Morgunblaðið - 26.08.2008, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 26.08.2008, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is NÚ ÞEGAR grunnskólarnir eru farnir af stað er hver að verða síð- astur að kaupa sólarlandaferð fyrir fjölskylduna í lok október næstkom- andi, þegar flestir grunnskólar á höf- uðborgarsvæðinu og víða um land fara í vetrarfrí. Uppselt er í margar ferðir á þessum tíma, samkvæmt samtölum við forsvarsmenn nokkurra ferðaskrifstofa, og er verið að skoða möguleika á að bæta við ferðum. Þeg- ar komið er fram í lok október eru fáir sólarlandastaðir í boði, aðallega Ten- erife og fleiri sólarstrendur á Kan- aríeyjum, og einnig staðir eins og Alicante á Spáni og Benidorm. Sala á borgarferðum á þessum tíma hefur einnig gengið mjög vel og al- mennt virðist vera góð sala í utan- landsferðir um jól, áramót og páska, hvort sem það eru sólarlanda- eða skíðaferðir. „Kreppan sem allir eru að tala um er ekki komin hvað þetta varðar, landinn er þá að spara við sig í einhverju öðru,“ sagði einn talsmanna ferðaskrifstofanna. Á vef menntasviðs Reykjavík- urborgar kemur fram að langflestir grunnskólar lengja síðustu helgina í október með vetrarfríi föstudaginn 24. október og mánudaginn 27. októ- ber. Einnig eru nokkrir skólar með frí dagana á undan. Aðeins tveir skólar; Hólabrekkuskóli og Hvassaleitisskóli, taka ekki vetrarfrí en á móti er þeim slitið fyrr í vor. Misjafnt er eftir skól- um hvort vetrarfrísdagar séu teknir í lok febrúar. Ferðir settar aftur á dagskrá Svipað gildir um sérskóla og einka- skóla, flestir eru með vetrarfrí þessa októberdaga nema Ísaksskóli sem er ekki með vetrarfrí. Grunnskólarnir í Kópavogi eru flestir með vetrarfrí síðustu tvo daga októbermánaðar, svo dæmi sé tekið. „Það eru margar ferðir uppseldar hjá okkur og við erum að velta því fyrir okkur hvað við getum bætt við af vélum. Vandinn er hvað fáir staðir eru í boði á þessum árstíma,“ segir Helgi Jóhannsson, framkvæmda- stjóra Sumarferða, um ásókn í sólina þegar skólarnir taka vetrarfrí. Auka- flug var sett upp til Alicante á Spáni 23. október til 27. október og er sú ferð við það að seljast upp, að sögn Helga. „Á síðustu fjórum vikum höfum við selt meira af ferðum en á sama tíma á síðasta ári, sem var þá metár. Þetta er meira en við áttum von á. Í öllu krepputalinu vorum við búin að setja okkur í stellingar með að draga sam- an. Núna erum við að endurvekja flugferðir sem við höfðum áður ætlað að hætta við,“ segir Helgi og tekur dæmi um ferð til Madeira í Portúgal í lok október. Þar runnu út 400 sæti á skömmum tíma, eftir að ferðin var sett í sölu á dögunum. Nýlega hafi verið prófað að bjóða ferð til Túnis í sölu. Þorsteinn Guðjónssson, fram- kvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar, hefur svipaða sögu að segja. Þar hafi geng- ið vel að selja í ferðir á þessum árs- tíma. Eftirspurnin sé gríðarleg á vetrarfrístíma grunnskólanna og ferðirnar hafi farið út strax og daga- tal skólanna lá fyrir. Fríin mættu dreifast meira Hann segir ferðaskrifstofur gjarn- an vilja að vetrarfrí skólanna dreifist betur yfir tímabilið, þannig að álagið verði jafnara. „Vandi“ þeirra hafi aukist þegar margir skólar hættu við vetrarfrí í febrúar og lengdu októ- berfríið. En verði þessi frítími stöð- ugur og fastur í skólastarfinu næstu misserin ættu allir að geta skipulagt sig betur; hvort sem það eru heimilin, ferðaskrifstofur eða aðrir geirar at- vinnulífsins. Tómas