Morgunblaðið - 10.07.2008, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 2008 29
19. og 26. júlí frá kr. 54.990
Bjóðum nú frábær sértilboð til Rhodos 19. og 26. júlí í viku. Í boði
eru sértilboð á Hotel Forum, okkar aðalgististað á Rhodos, með hálfu
fæði og á Hotel Forum Beach með öllu inniföldu. Hótelin eru vel stað-
sett stutt frá ströndinni í hinum líflega Ialiysos bæ. Góðir sundlauga-
garðar, veitingastaðir og barir. Á Rhodos upplifir þú þrjú þúsund ára
gamla sögu, frábært loftslag og úrval veitingastaða og afþreyingar.
Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á perlu gríska Eyjarhafsins. Tak-
markaður fjöldi íbúða í boði á þessu frábæra verði.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Verð kr. 54.990
- Forum m/hálfu fæði
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1
svefnherbergi í viku. Sértilboð 19.- 26. júlí með hálfu
fæði. Aukalega m.v. 2 í íbúð kr. 10.000.
Verð kr. 64.990
- Forum Beach m/allt innifalið
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í
íbúð. Sértilboð 26. júlí í viku með öllu inniföldu.
Aukalega m.v. 2 í íbúð kr. 10.000.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Frábær gisting - örfáar aukaíbúðir!Frábær sértilboð
Hotel Forum - hálft fæði
Forum Beach - allt innifalið
* * *
Rhodos
EIGENDUM húsa er ekki frjálst að
láta graffa listaverk á hús sitt eða
leyfa veggjakroti að vera í friði.
„Ef þú breytir formi eða svipmóti
húss, þá þarftu
að sækja um
leyfi,“ útskýrir
Magnús Sædal
Svavarsson,
byggingafulltrúi
Reykjavík-
urborgar. Hann
segir sömu regl-
ur gilda hvort
sem mála á graf-
fití-listaverk eða
einfaldlega mála
húsið röndótt eða neonbleikt. „Þú
ert um leið að hafa áhrif á ytra um-
hverfið sem er sameiginlegt með
öðrum.“
Í sumum hverfum eru strangar
reglur um litanotkun en í öðrum
ræðst viðmið um litaval og skreyt-
ingar af því byggðarmynstri sem
fyrir er. „Ef það sem menn vilja
gera samræmist ekki byggð-
armynstrinu, þá geta borgaryf-
irvöld gert við það athugasemd,“
segir Magnús og bætir við að mjög
áberandi skreytingar á vegg gætu
jafnvel þurft að fara í grennd-
arkynningu ef áhrifin á nágrennið
eru mikil og áberandi.
Einfaldara ferli
„Það eru hugmyndir uppi um að
reyna að einfalda þetta. Það skýrist
á næstu dögum,“ segir Jakob Frí-
mann Magnússon spurður um það
ferli sem fara þarf í gegnum til að
skreyta húsveggi bæjarins.
Það tekur byggingafulltrúa í dag
um viku að fara yfir leyfisumsóknir
og kostar 7.300 kr.
Sækja þarf
um leyfi
Magnús Sædal
Svavarsson
Leyfilegt Verk í Sirkúsportinu.
Morgunblaðið/RAX
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
ÓMAR Ómar Ágústsson er áhugamaður um
graffití og segir borgaryfirvöld á rangri leið í
baráttu sinni við krotið. Hann segir að það
þurfi að fræða börn og unglinga um listformið:
„Fyrir nokkrum árum skrúfaði borgin fyrir all-
an stuðning og lokaði á allt sem hét fræðsla um
graffití,“ segir Ómar. „Afleiðingin er sú að kyn-
slóð af ungum krökkum er að vaxa úr grasi
sem lítið veit og hefur engin tengsl við þá sem
eru reyndari í listinni. Það eina sem þessir
krakkar sjá er það neikvæða við graffití, því já-
kvæðu hliðarnar fá hvergi að njóta sín. Þeir fá
mesta umfjöllun sem ganga lengst og gera
mesta tjónið og um leið verða þeir að fyr-
irmyndum, en ekki þeir sem eru flinkustu lista-
mennirnir.“
Rósir vaxa í skítnum
„Við skulum ekki gleyma því að meira en
99% af þessu er óhugnanlega lélegt drasl,“ seg-
ir Guðmundur Oddur „Goddur“ Magnússon,
prófessor í grafískri hönnun við LHÍ, að-
spurður um listrænt gildi veggjakrotsins í borg-
inni. „En á móti kemur að fegursta rósin vex
oft í mesta skítnum og stundum sér maður al-
veg gullfalleg verk, sem eru kannski enn meira
áberandi út af skítnum sem er í kringum þau.“
Goddur segir samt engin listræn verðmæti í
húfi þó að málað sé yfir veggjakrot því þeir
graffarar sem leggja metnað í list sína ljós-
mynda verk sín og safna þeim í möppur. „Verk-
in á ljósmynd eru jafn mikils virði og myndin á
veggnum.“
En Goddur telur að böndum verði ekki komið
á graffið: „Það er eðli lista að fara út fyrir
mörkin. Um leið og þú reynir að stýra listinni í
farveg, sama hvað það er, þá endar það alltaf
illa. Öll stýring er dæmd til að mistakast,“ segir
hann. „Ég er algjörlega sammála því að það var
meira en tímabært að taka til hendinni og
hreinsa miðbæinn en ég veit að um leið er bara
verið að búa til nýtt léreft fyrir komandi kyn-
slóðir.“
Um leið og Goddur vill ekki setja samasem-
merki á milli þess að stunda graff og vera hæfi-
leikaríkur listamaður þá bendir hann á að stór
hluti nemenda við LHÍ hafi bakgrunn í veggja-
kroti. „Þeir sem eru iðnir að þjálfa huga og
hönd, þeir komast inn. Hafirðu verið að graffa í
mörg ár þá segir það sig sjálft að þú ert orðinn
svolítið klár,“ segir hann. „Menningin í kringum
graffitíið, brettakúltúrinn og tónlistin, gerir það
líka að verkum að fólk sem er í þessu er oft
tímanna tákn og það er einmitt þess konar fólk
sem endar hjá okkur.“
Skýrar reglur
Jakob Frímann Magnússon miðborgarstjóri
vill finna graffinu heppilegan farveg: „Ég lagði
það til, og er til skoðunar, að við jafnvel reisum
sérstakan vegg, kannski meira í akstursleið
frekar en í göngufæri frá innsta kjarna mið-
borgarinnar. Þar gætu menn komið og framið
sínar myndir og síðan mætti í hverjum mánuði
velja eina tiltekna mynd, ljósmynda hana og
jafnvel veita viðurkenningu, áður en veggurinn
yrði hreinsaður og byrjað upp á nýtt.“
Jakob segist skilja að graffitíið felist oft í því
að ögra kerfinu en telur eftir sem áður að
hreinsunarátakið sem nú stendur yfir muni
virka. „Það þurfa að vera alveg skýrar reglur
um það að helgustu blettir borgarinnar séu
látnir í friði. Ástandið var farið úr böndunum
og engin virðing borin fyrir neinu.“
Á veggjakrotið sér framtíð?
Guðmundur Oddur
Magnússon
Jakob Frímann
Magnússon
Öfug áhrif Ómar Ómar segir neikvæða umræðu og fræðsluskort verða til þess að mestu skaðvaldarnir verða einu fyrirmyndir þeirra sem yngri eru.
Morgunblaðið/Valdís Thor