Morgunblaðið - 09.09.2008, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 9. S E P T E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
246. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
MENNING
TÆKIFÆRI TIL AÐ
KYNNAST SAMTÍMALIST
DAGLEGTLÍF
Módelin fljúga
bæði langt og hátt
Leikhúsin
í landinu >> 37
Morgunblaðið/G.Rúnar
Kauphöll Flest úrvalsvísitölufélög
hækkuðu í viðskiptum gærdagsins.
HLUTABRÉFAMARKAÐIR hér
heima og erlendis hækkuðu umtals-
vert í gær og er bjartsýni fjárfesta
rakin að stórum hluta til ákvörðunar
bandarískra stjórnvalda að taka yfir
lánasjóðina Fannie Mae og Freddie
Mac. Reyndar lækkuðu hlutabréf
sjóðanna tveggja mikið, en yfirtaka
ríkisins mun þýða að eign hluthafa í
sjóðunum mun þynnast til muna.
16,5% lækkun á Eimskipi
Hér heima hækkaði úrvalsvísitala
Kauphallarinnar um 1,35% og hækk-
uðu öll félög vísitölunnar utan eitt í
verði. Gengi bréfa Eimskipafélags-
ins lækkaði um 16,5%, en samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hafa
fjárfestar af því áhyggjur að sala fé-
lagsins á XL Leisure Group muni
ganga til baka. Hefur Eimskipi ekki
tekist að fjármagna 280 milljón doll-
ara lán, sem tekið var vegna kaup-
anna. Takist það ekki mun líklega
koma til hlutafjáraukningar, sem
hafa mun áhrif á gengi félagsins.
Samnorræna OMX vísitalan
hækkaði um 2,77% í gær, breska
FTSE um 3,92% og bandaríska Dow
Jones um 2,59%. | 13
Þjóðnýting á íbúðalánasjóðum jók bjartsýni fjárfesta
Markaðirnir lifnuðu við
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
PALESTÍNSKA flóttafólkið var
brosmilt við komuna til Íslands seint
í gærkvöldi. Þreytu mátti sjá á því
eftir langt ferðalag en greinilega
ánægju. Fulltrúar úr stuðningsfjöl-
skyldum þess á Akranesi voru þang-
að komnir til að taka á móti því.
Ferðinni var heitið beint á Akranes
þar sem fjölskyldurnar biðu fólksins
á nýjum heimilum þess, sem hafa
verið undirbúin af kappi síðustu vik-
urnar. Flóttafólkið lenti í Keflavík á
tólfta tímanum eftir flug frá Al-Wa-
leed flóttamannabúðunum í Írak,
með viðkomu í London. Anna Lára
Steindal hjá Rauða krossinum fylgdi
því heim og sagði við heimkomuna að
þetta væri frábær hópur af fólki, þau
væru öll mjög hugrökk.
Spurðu ótal spurninga
„Enginn gerir það að gamni sínu
að rífa sig upp frá heimkynnum sín-
um og fara á jafnframandi stað,“ seg-
ir Anna Lára. Fólkið hafi verið mjög
áhugasamt á leiðinni og spurt ótelj-
andi spurninga um hin nýju heim-
kynni sín. Anna Lára segir börnin í
hópnum hafa verið ótrúlega róleg
miðað við að ferðin hafi tekið 26
klukkustundir.
Að sögn Sólveigar Ólafsdóttur,
sviðsstjóra hjá Rauða krossi Íslands,
er dagskrá næstu daga nokkuð stíf.
Fólkið fær þó tíma til að jafna sig
enda ljóst að viðbrigðin eru mikil.
„Þau þurfa að fylla út gífurlegt
pappírsflóð til að ganga frá dvalar-
leyfi og fleiri praktískum hlutum
sem ekki var hægt að gera fyrirfram.
Svo er það læknisskoðun og ráðgjöf
frá félagsþjónustu, sem fer í gang
þessa fyrstu daga auk þess sem
stuðningsfjölskyldurnar hjálpa þeim
að átta sig á sínu nánasta umhverfi,“
segir Sólveig.
Stuðningsverkefnið stendur
næstu tólf mánuði.
Brostu við heimkomuna
Palestínska flóttafólkið kom til Íslands í gærkvöldi úr flóttamannabúðum í Írak
Þétt dagskrá tekur við næstu daga þegar fólkið hefur jafnað sig eftir ferðalagið
Morgunblaðið/Golli
Þreytt en ánægð Ein stelpan í hópnum frá Írak var örþreytt eftir langt ferðalag og svaf á öxl móður sinnar meðan beðið var eftir farangrinum í Leifsstöð.
Langt og strangt ferðalag 29 flóttamanna frá Írak til Akraness
Í HNOTSKURN
»Hópurinn samanstendur afátta einstæðum mæðrum
og 21 barni þeirra, eða alls 29.
» Íslendingar hafa alls tekiðá móti 481 flóttamanni frá
árinu 1956, að meðtöldum
þeim sem komu núna.
»Alls hafa 10 sveitarfélögtekið til sín flóttafólk. Síð-
ast tók Reykjavík á móti fólki
frá Kólumbíu árin 2005 og
2007.
KONA syrgir þrjá nána ættingja
sína sem biðu bana í miklum flóðum
á Haítí eftir að fellibylurinn Ike reið
þar yfir um helgina.
Fárviðrið jók á neyðina á Haítí
eftir hrinu fárviðra að undanförnu
og er óttast að minnst 600 hafi týnt
lífi eftir að fellibyljirnir Hanna og
Ike herjuðu á landið.
Seint í gærkvöldi bjuggu íbúar
Havana, höfuðborgar Kúbu, sig und-
ir það versta, en Ike hafði þá þegar
valdið gífurlegri eyðileggingu í
landinu. Hátt í tvær milljónir Kúb-
verja flúðu heimili sín og má ljóst
vera að efnahagstjón þar er mikið.
Á Flórída önduðu menn léttar
þegar útlit var fyrir að Ike myndi
ekki fara yfir syðsta hluta ríkisins.
Nokkuð hefur dregið úr vindstyrk
Ike sem stefnir á Bandaríkin. » 15
Harmur á Haítí
HÆKKANDI
matarverð kem-
ur við pyngju
flestra heimila í
landinu. Með
vandlegri skipu-
lagningu og
breyttum inn-
kaupastíl má þó
e.t.v. draga veru-
lega úr þeim útgjöldum eins og Vig-
dís Stefánsdóttir erfðaráðgjafi náði
að gera er hún lækkaði matarreikn-
ing fjölskyldunnar um 40%.
„Það var ótrúlegt. Bara við að
skipuleggja, við að vita hvað ætti að
kaupa. Mig minnir að matarreikn-
ingurinn hafi lækkað um 40% við
þessar aðgerðir,“ segir Vigdís. » 18
Náði að lækka matar-
reikninginn um 40%
MIKILL áhugi er fyrir leik Ís-
lendinga og Skota í undankeppni
heimsmeistaramótsins í knatt-
spyrnu en þjóðirnar mætast á
Laugardalsvellinum annað kvöld.
Rífandi gangur var í miðasölunni í
gær og stefnir allt í að þjóð-
arleikvangurinn verði troðfullur
þegar liðin ganga út á völlinn ann-
að kvöld en völlurinn tekur tæplega
10.000 áhorfendur í sæti. » Íþróttir
Mikill áhugi á landsleik