Morgunblaðið - 09.09.2008, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í Morgunblaðinu
hinn 1. september síð-
astliðinn skrifaði Hall-
dór Jónsson um um-
hverfisfasisma
fámenns hóps „upp-
hlaupsmanna“ á Kárs-
nesi. Honum er ekki
mikið annt um íbúa-
lýðræði því á skrifum
hans ber að skilja að við íbúarnir höf-
um ekkert um málefni bæjarins að
segja, nema á 4 ára fresti þegar
kosningar eru. Ef við erum ekki sátt
þá eigum við bara að þegja og hlýða
kjörnum fulltrúum og kjósa þá bara
frá næst.Við sem búum á Kársnesinu
erum ósátt við vinnubrögð bæjaryf-
irvalda þegar kemur að skipulagi
Kársness og höfum sýnt það í verki.
Halldór grætur það að við, sem hann
kallar öskurkór, höfum eyðilagt starf
þeirra sem börðust fyrir Kópavogs-
höfn í sjötíu sumur. Tímarnir breyt-
ast og mennirnir með, Halldór. Þykir
það boðlegt, árið 2008, að eina að-
koma að höfn, iðnaði og atvinnu-
húsnæði sé í gegnum gróið íbúða-
hverfi?
Í júlímánuði kynntu starfsmenn
Kópavogsbæjar nýtt skipulag fyrir
Kársnesið og mættu margir á kynn-
inguna þrátt fyrir frekar óheppilega
tímasetningu. Það sýnir bara áhuga
og baráttuvilja okkar
sem búum á Kársnes-
inu. Með ýmsum töfra-
brögðum reyna bæj-
aryfirvöld að segja
okkur að nýja skipulag-
ið sé miklu betra en það
sem var kynnt upp-
haflega. Vissulega á um-
ferð eftir að aukast á
Kársnesbrautinni en
með því að sneiða af lóð-
um þeirra sem búa á
götunni og setja gler-
vegg á milli vega þá ætti
hávaðinn og ónæðið af aukinni um-
ferð að minnka. Þetta er sagt svo ein-
falt og samkvæmt Halldóri þá er það
úbreiddur misskilningur hjá fólki að
það eigi rétt á einhverju við það eitt
að flytja að götu. Bæjarfélag ráðstafi
landi í einstökum hverfum.
Æ Halldór, hvað erum við íbúar
bæjarfélagsins? Einungis krónur í
bæjarkassann? Þú krefst þess sem
borgari í okkar ágæta bæ að fá að
greiða um það atkvæði hvort eitt og
annað skuli byggt upp hér. Þú greidd-
ir væntanlega um það atkvæði þegar
þú kaust félaga þína í Sjálfstæð-
isflokknum í síðustu bæjarstjórn-
arkosningum og með því fyrirgerðir
þú þessum rétti. Þú vilt greiða at-
kvæði um það hvort götur Kópavogs-
búa séu fyrir alla eða einhverja fáa.
Hvað með okkur sem búum á Kárs-
nesinu, megum við ekki segja okkar
álit? Götur Kópavogs hafa löngum
verið aðhlátursefni þeirra sem átt
hafa leið um og marga hryllir við þá
tilhugsun eina að eiga erindi inn í
bæinn. Þolir gatnakerfið á Kársnes-
inu meiri umferð og þá þyngri?
Ég er alinn upp í vesturbæ Kópa-
vogs og margt hefur breyst til hins
betra og þegar við hjónin fluttum til
Íslands eftir að hafa verið búsett er-
lendis þá kom aðeins einn staður til
greina fyrir okkur og börnin: Vest-
urbær Kópavogs. Við viljum það
besta fyrir börnin okkar en Halldóri
er væntanlega skítsama um það þar
sem við lifum á atvinnustarfsemi í
landinu. Græn svæði, blóm og börn
passa ekki inn í það kerfi því ekki
fáum við laun fyrir að njóta þess
besta sem lífið hefur upp á að bjóða.
Lífsgæði bæjarbúa eru ekki hátt
skrifuð hjá Halldóri.
Kæru Kópavogsbúar, ég hef feng-
ið nóg af yfirgangi bæjaryfirvalda í
skipulagsmálum. Tökum höndum
saman og látum í okkur heyra því við
viljum svo sannarlega að góður bær
verði enn betri. Ef við þurfum að
vera umhverfisfasistar til að ná þeim
markmiðum; já, þá er ég umhverf-
isfasisti!
Er ég umhverfisfasisti?
Héðinn Svein-
björnsson skrifar
um umhverfismál í
Kópavogi
» Að saka þá sem búa
á Kársnesi um um-
hverfisfasisma fyrir það
eitt að mótmæla er al-
veg út í hött
Héðinn Sveinbjörnsson
Höfundur er íbúi á Kársnesi.
