Morgunblaðið - 26.08.2008, Síða 19
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2008 19
Um næstu helgi hefjast Sandgerðisdagar
sem er bæjarhátíð með fjölbreyttri dagskrá
fyrir alla fjölskylduna. Aðalhátíðarsvæðið er
við hafnarsvæðið, Vitatorg og Vörðuna sem
er ráðhús Sandgerðis. Sandgerðisdagar
verða settir á föstudagskvöldið í Safnaðar-
heimilinu með fjölbreyttri dagskrá. Það er
of langt mál að fara rekja dagskrána hér, en
bendi fólki á að skoða dagskrá á heimasíðu
sandgerdi.is eða 245.is.
Margir íbúar eru langt komnir með að
setja upp tilheyrandi skreytingar, en bæj-
arfélaginu hefur verið skipt upp í fjögur lita-
hverfi gult, rautt, grænt og blátt og er nú
hafin keppni um frumlegustu skreytinguna
sem væntanlega nær hámarki á laugardag-
inn. Nú eru ansi margir íbúar hverfana
farnir að taka kvöldrúnt og sjá hvað aðrir
eru að bralla í skreytingamálum. Á laugar-
dag verða svo heljarmiklar grillveislur í við-
komandi hverfum og skrúðganga að hátíða-
svæðinu. Burtfluttir Sandgerðingar eru
boðnir velkomnir á Sandgerðisdaga til að
skemmta sér og sjá þá miklu breytingu sem
hefur orðið á bænum. Komið hefur verið
upp tjald- og húsbílaaðstöðu á gamla
íþróttavellinum.
Síðastliðinn föstudagur var merkur dagur í
íþróttasögu Íslendinga er landsliðið í hand-
bolta komst í úrslit á ÓL í Peking. En hér í
Sandgerði var dagurinn líka merkilegur er
tekin var í notkun ný sundlaug við íþrótta-
miðstöðina. Laugin er 25 metra löng og 12
metra breið, enn fremur voru tvær vatns-
rennibrautir teknar í notkun, sem nú þegar
njóta mikilla vinsælda ungu kynslóðarinnar.
Nýr og glæsilegur þreksalur með tilheyr-
andi líkamsræktartækjum og góð starfs-
mannaaðstaða – allt á þetta vonandi eftir að
gagnast bæjarbúum til hollrar hreyfingar.
Sú var tíðin að hér í Sandgerði var lög-
reglustöð og lögreglubíll, viðvera lögregl-
unnar veitti aðhald, en svo kom skipun um
að sameina lögregluna við lögregluna í
Keflavík, og enn síðar kom skipun um að
sameina alla löggæslu á Suðurnesjum. Sand-
gerðingar hafa oft kvartað yfir ónógri lög-
gæslu í bæjarfélaginu, en nú er væntanlega
að verða bót á því, opnuð hefur verið lög-
reglustöð í húsnæði sem björgunarsveitin
Sigurvon átti við Strandgötu. Það er Sand-
gerðisbær sem kostar breytingar og lagfær-
ingar á húsnæðinu, sem er hið huggulegasta.
Ekki hefur verið ákveðið hvernig lögreglan
mun nota hina nýju aðstöðu.
Miklar framkvæmdir hafa verið við Shell-
skálann sem er beint á móti lögreglustöðinni
við Strandgötu. Segja má að nánast hafi ver-
ið byggt nýtt hús á gömlum grunni, allar
innréttingar endurnýjaðar og boðið upp á
fjölbreyttara vöruúrval – má þar nefna
bakkelsi og alls konar góðgæti af grillinu.
Það eru hjónin Eggert Andrésson og Guð-
rún Arthúrsdóttir sem reka Shellskálann.
Á Sandgerðisdögum verður afhjúpað lista-
verk á hafnarsvæðinu, til minningar um 100
ára sögu vélbátaútgerðar frá Sandgerði. Það
var árið 1907 að m/b Gammur kom siglandi
inn á Sandgerðisvík, með því hófst útgerð
vélbáta frá Sandgerði. Eitthvað gekk nú
brösulega í upphafi vélvæðingarinar, og úr-
tölumenn sögðu ekki mikla framtíð í vélum,
en oft þurfti Gammur að leggjast við kantin
á Fúlu meðan unnið var við viðgerðir. Lista-
verkið Hvirfill, sem er eftir Jón Þórisson
leikmyndahönnuð, hefur nú verið sett upp á
þeim stað sem hét Fúla. Vélsmiðja Ásmund-
ar Sigurðssonar smíðaði listaverkið sem er
úr ryðfríu stáli og hreyfanlegt eftir vindi.
