera eru
hornsteinar
hjúkrunar en
starf hjúkr-
unarfræðinga og
ljósmæðra og
þekking þeirra
felst ekki síður í
flóknum hjúkr-
unarmeðferðum
Höfundur er framkvæmdastjóri
hjúkrunar á Landspítala.
Við eigum að festa gengið í 120 kr.
evruna. Hætta í bili við þetta fljót-
andi gengi krónunnar,
sem var nýlega að falla
og setti allt úr skorðum.
Verðbólga flæðir yfir
landið. Matvara hækk-
ar, bensín hækkar og
verðtryggð lán hækka.
Eyðileggur árangur
kjarasamninga, sem
voru nýlega gerðir.
Til þess að hægt sé að
festa gengið í 120 kr.
evran og það sé trúverð-
ugt þá verðum við að
hafa 1.000 miljarða
varasjóð í gjaldeyri til
að bakka krónuna upp.
Ekki dugar minna sbr.
nýlega tillögu Lands-
bankans um þjóðarsjóð.
Virkja tillöguna og taka
upp.
Fyrst myndum við
biðja Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
(I.M.F) um yfirdrátt til að verja
gengið. Þeir hafa lánað okkur áður.
Þekkja okkur – hjálpuðu okkur áður.
Næst myndum við ræða við Al-
þjóðabankann um lán með lágum
vöxtum. Þeir lánuðu okkur (í kring-
um 1965) til að byggja rafstöð við
Búrfell með lágum vöxtum sem gerði
álverið í Straumsvík mögulegt. Var
upphaf álvera og stór-rafvæðingar
Íslands. Er Alþjóða-
bankanum að þakka.
Á móti þessum lán-
um upp á 500-1000
milljarða myndum við
auka strax álfram-
leiðslu okkar árlega í
milljón tonn til að hafa
meiri tekjur í gjald-
eyri. Einnig myndum
við semja við þessa tvo
banka og sjóð um að
reisa strax verk-
smiðjur, sem fram-
leiddu vetni og metha-
nol á bíla til að gera
bensín og díselolíur
óþarfar. Væri til að
flýta þeirri þróun í
heiminum, væri heims-
forysta. Við yrðum að
virkja, virkja og virkja
sem óðir menn. Fá
gjaldeyri. Við myndum leita til Kín-
verja um að lána okkur svona 500
milljarða. Á móti myndum við fá kín-
verska verkamenn til að vinna við
þessar framkvæmdir auk Íslendinga.
Gerði þær ódýrari og arðbærari. Svo
gætum við virkjað í Kína heitt vatn
o.fl. sem við kunnum. Það kæmi á
móti. Kínverjar þekkja okkur. Skipta
mikið við okkur, eru vinir okkar.
Um leið og evran er föst og trygg í
120 kr. gagnvart krónunni með
svona varasjóði, 1.000 miljörðum, þá
eru núverandi 15% stýrivextir óþarf-
ir til að halda gengi krónunnar uppi.
Stýrivextir færu síðar í 4% eða í
lægra 2-3%. Engin verðbólga. Þetta
gerðu Svíar fyrir 10 árum rúmlega.
Greinarhöfundur var úti í Svíþjóð
tvisvar til þrisvar sinnum fyrir um 10
árum. Mjög háir stýrivextir þar
lækkuðu í 2-3%. Þá var auglýsing á
forsíðu Dagens Nyheter þar sem
boðnir voru rúmlega 4% vextir á
bílaláni í evrum. Önnur bílalán Svía
þá 10-15%. Sýndi lækkun vaxta.
Til að framleiða milljón tonn af áli,
ásamt vetni og methanoli, þarf ný
stjórn að taka við. Framsókn yrði að
semja við Sjálfstæðisflokk. Eru
virkjunarflokkar. Hafa meirihluta á
Alþingi. Frjálslyndi flokkurinn kæmi
með til að styrkja stjórnina, yrði boð-
ið það.
Bylting 2008. Þetta er ný og rétt
leið til að bjarga þessu öllu. Engin
verðbólga lengur enda gengið fast.
Bönkunum bjargað líka um leið.
Fast gengi 120 kr. evran
Lúðvík Gizurarson skrifar um
efnahagsmál
Lúðvík Gizurarson
» Þetta er ný
og rétt leið
til að bjarga
þessu öllu.
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
www.sjofnhar.is