Morgunblaðið - 10.05.2008, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2008 49
Mallorca
Fjölskylduparadísin Alcudia
Aðeins örfáar íbúðir í boði
Heimsferðir bjóða frábær sértilboð til Mallorca 4., 11. eða
18. júní. Bjóðum nokkrar íbúðir á á okkar vinsæla gististað
Alcudia Pins í Alcudia á frábæru verði. Íbúðahótelið er
tilvalið fyrir fjölskyldufólk þar sem eitthvað er að finna
við allra hæfi, s.s skemmtidagsskrá á daginn og kvöldin,
sundlaugar, rennibrautir, fótbolta-, körfubolta- og
tennisvöllur og svo mætti lengi telja. Gengið er beint úr
hótelgarðinum og niður á fallega hvíta ströndina. Skelltu
þér með fjölskylduna og njóttu lífsins á Mallorca.
Kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn saman í íbúð í viku, 18. júní á Alcudia
Pins. Brottfarir 4. og 11. júní kr. 4.000
aukalega. Aukavika kr. 14.000.
Kr. 59.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna saman
í íbúð í viku, 18. júní á Alcudia Pins.
Brottfarir 4. og 11. júní kr. 4.000 kr
aukalega. Aukavika kr. 14.000.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
r
ét
t
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
3
44
0
Frábært
sértilbo
ð
- Alcudi
a Pins íb
úðahóte
lið
Sértilboð í júní
Í DAG er á dagskrá RÚV lokaþátt-
ur vetrarins af Orð skulu standa.
Gestir þáttarins eru Anna Kristín
Arngrímsdóttir leikkona og Þór-
arinn Eldjárn rithöfundur. Á milli
þess sem þau velta fyrir sér m.a.
„refhvörf“, „andakt“, „kubbakór-
inn“ og „kröfuganga“ botna þau
þennan fyrripart:
Sumarfrí er framundan,
ferðalög og blíða.
Um nýliðna helgi var fyrripart-
urinn þessi:
Fáir koma á fyrsta maí,
flestir sitja heima.
Í þættinum botnaði Hlín Agnars-
dóttir:
Nenna ekki niður í bæ,
naga kex og dreyma.
Brynhildur Guðjónsdóttir fór
með sinn bragarhátt alla leið:
Allar kröfur kvaddar – bæ!
Karli Marx eru allir fyrir langa löngu bún-
ir að gleyma.
Davíð Þór Jónsson upplifði sig
sem einmana sósíalista:
Með upphrópanir oní bæ
einn um nótt ég sveima.
Helga Vala Helgadóttir:
Sossar, kommar, sækja í bæ,
söfnuðinn þeir teyma.
Úr hópi hlustenda lét Pálmi R.
Pétursson sér ekki nægja færri en
fjóra botna:
Finna hvorki frelsis blæ
né frið um hugann streyma.
Góðmennt þó mun gjarna í bæ
hvar gráir Nallann breima.
Fyrrum loginn brann í bæ,
nú bankar okkur teyma.
Ennþá munu á Fróni fræ
er fold mun ávallt geyma.
Björg Elín Finnsdóttir sendi m.a.
þessa:
Áfengið þeir drekka dræ
og dýrtíðinni gleyma.
Við daginn segja bless og bæ
og baráttunni gleyma.
Auðunn Bragi Sveinsson:
Boðskapurinn berst á glæ,
best að sofa og dreyma.
Erlendur Hansen á Sauðárkróki
fór í allt aðrar áttir:
Vargöld er í vesturbæ,
villtir kettir breima.
Orð skulu standa
Sjónarsviptir Davíð Þór Jónsson, Karl Th. Birgisson og Hlín Agnarsdóttir
hafa verið útvarpshlustendum bæði til gagns og gamans undanfarin ár.
Síðasti þátturinn
Aðstandendur þáttarins kunna
hlustendum miklar og kærar þakk-
ir fyrir samfylgdina síðastliðna
sex vetur.
TÓNLEIKAFERÐ þeirra Valgeirs
Sigurðssonar og Sams Amidon
hefst á Organ í kvöld en eftir helgi
halda þeir út fyrir landsteinana og
leika fyrir tónleikagesti í Hollandi,
Bretlandi, Belgíu, Danmörku og
Svíþjóð. Sam Amidon er frá Ver-
mont í Bandaríkjunum og flytur
þjóðlög sem hann hefur oftar en
ekki fært í nýjan búning. Plata
hans All is Well kom út á vegum
Bedroom Community um allan
heim í febrúar á þessu ári og hefur
hvarvetna verið vel tekið. Platan
var tekin upp í Gróðurhúsinu í
samstarfi við Nico Muhly, sem ann-
aðist útsetningar, og Valgeir Sig-
urðsson, sem stýrði upptökum. Val-
geir Sigurðsson
þekkja margir
sem einn vinsæl-
asta upp-
tökustjóra lands-
ins en Valgeir
sendi nýlega frá
sér plötuna Ekví-
libríum sem er
hans fyrsta sóló-
plata. Þó að ekki
sé um eiginlega
útgáfutónleika að ræða er þetta í
fyrsta sinn sem bæði Valgeir og
Sam leika á tónleikum á Íslandi
síðan plöturnar All Is Well og
Ekvílibríum komu út á vegum
Bedroom Community-útgáfunnar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sam Amidon Tekur víst mergjaða útgáfu af Tears for Fears slagaranum
„Head over Heals“. Gestir Organs mega eiga von á að heyra lagið í kvöld.
Túrinn hefst á Íslandi
Valgeir Sigurðsson og Sam Amidon
troða upp á Organ kl. 22 í kvöld
Valgeir
Sigurðsson
Fréttir á SMS