SANDGERÐI
Reynir Sveinsson fréttaritari
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Varðan Hluti dagskrár Sandgerðisdaga mun fara fram við ráðhús bæjarins.
Nú er komið að árlegri hópferðKvæðamannafélagsins Iðunnar á
Landsmót hagyrðinga. Allir
vísnaáhugamenn eru velkomnir. Ferðin að
Smyrlabjörgum hefst kl. 8 að morgni
laugardagsins 30. ágúst frá
Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík. Rútan
mun standa efst á hlaðinu. Teknir verða
farþegar á Selfossi (Fossnesti) um kl. 9-
9.30 og á Hlíðarenda, Hvolsvelli, um kl.
10.30.
Leiðin verður lykkjum sett eftir föngum
til að sjá fræga og skemmtilega staði utan
hringvegar. Rennt verður í hlað á Smyrla-
björgum um kl. 18. Herbergin eru 2ja
manna, en mögulegt að fá aukarúm fyrir
barn/ungling. Salur verður opnaður kl. 19
og dagskrá hefst kl. 20 og gleðin mun
standa fram í rauðan dauða.
Reiknað er með því að leggja af stað að
austan kl. 10.30 á sunnudagsmorgni og
haga morgunverkum eftir veðri. Stoppað
verður á Þórbergssetri og ketsúpa fram
borin. Að þessu loknu verður haldið
vestur um og lykkjur lagðar á leið eftir
föngum. Gott er að hafa með sér bita til
að nasla í, skriðljós fyrir skoðun á
Kverkarhelli, gönguskó og hlífðarföt eftir
veðri, en ekki er reiknað með löngum
göngum. Enn er laust pláss, en mælt er
með að fólk bóki farið í síðasta lagi á
þriðjudag. Sigurður Sigurðarson tekur á
móti skráningum og er tölvupóstur hjá
honum sigsig@hi.is.
Svo ekki sé vísulaust, er rifjuð upp
staka sem Nanna Bjarnadóttir orti á
árshátíð Iðunnar árið 1965:
Iðunn bestar á að fá
óskir kvæðamanna.
Því að ljúfast lék hún á
langspil minninganna.
VÍSNAHORNIÐ
pebl@mbl.is
Iðunnarferð
á landsmót
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
43
43
9
08
.2
00
8
www.toyota.is
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
ÚRVALSBÍLL GÆÐABÍLL
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Land Cruiser 100
4700 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 05.05 Ekinn: 78.000 km
Verð: 5.990.000 kr. Skr.nr. ZR-843
Toyota Corolla W/G
1600 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 06.04 Ekinn: 105.000 km
Verð: 1.360.000 kr. Skr.nr. ML-184
Toyota Auris Sol
1600 Bensín 5 gíra MM
Á götuna: 04.07 Ekinn: 19.000 km
Verð: 2.710.000 kr. Skr.nr. KH-564
BNB-sölugreining
Bílarnir ganga í gegnum strangt gæðamat sem tekur mið af aldri, akstri
og viðhaldssögu bílsins. Þeir sem standast kröfurnar lenda annað hvort
í flokknum Úrvalsbílar eða Gæðabílar. Ef bíllinn stenst ekki kröfur okkar
bjóðum við þér hann ekki.
Toyota Corolla Sol
1600 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 07.06 Ekinn: 57.000 km
Verð: 2.100.000 kr. Skr.nr. TZ-466
Toyta RAV4
2000 Bensín sjálfsk.
Á götuna: 05.05 Ekinn: 64.000 km
Verð: 2.690.000 kr. Skr.nr. UG-561
SUMIR NOTAÐIR BÍLAR
ERU EINFALDLEGA BETRI EN AÐRIR
Toyota Yaris T-Sport
1800 Bensín 5 gíra
Á götuna: 07.07 Ekinn: 18.000 km
Verð: 2.690.000 kr. Skr.nr. YZ-522