Morgunblaðið - 26.08.2008, Blaðsíða 20
daglegt líf
20 ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Guðrúnu Huldu Pálsdóttur
gudrunhulda@mbl.is
M
yndsmiðurinn ætti að
spyrja sig fyrst
hvernig mynd hann
kýs að eiga. Sumt
fólk á til að taka
vanhugsaðar myndir eða herma eftir
næsta manni af því það veit ekki
hvað það vill,“ segir Arnaldur Hall-
dórsson ljósmyndari og bendir á ein-
falda leið til að fanga tilfinningu í
myndum. „Það er gott að vera í sömu
hæð og myndefnið. Að leggjast niður
og taka upp á hund er mun magn-
aðra sjónarhorn en að skjóta niður á
hann. Einnig beygja sig í hæð barna
og láta myndina sýna það sem þau
sjá,“ segir Arnaldur en bendir á að
allar reglur er varða myndbyggingu
séu til að brjóta þær. „Oft enda
kjánalegu andartökin með að vera
bestu myndirnar. Eitt sinn var ég að
taka myndir í brúðkaupi. Mynd af
brúðinni að reima skó barns stóð upp
úr öllum öðrum uppstilltum ástúð-
legum myndum.“
Mynd af minningu
Brynjólfur Jónsson ljósmyndari,
betur þekktur sem Binni, á einnig
nokkur ráð uppi í erminni. „Ef mað-
ur heillast af einhverjum stað og vill
eiga flottar myndir af honum er ráð
að kaupa ljósmyndabók um staðinn.
Það tryggir gæðamyndir sem ferða-
maðurinn gæti aldrei náð.“ Hann
bendir á að til að fanga gott augna-
blik sé lag að reyna að ná á mynd af
aðstæðunum sem ferðalangurinn er
í. „Þetta er spurning um að búa til
minningu með mynd eða fá mynd af
minningu. Þegar ég gekk um Grand
Canyon á dögunum tók ég fullt af
myndum af fjölskyldunni brosandi í
gljúfrinu. En sú mynd sem stendur
hvað mest upp úr er þegar ég tók
niður á þau vera að klifra niður þver-
hnípi. Maður finnur fyrir hæðinni og
spennunni í gegnum hana, þótt hún
sýni ekki falleg bros fjölskyldunnar.“
Hann mælir með að fólk noti frek-
ar litlar góðar vélar á ferðalögum og
bendir þeim sem eru á leið að kaupa
sér minni gerð af myndavélum á að
athuga að þær hafi auga. „Sumar
vélar hafa bara skjá. Skjárinn eyðir
hins vegar tíu sinnum meira raf-
magni en augað og það gæti borgað
sig að geta slökkt á skjánum í lengri
ferðum.“
Á meðal fólksins
Egill Bjarnason hefur ferðast mik-
ið um Mið-Austurlönd og er þá ávallt
með myndavélina í farteskinu.
„Lykillinn að því að ná ósvikinni
mynd frá löndunum felst í því að fara
út fyrir túristastaðina og inn á meðal
fólksins,“ segir hann og nefnir sem
dæmi hina dæmigerðu mynd sem
flestir sem fara að Taj Mahal í Ind-
landi eiga af sér. „Myndina væri
hægt að útfæra á miklu fleiri vegu.“
Hann segist reyna að ná myndum af
fólkinu í landinu sem hann er í en
hann nálgist það á ýmsa vegu. „Það
brýtur yfirleitt ísinn að segja: ,,Má
ég taka mynd?“ á tungumáli heima-
manna. Sumir ljósmyndarar segja að
myndataka sem móðgi sé ekki rétt-
lætanleg. Ég segi að það sé stundum
í lagi ef fólk tekur ekki eftir því að
verið sé að mynda. Til dæmis með
því að láta vélina hanga um hálsinn,
lafa niður á maga og reyna miða á
viðfangsefnið,“ segir Egill og bætir
við að þetta ráð krefjist æfingar.
Hann segist ekki taka annað í mál
en að hafa vandaða vél með sér þótt
hún taki pláss. „Mig hefur þó langað
að hafa bæði stóra og litla meðferðis.