FJALLAÐ hefur ver-
ið að undanförnu um
útigangsmenn og dag-
legt líf þeirra.
Áhyggjurnar um það
hvar þeir halla höfði
sínu um nótt hverja,
hvort það er hjá hita-
veitulögnum, gámum
eða ruslageymslum svo
eitthvað sé nefnt.
Þeir eru alls ekki velkomnir hvar
sem er og hvenær sem er.
Gistiskýlið í Þingholtstræti hefur
verið griðastaður margra útigangs-
manna á nóttu til, til þess að halla höfði
sínu, en gistiskýlið tekur bara við
ákveðnum fjölda fólks, þannig að nokk-
uð margir þurfa að finna sér einhvern
annan samastað.
Þegar viðtöl eru við útigangsmenn í
fjölmiðlum þá vill útigangsfólkið oftast
einblína á einhvern annan út af vanda-
máli sínu, t.d. Félagsmálastofnun, að
þeir reddi þeim ekki húsnæði né at-
vinnu.
Ég spyr bara: „Er Félagsmála-
stofnun vandamálið, eða eru það þeir?“
Af einhverjum ástæðum hafa þessir
menn misst húsnæði, atvinnu, fjöl-
skyldu og heilsuna.
Ef þeir fengju húsnæði frá Félags-
málastofnun, myndi það breyta ein-
hverju fyrir þá?
Af hverju ættu þeir ekki bara að
drekka frá sér þá íbúð eins og kannski
fyrri íbúðina sem þeir voru í áður?
Vandamálið er ekki húsnæðisvanda-
mál heldur er vandamálið það, að þeir
geta ekki hætt að drekka þótt þá langi
innilega til þess.
Hjá alkóhólistum/fíklum þarf einhver
viðhorfsbreyting að eiga sér stað svo
bata verði náð.
Sú viðhorfsbreyting hefur hvorki
með húsnæði eða atvinnu að gera. Alkó-
hólistinn/fíkillinn finnur sér allar und-
ankomuleiðir til að sjá að hann sé ekki
vandamálið, heldur eitthvað annað.
Á Íslandi erum við með eitt af þeim
bestu meðferðarkerfum sem völ er á.
Margir af þessum útigangsmönnum
eru búnir að fara í gegnum fjöldann all-
an af meðferðum, en þeir hafa ekki farið
eftir því sem meðferðin býður upp á.
Vilja kannski fremur fara eftir sínum
vilja og geðþótta heldur en að fara eftir
einhverjum leiðbein-
ingum sem aðrir setja.
Einnig er það að þeir láta
ekki algjörlega af sínu
gamla viðhorfi. Það getur
enginn annar breytt við-
horfum hvers og eins
nema manneskjan sjálf.
Þetta er ekki spurning
um vilja, þetta er spurn-
ing um framkvæmd, því
alkar eiga það til að halda
á viljanum það lengi að
þeir eru allt í einu komnir
í drykkjuna á nýjan leik.
Ef alkóhólistar vilja viðhorfsbreytingu
þá verða þeir að taka allt sitt viðhorf og
breyta því. Það er enginn afsláttur af
því að verða edrú og frjáls.
Í meðferðum getur maður sótt um að
fara á áfangaheimili sem alveg nauð-
synlegur þáttur hjá þeim sem eru hús-
næðislausir, enda gott fyrir ein-
staklinga sem eru að reyna að ná bata
af þessum hrikalega sjúkdómi. Á
áfangaheimilum eru ýmsar reglur sem
leiða mann í átt að bata og þar finnur
maður stuðning meðal annarra vist-
manna.
Eftir að vissum bata er náð hefur
einstaklingurinn getu og vilja til að
vera virkur þátttakandi í þjóðfélaginu.
Þá er kannski möguleiki að fara íhuga
að íbúðarmálum.
Enginn verður útigangsmaður eða
alkóhólisti á einum degi, alveg eins þá
kemur batinn ekki á einum degi.
Útigangsmenn
Gunnar Diego
fjallar um vanda
útigangsmanna
»Hjá alkóhólistum/
fíklum þarf einhver
viðhorfsbreyting að eiga
sér stað svo bata verði
náð.
Sú viðhorfsbreyting hef-
ur hvorki með húsnæði
né atvinnu að gera.
Gunnar Diego
Höfundur er félagsmaður í SÁÁ.
ÉG veit ekki til þess að Ísland eigi
sér neina fjandmenn. Hvorki fyrr né
síðar. Eina þjóðin sem gæti fallið
undir þá skilgreiningu eru Norð-
menn. En það er þó hæpið. Sú skil-
greining ætti frekar að falla undir
norsku konungsættina (hina fornu).
