Morgunblaðið - 26.08.2008, Page 17

Morgunblaðið - 26.08.2008, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2008 17 MENNING LISTAHÁTÍÐINNI Edinburgh Fringe Festival, sem haldin er sam- hliða stóru listahátíðinni í borginni, Edinborgarhátíðinni, lauk í gær. Fringe-hátíðin gefur sig út fyrir að vera ögrandi, lifandi, fjörug og dýna- mísk litla systir stóru hátíðarinnar, en bresku blöðin eru ekki öll sammála um að svo hafi verið í ár. Til dæmis skrifar Tara Mulholland í Inter- national Herald Tribune og segir að klúðrið hafi byrjað strax í upphafi há- tíðarinnar þegar miðasölukerfið bil- aði og engin leið hafi verið að sjá hvað selst hefði af miðum. Þá hafi veðrið verið andstyggilegt, með grenjandi rigningu og í besta falli gráum himni. Á listrænu hliðina hafi líka vantað talsvert, ekki eins mikið um að vera á götum úti og venjan er á hátíðinni og mun færri ferðamenn en á síðustu ár- um. Stærstu verðlaun hátíðarinnar voru veitt nú um helgina, The Carol Tambor Best of Edinburgh Award, en þau hlaut leikverkið Eight, um átta ungmenni sem eru að komast til manns á fyrsta áratug 21. aldarinnar. Höfundur verksins og leikstjóri er Ella Hickson en það var Háskólaleik- húsið í Edinborg sem setti verkið upp. Ekkert fjör á Fringe Litla systir Edin- borgarhátíðarinnar þótti dauf í ár Átta Þrjú af ungmennum Hickson í verki hennar á Fringe-hátíðinni. „ÞETTA er ekki sýning, þetta er hroði,“ er yfir- skrift dóms gagnrýnanda Daily Tele- graph um sýn- inguna Im- pressionism & Scotland, í National Gall- ery í Edinborg. Sýningin á að vera einn af hápunktum Edinborgar- hátíðarinnar en ef marka má dóma hafa sýningarstjórunum verið mis- lagðar hendur. Gagnrýnandinn Richard Dormen spyr hvort kæra megi safnstjóra til siðanefndar aug- lýsingastofa fyrir að gabba almenn- ing viljandi með villandi titli. Á hann þar við heitið, þar sem vísað er í im- pressjónistana og Skotland. Hann segir flesta skosku listamannanna á sýningunni varla hafa vitað út á hvað impressjónisminn gekk, og verk eft- ir franska impressjónista á sýning- unni fæst hafa nokkuð með Skotland að gera. „Sýningin gerir lítið úr skoskum málurum með því að sýna þá við hlið mun betri Frakka,“ skrif- ar hann. „Samanburðurinn segir okkur ekkert um impressjónisma í Frakklandi eða Skotlandi – en hann staðfestir þó að þegar frönsk list var upp á sitt versta þá var alltaf ein- hver Skoti sem gat gert ennþá verr.“ Sýningin sögð hroði Verk eftir Cézanne á sýningunni. HEIMILDA- og stuttmynda- hátíðin í Reykjavík, Reykjavík Shorts&Docs, er nú haldin í sjötta sinn. Í ár er stuttmyndin í öndvegi, og reynt að sýna þá vaxandi grósku sem er í gerð slíkra kvikmynda. Austurbæj- arbíó er vettvangur sýning- anna og sýnt kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Í þrjúbíó verða íslensku heim- ildamyndirnar Magapína eftir Kára Schram, Sagan um Svein Kristján eftir Hans Kristján Árnason, Ketill eftir Tómas Lemarquis og Joseph Marzolla og Kjöt- borg eftir Helgu Rakel Rafnsdóttur og Huldu Rós Guðnadóttur. Nánar um dagskrána í dag á www.shortdocs.info. Kvikmyndir Kjötborg og Ketill í þrjúbíó í dag Kjötborgar- kaupmenn ÍSLENSKI saxófón- kvartettinn leikur á tónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld kl. 20.30, en kvartettinn skipa Vigdís Klara Ara- dóttir á sópran- saxófón, Sigurður Flosason á altsaxófón, Peter Tompkins