Gestsson, framkvæmda- stjóri Heimsferða, segir vel hafa selst í ferðir til Kanaríeyja, Tenerife og Dómíníska lýðveldisins. Eftirspurnin í lok október hafi verið mjög mikil, sem og fyrir jólin og páskana. Einnig hafi skíðaferðir í vetur selst vel. Tóm- as segir eftirspurnina fyrir veturinn hafa verið mun meiri en reiknað var með. Sólin heillar í skólafríi  Uppselt í flestar ferðir í lok október  Góð sala í sól og skíði um jól og áramót  Ferðaskrifstofur bæta við ferðum og kannast ekki við kreppu í þjóðfélaginu Morgunblaðið/Brynjar Gauti Sólin Gríðarleg eftirspurn hefur verið í sólarferðir dagana sem grunnskólarnir taka sér vetrarfrí í október nk. Eftir undanúrslitaleikinn í hand- bolta í Peking á föstudag, þegar Ís- land lagði Spánverja að velli með eftirminnilegum hætti, urðu síma- línurnar rauðglóandi á ferðaskrif- stofu Úrvals-Útsýnar. Ekki var ver- ið að panta ferðir til Peking, heldur bara eitthvað út fyrir landstein- ana, að sögn Þorsteins Guðjóns- sonar hjá Úrvali-Útsýn. „Það voru engar bókanir í gangi fram yfir leik, en síðan tók þetta ótrúlegan kipp. Yfirleitt er föstu- dagur rólegur hvað bókanir varðar en þetta varð söluhæsti dagur vik- unnar,“ segir Þorsteinn og hefur enga aðra skýringu á söluaukning- inni en úrslitin gegn Spánverjum. Þau hafi fyllt íslensku þjóðina ákveðinni bjartsýni. Landinn tók við sér eftir Spánarleikinn ALLS sögðust 47% þátttakenda í könnun Capacent fyrir Stöð 2 mjög andvíg meirihlutasamstarfi Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn og tæp 15% aðspurðra eru frekar andvíg. Jafngildir þetta því að um tveir þriðju aðspurðra séu andvígir nýja meirihlutanum. Rúm 9% prósent aðspurðra eru hins vegar mjög fylgjandi og um 14% frekar fylgjandi. Könnunin var gerð á sjö daga tímabili og hófst daginn sem nýr meirihluti sjálfstæðismanna og Framsóknarflokksins var kynntur hinn 14. ágúst. Samkvæmt könn- uninni eru 14,6% hvorki fylgjandi né andvíg. Í könnuninni var athuguð af- staða 730 Reykvíkinga á aldrinum 18-75 ára. Svarhlutfall var 55,1%. Borgarstjórn með 25% fylgi Í MORGUNBLAÐINU í gær var fjallað um boð og gjafir til embættis- og stjórnmálamanna. Boðsferð Landsbankans í umræddri frétt var eingöngu fyrir viðskiptavini bankans og í ferðinni voru engir stjórnmála- eða embættismenn. Lögmaður, sem var í ferðinni, gegndi ekki opinberu embætti á þeim tíma sem ferðin var farin. thorbjorn@mbl.is Árétting vegna fréttar Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is UNG kona frá ónefndu ríki í Vestur- Afríku hefur beðið örlaga sinna á Íslandi síðan í lok maí. Hún hefur sótt um pólitískt hæli hérlendis af mannúðarástæðum og vonar það besta en óttast hið versta. „Ég vona að ég fái að búa hérna og halda áfram háskólanámi, en ég veit ekki hvað gerist,“ segir Esther, sem vill hvorki koma fram undir fullu nafni né geta þjóðernis þar sem hún ótt- ast afleiðingarnar í heimalandi sínu. Þvinguð í hjónaband Esther, sem er 23 ára, segir að til- drög málsins séu þau að foreldrar hennar og einkum faðir hafi í fyrra þvingað hana til þess að giftast eldri, fjárhagslega vel stæðum manni, sem átti fyrir tvær konur og börn. „Þau töldu hjónabandið gott fyrir þau fjárhagslega,“ segir hún og bætir við að hún hafi ekki þekkt manninn. Fljótlega hafi komið í ljós hvaða mann hann hafi haft að geyma. „Hann drakk mikið, barði mig stöðugt og tvisvar lá ég meðvit- undarlaus eftir.