Á stríðsárum heimsstyrjaldarinnar
síðari litu Íslendingar ekki almennt
á Þjóðverja sem fjandmenn þótt
fæstir okkar væru hallir undir nas-
ismann. Síðan þá höfum við talið
okkur vera í hópi hinna vestrænu
samherja um varðveislu lýðræðis og
frelsis. Á dögum kalda stríðsins lit-
um við heldur ekki almennt á Rússa
sem fjandmenn. Þótt okkur standi í
dag ógn af róttækum islamistum lít-
um við ekki á múslima sem fjand-
menn. Vegna þessa erum við Íslend-
ingar vel til þess fallnir að vera
sáttasemjarar milli deilandi aðila.
Við erum að sjálfsögðu ekki ný-
lenduþjóð en margar fyrrverandi
nýlenduþjóðir vantreysta þeim sem
þær áður þurftu að lúta. Þetta er at-
riði sem við verðum að leggja
áherslu á í viðleitni okkar til þess að
hljóta tilnefningu í öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna. Ég veit ekki hvort
lögð hefur verið nægjanleg áhersla á
þetta atriði í herferð okkar til þess
að hljóta útnefningu. Ég er ekki
sammála þeim sem segja að áhugi
okkar á að hljóta tilnefningu í örygg-
isráð SÞ sé einhvers konar „snobb“.
Við förum í þetta framboð sem
fulltrúar Norðurlandanna allra. Ég
held að ef vel er á málum haldið get-
um við Íslendingar orðið sáttasemj-
arar fyrir alla deiluaðila.
HERMANN ÞÓRÐARSON,
fyrrverandi flugumferðarstjóri.
Hverjir eru
fjandmenn Íslands?
Frá Hermanni Þórðarsyni
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
GUNNAR Finnsson
rekstrarhagfræðingur
skrifar grein í Morg-
unblaðið þriðjudaginn
2. september, undir
fyrirsögninni Reykja-
víkurflugvöllur –
Ósvaraðar spurningar.
Spurningunum hef-
ur raunar öllum verið
svarað en það er rétt
hjá Gunnari að svörin
hafa ekki komið fyrir
almenningssjónir.
Í hnotskurn eru
spurningarnar Gunn-
ars þessar:
1. Hvað verður um
allar þær tekjur sem
koma frá Reykjavík-
urflugvelli, bæði bein-
ar tekjur og margfeldisáhrif þeirra
ef flugvöllurinn verður fluttur úr
Vatnsmýrinni?
Svar: Tekjur af innanlandsfluginu
falla ekki niður þó að það sé flutt úr
stað. Það er ekki verið að leggja inn-
anlandsflugið niður, heldur flytja
það af verðmætasta byggingarlandi
höfuðborgarinnar. Jafnvel þótt flug-
ið flyttist til annars sveitafélags,
yrðu tekjur borgarinnar margfalt
hærri af blandaðri miðborgarbyggð í
Vatnsmýrinni.
2. Í flugvallarskýrslunni sem kom
út í apríl 2007 kemur fram að sala
lóða í Vatnsmýrinni muni standa
undir kostnaði við nýjan flugvöll t.d.
á Hólmsheiði. Nú hefur landi verið
ráðstafað undir Háskólann í Reykja-
vík og samkvæmt vinningstillögunni
í skipulagssamkeppni Vatnsmýr-
arinnar fer mikið land undir tjörn
o.fl. Hefur verið reiknað út hvort það
land sem eftir er stendur undir
kostnaði við nýjan flugvöll?
Svar: Samkvæmt flugvall-
arskýrslunni er landið undir flug-
vellinum metið á 78 milljarða króna.
Aðeins litlum hluta þess hefur verið
úthlutað.
Talið er að kostnaður við nýjan
innanlandsflugvöll nemi um 15 millj-
örðum króna. Skýringin á hinni gríð-
arstóru tjörn og stækkuðum Hljóm-
skálagarði í vinningstillögunni, kann
að vera sú, að gert var ráð fyrir allt
of litlu byggingarmagni í útboðs-
gögnum skipulagssamkeppninnar,
en eðlilegt byggingarmagn í mið-
borg er tvöfalt meira en gert er ráð
fyrir í forsendum skipulags-
samkeppninnar að mati Samtaka um
betri byggð. Getur verið að höfundar
vinningstillögunnar hafi viljað halda
sig við eðlilegan miðborgarþéttleika,
og sett því allt leyfilegt bygg-
ingamagn á um helming svæðisins,
og þess vegna orðið að fylla upp í
restina með tjörn og garði?