á tenórsaxófón og Guido Bäumer á barítónsaxófón. Verkin á efnisskránni eru frá ýmsum tímum: Fantasía eftir Orlande Gibbons, Historie du Tango eftir Piazzolla, Ricercare dopo il credo eftir Frescobaldi, Songs for Tony eftir Michael Nyman og Andante et Scherzo eftir Bozza. Kvartettinn hefur frá stofnun, árið 2006, flutt fjölda verka samin fyrir saxófónkvartett. Tónlist Aldirnar saxaðar í Sigurjónssafni Íslenski saxófónkvartettinn NATALIE Jeremijenko held- ur fyrirlestur í Opna Listahá- skólanum í hádeginu í dag. Hún er listamaður með bak- grunn í lífefnafræði, eðlisfræði og taugafræði, auk þess sem hún er doktor í verkfræði. Hún var nýverið valin einn af 40 áhrifamestu hönnuðum heims af tímaritinu ID og einn af 100 fremstu uppfinningamönnum heims af MIT Technology Re- view. Jeremijenko hefur m.a. sýnt í MassMoCa, Whitney-safninu og á Dokumenta. Fyrirlesturinn verður haldinn í Skipholti 1 og hefst klukkan 12:10. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Myndlist Fyrirlestur fjöl- fræðings í LHÍ Natalie Jeremijenko Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is ÞETTA er annað árið í röð sem Pét- ur Grétarsson stjórnar Jazzhátíð Reykjavíkur, en hann stýrði henni fyrst árið 1990. Hann hefur leikið á flestum hátíðunum frá upphafi og er því öllum hnútum kunnugur. Hátíð- ina í ár segir Pétur einkennast af mikilli fjölbreytni. „Hún lýsir sér í því að við erum með fjölbreyttari dagskrá á hverjum tónleikum og gjarnan tvær hljómsveitir að spila. Ég held að fyrir venjulegt fólk, þótt það sé forvitið og spennt fyrir nýjum hlutum, þá sé það alveg nóg að fá svona 40 mínútur frá hverjum lista- manni.“ Djasshátíð árið um kring Pétur og samstarfsfólk hans hafa undanfarið unnið að framtíðaráætlun fyrir hátíðina sem gilda á til 2011 og þar er gert ráð fyrir því að Jazzhátíð Reykjavíkur verði talsvert umfangs- meiri og nái yfir allt árið, þó að hátíð- in sjálf verði áfram á sínum stað. „Við erum í svolítið asnalegri stærð,“ segir Pétur. „Þegar maður er að vinna svona dæmi sem er dálítið stórt, um það bil tuttugu tónleikar á nokkrum dögum, þá er alltaf mjög þungt að snúa drusluna í gang í byrj- un. Þannig að ég er búinn að vera að vinna í því að fá ríkið og borgina með okkur í það að gera þessa þriggja ára áætlun þar sem djasshátíðarstarfið helst í hendur við annað áþekkt tón- listarstarf í borginni. Þá er ég að tala um haustsyrpu og vorsyrpu af viku- legum tónleikum sem ég hef gefið vinnuheitið Jazzhús Reykjavíkur.“ Meira erlent samstarf Pétur segir að það að breyta hátíð- inni hafi í för með sér hagræði fyrir skipuleggjendur. „Við myndum tengjast inn í alþjóðlegt net djasshá- tíða. Það er mjög erfitt að koma á einhverju erlendu samstarfi þegar maður hefur bara fimm daga í ágúst til umráða. Hins vegar ef við hefðum opnara fyrirkomulag þá gætum við tekið inn flotta erlenda listamenn með okkar frábæra fólki.“ Pétur segir að aukin erlend sam- vinna gæti sömuleiðis skilað íslensk- um listamönnum tækifærum. „Þá verða miklu meiri möguleikar að koma þeim út í þessa hringiðu í nafni lands og þjóðar. Núna erum við að fá til okkar blaðamenn frá Þýskalandi og Bretlandi, auk tónleikahaldara frá Danmörku.