“ Ungu eiginkonunni leist ekki á blikuna og segist hafa sagt presti sínum frá líkamlega og andlega of- beldinu. Hann hafi ráðlagt henni að fara til lögreglunnar og það hafi hún gert þrisvar, en viðbrögðin hafi ávallt verið þau að hún skipti sér ekki af hjónabandserjum. Við ástandið hafi ekki verið hægt að lifa og prestur hennar hafi ekki séð neina leið aðra en að fara úr landi og sækja um hæli í Kanada. Hann hafi ráðið henni frá því að sækja um hæli í Evrópu og eftir að hafa komið henni til Svíþjóðar hafi hann útveg- að henni kanadískt vegabréf til að fara til Kanada. Hún hafi verið stöðvuð í Keflavík og í kjölfarið hafi Útlendingaeftirlitið ráðlagt henni að sækja um hæli á Íslandi. Það hafi hún gert og bíði nú niðurstöðu yfir- valda. Sofa, biðja og borða „Ég geri eiginlega ekkert annað en sofa, biðja og borða,“ segir Est- her. Hún er mjög trúrækin og segist sækja kirkju reglulega auk þess sem hún hlusti á kristilega tónlist í útvarpi. Hún bætir við að sér líði vel á Íslandi en biðin og óvissan séu mjög erfið. Hún lifi í stöðugum ótta við að verða skyndilega send úr landi og þorir ekki að hugsa þá hugsun til enda þurfi hún að fara aftur til heimalandsins. „Það veit enginn hvar ég er, ekki einu sinni presturinn minn,“ segir hún og bæt- ir við að hún fái alltaf sting þegar hún sjái lögregluþjóna. Meðan á biðinni stendur er Est- her séð fyrir húsnæði og fæði auk þess sem hún segist fá 2.500 krónur á viku í eyðslufé og Rauði krossinn hafi útvegað henni föt. Peningana gefi hún hins vegar aftur til góð- gerðarmála. „Ég þarf ekki peninga heldur vernd,“ segir hún. Esther vill halda áfram námi. „Ég hætti í háskólanum þegar ég var þvinguð í hjónabandið og ég vona að ég fái hér hæli svo ég geti haldið áfram námi án þess að þurfa að ótt- ast um líf mitt. Það er mín helsta ósk.“ Þarf ekki peninga heldur vernd Morgunblaðið/Valdís Thor Bið Esther bíður milli vonar og ótta eftir ákvörðun stjórnvalda. Hefur sótt um pólitískt hæli á Ís- landi og vill í skóla Þrjú þúsund íbúar Sveitarfélagið Norðurþing var rang- lega sett í hóp sveitarfélaga með inn- an við 1.000 íbúa á korti sem birtist með fréttaskýringu í blaðinu sl. sunnudag. Íbúar þar eru nálægt 3.000. Beðist er velvirðingar á þessu. Stígis ekki Nýhil Í myndatexta um Menningarnótt var í Morgunblaðinu í gær farið rangt með hverjir aðstandendur ljóðarisans voru. Risinn var eign- aður Nýhil en rétt er að hann var á vegum leynileikhópsins Stígis. Beð- ist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT                     !              ICELANDAIR Cargo flutti tvívegis vopn til Georgíu fyrir Bandaríkja- stjórn en þar var um að ræða riffla án skotfæra að sögn Gunnars Más Sigurfinnssonar, framkvæmdastjóra félagsins. Fyrri vopnasendingin fór fram fyrir 3-4 mánuðum og sú seinni í júlí. Að sögn Gunnars var aðdragand- inn sá að félagið átti að hans trú hag- stæðasta tilboðið í ótilgreinda flutn- inga fyrir Bandaríkjastjórn sem gerði félaginu ljóst skömmu fyrir brottför hvers konar varning var um að ræða. Aðspurður segir Gunnar Már að þá hafi ekki farið fram um- ræða innan félagsins um hvort sið- legt væri að flytja varninginn og því tók félagið að sér verkefnið eins og ekkert hefði í skorist. „Þessi varn- ingur flokkast ekki sem hættulegur varningur og er að okkar mati því venjulegur flutningur.“ Sótt hafi verið um leyfi fyrir flutningnum til þeirra landa sem málið varðaði, þ.e. Georgíu og Bandaríkjanna, Íslands, Kanada o.fl. orsi@mbl.is Sá um riffla- sendingu til Georgíu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.