Stundum vill maður síður taka upp
þá stóru eða vera með hana á sér og
þá er gott að geta gripið til þeirra
litlu,“ segir Egill og bendir á snið-
ugan bakpoka sem hann fékk í versl-
uninni Beco. „Hann skiptist í tvennt,
helmingurinn er hugsaður fyrir
myndavélina, hinn helmingurinn fyr-
ir annað dót.“
Morgunblaðið/G.Rúnar
Rangt Fólkið er látið standa fyrir miðju á óspennandi stað. Í rammanum er of mikið af óþarfa svæði sem þjónar
engum tilgangi fyrir myndina. Ekkert flass er notað og myndin er því of dökk og flöt.
Hugað að
ferðamynda-
tökum
Fyrir marga eru myndatökur óaðskiljanlegur
hluti ferðalaga. Góð mynd, sem endurspeglar
bæði útlit og andrúmsloft aðstæðna, er einstakt
verðmæti að ferð lokinni. Þrír ljósmyndarar gefa
nokkur góð ráð um ferðamyndatökur.
Nokkrar gagnlegar vefsíður
Heimasíða Arnaldar: www.pix.is
Bloggsíða Egils: www.austurlanda-
egill.blog.is
Góð ráð og fallegar myndir:
www.tribaleye.co.uk
Búðu til þitt eigið myndaalbúm:
www.blurb.com
Stærsti áhugaljósmyndavefurinn:
www.flickr.com
Morgunblaðið/G.Rúnar
Rétt Myndin er vel römmuð, aðeins aðalatriðin eru á myndinni og fólkið þekur þriðjung af myndinni. Ljósmynd-
arinn hefur einnig fært sig nær myndefninu og notað flass í sólinni til að skerpa myndefnið.
Kynnið ykkur menningarheiminn sem þið
eruð í og berið virðingu fyrir honum.
Lærið að segja nokkrar setningar á tungu-
máli heimamanna s.s. ,,Má ég taka mynd?“
Í þriðja heiminum hefur fólk mismunandi
skoðanir á myndatökum og það ber að virða. Á
afskekktari landsvæðum heimsins er enn til fólk
sem heldur að myndatakan steli hluta af sál
þeirra. Víða er viðkvæmt að mynda konur og í
mörgum múslimaríkjum er það stranglega bann-
að. Einkum ef þær eru í fylgd karlmanns. Þær
eru þó viljugri til ef ljósmyndarinn er kvenkyns.
Nálgist fólkið
Látið aðalmyndefnið þekja þriðjung af rammanum.
Aðalatriðið þarf ekki alltaf að vera í miðjunni.
Ekki á að vera neinn óþarfi á myndinni. Landsvæði,
ljósastaurar eða bílastæði sem þjóna engum tilgangi á
myndinni eiga ekki að vera þar.
Færið ykkur nær myndefninu og fyllið vel út í
rammann.
Vera í nálægð til að fá tilfinningu í myndina. Notið
óvenjuleg sjónarhorn til að gera myndina áhugaverðari.
Verið dugleg að mynda fyrstu dagana á meðan stað-
urinn er enn framandi ásýndar. Með tímanum venst ferða-
maðurinn staðnum og á það til að sjá ekki það óvenjulega.
Myndið umhverfi á morgnana eða við sólsetur árla
dags. Skuggar sólarinnar skapar áhugaverða dýpt í um-
hverfið.
Ekki gleyma að taka mynd af furðulegu hlutunum.
Myndir af furðulegum mat og skrítnum hlutum eru
kannski ekki spennandi myndefni en segja oft mikla
sögu.
Forðist klisjur á algengum ferðamannastöðum og ekki
reyna að taka hina fullkomnu póstkortsmynd. Reynið
frekar að fá óvenjulegt sjónarhorn á þessa tilteknu staði.
Hugsið út fyrir rammann. Til að búa til forvitnilegan
myndramma er mál að nota líkamann. Ekki vera feimin
að beygja, teygja og rúlla ykkur eftir góðu sjónarhorni.
Notið flass í mikilli sól. Í mikilli sól eiga skuggarnir til
að vera mjög sterkir en flassið fyllir skuggana ljósi.
Prófið ýmis sjónarhorn á sama myndefnið. Ef nægur
tími gefst, takið þá eins margar myndir og þið þurfið,
þangað til þið náið mynd sem þið eruð sátt við.
Nokkur ljósmyndaráð