3. Þarf ekki nýtt aðalskipulag að
taka gildi áður en tekin er ákvörðun
um flutning flugvallarins? Beðið er
veðurathugana sem nú fara fram á
Hólmsheiði og er á þriðja ár eftir af
því ferli. Nærri 40% landsins undir
flugvellinum eru í eigu ríkisins, og
nálægt tveir þriðju hlutar lands-
manna búa utan Reykjavíkur. Er
ekki eðlilegt að þeirra
vilji komi fram? Alþingi
og samgönguráðherra
láti í ljós skoðun sína á
málinu.
Svar: Skipulagsvald
yfir landi er alfarið í
höndum sveitarfélaga.
Skipulagsvaldið í
Vatnsmýrinni er í
höndum borg-
arstjórnar Reykjavík-
ur, burtséð frá eign-
arhaldi á landinu.
Þegar ákvörðun verður
tekin um brottflutning
flugvallar úr Vatns-
mýrinni, verður
Reykjavíkurborg að
kaupa hlut ríkisins í
landinu á matsverði, og
ríkið getur notað and-
virðið (30 milljarða) til
að byggja nýjan flug-
völl, og t.d. bæta sam-
göngur á landsbyggðinni. Dr. Har-
aldur Ólafsson veðurfræðingur
fullyrðir að hægt sé að ljúka veð-
urathugunum á Hólmsheiði á nokkr-
um mánuðum.
Með því að setja þær upplýsingar
sem þegar eru fyrir hendi í tölvu-
hermi, fást fullnægjandi nið-
urstöður. Athuganir á skýjahæð og
skyggni hófust á Hólmsheiði í febr-
úar á þessu ári, og munu skila full-
nægjandi niðurstöðum næsta vor.
Þegar er ljóst að veðurfar á
Hólmsheiði fullnægir lágmarks-
kröfum, sem er 95% nýting. Yf-
irstandandi veðurathuganir munu
aðeins leiða í ljós hvort nýtingin sé
95% eða meiri. Tæplega 65% þjóð-
arinnar búa á höfuðborgarsvæðinu,
og um 80% hennar í innan við einnar
klukkustundar aksturs frá höf-
uðborginni.
Ísland er nánast orðið borgríki, en
höfuðborg þess á sér enga nútíma-
lega miðborg. Kvosin og Laugavegs-
svæðið stendur ekki undir nafni sem
miðborg útrásarríkisins, en mundi
öðlast nýtt hlutverk sem „gamli
bærinn“ ef við berum gæfu til að
reisa miðborg framtíðarinnar á eina
staðnum sem kemur til greina, sögu-
lega og landfræðilega, við hlið hinn-
ar gömlu í Vatnsmýrinni.
Slík öflug þétt miðborg sem nærir
allt borgarsamfélagið, m.a. hvað
varðar almenningssamgöngur, er
einmitt það sem einkennir höf-
uðborgir og er einmitt það sem vant-
ar í Reykjavík. Það er raunar vand-
séð hvernig Reykjavík getur gegnt
hlutverki sínu sem höfuðborg alls
landsins án slíkrar miðborgar.
Þeir einu sem hafa raunverulega
hagsmuni af flugvelli í Vatnsmýrinni
eru þeir sem eiga fyrst og fremst er-
indi í miðbæinn, þ.e. stjórnsýslufólk.
Það skal fullyrt að staðsetning flug-
vallar annars staðar t.d. á Hólms-
heiði, er ekki verri kostur fyrir al-
menning á landsbyggðinni, sem á
erindi um allt höfuðborgarsvæðið og
jafnvel allt suðvesturhornið. Eigum
við að fórna mestu skipulagshags-
munum höfuðborgarinnar fyrir mín-
útna hagsmuni stjórnsýslufólks?
Reykjavíkurflugvöllur
- Spurningum svarað
Einar Eiríksson
skrifar um borg-
arskipulag
Einar Eiríksson
» Skipulags-
valdið í
Vatnsmýrinni
er í höndum
borgarstjórnar
Reykjavíkur...
Höfundur er kaupmaður í Reykjavík
og í stjórn Samtaka um betri byggð.
Í KASTLJÓSI sl. föstudags-
kvöld var hægt að sjá og heyra
Ómar R. Valdimarsson mæla með
Bjallavirkjun. Ómar sagði eitt-
hvað á þá leið að það væri ekki
hægt að líta á virkjunina öðruvísi
en atvinnuskapandi ef menn
væru … svangir. Það kom and-
artaksþögn áður en hann laumaði
þessu orði út úr sér. Þess vegna
langar mig nú með þessu litla
bréfi að bjóða Ómari R. Valdi-
marssyni í mat. Þar getur hann
fengið að éta þessi orð ofan í sig.
Elísabet Kristín Jökulsdóttir
Matarboð handa
Ómari R.
Höfundur er rithöfundur.