“ Björk í djassbúning Meðal þess sem boðið er uppá á laugardaginn eru tónleikar með Stórsveit Reykjavíkur þar sem hún flytur lög Bjarkar Guðmundsdóttur í útsetningum og undir stjórn Travins Sullivans sem rekur hljómsveitina Bjorkhestra í New York og spilar út um öll Bandaríkin. Það er svo skrýtið með þessi frábæru lög hennar Bjark- ar að menn hafa ekki mikið verið að taka þau upp á sína arma, segir Pét- ur og bendir á að þarna sé Sullivan að fylgja áralangri hefð í djassinum, að taka vinsæl dægurlög og setja þau í djassbúning. Pétur er sjálfur trommuleikari og þess vegna bíður hann tónleika trommarans Eds Thigpens með hvað mestri eftirvæntingu af þeim fjölda atriða sem boðið er upp á í ár. „Hann var trommari hjá Oscar Peterson og Ellu Fitzgerald. Hann er stórmerki- legur kall og veit allt um djass. Pabbi hans var trommari líka og saman spanna þeir alla djasstónlistarsög- una, sem er nú ekki nema hundrað ár. Ég held að það verði enginn svik- inn af því að heyra hann spila.“ Jazzhátíðin stækkar  Unnið er að því að Jazzhátíð Reykjavíkur teygist yfir allt árið  Framtíðaráætlun næstu þriggja ára er í smíðum og efla á erlent samstarf Morgunblaðið/Valdís Thor Djassstjórinn „Það er alltaf mjög þungt að snúa drusluna í gang í byrjun,“ segir Pétur Grétarsson. Næstu daga verða 23 tónleikar á Jazzhátíð. www.jazz.is/festival TRÍÓ Agnars Más Magnússonar þjófstartar Jazzhátíð Reykjavíkur með tónleikum í kvöld klukkan 18 í Vonarsal, en hátíðin verður sett tveimur tímum síðar í Iðnó. Píanóleikarinn Agnar Már hefur fengið til liðs við sig tvo hljóðfæraleik- ara sem hann segir þungavigtarmenn í djassheim- inum, þá Bill Stewart á trommur og bassaleik- arann Ben Street. „Þeir eru mjög virkir í þessari alþjóðlegu djasskreðsu og hafa spilað eiginlega með öllum út um allt.“ Agnar kynntist þeim Stewart og Street á náms- árum sínum í New York og þeir spiluðu með hon- um á fyrstu plötu hans. „Nú hefur mér loksins tekist að fá þá með mér til Íslands til þess að spila og ákvað að nýta það tækifæri til að taka upp.“ Á tónleikunum frumflytur tríóið tónlist eftir Agnar Má og ætlunin er að gefa þá út á plötu á næsta ári. Hann segir þetta nútímadjass þar sem ef til vill megi heyra áhrif frá mönnum á borð við Kurt Rosenwinkel og Larry Golding. „En maður reynir nú alltaf að búa til sína eigin músík og vonandi er hún það á endanum.“ Taka upp plötu í kvöld Agnar Már frumflytur nýjustu tónsmíðar sínar Í HNOTSKURN »Djasspíanistinn Agnar Már Magnússonlauk námi í FÍH og hélt síðan til frekara náms í Hollandi og New York. »Hann vinnur nú að sinni þriðju sóló-plötu, en áður hefur hann sent frá sér 01 árið 2001 og Láð sem kom út í fyrra. Morgunblaðið/G.Rúnar Djassarar Agnar Már ásamt New York-spilur- unum Bill Stewart og Ben Street. Hvenær fer hátíðin fram? Fyrstu tónleikarnir og setning hátíð- arinnar fer fram í kvöld og svo verður stanslaus dagskrá fram að hápunkti hennar á laugardaginn, sem kallast Lokapartí Jazzhátíðar. Hvenær hóf Jazzhátíð í Reykjavík göngu sína? Hún var fyrst haldin árið 1989 og þá bar hátíðin nafnið Norrænir útvarps- djassdagar. Ríkisútvarpið átti frum- kvæðið að hátíðinni sem næsta ár fékk nafnið RúRek. Nokkrum árum síðar fékk hún núverandi nafn. Ríkis- útvarpið útvarpar enn frá nokkrum tónleikum á hátíðinni. Hvað er boðið upp á í ár? Aðstandendur áætla að rúmlega hundrað manns komi fram á þeim 23 tónleikum sem haldnir verða í ár. Tæmandi dagskrá má finna á heima- síðu hátíðarinnar. S&S

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.